Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1990, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1990, Síða 2
18 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1990. Ef þú VÍIt Út að borða VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI A. Hansen Vesturgötu 4. Hf.. sími .651 693. American Style Skipholti 70. sími 686838. Argentína Barónsstígur 1 1 a. sími 19555. Arnarhóll Hverfisgötu 8-10, sími 18833. Asía Laugavegi 10. sími 626210 Askur Suðurlandsbraut 4. sími 38550 Suðurlandsbraut 14. sími 81344, Á alþingi Þönglabakka 6 (Mjóddin). s. 79911. Árberg Ármúla 21, sími 686022. Bandidos Hverfisgötu 56. sími 24 630 Bæjarins besti fiskur Naustin, sími 1 8484 Café Hressó Austurstræti 18. sími 14353. Duus hús v/.Fischersund, sími 14446. Eldvagninn Laugavegi 73, sími 622631. Fimman Hafnarstræti 5. sími 11212. Fjörukráin Strandgötu 55. sími 651 21 3. Fógetinn, Aðalstræti. 1 0. sími 16323. Gaukur á Stöng Tryggvagötu 22. sími 11556. Gullni haninn Laugavegi 178. sími 34780. Hallargarðurinn Húsi verslunarinnar. sími 30400. Hard Rock Café Kringlunni. sími 689888. Hjá Kim Ármúla 34. sími 31 381. Hornið Hafnarstræti 1 5. sími 1 3340. Hótel Borg Pósthússtræti 11, sími 1 1 440. Hótel Holt Bergstaðastræti 37. sími 25700. Hótel ísland v/Ármúla. sími 6871 11 . Hótel Lind Rauðarárstíg 18, sími 623350. Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflugvelli. sími 22322. Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg. sími 25224. Hótel Saga Grillið. sími 25033. Súlnasalur. sími 20221. Skrúður, sími 29900. Hrafninn, Skipholti 37. sími 685670. Ítalía Laugavegi 1 1, sími 24630. Jónatan Livingston mávur. Tryggvagötu 4-6. sími 15520 Kabarett, Matkrá Austurstræti 4. sími 10292. Kaffivagninn Grandagarði, sími 1 5932. Kínahofið Nýbýlavegi 20. sími 45022. Kína-Húsið Lækjargötu 8. sími 11014. Kringlukráin Kringlunni 4. sími 680878. Krókurinn Nýbýlavegi 26. sími 46080. Lauga-ás, Suöurlandsbraut 2, sími 689509. Lækjarbrekka Bankastræti 2. sími 1 4430. Madonna Rauðarárstíg 27-29. sími 621 988 Mamma Rósa Hamraborg 11. sími 42166 Mandaríninn Tryggvagötu 26. sími 23950. Marinós pizza Laugavegi 28, sími 625540. Mongolian Barbecue Grensásvegi 7. sími 688311 Myllan, kaffihús Kringlunni, sími 689040. Naustið Vesturgötu 6 8. sími 17759. Ópera Lækjargötu 2. sími 29499. Pétursklaustur Laugavegi 73. sími 23433. Pizza Hut Hótel Esju, sími 680809 Pizzahúsið Grensásvegi 10. sími 39933. Pizzaramí Hringbraut 119, sími 21066. Pizzusmiðjan Smiðjuvegi 14 D. sími 72177 Potturinn og pannan Brautarholti 22. sími 1 1 690. Punktur og pasta Amtmannsstíg 1. sími 1 3303. Rauða Ijónið Eiðistorgi, sími 611414. Rauði sófinn Laugavegi 126, sími 16566. 612095 Samlokur og fiskur Hafnarstræti 5. sími 18484. Setrið Sigtúni 38, sími 689000. Siam, Skólavöróurstíg 22. sími 28208. Singapore Reykjavíkurvegi 68. sími 54999. Sjanghæ Laugavegi 28. sími 16513. Staupasteinn Smiðjuvegi 14 D. sími 607347 Svarta pannan Hafnarstræti 17. sími 16480. Sælkerinn Austurstræti 22. sími 11633. Taj Mahal, Tandori og Sushi bar. Laugavegi 34a, sími 1 3088. Tveir vinir og annar í fríi. Laugavegi 45, sími 21255. Veitingahúsið 22 Laugavegi 22, sími 