Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1990. Spumingin Finnst þér bjórinn of dýr? Sigurbjörg Þorláksdóttir húsmóðir: Já, það flnnst mér. Ég tel að kippan eigi að kosta um 500 krónur. Valur Geirsson verktaki: Það er eng- in spurning. Glasið ætti að kosta 200-300 krónur á veitingahúsi. Stefán Jónsson sundlaugarvörður: Ég drekk ekki bjór þannig að mér er alveg sama. Svava Guðmundsdóttir afgreiðslu- stúlka: Já, hann er það. Mér finnst að kippan eigi að kosta 600 krónur. Láttvín eru líka alltof dýr. Rósa Hjaltadóttir, húsmóðir og skrif- stofustúlka: Nei, mér finnst veröið alveg hæfilegt. Anna Ólafsdóttir afgreiðslustúlka: Já, mér finnst að glasið eigi aö kosta 150-200 krónur. Lesendur Verðbréfamarkaður veldur áhyggjum: Frjáls afgreiðslutími verslana: Hvers vegna ekki fyrr? Sigurður Gunnarsson skrifar: Nú er loks búið að samþykkja tillögu um breyttan afgreiðslutíma verslana í höfuðborginni. Allur almenningur var orðinn langþreyttur á að þurfa að fara í önnur nærliggjandi bæjarfé- lög til að ná í brýnustu nauðsynjar eftir að verslunum hefur verið lokað hér í Reykjavík. Ekki síst var þétta bagalegt á laugardögum og sunnu- dögum þegar mest liggur við að kom- ast í matvöruverslanir. Enn er þó sá agnúi á að hér verða verslanir ekki opnar um helgar nema sums staðar fyrri hluta laugar- dags vegna þess að nýju reglurnar um afgreiðslutímann taka ekki gildi fyrr en um áramót. En úr því að nú er búið að sam- þykkja þessar breyttu reglur sem eru öllum til hagsbóta má spyrja sem svo: Hvers vegna var þessu ekki breytt fyrr og hvað með öll þau óþæg- indi sem af lokun verslana leiddi? Hversu mikinn skaða höfum víð gert sjálfum okkur með því að hafa veriö svona einstrengislegir varðandi af- greiðslutíma verslana? Hér hafa út- lendingar sem og landsmenn sjálfir staðið uppi með lokaðar verslanir í tvo daga í viku að sumri til á háanna- tíma við erlenda ferðamenn! En sum- ir borgarfulltrúar hafa slegið höfðinu við steininn og vitnað spaklega í vinnuþrælkun verslunarfólks fyrir 70 árum! Og ekki hjálpuðu kaupmenn eða samtök þeirra upp á sakimar. Og gera varla ennþá. Samtök sem þó ættu að öllu jöfnu að vera í farar- broddi fyrir auknu verslunarfrelsi. Þau hafa staöið með afgreiðslufólk- inu en ekki viðskiptavinum þeirra. í dag, þegar þessum reglum hefur ver- ið breytt, kemur enn fram á sjónar- sviðið fulltrúi Kaupmannasamtak- anna og segir í útvarpsviðtali að sam- Vilja kaupmenn þá ekkert verslunarfrelsi eftir allt? Laugardagssíðdegi á Laugavegi. tökin hefðu helst viljað sjá reglur þar sem bannað væri að hafa verslanir opnar á sunnudögum! Líklega ríkti hér enn einokun í verslun og við- skiptum ef Kaupmannasamtökin mættu ráða! Hreyf ing er skilyrði Björn Sigurðsson skrifar: Það er hætt við að nú fari að fara um þá sem annast vörslu og sölu verðbréfa eftir að húsbréfakerfið var sett á fullt og ráðherra og jafnvel Seðlabanki leggja fram dagsskipanir til banka og verðbréfasala. Hingað til hefur sala verðbréfa hér verið afar einfóld og takmarkast við bréf ör- fárra fyrirtækja svo og ríkisins. Eftir að húsbréfakerfið kemur til sögunnar breytist þetta allt. Þar krefst kerfið, eins og alls staðar þar sem verðbréfamarkaður er stundaö- ur, að bréf hreyfist fljótt, kaup og sala sé stöðug og viðskiptavinir geti treyst á aö ávöxtun bréfanna fari eft- ir framboði og eftirspurn á markaðn- um. Þetta þýðir að ávöxtunarkrafa breytist frá degi til dags, jafnvel oftar en einu sinni á dag. í húsbréfakerfinu er ekki um nein- ar langtímaforsendur að ræða og var aldrei viö því að búast að svo yrði. Framboðinu er ekki hægt að stjórna aö ofan þegar til lengri tíma er htið. Hér hlýtur að vera um almenn verð- bréf að ræða og því getur orðið um veruleg afFöll að ræða á þessum bréf- um eins og öðrum. Ástæðulaust er að vænta þess að einhvers konar jafnvægi skapist á þeim markaði sem húsbréfin spanna. Það er einnig borin von að ætlast til þess að Seðlabankinn komi inn í myndina til að mynda mótvægi þótt framboð verði umfram eftirspum. Þessi bréf verða að lúta'lögmálum sem gilda á verðbréfamarkaði um allan hinn vestræna heim,- Menn verða að athuga að varðandi hús- bréfin er verið að róa á sömu mið og með önnur verðbréf þótt ríkið sé bakhjarlinn. En fólk festir aldrei fiár- muni í bréfum sem fara rýrnandi heldur þeim sem auka verðgildið. Og hér er það undirstaðan, verðmæt- in að baki, sem ráða ferðinni - eins og ávallt áður. Af heimaslátrun Bergur skrifár: Það virðist vera komin