Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1990, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 1990.
Utlönd
Vestrænar konur
f lúðu frá Kúvæt
- dulbjuggu sig sem arabískar konur
Tíu ára gömul bandarísk telpa,
Penelope Nabokov, er nú í faömi fjöl-
skyldu sinnar á ný í París eftir að
hafa veriö lokuð inni í írak í níu
daga. Breska flugvélin, sem telpan
ferðaðist í á leið til Indlands, haföi
millilent í Kúvætborg, klukkustund
áður en írakar gerðu innrás 2. ágúst
síðastliðinn. Var telpan á leið til
móður sinnar sem var við rannsókn-
arstörf á Indlandi.
Farþegar flugvélarinnar voru flutt-
ir til Bagdad og var Penelope afhent
bandaríska sendiráðinu þar. Hún var
svo meðal ellefu Bandaríkjamanna
sem fengu að fara frá írak til Jórdan-
íu. Þaðan flaug hún svo til Parísar í
gær.
Með svarta blæju fyrir andlitinu
og í arabískum klæðum tókst
sænskri konu að flýja frá Kúvæt í
gær til Saudi-Arabíu ásamt unnusta
sínum sem er Kúvætmaður. Þau
ferðuðust í tíu bíla lest gegnum eyði-
mörkina fram hjá varðstöðvum ír-
askra hermanna. Flóttinn tók sólar-
hring og óku bílarnir um þúsund
kílómetra gegnum eyðimörkina. Var
stundum ekið meðfram írösku
landamærunum til aö finna leið
framhjá varðstöðvunum. Að sögn
konunnar, Önnu Rasmusson, voru
þau stöðvuð einu sinni er þau óku
eftir vegi og þeim snúið við af írösk-
um hermönnum í herbílum. Kvaðst
Anna hafa dulið andlitið bak við
svarta blæju. Alhr aðrir í bílnum
hefðu verið Kúvætbúar og hefði her-
mennina ekkert grunað. Eftir að hafa
verið snúið við keyrðu bílarnir í vest-
urátt í eyðimerkursandinum. Auö-
veldlega gekk að fá vegabréfsáritun
við landamæri Saudi-Arabíu.
Anna sagði að írakar hefðu látið
greipar sópa um Kúvæt. Sagði hún
fjölda langferðabifreiöa með írökum
koma til Kúvæt og hefðu þeir fengið
leyfi Saddams Hussein íraksforseta
til að taka það sem þeir vildu. „Ef
þið finnið hús sem er tómt þá takið
það,“ er Hussein sagður hafa sagt í
sjónvarpi um daginn. Anna sagði að
teknar væru sjónvarpsmyndir af
írökunum í Kúvæt og þeir sagöir
vera Kúvætbúar að hylla forsetann.
Tvær aörar konur, bresk og banda-
rísk, kváðust hafa dulbúið sig sem
arabískar konur og flúið frá Kúvæt
til Saudi-Arabíu. Þeim var snúið við
þrisvar áður en þær fengu að fara.
Áætlað er að fjörutíu Bretum hafi
tekist að flýja frá Kúvæt til Saudi-
Arabíu frá því að írakar lýstu því
yfir á fiumtudaginn að landamærin
væru lokuð útlendingum.
Reuter og TT
Penelope Nabokov, tíu ára gömul, ásamt foreldrum sinum í París. Hún var
ein síns lið í flugvél sem millilenti í Kúvæt klukkustundu áður en írakar
gerðu innrás. írakar leyfðu henni að fara til Jórdaníu ásamt ellefu öðrum
Bandaríkjamönnum. Simamynd Reuter
Kúvæskar konur gráta föðurland sitt en rúm vika er síðan írakar réðust inn í Kúvæt.
Simamynd Reuter
Bandaríkin segjast munu stöðva olíuílutninga íraka:
Vaxandi spenna
- Hussein segir að Vesturlandabúar rriegi fara
Bandarísk stjórnvöld sögðust í gær
munu hindra alla olíuflutninga íraka
reyni þeir að flytja olíu sína sjóleiðis.
írakar brugöust harkalega við og
segja að slíkt myndi jafngilda hafn-
banni og árás.
Bush Bandaríkjaforseti sagði á
fundi meö blaðamönnum að aðgeröir
vestrænna skipa á Persaflóa miðuðu
að því aö tryggja að viðskiptabanni
Sameinuðu þjóðanna yrði framfylgt.
