Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1990, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1990, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990. Viðskipti___________________________________________dv Ávöxtun hlutabréfa 60 prósent umfram verðbólgu frá áramótum: Eigendur hlutabréfa geta stigið villtan sigurdans -hlutabréf 1 Olíufélaginu bf., Essó, hafa hækkað um 113 prósent Hámarksvísitalan, íslenska hlutabréfavísitalan, er nú 698 stig og hefur hækkað um 60 prósent umfram verðbólgu frá áramótum. Eigendur hlutabréfa á íslandi geta stigið villtan sigurdans yfir árangr- inum á þessu ári. Frá áramótum hef- ur Hámarks-hlutabréfavísitalan hækkað um 60 prósent umfram verð- bólgu. Sagt og staðið. Þetta er lang- besta ávöxtunin á pengingamark- aðnum. Ekki er hægt að búast við svo ótrúlegri ávöxtun til frambúðar. Engu að síður, þeir sem eiga hluta- bréf eru búnir að stórgræða það sem af er árinu. Eigendur hlutabréfa í Essó hafa grætt mest á þessum átta mánuðum, bréf þeirra hafa meira en tvöfaldast í verði og hækkað um hvorki meira né minna en 113 pró- sent. DV birtir Hámarks-hlutabréfavísi- töluna á hverjum fimmtudegi. Þar kemur þessi hækkun glöggt í ljós. Um áramótin var hún 413 stig. Nú er hún 698 stig. Þetta er hækkun um 69 prósent á aðeins átta mánuðum. Á sama tíma hefur lánskjaravísitalan hækkað um 5,8 prósent. Það þýðir að raunávöxtun hlutabréfavísi- tölunnar er 60 prósent. Þetta er ávöxtun umfram verðbólgu. Hlutabréf 11 fyrirtækja eru í Há- marksvísitölunni. Vægi stærstu fyr- irtækjanna er mest. Þetta eru fyrir- tæki eins og Eimskip, Flugleiðir og Olíufélagið hf. í vísitölunni er búið að taka tillit til útgáfu jöfnunarhluta- bréfa hvers íyrirtækis svo og greidds arðs til hluthafa. Svona lítur ávöxtun hlutabréfa í einstökum fyrirtækjum út frá ára- mótum: Olíufélagið..................113% Sjóvá-Almennar................97% Eimskip.......................72% Flugleiðir....................68% Skagstrendingur...............68% Skeljungur....................32% Hlutabréfasj.................32 % Tollvörugeymslan..............26% Póstur og sími mun bjóða upp á sundurliðaða símareikninga eftir næstu áramót. Til að byija með er líklegt að á mörgum heimilum verði rifist þegar sundurliðunin kemur og gera þarf skil á löngum og dýrum samtölum. Um nokkurt skeið hefur eigendum farsíma boðist að fá reikninga sína sundurliðaða og verður sundurlið- unin í stafræna kerfinu eftir áramót- in með svipuðum hætti og hjá far- símaeigendum. Langlínusímtöl verða eingöngu sundurliðuð, ekki innanbæjarsímtöl. Greiöa þarf sérstaklega fyrir að fá Eignf. Iðnb.....................22% Eignf. Versib...................20% Grandi..........................18% Eignf. Alþb.....................14% íslandsbanki....................11% Það skal strax tekið fram að tölurnar um Skeljung og Eignarhaldsfélag Alþýðubankans giida frá maí en þá komu bréf í þessum félögum á mark- aðinn. Hlutabréf í Olíufélaginu hf., Essó, komu á markaðinn í nóvember í fyrra. DV sagði þá þegar frá því að mat sérfræðinga í viðskiptum með hlutabréf væri það að þessi bréf væru vanskráð í upphafi, að búast mætti reikningana sundurliðaða. Gjald- skráin verður sú sama og í farsíma- kerfinu. Greiöa þarf 703 krónur í stofngjald í upphafi og síðan er fast gjald 255 krónur á þriggja mánaða fresti og 1,43 krónur fyrir hvert sím- tal sem er sundurliðað. DV birtir hér til hliðar sýnishom af sundurliðuðum símareikningi sem Póstur og sími lét blaðinu í té. Þar má sjá í hnotskum hvemig reikningamir koma til með að líta út. Reikningurinn