Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1990, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990.
9
Lögreglumenn í Manila á Filippseyjum berja námsmann sem fallið hefur
til jarðar. Hann var einn af tvö þúsund sem í gær kröfðust brottflutnings
bandarískra hermanna frá landinu. Til óeirða kom er mótmælendur köst-
uðu heimatilbúnum sprengjum eftir að þeim hafði verið meinað að ganga
að bandaríska sendiráðinu. Símamynd Reuter
Bandarísk yfirvöld:
Hermenn frá Filipps-
eyjum í áföngum
Bandarísk yfirvöld tilkynntu í
morgun að þau væru reiðubúin að
ræða brottflutning bandarískra her-
manna í áfongum frá Filippseyjum
eftir að Corazon Aquino, forseti
Filippseyja, hafði hvatt tfi þess að
hermennirnir yrðu kallaðir heim.
Aðalsamningamaður Bandaríkj-
anna, Richard Armitage, sagði við
upphaf viðræðnanna í morgun um
framtíð bandarískra herstöðva á
Filippseyjum að hann gerði sér grein
fyrir því að vera bandarískra her-
manna í landinu myndi brátt á enda.
Ákveða þyrfti hversu hratt brott-
flutningur þeirra ætti að eiga sér stað
og hvemig samskipti stjórna beggja
ríkjanna ættu að vera framvegis.
Alls eru um sautján þúsund banda-
rískir hermenn á Filippseyjum. Nær
áttatíu Fihppseyingar starfa á vegum
bandaríska hersins á Filippseyjum.
Nokkrum klukkustundum áður en
viðræðumar hófust í morgun sprakk
sprengja í banka í Manila. Að sögn
lögreglunnar slasaðist enginn í til-
ræðinu sem var það tuttugasta og
sjöunda á fimm vikum. Heryfirvöld
saka uppreisnarmenn innan hersins
um sprengjutilræðin og segja þá vera
að reyna að steypa Aquino forseta
af stóli.
í gær særðust tíu manns og um
tuttugu voru handteknir þegar
vinstri sinnaðir mótmælendur vopn-
aðir heimatilbúnum sprengjum
lentu í átökum við óeirðalögreglu
nálægt bandaríska sendiráðinu í
Manila. Kröfðust mótmælendurnir
brottflutnings bandarískra her-
manna frá Filippseyjum.
Reuter
Walesa í framboð
Lech Walesa, léiðtogi Samstöðu í
Póllandi, tilkynnti í gær að hann
ætlaði að bjóða sig fram í forseta-
kosningunum sem gert er ráð fyrir
að verði fljótlega. Þar með hefur
Walesa gert lýðum ljóst að hann ætli
sér að stefna hátt og meira að segja
andstæðingar hans telja að ekkert
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu í
Póllandi. Símamynd Reuter
geti komið í veg fyrir sigur hans.
Með yfirlýsingu sinni í gær batt
Walesa enda á þá óvissu sem ríkt
hefur í Póllandi mánuðum saman
vegna ýmiss ágreinings innan Sam-
stöðu.
Þrátt fyrir að Walesa gegni engu
öðru embætti en embætti leiðtoga
verkalýðssamtakanna Samstöðu
hefur hann gegnt mikilvægu póht-
ísku hlutverki í Póhandi. Það var
hann sem í ágúst 1989 stakk upp á
myndun stjómar undir forystu Sam-
stöðu og útnefndi hann Mazowiecki,
ráðgjafa sinn, sem leiðtoga hennar.
Innan Samstöðu hefur hins vegar
ríkt ágreiningur og hafa menn skipað
sér í nýjar fylkingar, annars vegar
þá sem styðja Walesa og hins vegar
þá sem hhðholhr em Mazowiecki.