13628. Við Tiörnina Templarasundi 3, sími 18666. Viva Strætó Lækjagötu 2. Það er ekki fyrr en í næstu heimsókn að bakslagið kemur. Þá opnar maður aftur seðilinn og sjá: Hann er nákvæmlega eins og síðast. Og í þriðja skiptið er hann ennþá eins. DV-mynd JAK Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús: Bæjarins minnsti veitingastaóur Heimsóttur staður með hrokafullu nafni Þegar veitingastofa heitir Bæjar- ins bezti ílskur er verið að búa til væntingar, sem geta verið gróöa- vænlegar á líðandi stund, en hljóta að hefna sín, ef staðurinn stendur ekki undir nafni. Því er eins gott, að reynt sé að standa við stóru orð- in, ef eigendur treysta sér til að nota nafn á borð við þetta. Rúmlega 20 sæti Fyrstu hughrifin á staðnum eru mjög jákvæð. Þetta er agnarlítil matstofa, tekur aðeins rúmlega 20 manns í sæti. Ég man í bili ekki eftir eins lítilli matstofu hér á landi. Til er alþjóðlegt lögmál um gæði veitingahúsa, sem segir, að þau séu því betri sem stólarnir séu færri. Þar á ofan er sagt, aö fari stólamir yfir 36, komist staðurinn ekki í fremstu röð veitingahúsa, því að kokkurinn hafi þá ekki lengur yfir- sýn. Og Bæjarins bezti fiskur er örugglega langt innan við þessi mörk. Þessi htla stofa er við Naustin, litla götu milli Hafnarstrætis og Tryggvagötu, á ská andspænis Gauki á Stöng. Hún er innréttuð á mjög einfaldan hátt í ljósum stíl margra erlendra sjávarréttahúsa. Veggir og loft eru hvít og ljós fura er í veggklæðingu. Naktar ljósaper- ur hanga í loftinu. Á veggjum er stórt landhelgiskort, fiskiplakat, net, humargildra og fisklíkön. Til að tryggja, að maður viti strax, að þetta sé fiskréttahús, er stórt fiska- búr beint innan við útidymar. Eina mótvægið við kuldalegt útlit staöarins felst í skrautlegum gluggatjöldum, sem hengd em upp á óvenjulegan hátt. Þau eru í stíl við stórkarlalegt auglýsingaskilti staðarins fyrir dyrum úti. Gestir sitja á þægilegum stólum í eins hefðbundnum stíl og hægt er að hafa þá. Matast er við tréborð meö hvítum dúkum og pappírs- þurrkum. Allt er afar einfalt. Matseðillinnvar alltaf eins Næstu hughrifm em líka jákvæð. Matseðilhnn kemur og er afar stuttur. Þar eru taldar upp tvær súputegundir dagsins, fimm fisk- réttir dagsins og tveir eftirréttir dagsins. Það er allt og sumt, fyrir utan vín og kaffi. Auðvitað hlýtur þetta að vera frábært hús, sem bara hefur stuttan seðil dagsins og eng- an fastaseðil. Það er ekki fyrr en í næstu heim- sókn, að bakslagið kemur. Þá opnar maður aftur seðilinn og sjá: Hann er nákvæmlega eins og síðast. Og í þriðja skiptið er hann ennþá eins. Þetta er sjálfur fastaseðilhnn, sem er eins í hádeginu og á kvöldin, viku eftir viku. Og það í fiskrétta- húsi. Ástæðan fyrir stutta seðlinum var alls ekki sú, að þetta væru fisk- tegundirnar í afla dagsins. Þetta var ekki dagur rauðsprettu, stein- bít$, heilagfiskis og skötusels. Þetta voru einfaldlega bara réttirnir fimm, sem kokkurinn hafði lært að elda. Svona getur himinninn hranið, þegar maður er búinn að ímynda sér alls konar dýrð eftir að hafa séð, hversu hátt er reitt til höggs í nafngift staðarins. Svo virðist, sem ekki sé gert ráð fyrir, að menn komi oftar en einu sinni í heimsókn. Þeg- ar