Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1990, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990.
11
Utlönd
500daga áætlunin
Ekki þykir ósennilegt að mikið
hafi gengið á á bak við tjöldin áður
en Gorbatsjov Sovétforseti tók það
skref sem gagnrýnendur hans, og
stuöningsmenn reyndar líka, höfðu
vonast til, það er að lýsa yfir stuðn-
ingi við þá efnahagsáætlun sem
kölluð er fimm hundruð daga áætl-
unin. Samkvæmt áætluninni á
fijálst markaðskerfi að vera komið
á í Sovétríkjunum innan fimm
hundruð daga.
Fyrrum erkifiendumir, Gor-
batsjov Sovétforseti og Jeltsin
Rússlandsforseti, komu mörgum á
óvart er þeir tilkynntu í ágúst-
byrjun að þeir ætluöu að skipa
sameiginlega nefnd sérfræðinga
sem ætti að fínslípa fimm hundruð
daga áætlunina.
Reyndar segir einn helsti efna-
hagssérfræðingur blaösins Iz-
vestija, málgagns sovésku ríkis-
stjórnarinnar, að ómögulegt sé að
koma á þeim efnahagsumbótum
sem þörf er á án samvinnu milli
Gorbatsjovs og Jeltsins. Gor-
batsjov, sem er óvinsæll meðal sov-
éskra borgara, myndi varla takast
að koma á umbótum, sem í fyrstu
myndu íþyngja fólki, án stuðnings
Jeltsins. Rússneski forsetinn sé
hetja fólksins og geti vonandi náð
eyrum þess. En Jeltsin myndi ekki
heldur geta verið án Gorbatsjovs
vegna þeirrar virðingar sem Sovét-
forsetinn nýtur erlendis.
Sá sem stjórnaði starfi nefndar-
innar, sem skipuð var af Gor-
batsjov og Jeltsin, er Stanislav Sjat-
alin, virtur hagfræðingur sem er
einn hinna nýju ráðgjafa Gor-
batsjovs. Nú þegar fimm hundruð
daga áætlunin hefur verið kynnt í
sínu endanlega formi hefur hún
oftast verið kölluö Sjatalin-áætlun-
in.
En á bak við aðalhugmyndimar
standa hins vegar nokkrir ungir
hagfræðingar sem Jeltsin réð til
starfa. Fremstur í flokki er Grigori
Javlinski, 38 ára hagfræðingur og
aðstoðarforsætisráðherra. Hann er
formaður þeirrar nefndar rúss-
neska þingsins er fialla á um um-
bætur. Javlinski er spáð bjartri
framtíð í stjómmálum. Hann er
sérstaklega fróður á sínu sviði auk
þess sem hann hefur unnið í hinu
hefðbundna „apparati" og kann þvi
leikreglumar.
Javlinski hafði áður unnið að
umbótaáætlun sovésku stjómar-
innar. Hann varð vonsvikinn yfir
að geta ekki haft áhrif á Ryzhkov
forsætisráðherra og ákvað því að
vinna að eigin áætlun með aðstoð
tveggja félaga sinna, Alexejs Mic-
hailov og Michails Zadornov. Mic-
hailov er aðeins 27 ára gamall.
Fleiri ungir hagfræðingar á vegum
Jeltsins hafa síðan átt talsverðan
þátt í gerð umbótaáætlunarinnar.
Fyrstan þeirra nefna menn Boris
Fjodorov, 32,ára gamlan hagfræð-
ing, sem skipaður hefur verið fiár-
málaráðherra Rússlands. Hann er
sagöur hafa séð nóg af gamla kerf-
inu til að falla ekki í gildramar.
Meöal manna Gorbatsjovs eru
helstir Stanislav Sjatalin, sem á
sæti í forsætisráðinu, og Nikolai
Petrakov sem er persónulegur ráð-
gjafi Gorbatsjovs í efnahagsmálum.
Þar sem þeir em bæði eldri og
reyndari en menn Jeltsins þykja
þeir geta veitt hinum ungu mönn-
um Jeltsins ómetanlegan stuðning.