Aðspurður hvort það ætti einnig viö
um matarsendingar svaraði forset-
inn; „Hvað sem er, hvað sem er.“
Baker, bandaríski utanríkisráðher-
rann, sagöi að útlagastjóm Kúvæt
hefði formlega farið fram á það að
efnahagsþvingunum Sameinuðu
þjóðanna yrði framfylgt og að það
heföi skapað lagalegan grundvöll
fyrir því að herskip „kæmu í veg
fyrir olíu- og aðra viðskiptaflutninga
íraka". Hann kvað bandarísk her-
skip reiðubúin til slíks.
Hussein að draga í land?
Forseti íraks, Saddam Hussein,
sagðist í gær reiðubúinn að endur-
skoða innlimum Kúvæt ef, á sama
tíma og framtíð landsins verður
rædd, verði önnur vandamál í Mið-
austurlöndum, s.s. hernám ísraela á
vesturbakkanum og Gaza-svæðinu
og íhlutan Sýrlendinga í Líbanon,
einnig tekin fyrir. Bandaríska for-
setaembættið vísaði þessari hug-
mynd íraska forsetans þegar í stað á
bug og ísraelsk stjórnvöld sögðu
hana „áróðursbragð".
Þá tilkynnti forsetinn einnig að öll-
um Vesturlandabúum yrði heimilað
að yfirgefa Kúvæt en þúsundir
manna, þar af íslendingar, hafa verið
lokaðir inni í landinu frá því írak
réðist inn í það í byrjun mánaðarins.
Utanríkisráðherra íraks segir að
fólkið sé hólpið og að því líði vel.
Mörgum sem reyndu að fara yfir
landamærin var snúið til baka þó að
nokkrir hafi komist yfir.
í ávarpi til þjóðar sinnar um helg-
ina lagði Hussein að henni að herða
sultarólina næsta árið, kaupa ekki
fatnað og spara við sig á öllum svið-
um. Heimildarmenn segja að írakar
eigi nægar matarbirgðir til að endast
þeim nokkra mánuði.
Vesturlandabúi skotinn
til bana
Bresk yfirvöld hafa varað Breta í
Kúvæt við því að reyna að flýja til
Saudi-Arabíu í kjölfar þess að bresk-
ur ríkisborgari var skotinn til bana
þegar hann reyndi að flýja. Breska
utanríkisráðuneytiö hefur fordæmt
skotárásina en vildi ekki svara því
hvort hún kynni að verða kveikjan
að hernaðarlegum aðgeröum Breta.
Talið er að um þrjú þúsund Bretar
séu í Kúvæt.
Þúsundir bandarískra og egypskra
hermanna eru í varnarstöðu i Saudi-
Arabíu. Um fimmtíu bandarísk,
bresk, frönsk, áströlsk og kanadísk
skip eru á leið til Persaflóa. Þá hefur
meirihluti arabaríkja samþykkt aö
senda herlið arabaríkja til Saudi-
Arabíu.
Símamynd Reuter
Enn óvíst
um fararleyf i
Sænska utanríkisráðuneytið hafði
snemma í morgun ekki fengið neina
formlega staðfestingu frá íröskum
yfirvöldum um að útlendingum væri
heimilt að yfirgefa Kúvæt. Saddam
Hussein íraksforseti sagði meðal
annars í sjónvarpsávarpi í gær að
allir útlendingar fengju nú að fara
frá Kúvæt.
Samkvæmt blaðafulltrúa sænska
utanríkisráðuneytisins kom það ekki
fram í ávarpinu hvort Hussein hefði
aðeins átt við þá útlendu stjórnarer-
indreka sem írösk yfirvöld vilja að
fari úr sendiráðunum í Kúvæt. Það
var heldur ekki tilgreint í ávarpinu
hvaðan útlendingarnir fengju að
fara, Kúvæt eða Stór-írak. írösk yfir-
völd innlimuðu Kúvæt í írak í síð-
ustu viku. TT
Nokkrir Bandarikjamenn komust frá Kúvæt um helgina. Hér má sjá einn
þeirra stíga úr langferðabíl í Jórdaníu. Símamynd Reuter
Cl A graf i undan
stjórn Husseins
Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið
bandarísku leyniþjónustunni, CIA,
fyrirskipun um að grafa undan
stjórn Saddam Husseins forseta með
öllum tiltækum ráðum nema laun-
morði. Þessu skýrir bandaríska
tímaritið Newsweek frá í gær.
Tímaritið greinir ekki frá heimild-
um en segir aö helsta takmark
bandaríska flotans í Peraflóa sé aö
stööva útbreiðslustefnu Husseins. En
undir niðri er takmarkið að koma
Hussein frá völdum.
Á fóstudag skýrði Los Angeles
Time frá því að ónafngreindir emb-
ættismenn innan stjórnar Bush hafi
sagt að óopinber stefna Bandaríkj-
anna sé að tryggja aö Hussein verði
steypt af stóli.
Reuter