ég sótti hann heim, vom gestir yfirleitt erlendir ferðamenn, sem sennilega er ekki reiknað með, að komi aftur. Þjónustan á staðnum er til fyrir- myndar. Hún er líkleg til að afla staðnum vinsælda, þægileg og vin- gjarnleg. Minna máh skiptir, þótt hún haldi fram, að hvítvínið Vero- nese, þolanlegt borðvín hússins, sé franskt. Eldað stuttaralega ogharkalega Fiskisúpa reyndist vera sítrónu- kryddað humarsoð með sveppum og tiltölulega safaríkum fiskbitum, nokkuð góð súpa og mjög heit. Karrísúpa var enn betri, mjög sterk og heit, með kjúklingabitum og hrísgrjónum. Með súpunni er þurrt brauð. í þriðja skiptið, sem ég kom, fékk ég smjör með brauðinu, en aðrir gestir ekki. Vonandi stafaði það ekki af því að kokkurinn bæri kennsl á skriffinn, heldur af því að honum þætti svo vænt um fasta- gesti. Reykt ýsa reyndist vera nokkuð góð, borin fram með vermicelh- pasta, bakaöri kartöflu og hrásal- ati. Bökuð kartafla var með öllum fiskréttum staðarins. Hrásalatið var líka hið sama, yfirleitt heldur aldurhnigið jöklasalat. Skötuselur var fremur safarikur, borinn fram með of miklu raspi og smjöri, mildri smjörsósu, jarðar- berjum og avocado. Þetta var skemmtilegt meðlæti. Fiskurinn sjálfur var líka góður, en rasphjúp- urinn var of harður. Steinbítur var líka fremur meyr, borinn fram með góðri sósu. Meg- inkryddið var fersk steinselja, en lítið var um hvítlauk, þótt réttur- inn héti „provencal“. Rauðspretta heilsteikt var hka safarík, en með alltof harðri og stökkri skorpu, greinilega elduð afar snöggt og harkalega. Með henni var afar góð smjörsósa. Yfirleitt var mildilega farið með eldunartíma í Bæjarins bezta fiski, en hastarlega með hitastigið. Ferskir ávextir í eftirrétt vom aðahega jarðarber, kiwi og melóna. Þetta var mjög frambærilegt. Lak- ari var eplakaka, kölluð heit, en borin fram nærri köld. Það var ein- faldlega hversdagslegur svamp- botn með smávægilegu eplalagi, ekki ætlaður til hitunar, þótt þeirri aðferð sé beitt í Bæjarins bezta fiski. Ég held, að hitun á kökum eigi ekki við nema grundvöhurinn sé annar, til dæmis raunveruleg eplabaka. Svampbotn hentar engan veginn th þessa brúks. Fiskabúrinni, dýragarðurúti Sama verö er í hádegi og á kvöld- in. Súpa kostaði 390 og 450 krónur, aðalréttir 940-1160 krónur, eftir- réttir 420 og 590. krónur. Þetta reiknast mér th, að sé miðlungs- verð að kvöldi tÚ og dýrt í hádeg- inu, þegar hægt er að fá betri fisk- máltíðir á mun lægra verði í lands- ins beztu veitingastofum. Risastórir gluggar snúa út að göt- unni. Þar innan við geta útlending- ar setið í hlýjunni og virt fyrir sér dauðadrukkna íslendinga bókstaf- lega veltast um götuna fyrir utan strax klukkan sjö að kvöldi í miðri viku. Ég hef aldrei skihð, hvers vegna fjölmennt lögreglulið borg- arinnar kemst upp með að afhenda gamla miðbæinn grenjandi fyhi- byttum th umráða um leið og skrif- stofum er lokað fyrir kvöldmat. Þetta er aðeins 200 metra frá sjálfri miðbæjarstöð lögreglunnar. Það er eitthvað bogið við þetta kerfi, nema það sé haft útlendingum til skemmtunar, svo að þeim líði eins og þeir séu í villidýradeild dýra- garðsins. í Bæjarins bezta fiski er fiskabúr- ið innan dyra, en dýragarðurinn