Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1990, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR13. ÁGÚST 1990. 15 Tilkomumesti stjórnmála- maður okkar tíma Þótt allir séu nú sammála um, aö Margrét Thatcher sé tilkomu- mesti stjórnmálamaöur okkar tíma, fylgdu henni hrakspár í upp- hafi. Ég man enn, þegar helsti hug- myndafræðingur Sjálfstæöis- flokksins hristi höfuðið yfir kafii- bolla í maíbyrjun 1979 og spáöi því, aö Bretar færu enn lengra til vinstri eftir stutta og misheppnaða stjórnartíð hennar. í nóvember 1980 sá ég mig knúinn til þess aö mótmæla opinberlega þætti, sem ríkissjónvarpið sýndi um „hrun Bretaveldis", en þennan þátt höföu nokkrir róttæklingar í Cambridge-háskóla gert. Skömmu eftir aö ég hafði haldið til náms í Bretlandi 1981, bað einn yfirmaður ágæts blaðs, sem ég skrifaði þá fyr- ir, mig um að fara varlega í dómum um Thatcher: Ekki væri að vita, hvort henni tækist ætlunarverk sitt. Því varð mér hugsað til þessara spámanna liðinna ára, að mér barst fyrir skömmu fróðlegt greinasafn, Thatcherism, sem Blackwell í Ox- ford gefur út, en ritstjóri þess er hagfræðingurinn Robert Skidel- sky, prófessor í Warwick-háskóla. Þar reyna nokkrir breskir fræði- menn, sumir hlynntir Thatcher, aðrir andvígir henni, að skýra boð- skap og gildi járnfrúarinnar, sem Kremlverjar kalla svo. Laus við sektarkennd Eins og við var að búast, var ein skemmtilegasta greinin í safniou eftir Kenneth Minogue, prófessor í Lundúna-háskóla, en hann kom til íslands síðastliðið vor og hélt erindi á vegum Félagsvísindadeildar um stefnu Thatcher. Minogue telur, að Thatcher sé ólík flestum öðrum vestrænum stjónmálamönnum í því, að hún er laus við sektar-1 KjaUazinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson lektor í stjórnmálafræði kennd. Hún leggur áherslu á ábyrgð einstaklingsins á örlögum sínum. Með þessu ógnar hún öllum óánægjuiðnaðinum. Hún ögrar þeim sjálfskipuðu talsmönnum ýmissa minnihlutahópa, sem gera beinlínis út á sektarkennd áhyggjulausra góðborgara. Hvað eiga allir þeir, sem lifa góðu lífi á svonefndri þróunaraðstoð, að gera, eftir að upp kemst, að valið er oftast um þróun án aðstoðar (Hong Kong) og aðstoð án þróunar (Tansanía)? Það er ekki okkur að kenna, að hungursneyð er í Eþíó- píu. Það er stjórnvöldum í landinu að kenna. Hvað eiga allir þeir, sem sitja inni á palisanderþiljuðum skrifstofum verkalýðsfélaga og ráðstafa hinum digru sjóðum þeirra, að gera, eftir að upp kemst, aö lítið sem ekkert samband er á milli starfs þeirra og raunveru- legra kjarabóta? Hayek hafði rétt fyrir sér Frank Hahn, prófessor í Cam- bridge-háskóla, selur fróðlega grein í sumblið. Hahn getur ekki leynt óbeit sinni á Thatcher, enda hefur Cambridge-háskóh verið helsta vígi hrokafullra keynesverja síðustu fimmtíu árin. En hann við- urkennir tvennt. Annað er það, aö helsti lærifaðir Thatcher, Friðrik von Hayek, hafi haft rétt fyrir sér, þegar hann hélt því fram í Leiðinni til ánauöar, að frelsi og lýðræði gætu aðeins þrifist við frjálst hag- kerfi, en hlytu að hverfa í mið- stýrðu skipulagi. Hitt er, að dreifmg