Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1990. Utlönd Bresklr íhaldsmenn velja á milli Thatcher og Heseltines í dag: Heseltine líklegur til að ná fram annarri umferð - þingmenn hræddir við að missa sæti sín undir forystu Thatcher Taliö er aö Michael „Tarsan" Heseltine eigi góða möguleika á að mæta Margréti Thatcher í annarri umferð kosninga breskra íhalds- manna um nýjan leiðtoga flokks síns. Thatcher er þó enn viss um sigur þegar í fyrstu umferð og nánustu samstarfsmenn hennar segja að ekki fari milli mála að hún hafi stuðning þeirra 214 þingmanna sem þarf til að gera út um valiö þegar í dag. Enginn veit þó nákvæmlega hvernig þingmenn íhaldsflokksins skiptast í afstöðunni til Thatcher og Heseltines. Fylgi þeirra í þing- flokknum hefur aðeins einu sinni verið kannað og þá kom í ljós aö 114 þingenn studdu Heseltine. Könnunin náði þó ekki til allra þingmanna þannig að hlutföllin kunna að vera önnur. Heseltine segist vera viss um aö hann hafl stuðning þeirra 159 þing- manna sem hann þarf til aö ná fram annarri umferð. Takist hon- um þaö verður kosið aftur eftir viku. Þá gætu aöstæður hafa breyst verulega því nýjum frambjóðend- um er heimilt að bjóða sig fram þá. Sterkasta vopn Heseltines í bar- ustu stundu í von um að halda sætum sínum ef vinsælli leiðtogi en Thatcher leiðir flokkinn í næstu kosningum. Margir íhaldsmenn kjósa líka öðru fremur að Douglas Hurd utan- ríkisráðherra verði næsti leiðtogi flokkins. Eina leiðin til að koma honum í valdastól er að nægilega margir þingmenn kjósi Heseltine nú til að kjósa verði aftur. Þá gæti Hurd skorist í leikinn í annarri umferðinni og sigrað. Sumir þingmenn hafa reyjidar látið í ljós ótta við þessa aðferö því hún gæti leitt til þess að Heseltine næði kjöri þegar í fyrstu umferð. Það þykir þó heldur ólíklegt. Thatcher vísar á bug öllum vangaveltum um að hún muni segja af sér nái hún ekki kjöri þeg- ar í dág. Hún hét því í gær að berj^ ast allt til enda. Þó er talið að Dou- glas Hurd muni leggja að henni að víkja með sóma ef það tekst ekki. Hurd er talinn stuðningsmaður Thatcher. Taki hún ekki þátt í end- urvali eftir viku á Hurd trúlega léttan leik í framboði gegn Hesel- tine einum. Reuter Douglas Hurd utanrikisráðherra og Margrét Thatcher forsætisráðherra sitja bæði RÖSE í Paris og verða þvi ekki viðstödd leiðtogakjörið í dag. Talið er að Hurd leggi að Thatcher að hætta verði hún ekki kjörin í dag. Simamynd Reuter áttunni við Thatcher er að benda á að skoðanakannanir sýna að íhaldsflokkurinn myndi auka fylgi sitt undir forystu hans. Margir þingmanna flokksins óttast fall í næstu aöalkosningum enda hafa félagar þeirra fafliö í síðustu tveim- ur aukakosningum. Þeir gætu þvi snúist tfl fylgis við Heseltine á síð- Jeltsin gagnrýnir auk- in völd Gorbatsjovs Boris Jeltsin, forseti Russlands, og Leonid Kravchuk, forseti Úkraínu, með samingana sem þeir undirrituðu um samvinnu þessara tveggja Sovétlýð- velda. Simamynd Reuter llie Verdet, fyrrum forsætisráðherra Rúmeníu, er leiðtogi nýja kommún- istaflokksins. Símamynd Reuter Rúmenar óttast stjómmálaþróunina: Kommúnistamir vakna til lífsins - fyrrum forsætisráðherra formaður Boris Jeltsin, forseti Rússlands, gagnrýndi í gær harkalega áætlanir Mikhails Gorbatsjov Sovétforseta um að auka enn frekar völd sín. Jeltsin lýsti einnig yfir óánægju sinni með að Sovétforsetinn skyldi hafa kynnt áætlun sína án þess að ráð- færa sig fyrst við leiðtoga Sovétlýð- veldanna fimmtán. Jeltsin visaði reyndar ekki alveg á bug áætlun Gorbatsjovs en sagði að hann yrði