Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1990.
9
Michel Rocard, forsætisráðherra
Frakklands, ávarpar franska þingið
í gær. Simamynd Reuter
Frakkland:
situr áfram
Franska stjómin verður áfram við
völd. Stjórnarandstöðunni, sem hafði
farið fram á að atkvæðagreiðsla færi
fram um vantrauststillögu, tókst
ekki að smala þeim 289 atkvæðum
sem þurfti til að fella stjórnina. Það
vantaði 5 atkvæði upp á þrátt fyrir
að kommúnistar gengju í fyrsta sinn
tíl liðs við öfgasinnaöa hægri menn,
gaullista og nokkra miöjumenn.
Stjórnarkreppa í miðjum fundar-
höldum á Ráðstefnunni um öryggi
og samvinnu hefði verið óþægileg
fyrir Mitterrand forseta. Ráðstefnan
er haldin í París og hana sitja þrjátíu
og fjórir þjóöarleiðtogar.
Vantrauststillaga stjórnarandstöð-
unnar var lögð fram í kjölfar tillögu
Rocards forsætisráðherra um nýjan
skatt til að standa straum af trygg-
ingakostnaöi. Stjórn Rocards hefur
einnig verið gerð ábyrg fyrir þeim
verkfóllum og mótmælagöngum sem
efnt hefur verið til í Frakklandi aö
undanfornu. TT
Enn ný Úrvalsbók
Þriðja bókin í þessum bókaflokki komin í verslanir.
Utlönd
Stórbrotin bók um átökin sem gerast
næst okkur um þessar mundir.
Á einni nóttu þyrlast söguhetjan inn í
skuggaveröld borgarastríðsins á írlandi.
Hryðjuverkamennina þyrstir í blóð
- en hvar verður því úthellt?
Meistaralega skrifuð bók sem engan lætur ósnortinn.
Sannkölluð úrvals spennusaga.
Fæst á næsta blaðsölustað - eða þú hringir og færð bókina senda
í póstkrofu án aukakostnaðar.
Sim inn er 91 27022
^ÓRVALSBÆKPR
Pólland:
Rannsókn fyrir-
skipuð á ferli
forseta-
frambjóðanda
Mikill hiti er nú kominn í barátt-
una fyrir forsetakosningarnar í Pól-
landi. Rikissaksóknari hefur fyrir-
skipað rannsókn á ferli milljóna-
mæringsins og forsetaframbjóð-
andans Stanislaws Tyminski vegna
ásakana hans á hendur Tadeusz
Mazowiecki forsætisráðherra. Tym-
inski sakar Mazowiecki, sem keppir
um forsetaembættið við Tyminski
ásamt Lech Walesa Samstöðuleið-
toga, um landráð með því að hafa
boðið útlendingum einkafyrirtæki á
gjafverði.
Talsmaður forsætisráðherrans vís-
aði í gær ásökununum á bug og sagði
Tyminski vera að reyna að blekkja
almenning. Hann dró í efa fullyrðing-
ar Tyminskis um aö hann hefði grætt
miffjónir dollara á viðskiptum með
tölvur og kapalsjónvarp í Kanada og
Perú.
Fyrir mánuði var Tyminski
óþekktur í Póllandi. Hann hefur hins
vegar náð að kynna sig vel. Hann var
tvítugur er hann fór úr landi með
fimm dollara í vasanum eins og hann
segir sjálfur. Nú kveðst hann vera
millj ónamæringur.
í skoðanakönnun, sem gerð var um
helgina, fór forysta Mazowieckis á
Tyminski ört minnkandi. Mests fylg-
is naut Walesa. Tyminski lýsti því
yfir við fréttamenn í gær að hann
myndi brátt leiða í kosningabarátt-
unni. „Ég ætla að vinna þessar kosn-
ingar. Ég er þegar farinn að undirbúa
myndun nýrrar stjórnar,“ sagði
hann.
Tyminski lofaði að leggja fram
gögn til stuðnings ásökunum sínum
á hendur forsætisráðherranum.
Hann kvaðst myndu gera það á fundi
með fréttamönnum í dag.
Forsetakosningar í Póllandi fara
fram 25. nóvember. Reuter
Milljónamæringurinn Stanislav Tyminski á kosningafundi i Kielce í Póllandi
í gær. Hann hefur hleypt hörku í baráttuna fyrir forsetakosningarnar með
ásökunum á hendur Mazowiecki forsætisráðherra. Simamynd Reuter
melbrosia
melbrosia
p.I.d. fc» kvtmM?*
FYRIR BREYTINGARALDURINN
NÁTTÚRDLÆKNINGABÚÐIN
Laugavegi 25, sími 10263. Fax 621901