þekkingar krefjist dreifingar vadds, eins og Hayek hafi líka haldið fram: Fólk úti í atvinnulífinu búi yfir miklu meiri þekkingu en safna megi sam- an inni á opinberum skrifstofum. Þótt Hahn viðurkenni þessar tvær fræðilegu undirstöður Thatcher, telur hann upp ýmis mál, sem ekki megi leysa með markaðsviðskipt- um. Eitt er fiskveiöar. En hér hefur hann rangt fyrir sér. Ef eignarréttur er skilgreindur á varanlegum og seljanlegum afla- kvótum, þá má sýna fram á, að full hagkvæmni getur náðst. Rík- inu er um að kenna, ef þetta gerist ekki, því að þá hefur þaö vanrækt þá skyldu sína að skilgreina og veija eignarréttinn. Þversagnir í boðskap Thatcher í framlagi sínu vekur David Mar- quand, prófessor í stjórnmálum í Salford-háskóla, athygli á nokkr- um þversögnum í stefnu og störf- um Thatcher. Ein er sú, að frú Thatcher er hlynnt frjálsum mark- aði og um leið andvíg sterku ríkis- valdi. Eigi aö síður beitir hún ríkis- valdinu til þess að koma fram um- bótum, berja niður verkalýðsfélög, leggja niður sveitarfélög undir stjórn Verkamannaflokksins, halda uppi aga í skólum, sem rót- tæklingar hafa lengi ráðið, og svo framvegis. Önnur þversögn og skyld þessari er, aö frú Thatcher talar oft eins og frjálshyggjumaður. En ólíkt frjálshyggjumönnum er frúin fremur íhaldssöm í siöferðilegum efnum. Hún vill efla fornar dygðir. Ég hygg, að nokkur sannleiks- kjarni sé í ábendingum Mar- quands. En þversagnirnar má leysa.' Thatcher er íhaldssamur frjáls- hyggjumaður: Hún vill sterkt ríkis- vald en takmarkað. Hún telur að sterkt siðferðilegt aðhald fari ekki aöeins saman við frelsi einstakling- anna, heldur sé því beinlínis nauð- synlegt. Ég ætti að vera sammála henni, því að ég skrifaði heila dokt- orsritgerð til þess aö rökstyðja þetta! Hannes Hólmsteinn Gissurarson Margrét Thatcher torsætisráðherra Bretlands. . .ólik flestum öðrum vestrænum stjórnmálamönnum í þvi, að hún er laus við sektarkennd," segir greinarhöfundur meðal annars um ráðherrann. „Hún leggur áherslu á ábyrgð einstakl- ingsins á örlögum sínum. Með þessu ógnar hún öllum óánægjuiðnaðinum.“ Því miður - enn búa ein- stæðir foreldrar við léleg kjör Fréttaljós DV föstudaginn 3. ágúst síðastliöinn hefur vakið undrun fólks og efasemdir. Annað- hvort hefur þeim sem þekkja best til kjara einstæðra foreldra yfirsést hrapallega og ekki komið auga á hve ábatasamt er að vera einstæð- ur með barn eða eitthvað hefur far- ið úrskeiðis í útreikningi blaða- manns. Barneignir í ábataskyni? Ef blaðamaðurinn er tekinn al- varlega má ætla að einhleypt fólk fari að velta því fyrir sér í fullri alvöru hvort ekki sé rétt fara að stunda í barneignir í ágóðaskyni. Sé það rétt að einstætt foreldri með meðaltekjur beri 80 þúsund krónum meira úr býtum á ári en hjón með helmingi hærri tekjur hlýtur sú hugsun að hvarfla að ein- hveijum. Galhnn er hins vegar sá að niðurstaða blaðamannsins er í engum takt við raunveruleikann. Forsendurnar standast ekki Blaðamaðurinn gefur sér for- sendur sem standast ekki. Hann notar upplýsingar úr fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar fyrir 