Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1990, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990.
5
Fréttir
Fjárlagagerð:
6 til 8 milljarða gat
á fjárlögum næsta árs
Miöað við óskir ráðherra um aukin
útgjöld til ráðuneyta sinna og fyrir-
séðar skattabreytingar um næstu
áramót vantar um 6 til 8 milljarða á
að endar náist saman á ríkisbú-
skapnum á næsta ári. Markmið
stjómarinnar hafa verið sú að hab-
inn á næsta ári verði um 1 prósent
af landsframleiðslu eða um 3 til 4
milljarðar. Til að ná þessu markmiði
þarf ríkisstjómin því að skera óska-
listana niður um sem nemur 3 til 4
milljörðum eða hækka skatta að öðr-
um kosti. Það er hins vegar enginn
vilji innan ríkisstjómarinnar fyrir
- stefntaðum3til4milliarðahalla
skattahækkunum enda verður geng-
ið til þingkosninga í vor.
Það má því búast við harðri baráttu
milli ráðherranna um hvar niður-
skurðurinn lendir. Einn stjórnarliða
orðaði það svo að allir ráðherrarnir
héldu fast um sitt en væru hins veg-
ar óvenju hugmyndaríkir um niður-
skurð í öðrum ráðuneytum.
Miðað við óbreytt skattalög verða
tekjur ríkissjóðs um 2 milljörðum
minni á næsta ári en í ár. Sú tekju-
lækkun stafar af afnámi virðisauka-
skatts á bókum og viðhaldi húsa og
niðurfellingar jöfnunargjalds auk
lækkunar vegna upptöku virðis-
aukaskatts sem nú kemur að fullu
inn. Reyndar em deildar meiningar
um afnám jöfnunargjalds á innflutn-
ing innan ríkisstjórnarinnar.
Sömu sögu er að segja um marg-
boðaðan skatt á fjármagnstekjur.
Þrátt fyrir að fyrsta yfirlýsing Ólafs
Ragnars Grímssonar sem fjármála-
ráðherra hafi verið sú að nú skyldu
fjármagnseigendur fá að greiða eðh-
legan hlut til samfélagsins er alls
ekki víst að honum takist að koma
þessum skatti á. •
Að undanfornu hefur Ólafur einnig
boðað húsaleigubætur en enn sem
komið er allt óljóst um hversu miklar
þær verða.
Meðal stórra ákvarðana sem bíða
á gjaldhlið fjárlagafrumvarpsins er
hvað gera skuli við almenna hús-
næðiskerfið. Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra hefur lýst því
yfir að hún sé fylgjandi því að loka
þessu kerfi en auka við húsbréfa-
kerfið á móti. Mikil andstaða er við
þessar hugmyndir bæði innan Al-
þýðubandalagsins og Framsóknar.
Þeirri hugmynd hefur verið varpað
fram að skilja þetta mál eftir í lausu
lofti og fela nýrri ríkisstjórn úrlausn
þess. Svipaðar hugmyndir hafa kom-
ið fram varðandi landbúnaðarmálin.
Þó aðeins séu um 25 dagar þangað
til fjárlagafrumvarpið verður lagt
fram á Alþingi eru ennþá nær allir
endar lausir við fjárlagageröina.
Eina ákvörðunin sem tekin hefur
verið er að halli skuh verða um 1
prósent af landsframleiðslu eða um
3 til 4 milljarðar.
-gse
Egilsstaðir:
Spænskur greifi á
hreindýraveiðum
- á mikið safn uppstoppaðra dýra
að fá að vera hér óáreittir fyrir for-
vitnu fólki. Arregui hefur þegar
ákveðið að koma aftur hingað á
næsta ári. Hyggst hann þá bæta fleiri
dýrum í safn sitt.
Fylgdarmaður þeirra héðan að
austan var Aðalsteinn Aðalsteins-
son, bóndi á Vaðbrekku. Hákon Aðal-
steinsson lánaði fjallabíl sinn, Weap-
on módel ’53, th fararinnar. Sagði
Hákon að greifinn hefði verið sérlega
ánægður með bílinn. Jón Ármann
Héðinsson skipulagði ferðina og var
með veiðimönnunum.
Spánverjarnir dvöldu hér lengur
en þeir höfðu upphaílega ráðgert.
Fóru þeir meðal annars á Borgar-
fjörð þar sem þeir leigðu bát. Ætlun-
in var að veiða sel sem svo lét ekki
sjá sig. Þess í stað drógu þeir þorsk
úr sjó sem svo var fnatreiddur fyrir
þá á hótehnu.
Hákon taldi ekki ólíklegt að fleiri
auðjöfrar og tignarmenn ættu eftir
að koma hingað á næstu árum að
veiða hreindýr. „Þetta eru ferða-
mennimir sem okkur vantar. Þeir
víla ekki fyrir sér að hafa aðstoðar-
menn í marga daga og eyða hér þó
nokkrum upphæðum," sagði Hákon.
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstööum;
Nýlega var spænskur greifi, Juan
Arregui, á ferð um hreindýraslóðir á
Austurlandi.