fyrir utan. Sjálfur er staðurinn frambærilegur, en nokkuð dýr og hefði betur staðið undir öðru nafni: Bæjarins minnsti veitingastaður. Jónas Kristjánsson Þrir Frakkar hjá Úlfari Baldursgötu 14. sími 23939. Ölkjallarinn Pósthússtræti 1 7. sími 1 3344. Ölver v/Álfheima. sími 686220. AKUREYRI: Bautinn Hafnarstræti 92. sími 21818 Fiðiarinn. Skipagötu 14. sími 27100. Hlóðir Geislagötu 7. sími 22504 og 22600 Hótel KEA Hafnarstræti 87 89. sími 22200. Hótel Stefanía. Hafnarstræti 83-85. sími 26366 Laxdalshús Aöalstræti 11. sími 26680. Sjallinn Geislagötu 14. sími 22970. Smiðjan Kaupvangsstræti 3. sími 21818. Uppinn Ráöhústorgi 9. sími 24199 VESTMANNAEYJAR: Bjössabar Bárustíg 11. sími 12950. Muninn Vestmannabraut 28. sími 11422 Höfðinn/Við félagarnir Heiðarvegi 1. sími 12577. Skútinn Kirkjuvegi 21. sími 11420. KEFLAVÍK: Edinborg Hafnargötu 30. sími 12000. Glaumberg/Sjávargull Vesturbraut 17. sími 14040. Glóðin Hafnargötu 62. sími 11777. Flughótelið Hafnargötu 57, sími 1 5222. Ráin Hafnargata 19 sími 14601. SUÐURLAND: Gjáin Austurvegi 2. Selfossi. sími 22555. Hótei Selfoss Eyravegi 2. Selfossi. sími 22500 Hótel Örk, Nóagrill Breiöumörk 1. Hverag.. s. 34700. Inghóll Austurvegi 46. Self.. sími 21356. Skíðaskálinn, Hveradölum v/Suðurlandsveg. sími 98-34414. VEITINGAHÚS - ÁN VÍNS Arnargril! Arnarbakka 2. sími 77540. Á næstu grösum Laugavegi 26. sími 28410. Bigga-bar - pizza Tryggvagötu 18. sími 28060. Blásteinn Hraunbæ 102. sími 673311 Bleiki pardusinn Hjallahrauni 1 3. sími 652525. Brauðstofan Gleymmérei Nóatúni 17, sími 15355. Chick King Suðurveri. Stigahlíð 45 -47, s. 38890 Eikapíta Hverfisgötu 82.'sími 25522. Eidsmiðjan Bragagötu 38 A. sími 1 4248. Gafl-inn Dalshráuni 13. sími 54424. Gnoðagrill Gnoðavogi 44. sími 678555 Hér-inn Laugavegi 72. sími 19144. Höfðakaffi Vagnhöföa 10. sími 696075. Ingólfsbrunnur Aðalstræti 9. sími 1 3620. Jón bakan Nýbýlavegi 1 4. sími 4661 4 Kentucky Fried Chicken Hjallahrauni 1 5. sími 50828. Lauga-ás Laugarásvegi 1. sími 31620. Lúxus kaffi Skipholti 50b. sími 83410. Marinós pizza Njálsgötu 26. sími 2261 0. Mokka-Expresso-Kaffi Skólavörðustíg 3a. sími 21174 Múlakaffi v/Hallarmúla. sími 37737. Nespizza, Austurströnd 8, Austurströnd 8. sími 61 2030. Norræna húsið Hringbraut. sími 21 522. Næturgrillið heimsendingarþj., sími 77444. Óli prik Hamraborg 14. simi 40344. Pizzahúsið Öldugötu 29. sími 623833. Pizzaofninn Gerðubergi, sími 79011. Pizza snögg-sneið Skólavörðustíg 2. sími 1 3320 Gerðubergi, sími 7901 1 Pítan Skipholti 50 C. sími 6881 50. Selbitinn Eiðistorgi 13 15. sími 611 070. Smáréttir Lækjargötu 2. simi 13480. Smiðjukaffi Smiðjuvegi 14d. sími 72177. Sprengisandur Bústaöavegi 1 53. sími 33679. Sundakaffi Sundahöfn. sími 36320. Tíu dropar Laugavegi 27. sími 19380. Toppurinn Bíldshöfða 12. sími 672025. Uxinn Álfheimum 74, sími 685660. Veitingahöllin Húsi verslunarinnar. sími 30400. Vogakaffi Smiðjuvegi 50. sími 38533. Western Fried, Mosfellssveit v/Vesturlandsveg. sími 667373. Winny’s Laugavegi 116. sími 25171 AKURÉYRI: Crown Chicken Skipagötu 12. sími 21464. Keflavík: Langbest, pizzustaður Hafnargötu 62, sími 14777

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.