Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1990, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990.
13
Og nú er það Leikfélag Reykjavikur:
Konu í stöðuna
Hjörtur Hjartarson skrifar:
Þaö virðist hafa tekist nokkuð vel,
valið á nýjum þjóðleikhússtjóra.
Maður með menntun, og það meira
aö segja tilskilda menntun, tekur við
starfmu. Ég verð að lýsa ánægju
minni með það og óska honum til
hamingju. Ég hefði ekki viljað sjá
konu í þessu starfi. Það hæfir ekki
að kona sé þjóðleikhússtjóri, það
verður að vera karlkyns reisn yfir
þessu embætti. - Raunar hefur eng-
inn gegnt þessu starfi betur en Guð-
laugur heitinn Rósinkranz. Ég held
þó að flestir geti verið ánægðir með
endanlegt val í stöðuna núna.
Og nú vantar Leikfélag Reykjavík-
ur leikhússtjóra. Þar er allt annað
uppi á teningnum, fmnst mér. Hjá
þeirri stofnun finnst mér kona vel
geta tekið að sér starf leikhússtjóra.
Fyrir því eru líka fordæmi, svo það
verður ekki um neina byltingu að
ræða. Mér finnst að þær konur sem
sóttu um starf þjóðleikhússtjóra
heíðu ekki átt að flytja umsóknir sín-
ar á milli stofnana, þ.e. frá Þjóðleik-
húsi til Leikfélags Reykjavíkur. Þær
áttu einfaldlega að hætta við.
Og nú bregður svo við að áður en
stjórn Leikfélagsins tekur ákvörðun
um næsta leikhússtjóra verður við-
höfð skoðanakönnun meðal félaga í
Leikfélagi Reykjavíkur. - Nú þykir
allt í einu afskaplega gott að fá í
hendur lista með fyrirfram fengnum
úrslitum hjá starfsfólkinu svo að
stjórn Leikfélagsins geti farið í hár
saman út af því hvort fara eigi eftir
vilja fólksins „sem vinnur verkin"
eða hvort kjósa eigi innbyrðis um
niðurstöðuna.
Þetta er orðið yfirmáta lýðræðis-
legt allt saman og alveg sjálfsagt að
í þetta sinn fái nú allir að ráða niður-
stöðinni, a.m.k. að einhverju leyti.
En ég ætla vara að vona að niöur-
staðan verði samt sú að kona verði
ráðin sem leikhússtjóri í þetta sinn
en ekki karlmaður. Mér finnst það
vel við hæfi að Borgarleikhúsið státi
af konu sem leikhússtjóra og það
geti orðið hefð héðan í frá. Það er
hægt að velja úr hópi úrvals kvenna
að þessu sinni, sem allar eru tengdar
leiklistargyðjunni að einhverju leyti,
sviðsleik, leikstjórn, ballett og jafn-
vel stjórnmálum.
Umvaxtaokur:
Þjóf ar og
þjófsnautar
Farangur
ungbarna
íflug-
vélum
Kona i Hafnarfirði skrifar:
Dóttir mín og fjölskylda hennar er
að flytja á næstunni og er ferðinni
heitið til Svíþjóðar. Hún er með 5 ára
gamalt barn með sér og einnig eins
og hálfs árs gamalt.
Þar sem þau greiða 10% fyrir yngra
barnið fær það ekki að hafa neinn
farangur meðferðis. Maður skyldi
ætla að það þyrfti jafnvel meiri far-
angur fyrir svo lítil börn. Ég tala nú
ekki um þegar fólk er að flytja búferl-
um úr landi.
En þótt svo væri ekki þarf oft meiri
fatnað á þessi minnstu böm heldur
en þau eldri svo að ég er mjög undr-
andi á þeim reglum sem gilda um
farangur ungbarna í flugvélum. - Ég
vona bara að Flugleiðir breyti nú
þessum reglum sem mér finnast vera
allt að því fáránlegar.
Lúðvíg Eggertsson skrifar:
Vaxtaokur hefur ævinlega verið
álitið mun verra en annað okur.
Þaö stafar af því að vaxtaokrarinn
notfærir sér neyð annarra. Þetta
viðhorf gildir um allan heim. -
Þannig kalla Englendingar vaxta-
okrarann nafninu ,,usurer“ sem er
fyrirlitlegt skammaryrði.
í löggjöf flestra landa, ef ekki
aUra (nema íslands), era ströng
refsiákvæði gegn vaxtaokri. Er
ekki tekið vægara á okrurum en
hverjum öðrum þjófum.
Nú kemur bóndakarl úr Öræfa-
sveit fram á sjónarsviðið í Morgun-
blaðinu, Guðjón nokkur Jónsson,
nýorðinn skrifari í Seðlabankan-
um. Hann heldur því fram að
vaxtaokur sé ekki þjófnaður. Sá er
hins vegar „þjófsnautur", segir
hann, sem þiggur lán án þess að
greiða verðbætur á það - auk raun-
vaxta og affalla aö sjálfsögðu. - Aö
mati Guðjóns á ekki að verðtryggja
vinnulaun, ekki einu sinni lág-
markslaun, ekki heldur búvöru-
verð, bara peningana sem hinir
ríku eiga.
Guðjón segist hafa komið láns-
kjaravísitölunni á og einn staðið
fast með henni. „Miklir menn erum
við, Hrólfur minn“. Þetta stærilæti
Guðjóns minnir á annan skriffinn
í Seðlabankanum, þrepi ofar Guð-
jóni. Ég legg til að Guðjón hverfi
til heimahaganna. - Sumir veröa
svo undarlega áttavilltir þegar þeir
koma á höfuðborgarsvæðið.
HAUSTTILBOÐ
A HLJOMTÆKJUM
KENWOOD
Æ
ÁRMÚLA 17
Wharfedale
SÍMI 685149 - 688840
s IKi
RIKISSPITALAR
STARFSMANNAHAUD
KOPAVOGSHÆLI
Starfsmenn óskasttil starfa við umönnun vistmanna.
Starfið felur í sér þátttöku í þjálfun, útiveru og al-
mennum heimilisstörfum þ.m.t. þrif og ræsting. Æski-
legt er að umsækjendur hafi starfsreynslu með
þroskaheftum.
Starfsmenn óskast til starfa við ræstingar.
Allar nánari upplýsingar gefa Hulda Harðardóttir yfir-
þroskaþjálfi og Sigríður Harðardóttir hjúkrunarfor-
stjóri í síma 602700 frá kl. 08-16 virka daga.
Reykjavík, 18 september.
KONUR KOMIÐ OG TAKIÐ
ÞÁTT í SPENNANDI STARFI
Efnahagsbandalagið - Starfshópur
Kvennalistans um EB hittist í kvöld þriðjudaginn
18. september kl. 20 á Laugavegi 17.
Gestur kvöldsins verður Hannes Jónsson, fyrrver-
andi sendiherra.
LAUNAMAL - KJARAMAL
Launamálahópur Kvennalistans hittist miðviku-
daginn 19. september kl. 20.30 á Laugavegi 17.
AROÐUR - IMYND KVENNALISTANS
Áróðurshópur Kvennalistans hittist miðvikudag-
inn 19. september kl. 20 á Laugavegi 17.
simi 91-13725
J
MYNDBÖND
ÚTGÁFUDAGUR 18. SEPT.
He's crude. Hc's cxass,
Hcs family.
BUCK FRÆNDI
Hann er grófur. Hann er grallari.
Hann er frændi.
John Candy fer á kostum í þessari
sprenghlægilegu grínmynd.
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA! A