Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1990. 5 Fréttir Tillögur Húsafriðunamefndar til menntamálaráðuneytisins: Nef ndin vill láta friða 24 hús í höfuðborginni Túngata 18 Austurstræti 9 Hafnarstræti 1-3 Tjarnargata 28 Pósthússtræti 2 Pósthússtræti 3 Tjarnargata 32 Húsafriðunamefnd hefur lagt til að 24 hús í Reykjavík verði friðuð. Það. er menntamálaráðuneyti sem tekur ákvörðun um slíkt en það hef- ur vísað tillögunumtil Reykjavíkur- borgar til umsagnar. Flest húsin eru í gamla miöbænum en önnur við Tjömina, í Þingholtunum og í vest- urbæ. Húsin, sem friða á, eru ýmist í einkaeign, eign borgar eða ríkis og svo fyrirtækja. Friðunin þarf ekki alltaf að ná til hússins alls heldur er lagt til að mismunandi hlutar hús- anna verði friðaðir. Flestar tillögur húsafriðunamefndar ná til ytra borðs húsanna. TiUögur nefndarinn- ar em gerðar með hhðsjón af niður- stöðun könnunar á gömlum bygging- um og varðveislugildi þeirra sem Hörður Ágústsson listmálari og Þor- steinn Gunnarsson arkitekt gerðu 1967-70. Nauðsynlegur hluti miðbæjarins í gamla miðbænum er lagt til að Austurstræti 9 verði friðað. Það er steinsteypt hús sem Egill Jacobsen lét reisa árið 1920. Lagt er til að frið- unin nái til ytra borðs og loftskreyt- inga á fyrstu hæð. Húsið að Austurstræti 11 er stein- steypt hús sem Landsbankinn á en það var reist árið 1922. Friðun þess á að ná til ytra borðs, upprunalegra innréttinga og veggskreytinga. Að Austurstræti 16 er Reykjavík- urapótek til húsa, svo og skrifstofur Reykjavíkurborgar. Það er stein- steypt hús, reist árið 1916. Friðunin á að ná til ytra borðs, innréttinga í apóteki og stigaganga að sunnan. Pósthússtræti 3, sem upphaflega var bamaskóli, en síðar lögreglustöð, er hlaðið steinhús sem reist var árið 1882. Friðun þess á að ná til ytra borðs. Pósthússtræti 5 er steinsteypt hús sem reist var árið 1914 og ytra borð þess á að friða. Húsin að Pósthús- stræti 3 og 5 em í eigu Pósts og síma. Hús Eimskipafélagsins að Pósthús- stræti 2 er steinsteypt hús, reist árið 1919. Friðun þess á að ná til ytra borðs og afgreiðslusalar á annarri hæð. Að mati húsafriðunamefndar em þessi hús öll nauðsynlegur hluti mið- bæjarins og hafa mótað svip bæjar- ins um langan tíma. Byggingarsögulegt gildi Hafnarstræti 1-3 er jámvarið timb- urhús. Elsti hluti þess er frá 1885 en núverandi útht er frá árinu 1907. Hafnarstræti 16, eða Jóska húsið - Hótel Alexandra, er tvílyft timbur- hús frá árinu 1795. Kirkjutorg 6 er helluklætt tvílyft timburhús frá árinu 1860. Þetta hús er fyrsta tvílyfta íbúðarhúsið í Reykjavík. Lækjargata 10 er steinhlaðið hús frá 1877 og er eitt af elstu steinhlöðnu húsum borgarinnar. Aðalstræti 16 er jámvarið timbur- hús, að stofni til frá tímum Innrétt- inganna en fékk núverandi útht um síðustu aldamót. Friðun þessara húsa á að ná til ytra borðs. Að mati húsafriðunamefndar hafa þessi hús mikið byggingarsögulegt ghdi þar sem þau em meðal elstu húsa Reykjavíkur. Óvenju samstæð heild Húsin við Ijarnargötu, sem lagt er th að verði friðuð, eru öh járnvarin timburhús. Tjamargata 18 er frá ár- inu 1906, Tjarnargata 22 er einnig frá árinu 1906, Tjamargata 24 er frá 1907, Tjarnargata 26 er frá 1908, Tjarnar- gata 28 er frá árinu 1906 og Tjarnar- gata 32, Ráðaherrabústaðurinn, er frá 1908. Friðun þessara húsa á að ná th ytra borðs. Húsið að Vonarstræti 3, Iðnó, er tvhyft timburhús sem reist var árið 1897. Friðun þess á að ná til innra skipulags og ytra horðs. Þá er húsið að Sóléyjargötu 1, Staðastaður, steinsteypt hús frá ár- inu 1912 og friðun þess á að ná til ytra borðs. Mat húsafriðunarnefndar á þess- um húsum er að þau myndi óvenju samstæða heild og friðun þeirra sé framhald á markaðri friðunarstefnu í þessum borgarhluta. Falleg þyrping í Þingholtunum er lagt til að Skál- holtsstígur 7, eöa Landshöfðingja- húsið, verði friðað. Það er timburhús sem reist var árið 1903. Svo og Skál- holtsstígur 6 sem er járnvarið timb- urhús frá árinu 1909. Friöun þeirra á að ná til ytra borðs. Umsögn húsafriðunarnefndar á þessum húsum er að þau fylli upp í fallega þyrpingu velhirtra timbur- húsa á horni Skálholtsstígs. Þrjú hús í vesturbæ Þá eru það þijú hús í vesturbænum sem lagt er th að verði friðuð. Þau em Öldugata 23, Stýrimannaskóhnn gamh, sem er jámvarið timburhús frá 1898, Túngata 18, sem er stein- steypt hús frá 1922, og Landakots- skólinn sem reistur var árið 1908. Friðun þessara húsa á að ná th ytra borðs og mat húsafriðunarnefndar er að þau hafi mikið hstrænt og bygg- ingarsögulegt gildi. Sum í einkaeign Húsin í kringum Tjömina eru mörg í einkaeign. Sigurður Líndal er einn af eigend- um hússins að Tjarnargötu 24 og hann segist vera mjög ánægður með friðunartillöguna. „Ég var nú eigin- lega búinn að friða húsið fyrir löngu sjálfur. Ég hef engu breytt sem heitið getur. Að visu er búið aö setja í hú- sið tvöfalt gler en ég geymi gömlu gluggana svo ég get sett þá í aftur hvenær sem er. Ég vh einmitt halda Tjarnargötunni óbreyttri svo ég er mjög ánægður með þetta,“ segir Sig- urður. Sóleyjargata 1 er í eigu Reykviskr- ar endurtryggingar og Gísh Pálsson forstjóri segist afar ánægður með friðunartillöguna. „Hér er um að ræða hús sem var byggö 1912 og hef- ur sögulegt ghdi og mér finnst rétt að varðveita það. Við keyptum húsið 1985 og höfum lagt áherslu á að hafa það eins og það var byggt. Verðmætin í þessu húsi hggja í sögulegu gjldi þess. Ég er þess vegna mjög ánægður meðþessathlögu,“segirGísh. -ns

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.