1. ársfjórðung 1990, útg. júlí 1990, án KjaJIarinn Anna Ólafsdóttir Björnsson þingkona Kvennalistans í fréttabréflnu kemur fram að meðalmánaðarlaun, þ.e. heUdar- laun með yfirvinnu fyrir fuUt starf, á 1. ársfjórðungi 1990 séu 93.589 krónur. Þetta eru meðallaun eftir- talinna stétta: verkafólks, iðnaðar- manna, afgreiðslufólks og skrif- stofufólks. Kjararannsóknarnefnd skiptir þessum stéttum eftir kyni, nema iðnaðarmönnum sem eru að stærstum hluta karlar, skv. skil- greiningu á bls. 13 í fréttabréfinu. Þá kemur í ljós að meðallaun kvenna á umræddu tímabili eru mun lægri en meðallaun karla. Kvennastéttirnar eru með 75.651 krónu í meðallaun en ekki liðlega 93 þúsund krónur eins og blaða- maðurinn taidi. Karlastéttirnar voru hins vegar með 109.845 krónur í meðallaun. Þarna skakkar liðlega 34 þúsund krónum eftir kynjum. „Fjöldi fólks trúir því 1 alvöru að ein stæðar mæður lifl lúxuslífi á kostnað samfélagsins. Staðreyndirnar sýna annað og þær verður að fara rétt með.“ þess að gefa því gaum hvort upplýs- Hverjir eru einstæðir ingarnar eiga við þann hóp sem foreldrar? - Konur! hann er að lýsa. Þessi vinnubrögð gefa mjög ranga mynd af staðreyndum vegna þess að langflestir einstæðir for- eldrar eru konur, ekki karlar! Kon- ur voru 93,4% einstæðra foreldra þann 1. desember sl„ karlar 6,6.% (Hagtíðindi. Desember 1989). Þess vegna er út í hött að miða við með- allaun beggja kynja, heldur ættu meðallaun kvenna að vega um 93% í dæmi blaðamannsins og laun karla um 7%. Á þann hátt verða meðallaunin um 78 þúsund krónur en ekki 93 þúsund krónur. Hálf er ég hrædd um að blaðamaðurinn þurfi að reikna dæmið sitt upp á nýtt og kynna niðurstöður sem eru nær raunveruleikanum en þær sem bornar voru á borð þann 3. ágúst síðastliðinn. Ekki öll sagan sögð Enn er ýmislegt sem taka þyrfti inn í þetta dæmi. Mjög hæpið er að gera ráð fyrir að einstæðir for- eldrar geti unnið eins mikla yfir- vinnu og hjón. Yfirvinna kostar meiri barnagæslu og þar með auk- in útgjöld. Það er ekki tekið með í þessa útreikninga. Ef aðeins er miðað við dagvinnu- laun á mánuði fyrsta ársfjórðung 1990 kemur í ljós áð þá voru meðal- dagvinnulaun kvenna í fyrrgreind- um starfsgreinum u.þ.b. 60 þúsund krónur en dagvinnulaun karla um 83 þúsund krónur, skv. fréttabréfi kjararannsóknarnefndar. Þessar skekkjur eru meira en einfalt reikningsdæmi. Þær eru skoðanamyndandi. Fjöldi fólks trú- ir því í alvöru að einstæðar mæður lifi lúxuslífi á kostnað samfélags- ins. Staöreyndirnar sýna annað og þær verður að fara rétt með. ‘ Venjulegt íslenskt barnafólk er ekkert of sælt af sínum kjörum þótt fyrirvinnurnar séu tvær. En ranghugmyndir um kjör einstæðra foreldra bæta þau ekki, heldur öflug launabarátta og hana þarf að endurreisa í íslensku samfélagi. Mannsæmandi laun fyrir dagvinnu minnka þörf á bótum og þar með útgjöld ríkis og sveitarfélaga. Nauðsyn er á að snúa sér að þeirri baráttu, ekki síst á þeim tímum þegar fijálsir kjarsamningar eru brotnir með lögum, og vinna að bættum kjörum allra. Anna Ólafsdóttir Björnsson )

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.