Þessi spænski herramaður, sem er
atvinnurekandi með yfir 2000 manns
í vinnu, á eitthvert stærsta safn upp-
stoppaðra dýra sem til er í heimin-
um. Kom hann hingað th að bæta
hreindýri í það safn. Hann fékk sér-
fræðing frá Reykjavík í fláningu og
uppstoppun dýranna en aðstoðar-
mann og hflækni var hann með frá
Spáni. Sjálfur er hann orðinn 83 ára.
Sá gamh skaut einn tarf af 150
metra færi fríhendis og má það kah-
ast gott hjá svo gömlum manni. Leyfi
fékkst fyrir fjórum dýrum hjá bænd-
um á Vaðbrekku á Jökuldal. Fehdu
veiðimennimir tvo tarfa og tvær kýr
sem öh fara í uppstoppun en bændur
fengu kjötið th ráðstöfunar. Dýrin
veiddu þeir inni á Brúaröræfum.
Arregui og fylgdarmenn hans gistu
í Hótel Valaskjálf og á Vaðbrekku.
Voru þeir mjög ánægðir með að-
húnaö og viðurgjöming ahan. Sér-
staklega vom þeir ánægðir með mót-
tökur hjónanna Sigríðar og Aðal-
steins á Vaðbrekku. Hrifust hinir
tignu gestir mjög af landinu og því
Hreindýraveiðar voru ekki einu veiðarnar sem Arregui reyndi hér á landi.
Einnig var rennt fyrir fisk.
Juan Arregui við dýrið sem hann skaut af 150 metra færi.
DV-myndir Jón Ármann Héðinsson
Húnaþlng:
Sláturfé fækkar
- slátrun að heflast
ÞórhaUur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki;
Enn verður mikh fækkun á sláturfé
í sláturhúsinu á Blönduósi í haust.
Sláturloforð nema rnn 31 þúsund
dilkum. Er það samdráttur um 12,5
% frá þvi í fyrra. Haustið 1979 var
72 þúsund dilkum slátrað á Blöndu-
ósi að sögn Ragnars Inga Tómasson-
ar hjá sölufélaginu. Hann efast um
að nokkurs staðar á landinu hafi
samdráttur í sauðfjárrækt orðið jafn-
geigvænlegur og í Húnaþingi á síð-
ustu árum.
Slátrun hefst á Blönduósi í vikunni
og reiknað er með að henni ljúki
þann 19. október.
í sláturhúsi Kaupfélags Vestur-
Húnvetninga á Hvammstanga fækk-
ar sláturfé einnig. Sláturloforð nema
35.600 dhkum en í fyrra var þar slátr-
að 38.100 dilkum. Slátrun er í þann
mund að hefjast og lýkur um 20.
október.
í sláturhúsi KS á Sauðárkróki
verðirn í haust slátrað um 30 þúsund
fjár og er það nokkur fækkun frá
síðasta hausti. Slátrun er hafin þar
og er reiknað með að henni ljúki 16.
október. Ólíkt því sem gerist á neðra
húsinu er allur innmatur í KS hirtur
að sögn Árna Eghssonar sláturhús-
stjóra.
í haust hefur víðast hvar gengið
vel að fá fólk th vinnu í sláturhúsin.
Flugvélin sem fórst á Grænlandi:
Hrapaði logandi
Flak dönsku flugvélarinnar sem veiðimennimir komust th byggða en hvorugur var notaður. Hefur
hvarf viö Grænland í síðustu viku og gátu thkynnt lögi-eglunni um það vakið furðu rannsakenda og
fannst á íöstudaginn, eins og DV slysið og staðsetningu flaksins. Illa eigenda vélarinnar.
greindi frá á laugardag. Fannst fært er að ftakinu og að sögn lög- I vélinni, sem var af gerðimii
flakið og sjö lík i 800 metra hæð reglustjórans í Nuuk fannst það á Cessna Conquest og í eigu leigu-
um 60 khómetra austur af fjallinu síðustu stundu þar sem farið var flugfélagisns Nuna Air, voru sex
Sykurtoppnum á vesturströnd að snjóa verulega á þessum slóð- kanadiskir sjóraenn auk tveggja
Grænlands. Brak úr vélinni og lík- um. danskra flugmanna með mikla
in lágu dreifö á um 600 hektara Orsakir slyssins er ekki kunnar reynslu að baki. Vélinvaráleiðfrá
svæði. Eitt lik er enn ófundið. og óvíst hvað gerðist eftir að fjar- Syðri Straumfxrði í Grænalandi th
Það voru hreindýraveiöimenn skiptasamband við véhna rofnaöi á Gæsahóa í Kanada en veriö var að
sem sáu vélina hrapa logandi i þriöjudag. Enginn svartur kassi - skipta um áhöfh á togara sjómann-
fjallshlíðarnar rétt fyrir klukkan var í vélinni og gerir þaö frekari annasemláíSisimiutáGræihandi.
tíu á þriöjudagskvöld. Það var ekki rannsóknir á slysinu enn erflðari. -RB/hlh
fyrr en tveimur dögum síðar að Tveir neyðarsendar voru um horð