Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1990. Úliönd Irakar senda liðsauka til Kúvæt DV Bush Bandaríkjaforseta tókst ekki í gær að fá Gorbatsjov til að fallast á umræður í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um ályktun sem heimilar beitingu vopnavalds gegn írökum. Stríðsskjálfti er nú við Persaflóa í kjölfar yfirlýsingar íraka um að þeir væru að senda tvö hundruð og fimm- tíu þúsund hermenn til viðbótar þeim fjögur hundruð þúsund sem eru í Kúvæt. írösk yfirvöld tilkynntu jafnframt að andstæðingar íraka við Persaílóa þyrftu þrjár milljónir manna undir vopnum áður en þeir gætu reynt að ráðast á íraka í Kúvæt. George Bush Bandaríkjaforseti og Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti, sem báðir eru í París á Ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu, voru í gær sammála um að hernám íraka væri ógnun við heimsfriðinn. Bush tókst hins vegar ekki að fá Gor- batsjov til að lýsa strax yfir stuðn- ingi við að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktaði um heimild til beitingar vopnavalds ef írakar neit- uðu að hörfa frá Kúvæt. Báðir voru leiðtogarnir þó sammála um að ekki væri hægt að útiloka beitingu vopna- valds. Frönsk yfirvöld vísuðu í gær á bug fréttum um að þau hefðu samþykkt að styöja ályktun sem heimilaði vopnavald. Marlin Fitzwater, talsmaður Hvíta hússins í Washington, reyndi að breiða yfir ágreininginn með því að leggja áherslu á að bæði bandarísk og sovésk yfirvöld vonuðust eftir friðsamlegri lausn. Hann sagði aö nú væri ekki rétti tíminn fyrir umræður í Öryggisráðinu um nýja ályktun. Bandarískir sjóliðar æfa björgunaraðgerdir við strönd Saudi-Arabiu í gær. Símamyndir Reuter Stuttu eftir að írösk yfirvöld höfðu tilkynnt um liðsaukann til Kúvæt í gær tjáði Saddam Hussein íraks- forseti svissneskum þingmönnum, sem voru í heimsókn í Bagdad, aö írakar vildu frið en ekki án skilyrða. Saddam sagði viö þingmennina að nokkrir landar þeirra gætu fengið fararleyfi. Síðar um daginn skiptu írösk yfirvöld um skoðun og til- kynntu að svissnesku gíslarnir gætu ekki farið heim fyrir jól. Olíuverð hækkaði um nær dollar í kjölfar fréttanna um Uðsflutningana til Kúvæt. Fór verðið upp í 29,85 doll- ara á tunnuna. Bandarískir sérfræðingar segja sigurlíkur andstæðinga Iraka ekki hafa minnkað þrátt fyrir aukinn liðs- afla íraka í Kúvæt. írösk yfirvöld til- kynntu að hundrað og fimmtíu þús- und mannanna væru úr varaliðinu en hundrað þúsund úr ýmsum deild- um hersins. írakar hafa eina milljón manna undir vopnum og yfir fimm þúsund og fimm hundruð skrið- dreka. íraskir hermenn í Kúvæt og suðurhluta íraks eru yfir fjögur hundruð þúsund. Vestrænir, arab- ískir og afrískir hermenn við Persa- flóa eru nú yfir þrjú hundruð og sjö- tíu þúsund. Á næstum vikum koma hundrað og fimmtíu þúsund banda- rískir hermenn til viðbótar þeim sem fyrir eru. Samkvæmt skoðanakönnun, sem var birt í morgun, eru rúmlega fjöru- tíu prósent Bandaríkjamanna mót- fallnir því að sendir verði hundraö og fimmtíu þúsund bandarískir her- menn til Persafióa til viöbótar þeim sem fyrir eru. Reuter Sögulegir samningar um afvopnun í París en þó eru ekki öll mál leyst: Bandaríkjamenn vantrúaðir á upplýsingar Sovétmanna - grunur leikur á herflutningum til Síberíu fyrir samkomulagið Norrænu forsætisráðherrarnir Ingvar Carlsson og Steingrímur Hermanns- son voru meðal þeirra sem