Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1990, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 1990.
13
Lesendur
Stuðmenn greiði vaskinn
Anna hringdi:
Mér fmnst ég veröi að leggja inn
nokkur orð vegna þeirra frétta að
hljómsveitin Stuðmenn þurfi ekki
að greiða virðisaukaskatt vegna
skemmtunarinnar í Húnvaveri um
verslunarmannahelgina. - Allar
aðrar hljómsveitir virðast þurfa að
hlíta þessum ákvæðum - nema
Stuömenn.
Auðvitað var dansað í Húnaveri
eins og annars staðar þar sem
danshljómsveitir leika fyrir áheyr-
endur. Maður gæti freistast til að
hugsa ýmislegt um samband þeirra
sýslumannsins þarna fyrir norðan
og Stuðmanna þegar svona linlega
er tekið á málum þeirra síðar-
nefndu.
Eru Stuðmenn kannski með ein-
hverja sérsamninga við yfirvöld
nyrðra? Og hvers eiga aðrir að
gjalda sem verða að virða vaskinn
hvað sem á dynur? Mér finnst tími
Stuðmenn í essinu sínu - með eða án virðisaukaskatts.
til kominn að fólk, hvort sem um sitji við sama borð í þessu landi. - ur einhvers staðar. Á það kannski
er að ræða einstaklinga eða hópa, Með lögum skal land byggja, stend- ekki við í öllum tilfellum?
H vað dvelur orminn langa?
Guðmundur Gíslason hringdi:
Skyldi Steingrímur Hermannsson
forsætisráöherra og sjálfskipaður
sáttasemjari í alheimsmálum ekki
vera farinn til að hitta Hussein, for-
seta íraks, til aö bjarga heimsmálun-
um? - Kannski fengi hann vin sinn,
Arafat, með sér!
Ekki virðist forsætisráðherrann
hafa áhyggjur af gangi mála hér á
landi, a.m.k. hefur hann verið undar-
lega lítið í íslenskum fjölmiðlum síð-
ustu sex til sjö vikurnar, á meðan
þjóðin stendur á öndinni yfir útliti
efnahagsmála þjóðarinnar, sem
komin eru í mikið öngþveiti - ein-
göngu vegna verka ríkisstjómarinn-
ar.
Er lítt skiljanleg þessi hlédrægni
forsætisráðherra. Nema hann telji
það happasælast að láta sem minnst
á sér bera og láta aðilum vinnumark-
aðarins eftir björgunaraðgerðir?
G.Á. Pétursson hf
Ilátfuvéla
marltaðuilnn
Nútiðinni Faxatem 14. sini 68 55 80
il
Ásmundur skrifar:
Mér finnst að fréttaflutningur.hjá
Sjónvarpinu (RÚV) hafi dalað að und-
anfomu, og það verulega. Reyndar
finnst mér fréttaflutningur RÚV yfir-
leitt vera á undanhaldi eftir tilkomu
hinna nýju stöðva, bæði útvarps-
stöðvanna og Stöðvar 2. Ég tek t.d.
eftir því að í hádegi er ekki eins mik-
ill áhugi að hlusta á fréttir Ríkisút-
varpsins eftir aö menn geta hlustað á
aðalfréttir Bylgjunnar kl. 12 á hádegi.
Siðan er það kvöldið. Þá er bæði
hægt að hiusta á fréttir aftur á Bylgj-
unni kl. 17 og svo aftur kl. 19 á RÚV.
Þær fréttir held ég að flestir hiusti
nú á af gömlum vana. Þær fréttir eru
raunar þær bestu hjá Ríkisútvarpinu.
En þegar svo kemur að sjónvarps-
fréttum tek ég fréttir Stöðvar 2 fram
yfir þær hjá Sjónvarpinu (eða Stöð 1
eins og farið er að skilgreina þá stöð).
Fréttir Stöðvar 2 eru miklu líflegri
og fjölbreyttari að mínu mati. Það
eru áreiðanlega ekki margir nú orðið
sem nenna að hlusta og horfa á
tvennar sjónvarpsfréttir, kl. 19:19 eða
19:30 á Stöð 2, og svo aftur kl. 20 í
Sjónvarpinu. Þó eru alltaf til slíkir
fréttahákar að þeir verði að ná öllum
fréttum. Veðurfréttir hjá Stöð 2
finnast mér líka mun betri en á Stöö
1.
Svo eru það 11-fréttir Sjónvarpsins.