sýnir dagsetning- una, klukkan hvað var hringt, hvert, lengd símtalsins, númerið sem hringt var í, fjölda skrefa, einingar- við að verðið myndi hækka verulega. Mánuði síðar, í desember, var geysi- leg eftirspum eftir þessum bréfum og margir keyptu. Þeir hinir sömu geta nú hrósað mesta sigrinum á hlutabréfamarkaðnum, bréfin sem þeir keyptu í desember hafa meira en tvöfaldast í verði. Hlutabréfin í Sjóvá-Almennum hafa hækkað næstmest frá áramót- um eða um 97 prósent. Þessi hækkun var aö mestu komin fram í vor en þá snarhækkuðu bréfin í verði þegar Eimskip bauð í hlutabréf og frægt varð. En Sjóvá-Almennar eru stærsti hluthafinn í Eimskip. Um áramótin var söluverð hluta- verð og hvað hvert samtal kostar. Sú reynsla sem Póstur og sími hef- ur fengið af sundurliðun símareikn- inga í farsímakerfinu er sú að fólk dregur úr notkun símans og sömu- leiðis hefur þras út af of háum síma- reikningum við stofnunina snarlega minnkað. Reynslan á heimilunum verður eflaust sú að deilt verður út af löng- um símtölum. Smám saman fara notendur að passa sig því að þeir vita að þeir verða síðar að gera grein fyrir hverri einustu mínútu sem tal- að er út á land eða til útlanda. -JGH bréfa á hlutabréfamarkaðnum þetta, birt í þeirri röð eins og það birtist jafnan í DV: Sjóvá-Almennar.............400 kr. Eimskip....................400 kr. Flugleiðir.................162 kr. Hampiðjan..................172 kr. Hlutabréfasjóöur...........168 kr. Iðnaðarbanki...............180 kr. Skagstrendingur............300 kr. Útvegsbanki................155 kr. Verslunarbanki.............153 kr. Olíufélagið................318 kr. Grandi.....................157 kr. Tollvörugeymslan...........114 kr. Fréttaljós Jón G. Hauksson Síðan hafa liðið rúmir átta mánuðir með gegndarlausri hækkun hluta- bréfanna. Þess skal getið að á aðal- fundum hvers félags á vorin, þegar gefin eru út jöfnunarhlutabréf, lækk- ar sölugengi bréfanna um leið. Það hefur hins vegar ekki áhrif á hluta- bréfavísitöluna sem tekur tillit til útgáfu jöfnunarhlutabréfa svo og greidds arðs. Svona lítur söluverð hlutabréfanna á hlutabréfamark- aðnum núna út: Sjóvá-Almennar..............650 kr. Eimskip.....................544 kr. Flugleiðir..................210 kr. Hampiðjan...................173 kr. Hlutabréfasjóður............170 kr. Eignfél.Iðnb................168 kr. Eignfél-Alþb................131 kr. Skagstrendingur.............410 kr. íslandsbanki................168 kr. Eignfél. Verslb.............140 kr. Olíufélagið.................557 kr. Grandi......................186 kr. Jón G. Briem, nýráðinn forstöðu- maður lögfræðideildar íslands- banka. Jón G. Briem ráðinntil íslandsbanka Jón G. Briem, lögfræðingur, hefur verið ráðinn forstöðumaður lög- fræðideildar íslandsbanka hf. Jón er liðlega fertugur, kvæntur Sigurþóru Stefánsdóttur Briem og eiga þau þrjú börn. Hann útskrifaðist frá lagadeild Háskóla íslands árið 1974 og starfaði við Bæjarfógetaembættið í Keflavík til ársins 1976 er hann stofnaði eigin lögfræðistofu. Síðan stofnaði hann Lögfræðistofu Suöumesja sf. sem hann hefur rekið undanfarin ár ásamt Ásbirni Jónssyni. Jón er virkur í félagsmálum og hefur meðal annars verið formaður Taílfélags Reykjavíkur frá árinu 1986. . -JGH Tollvörugeymslan..........110 kr. Skeljungur................588 kr. Það er fyrst og fremst mjög mikil eftirspurn eftir hlutabréfum sem hef- ur hækkað þau í verði en eftirspum- in er mun meiri en framboðið. Þá er það þekkt fyrirbæri að hlutabréf á nýjum og ungum hlutabréfamörkuð- um, eins og þeim íslenska, em van- skráð í upphafi þegar markaðurinn eraðþróast. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 3.0 Allir Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sp 6 mán. uppsögn 4-5 ib.Sb 12mán. uppsögn 5-5,5 Ib 18mán.uppsögn 11 ib Tékkareikningar, alm. 0.&-1 Allir nema Ib Sértékkareikningar 3,0 Allir Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5 Allir 6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Allir nema Ib Innlán með sérkjörum 3-3,25 Ib.Bb Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 6,6-7 Ib Sterlingspund 13-13,6 Sp Vestur-þýskmórk 6,75-7.1 Sp Danskarkrónur 8,5-9,2 Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 13,75 Allir Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 12,25-14,25 Ib Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb Utlan verðtryggð . Skuldabréf 6,5-8,75 Ib Utlántilframleiðslu Isl. krónur 14-14,25 Sp SDR 11-11,25 Ib Bandaríkjadalir 9,75-10 ib Sterlingspund 16,5-16,7 Sp Vestur-þýsk mörk 10-10,2 Sp Húsnæðislán 4.0 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 23,0 MEÐALVEXTIR óverðtr. ágúst 90 14,2 Verðtr. ágúst 90 8,2 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala sept. 2932 stig Lánskjaravísitala ágúst 2925 stig Byggingavisitala sept. 551 stig Byggingavísitala sept. 172,2 stig Framfærsluvísitala júlí 146,8 stig Húsaleiguvísitala hækkaöi 1,5% l.júli. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi þréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 5,077 Einingabréf 2 2,761 Einingabréf 3 3,344 Skammtímabréf 1,712 Lífeyrisbréf - Kjarabréf 5,034 Markbréf 2,681 Tekjubréf 2,026 Skyndibréf 1,502 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóösbréf 1 2,441 Sjóðsbréf 2 1,768 Sjóðsbréf 3 1,702 Sjóðsbréf 4 1,456 Sjóösbréf 5 1,025 Vaxtarbréf 1.7215 Valbréf 1,6185 Islandsbréf 1,054 Fjórðungsbréf 1,054 Þingbréf 1,054 öndvegisbréf 1,049 Sýslubréf 1,057 Reiðubréf 1,040 HLUTABRÉF Sötuverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 650 kr. Eimskip 544 kr. Flugleiðir 210 kr. Hampiðjan 173 kr. Hlutabréfasjóður 168 kr. Eignfél. Iðnaðarb. 168 kr. Eignfél. Alþýðub. 131 kr. Skagstrendingur hf. 410 kr. Islandsbanki hf. 168 kr. - Eignfél. Verslunarb. 140 kr. Olíufélagið hf. 557 kr. Grandi hf. 186 kr. Tollvörugeymslan hf. 110 kr. Skeljungur hf. 588 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn, lb = Islandsbanki Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum. PÓST-OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN Sundurliðutl á nOtkUn ágúst 1990 Reikningsnúmer/símanúmer Heimili Bls. Útg. tími Póstnr. 985-B6109 Póstur Og Sími Söludeild Kirkjustrati 1 90.09.17 150 Dagsetn. Klukkan Lengd Valiá númer Skref Ein.ver3 Ver3 90.08.18 20:51:49 0:09 985-26355 1 2,99 2,99 90.08.19 10:02:38 0:42 03 4 2,99 11,96 90.08.19 10:04-16 0:23 91-699014 2 2,99 5,98 90.08.19 10:12:22 1 : 22 985-26062 7 2,99 20,93 90.08.1 9 10:28:51 0 : 45 91-632112 4 2, 99 11,96 90.08.19 10:37:54 0 : 09 04 1 2,99 2,99 90.08.19 10:39:06 0:56 91-636029 5 2,99 14,95 90.08.19 1 1 : 00:26 0:20 91-22062 2 2,99 5,98 90.08.19 11:01:06 0:33 985-26062 3 2, 99 8,97 90.08.19 12:51:31 0:42 985-26355 4 2,99 11,96 90.08.19 12:57:18 0:48 985-26355 4 2,99 11,96 90.08.19 14:13:45 • 0:30 985-26355 3 2,99 8,97 90.08.19 15:48:46 0:21 985-26062 2 2, 99 5,98 90.08.28 13:09:50 0:13 90-4597822493 6 2, 99 17,94 Fjöldi símtala : 14 Samtals : 48 143,52 Sýnishorn af sundurliðuðum símareikningi frá Pósti og sima. Símareikningar sundurliöaöir eftir næstu áramót: Brátt verður rif ist á mörgum heimilum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.