Walesa er hlynntur skjótum breyt-
ingum en Mazowiecki leggur áherslu
á stöðugleika og vih fara hægar í
sakimar. Walesa bendir á að fyrmrn
kommúnistar og bandamenn þeirra
haldi enn 65 prósent sætanna í neðri
deild þingsins. Hvetur Walesa til
skjótrar afsagnar Jaruzelskis forseta
þar sem hann sem fyrrum kommún-
isti sé í engri aðstöðu dl að standa
fyrir lýðræðislegum breytingum svo
gagn verði að.
í dag munu stjómmálaleiðtogar í
Póllandi koma saman og ræða hven-
ær hepphegt sé að kosningar fari
fram og hvenær Jaruzelski eigi að
segja af sér.
Reuter
_________________________Útlönd
NelsonMandela:
Friðarvraræoum
ef Hl vfll hætt
Nelson Mandela, forseti Afríska
þjóðarráðsins, sagði í gær að verið
gæti að ráðið myndi hætta friðarvið-
ræðum við de Klerk forseta. Sagði
Mandela að framkvæmdanefnd ráðs-
ins myndi koma saman til skyndi-
fundar í dag vegna hertra aögerða
lögreglunnar til að bæla niður róstur
meðal blökkumanna sem kostað hafa
sjö hundrað mannslíf undanfarnar
sex vikur.
Aðgerðirnar eru kahaðar „Jám-
hnefinn“ og er lögreglumönnum
heimht að búa bifreiðar sínar með
vélbyssum, girða af svæði blökku-
manna og setja á útgöngubann.
Mandela segir „Járnhnefann" heim-
ila morö á blökkumönnum. Réttlæt-
anlegar aðgerðir telur hann beitingu
vatnsþrýstibyssa og táragass.
Mandela, sem leitt hefur friðarvið-
ræður við de Klerk forseta frá því
að honum var sleppt úr fangelsi í
febrúar síðasthðnum, segir að ef það
verði niðurstaða skyndifundarins að
enginn vilji sé hjá stjómvöldum til
að grípa th ákveðinna aðgerða til að
bæla niður oíbeldið, geti verið að
taka verði ákvörðun sem geri að
engu ahar thraunir th að koma á
friði.
Lögreglan tilkynnti í gær að að-
gerðir hennar bæm þegar árangur
þar sem minna hefði verið thkynnt
um ofbeldi í gær en áður.
Reuter
Blökkumannaleiðtoginn Nelson Mandela gagnrýnir hertar aðgerðir lögregl-
unnar til að bæla niður ofbeldi meðal stríðandi fylkinga blökkumanna.
Simamynd Reuter
Syse ætlar ekki að segja af sér
„Hægri menn í Noregi bera fullt
traust th Jan P. Syse forsætisráð-
herra og það er ekki tímabært að
hann segi af sér embætti flokks-
formanns eftir uppljóstranirnar að
hann hafi brotið hlutábréfalög."
Þetta sagði varaformaður Hægri
flokksins, Svein Ludvigsen, í viðtali
við norsku fréttastofuna NTB í gær
eftir fund með framámönnum í
flokknum stuttu áður.
Komið hefur í ljóst að Syse veitti
sér og mági sínum lán úr fyrirtæki
sínu en vegna þess að hahi var á
rekstrinum og skuldir voru umfram
eignir var lánveitingin ólögleg.
Syse varði sig í gær og kvaðst ekki
hafa vitað að um lögbrot hefði verið
að ræða. Hann hefur sætt mikilli
gagnrýni vegna málsins en hyggst
ekki verða við kröfum manna um að
hann segi af sér vegna málsins. Hann
kvaðst ætla að láta viöurkenndan
aðha kanna efnahagsmál sín og er
gert ráð fyrir að þeirri rannsókn
ljúki í vikunni.
NTB
NISSAN
EKKI BARA FALLEGUR OG ÞÆGILEGUR
HELDUR EINNFG NÍÐSTERKUR OG ÖRUGGUR
Rúmgóður og bjartur og auðvelt að
leggja í stæðí.
Fjögurra strokka vél, sparneYtín,
hljóðlát og aflgóð.
Þríggja ára ábyrgð.
Ingvar
Helgasonhf.
Sævarhöfða 2
sími 91-674000