Þær eru eiginlega hvorki fugl né fisk-
ur eins og þær eru núna. Þetta er
kannski ein frétt eða svo sem kemur
ný en annars er þetta endurtekning
úr fréttum kl. 20. Að kvöldi miðviku-
daginn 8. ágúst bjóst ég við að nú
myndu koma glænýjar fréttir með
myndum frá atburðunum við Kuwait
og írak. Ekkert slíkt gerðist og ég
varð fyrir miklum vonbrigðum með
það. - Ég tel að Sjónvarpið og raunar
Ríkisútvarpið ætti að endurskoöa
fréttatíma sína enn að nýju.
Það gæti hætt hádegisfréttum að
fullu, haldiö fréttatímanum kl. 19
eins og hann er og síðan komið með
nýjan fréttatíma í sjónvarpi, t.d. kl.
22 eða 23 (11-fréttir) og verið þá með
aðalfréttir kvöldsins þegar hægt er
að spanna alla heimsbyggðina eftir
atburði dagsins. Þetta gæti þess
vegna verið klukkutíma þáttur,
ásamt fréttaskýringum og viðtölum
við innlenda sérfræðinga eða erlenda
eftir atvikum. - Þetta er sett fram
hér af velvilja við Ríkisútvarpið en
ekki sem gagnrýnin eintóm.
Illviðráðanlegt illgresi
Ragnar skrifar:
Ég hef lengi haft áhuga á að fá ráð-
leggingar um hvernig megi ráða nið-
urlögum ákveðinnar tegundar ill-
gresis sem vex hér á landi við ákveð-
in skilyrði þar sem jarðvegur er
malarkenndur og gljúpur.
í kirkjugarði einum suður með sjó
vex þessi tegund t.d. vel og veldur
mörgum erfiðleikum við að ná burt
eða uppræta að fullu. Nánast er sama
hve djúpt er stungið til að komast
fyrir ræturnar, það er eins og þær
hggi þvert og endilangt eftir jarðveg-
inum og mjög erfitt að ná hverri
plöntu fyrir sig þannig að gagn sé að.
Ég er ekki viss um hvað þetta ill-
gresi heitir og því tók ég með mér
sýnishorn ef þiö gætuð gefið mér ein-
hverjar frekari upplýsingar um teg-
undina og þá um leið hvemig hægt
er að komast fyrir eða uppræta þessa
tegund illgresis sem er mörgum ill-
viðráöanlegt. - Meö fyrirfram þökk
fyrir aðstoðina.
Eftir bestu heimildum lesendasíðu
DV er umrædd tegund kölluð elfting
(nánar tiltekiö klóelfting) og er al-
geng tegund villigrass hér á landi.
Hún hefur djúpar rætur og „skríð-
ur“ mikið í jarðveginum. - Hana er
erfitt að uppræta að fullu nema með
því að skipta hreinlega um jarðveg
eða moldina sem hún hefur hreiðrað
um sig í. Ennfremur má vísa á efnið
caseron sem fæst t.d. hjá Sölufélagi
garðyrkjumanna. Þetta efni eyðir
„öllu grænu“ og verður því að um-
gangast með gát. Fyrri ráðleggingin
er því líklega haldbetri.
Hér má sjá illgresistegundina elft-
ingu sem bréfritari sendi með bréfi
sínu.
Thailand Egyptaland
15 dagar Hópferð
Kr. 88.700,- 26. ágúst
íslenskir
fararstjórar
Gerið sjáif verðsamanburð
==■ SOLRRFLUC
VesturgötuJ2. SjmatJ2n066 og 15331
■■ ' ' ' ' ' *’■ \ “
t!5L * r——-—i ——— —7
w e i:Q0 ;
I
* : -e:. ■ - I ss I — I — -=
aiff i
ELTA-ESC VCR ^025 HQ MYI0BANDSTAKI
Á ÓTRÚLEGA LÁGU VERÐI
Vegna sérstakra samninga við ELTA í Vestur-Þýskalandi getum við stoltir boðið takmarkað magn ELTA-ESC 8025
HQ myndbandstæki „á ótrúlega lágu verði".
• Þráðlaus fjarstýring
• 14 daga upptökuminni
• HQ hágæða mynd (High Quality VHS)
• Hæg-spilun (Slow motion)
• Sjálfvirk endurspilun
• Kyrrmynd
• Mjög hljóðlátt
VERÐ AÐEINS
sl9r*
VISA
A
BLÁFELL
Faxafeni 12, sími 670420