mikil rösk- un á vinnslu og frágang á kjöti yfir- leitt. Alkunn er meðferð og frágang- ur á íslensku kindakjöti sem til þessa hefur verið klætt í eins konar prjóna- poka og síðan hent í frystigeymslur og leyft aö þorna þar upp áður en það fer á markað. - Mér blöskraði hins vegar að lesa í grein í DV nýlega eftir Jón Hjálmar Sveinsson og lýs- ingu hans á hvemig bændur slátra nú fé sínu í öllum skotum við vægast sagt hæpnar aðstæður og að fram- leitt sé framhjá lögboðinni stýringu. Þetta staðfestir það sem menn hafa verið að fullyrða að á markaðnum sé kjöt af dýrum sem ekki hafi veri slátrað á löglegan hátt. - Á þetta þó einkum að vera nauta- kálfa- og hrossakjöt. - Það er fordæmanlegt ef viökomandi eftirlit lætur þetta við- gangast á meðan verið er að brenna erlent úrvalskjöt einungis vegna þess að það er smyglvamingur. - Hvaöa þjóð brennir og urðar fyrsta flokks matvæli nema við? En sögusagnirnar um heimaslátr- unina eru í hámæli og við fáum sí- fellt staðfestingu á þeim. - Nýlega var í frétt í dagblaði um að lögregla á eftirlitsferð hefði stöðvað bíl á leið frá Akureyri til Reykjavíkur þar sem hún fann hátt í tvo skrokka af heima- slátruðu, óstimpluðu hrossakjöti. - Þetta er því miður ekkert einsdæmi en sýnir að kjötið sem við kaupum er ekki allt skoðað og stimplað sam- kvæmt laganna hljóðan. „Alkunn er meðferð og frágangur á kindakjöti sem er klætt í prjónapoka og hent i frystigeymslu þar sem því er leyft að þorna upp þar til það fer á markaðinn," segir hér m.a. dv Lokuneða listaverk? Hulda hringdi: Ég vil lýsa andúð minni á hvernig farið er með skattpen- inga almennings í landinu. - Nýj- astá dæmið er um að nú á að fara að loka deildum á Bogarspítalan- um og senda sjúklinga heim. - Veikt fólk. Ástæðan er sögð sú að 43 millj- óna króna halli sé á rekstri sjúkrahússins. - Á sama tíma er verið að smíða hstaverk úr járni fyrir Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir um 100 milljón krónur! - Rúmlega helmingi hærri upphæð en þarf til að rétta hallarekstur sjúkrahússins. - Hverjir stjórna forgangsröðinni í útgjöldum rík- isins, að láta listaverk sem stað- segja á við flugstöð, sem þegar er rekin með geigvænlegu tapi, ganga fyrir svo nauðsynlegum þætti í þjóðfélaginu, sem sjúkra- húsþjónusta er? Byrjum í desember Ólafur Þorsteinsson hringdi: Ég var að frétta að nú væri búið að sefia nýjar reglur um afgreiðslu- tíma verslana hér í Reykjavík. Jafnframt les ég svo það í blaði að hinn nýi afgreiðslutími taki ekki gildi fyrr en um næstu áramót. - Þetta þykir mér mjög miður og eig- inlega einkennilegt. Ég skil ekki hvers vegna þessi regla tekur ekki gildi strax úr því að búið er að samþykkja að ógilda eldri reglumar. Ég hélt að ekki væri annar tími betri til að prófa sig áfram en núna í jólamánuðin- um. Ég segi því; Byrjum strax í desember að hafa opnar verslanir á laugardögum og sunnudögum. Fólkið kann áreiðanlega vel að meta þessa auknu þjónustu um helgar. Þá hefur fólk tíma til að gera innkaup án þess að neyðast til að fá frí frá vinnu. Þeireru samtetnir Þóra Björk skrifar: Varðandi lesendabréf í DV hinn 13. nóv. sl. þar sem fullyrt var að hrútspungar væru aldrei borðað- ir vil ég koma því á framfæri að þeir eru nú samt etnir á ýmsum stöðum á landinu. Ég bý á Vestfiörðum og þar em hrútspungar verkaðir á eftirfar- andi hátt Fitan og æðarnar eru hreinsaðar burt, síðan er saltað örhtið ofan í. Að því loknu er saumað fyrir og loks er pungurinn sviðinn, þá soðinn og súrsaður. - Þegar hann er svo orðinn súr er hann étinn með öllu hinu og er, að mínu mati og margra annarra, miklu betri og bragðmeiri en eistun ein og sér. Leiður á Stöð 2 Gunnar Ágústsson skrifar: Ég er orðinn leiður á dagskrá Stöðvar 2, finnst hún raunar orðin algjört rugl. Dagskráin hefur stór- versnað síðan skólasfiórinn kom og tók við sfióminni. Hann hefur vist komið með mennt og menn- ingu frá skólanum, eða hvað? Þegar Jón Óttar var þama við stjórnvölinn sá hann um að í dag- skránni væm ávallt t.d. einhverj- ar spennumyndir. Nú hefur dag- skráin sannarlega verið þynnt út meira en góðu hófi gegnir og með sama áframhaldi verður manni nauðugur einn kostur að gefa stöðina upp á bátinn. Stöð 2 hefði getað verið svo miklu betri. Það er útbreidd skoðun að Stöð 2 verði að taka sig verulega á ef hún á að uppfylla kröfur þær sem fólk gerir til hennar, ekki síst vegna þess að hún er nú einu sinni einn hinna ftjálsu fiölmiðla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.