Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Page 1
Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik í gær:
Valur á enn möguleika
þrátt fyrir tap í Noregi
- Valsmenn töpuðu 25-21 gegn Sandefjord. - Sjá nánar á bls. 21
Jói Atla áfram
„Þaö er skemmtilegt verkefni aö fá
aö vinna áfram meö þessum strák-
um. Af nýliðum að vera vorum viö
mjög sáttir með árangurinn í sumar
og vonandi náum við aö fylgja þess-
um árangri enn frekar eftir á næsta
keppnistímabili. Við höldum sama
mannskap nema aö Ámi Sveinsson
heldur utan til Lúxemborgar," sagði
Jóhannes Atlason, þjálfari Stjörn-
unnar, í samtali við DV en um helg-
ina var hann endurráðinn þjálfari
Stjömunnar.
• Allar líkur benda til þess að
Óskar Ingimundarson, sem þjálfaði
Víöi í sumar, haldi áfram með liðið
en liðið vann 2. deildina og keppir í
1. deild næsta sumar. _jks
Péturmeð 20,77
Pétur Guðmundsson, kúluvarpari
úr HSK, varpaöi kúlunni 20,77 metra
á innanfélagsmóti Ármanns í Laug-
ardal í gær. Pétur átti best áður 20,66
metra. íslandsmetið er 21,09 metra
sem er í eigu Hreins Halldórssonar.
Þessi árangur Péturs í gær skipar
honum á bekk á meðal 20 bestu kúlu-
varpara í heiminum í dag. Þetta var
um leiö næst lengsta kast á Norður-
löndum í ár, Georg Andersen, Nor-
egi, hefur kastað lengst 20,86 metra.
-JKS
iit,
Lokahófknattspymmnanna:
Sævar og Vanda best
Sævar Jónsson, Val, og Vanda Sigurgeirsdóttir, ÍA, voru kosin leikmenn
ársins 1990 á lokahófi Knattspymumanna sem fram fór á Hótel íslandi á
laugardagskvöld. Bæði áttu þau glæsilegt tímabil í sumar og kom kjör þeirra
ekki á óvart. Steinar Guðgeirsson, Fram, var kosinn efnilegasti leikmaður
íslandsmótsins hjá körlum og Magnea Guðlaugsdóttir, ÍA, var kosin efn-
ilegasti leikmaðurinn í kvennaflokki.
A myndinni hér að ofan eru frá vinstri: Fulltrúi Flugleiða, sem gaf öll verð-
launin, Vanda Sigurgeirsdóttir, ÍA, Steinar Guðgeirsson, Fram, Magnea Guð-
laugsdóttir, ÍA, og Sævar Jónsson.
• Lokahóf knattspyrnumanna í 2. deild fór einnig fram um helgina í Glaum-
bergi í Keflavík. Á myndinni hér til hliðar eru verðlaunahafar frá hófinu,
talið frá vinstri: Guðmundur Baldursson, Fylki, sem valinn var besti miðvall-
arleikmaður 2. deildar, Daníel Einarsson, Víði, besti varnarleikmaðurinn,
Ólafur Pétursson, ÍBK, besti markvörðurinn og efnilegasti markvörðurinn,
óg loks Grétar Einarsson, Víði, en hann var kosinn besti leikmaður 2. deild-
ar, besti sóknarleikmaöurinn og einnig varð hann markakóngur 2. deildar
og fékk Mitre gullskóinn í ár. Sjá nánar á bls. 20.
-SK/DV-myndir GS og Ægir Már
Sigurður einu marki frá meti í 1. deildinni
Sjá nánarí fréttir af handknattleik á bls. 19