undirrituðu samkomulagið á RÖSE. Hér sitja þeir til borðs með Jacques Santer, forsætisráðherra Lúxemborgar. Simamynd Reuter „Við efumst um að allar upplýsing- arnar sem Sovétmenn hafa gefið okk- ur séu réttar. Það gætu komið upp vandamál síðar,“ sagði Brent Scowc- roft, öryggisráögjafi Georges Bush Bandaríkjaforseta, eftir að samning- ur um víðtæka afvopnun var. undir- ritaður í París í gær. Sáttmálanum á Ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu var almennt fagnað sem endalokum kalda stríðsins þótt augljóst sé að ekki hafi tekist aö jafna alla úfa milli austurs og vesturs með honum. Sátt- málann undirrituðu 22 þjóðarleið- togar, þar á meðal Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra. Það vakti því að vonum töluverða athygli þegar öryggisráðgjafinn lét frá sér fara yfirlýsingar sem minntu meir á sumdurþykkju kalda stríösins en nýja tíma í samskiptum þjóða heims. Georege Bush fagnaði niðurstöðu ráðstefnunnar með öðrum leiðtog- um. í kjölfar ráöstefnunnar verður mikill fjöldi hefðbundinna hertóla eyðilagður. Þar á meðal eru skrið- drekar, fallbyssur, orrustuþotur og þyrlur. Sovétmenn hafa engu svarað efa- semdum Bandaríkjamanna. Þó hefur lengi legið í loftinu aö Sovétmenn hafi ekki talið fram öll þau hergögn sem talið var að þeir ættu. Sovét- menn voru tvö ár að skrásetja öll hergögn sín. Þegar niðurstaðan var kynnt í Vínarborg á sunnudaginn þótti vestrænum hernaðarsérfræð- ingum listinn heldur stuttur. Þá er enn óráðið hvernig eftirliti með eyðileggingum hergagnanna verður háttað. Bandaríkjamenn vilja að það verði gert með gagnkvæmum heimsóknum í herstöövar. Sovét- menn hafa fallist á það en hafa að- eins gefið upp þúsund staði þar sem hergögn eru geymd. Bandaríkja- menn áttu von á að þeir nefndu tvö þúsund staði. Sovétmenn viðurkenna að töluvert af hergögnum hafi verið flutt austur fyrir Uralfjöll áður en samningurinn var undirritaður. Samkomulagið á RÖSE í París nær aöeins til land- svæðisins fyrir vestan Úralfjöll og allt til stranda Atlantshafsins. Óstaðfestar heimildir herma að Sovétmenn hafi flutt 17 þúsund skriðdreka austur fyrir fjöllin til Sí- beríu. Sovétmenn segja aö búnaður hersins í Síberíu verði einnig dreginn saman en ekkert eftirlit verður með því. Reuter Sovétríkin: senda mat strax Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, ætlar að senda nefnd hátt- settra embættismanna til Moskvu þegar í næstu viku til að ræða um matvælaaðstoð við Sov- étmenn. Kohl sagði að mjög brýnt væri koma birgðum matar til Sovétríkjanna áður en vetur legð- ist að með fullum þunga. Kolh segir að koma megi tölu- verðu af mat austur með skörnm- um fyrirvara því vestur-þýska stjómin hefði átt miklar birgðir í Berlín. Þennan mat átti að nota ef borgin lenti öðru sinni i herkví en nú væri sú hætta augljóslega úr sögunni. Kohl ræddi þessi mál við Mik- haíl Gorbatsjov, forseta Sovét- ríkjanna, á RÖSE í París. Þar lagöí kanslarinn mikla áherslu á aö matnum yrði dreift réttlátlega milli landsmanna. Yifrlýsingar Kolh voru skýrðar þannig að hann skildi betur en aðrir leiðtogar á Vesturlöndum hættuna sem stjórnvöldum í Sov- étríkjunum stafaöi af matvæla- skorti og vaxandi óróa meðal al- mennings. Margir óttast að vet- urinn verði stjórn Gorbatsjovs erfiöur og gæti jafnvel orðið henni að falli ef til uppþota kem- ur. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.