Og allan ágústmánuð sátu menn
Gorbatsjovs og Jeltsins í sumar-
húsi fyrir utan Moskvu og fínpúss-
Gorbatsjov Sovétforseti og Jeltsin Rússlandsforseti komu mörgum á óvart er þeir tilkynntu í ágústbyrjun að þeir ætluðu að skipa sameiginlega
nefnd sérfræðinga er fínsiipa áttu fimm hundruð daga aætlunina svokölluðu. Formaöur nefndarinnar var hagfræðingurinn Sjatalin og er áætlunin
því kennd við hann. En upphafsmenn áætlunarinnar eru hins vegar ungir hagfræðingar sem Jeltsin réð til starfa. Simamyndir Reuter
1' 1
at
Hillurnar i bakaríum Moskvuborgar eru tómar eins og hillur margra
annarra verslana. Flestir eru sammála um að eitthvað róttækt verði að
gera í efnahagsmálum Sovétríkjanna en ýmsir óttast þó að fimm hundr-
uð daga áætlunin takist ekki vegna þeirrar miklu andstöðu sem hún
mætir enn.
uðu efnahagsáætlunina sem nú er
kennd við Sjatalin.
Samkvæmt henni fá hin fimmtán
sovésku lýðveldi næstum full yfir-
ráð yfir eigin efnahag. í umbótaá-
ætlun Ryzhkovs, forsætisráðherra
SovétríKjanna, er gert ráð fyrir að
Moskvuvaldið haldi yfirráðum sín-
um að mestu.
Mikilvægur munur á áætlun
stjórnarinnar og áætlun Sjatahns
er að stjómiri vill að miklu leyti
flármagna umbæturnar með verð-
hækkunum. Sjatalin vill í upphafi
skera niður í fiárlögum og selja
eignir ríkisins. Umbótaáætlun
stjómarinnar gerir einnig ráð fyrir
lengri aðlögunartíma áður en
ftjálst markaðskerfi verður að
veruleika.
Ýmsir telja að mikil hætta sé á
að fimm hundmð daga áætlunin
mistakist og þá gæti öngþveitið
orðið þannig að ekki yrði við neitt
ráðið. Stjórnarerindreki nokkur,
sem fylgst hefur með sovésku efna-
hagslífi, er þeirrar skoðunar aö enn
sé alltof mikil andstaða gegn áætl-
uninni til þess að hægt sé að hrinda
henni í framkvæmd. Þessi and-
staða kom meðal annars í fiós er
nefndinni, sem vann undir forystu
Sjatalins, var neitað um upplýsing-
ar frá ýmsum opinberum aðilum,
eins og til dæmis vamarmálaráðu-
neytinu og utanríkisviðskipta-
bankanum.
Flestir sem fylgst hafa með mál-
unum em þó þeirrar skoðunar að
eitthvað róttækt verði að gera þeg-
ar í stað.
Það sem talið er geta orðið til
þess að áætlunin takist er í fyrsta
lagi einstakir hæfileikar hagfræð-
ingsins Grigoris Javhnski sem
hggja til gmndvallar áætluninni. í
öðru lagi er bent á gífurlegar vin-
sældir Boris Jeltsin sem geta fengið
fólk th að sætta sig við byrjunar-
örðugleika. í þriðja lagi nefna
menn möguleika ráðgjafans Ni-
kolais Petrakov th að hafa áhrif á
Gorbatsjov og í fiórða lagi þá virð-
ingu sem hagfræðingurinn Stan-
islav Sjatalin nýtur.
Margir benda á að Gorbatsjov
hafi í rauninni ekki sett ofan með
því að ganga í bandalag með Jelts-
in. Þetta sé í rauninni enn eitt
kænskubragð sovéska forsetans
því nú þurfi hann ekki einn að taka
óþæghegar ákvarðanir. Einnig er
bent á að ekki sé heldur hægt aö
hta á nýju áætlunina sem sigur
fyrir Jeltsin. Hún sé sigur róttækra
hagfræðinga sem fylgjandi séu
frjálsu markaðskerfi og sem tekist
hefur að sannfæra rússneska for-
setann.
Heimild: DN
Ryzhkov, forsætisráóherra Sovét-
ríkjanna, kveðst munu segja af sér
ef áætlun hans um efnahagslegar
umbætur verður ekki samþykkt.
Dáleiðsla
Einkatímar fyrir fólk
sem vill hætta að reykja,
grenna sig eða auka vilja.
Tímapantanir hjá
Lífsafli
S. 622199
Vinningstölur laugardaginn
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 0 2.058.587
2. 4£itSÉ ■ 4 89.431
3. 4af5 97 6.361
4. 3af 5 3430 419
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.470.498 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002.
Síðasti pöntunardagur næsta hluta ríkissamningsins til
kaupa á Macintosh tölvubúnaði með verulegum afslætti er:
Innkaupastofnun ríkisins
Ú Apple-umboðið