að kynna sér hana betur. Hann bætti því við að hann óttaðist að með áætlunni væri verið að styrkja tök miðstjómarvaldsins. Þaö myndi Rússland ekki þola. Þessi orð lét Rússlandsforseti falla í Úkraínu í gær stuttu áður en hann undirritaði samning milli Rússlands og Úkraínu um samskipti þessara tveggju stærstu lýðvelda Sovétríkj- anna. Það var á laugardaginn sem Gor- batsjov bar fram tillögúr sínar um aukin völd Sovétforsetans og sam- bandsráösins þar sem sitja forsetar lýðveldanna fimmtán. Æðsta ráðið lýsti yfir stuðningi við tiflögurnar og samþykkti einnig að setja á laggimar öryggisráð undir forystu Gor- batsjovs og efnahagsmálanefnd und- ir forystu sambandsráðsins. Gor- batsjov segir markmiðið með breyt- Undanfama daga hafa sjóliðamir um borð í dönsku korvettunni Olfert Fischer átt við magakveisu að stríða. Skipið er nú norðaustur af Qatar, fyrir miöjum Persaflóanum, og gætir laga og réttar. Kveisan var svo skæð um tíma að leggja varð nokkra sjóliða inn á ingunum vera að draga úr ágreiningi milli miðstjórnarvaldsins og lýðveld- anna sem sífellt kreíjast meiri sjálf- stjórnar. Hann sagði það einnig markmið sitt að reyna að koma i veg fyrir algjört efnahagslegt hrun. Þó svo að þingið kynni sér ekki til- lögurnar í smáatriöum fyrr en á sjúkrahús þar sem danskur læknir annaðist þá. Nú eru þó allir búnir aö taka stöðu sína á ný og á síðustu dögum hafa skipverjar haft afskipti að 14 skipum á leiö um Flóann. Þeir á Olfert Fischer hafa einnig tekið þátt í undirbúningi fyrir heræf- ingar sem Bandaríkjamenn standa föstudag telja þegar margir ólíklegt að leiötogar Eistlands, Lettlands og Litháens séu reiðubúnir til sam- vinnu við Gorbatsjov á þann hátt sem hann vifl. Einnig er gert ráð fyr- ir að leiðtogar í Georgíu, Armeníu og Moldavíu-verði ósamvinnuþýðir. TT og Reuter að. Þar á að æfa landgöngu í Saudi- Arabíu, væntanlega með töku Kú- væts af sjó í huga. Fátt er þó gert opinbert um æfinguna því Saddam Hussein er vís til að komast í slíkar upplýsingar. Ritzau Miklar deilur hafa blossað upp í Rúmeníu eftir að kommúnista- flokkur landsins var endurreistur undir nýju nafni. Flokkurinn heitir nú Sósíalistaflokkur verkamanna en uppruninn dylst þó engum því leiðtoginn er fyrrum forsætisráö- herra úr stjórn Ceausescu, fyrrum einræðisherra í landinu. Sá heitir Uie Verdet og er nú 65 ára gamall. Honum við hlið er Constantin Pirvulescu, 95 ára gam- almenni, sem var á sínum tíma einn af stofnendum rúmenska kommúnistaflokkins. Nýi flokkurinn verður til við samruna brotsins sem var eftir af gamla kommúnistaflokknum og annars flokksbrots sem gekk undir nafninu Lýöræðisflokkur verka- manna. Kommúnistaflokkurinn var aldrei lagði niður formlega þótt allt skipulag hans hryndi til grunna í demsemberbyltingunni á síðasta ári. Meðan flokkurinn var og hét voru í honum 3,4 milljónir félaga. Langflestir þeirra sneru baki viö flokknum þegar Ceausescu féll og héldu flestir Rúmenar að flokkur- inn væri endanlega horfinn af sjón- arsviðinu. Svo er þó ekki og hann á enn ítök meðal landsmanna, ekki síst vegna þess að nýjum vald- höfum hefur gegnið illa aö stjórna landinu það ár sem liðið er frá falli gamla leiðtogans. Um 120 gamlir félagar voru á stofnfundi nýja flokksins. Margir Rúmenar óttast að hann geti í framtíðinni ógnað lýðræöinu i landinu því vitaö er að margir af núverandi ráðamönnum í Rúmen- íu eru enn haflir undir kommún- isma þótt stefnunni sé afneitað op- inberlega. Reuter Magapína um borð í Olfert Fischer

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.