Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1990.
13
Gosdrykkjastríðiö harðnar:
Bestu kjörin
í mörkuðunum
Óskar Ólafsson skrifar:
Athygli mín var vakin á lesenda-
bréíi í DV í gær (14. nóv.) þar sem
veriö er að ræða samkeppnina á gos-
drykkjamarkaðinum og einokunar-
tilhneigingar framleiðenda til að
reyna að hafa áhrif á kaupmenn til
að selja eða auglýsa aðaUega eina
tegund gosdrykkja. Ég hefi óþyrmi-
lega orðið var við gosdrykkjastríðið
sjálfur er ég kem í sjoppur og mat-
vöruverslanir og kaupi þessa vöru-
tegund.
I gærkvöldi fór ég t.d. í eina sjopp-
una og bað um RC kóla sem ég kaupi
fremur en aðrar tegundir því að
verðið á henni hefur verið mun
lægra. En viti menn, nú var verðið á
eins og hálfs lítra flösku komið upp
í 185 krónur! Ég varð alveg forviöa,
því í flestum stórmörkuðum er þessi
gosdrykkjategund seld á um 100
krónur.
Til að fullvissa mig um að þetta
væri rétt hringdi ég í verslunina
Miklagarð og þar kostar eins og hálfs
lítra flaskan af RC kóla kr. 99. Þar
fær maður einnig einn og hálfan lítra
af Coca cola á kr. 149 á móti kr. 195
í sjoppunum (nýhækkað að sögn) og
2 lítra flaska kostar kr. 194 í stór-
mörkuðunum. Það segir sig því sjálft
að bestu kjörin á gosdrykkjum fær
maður í mörkuðunum.
Maður spyr því sjálfan sig hvers
lags óskapar álagning hljóti að vera
á gosdrykkjunum í sjoppunum. Mér
er sagt að í raun sé framleiðslukostn-
aður á gosdrykkjum afar lítill á
hverja einingu en samkeppnin sé
orðin svo gegndarlaus að framleið-
endur hafi tekið það ráð að hækka
verðið jafnt og þétt eftir því sem
keppinauturinn hækkaði sitt verð.
Þetta er því orðinn vitahringur. Er-
lendis eru gosdrykkir hvergi eins
dýrir og hér á landi. Það hlýtur því
að vera kappsmál fyrir neytendur að
kanna verðlag vandlega á þessari
vinsælu en sífellt dýrari vörutegund.
Mötuneyti, veitingahús, bakarí:
Til sölu
mikið úrval af bæði gömlum og nýjum tækjum.
Gott staðgreiðsluverð.
Upplýsingar í síma 11082.
Hringdu strax.
Símsvari.
Forval
VKS auglýsir hér meö forval verktaka vegna fyrir-
hugaðs útboðs á tölvuvæddu afgreiðslukerfi fyrir
póst- og símstöðvar.
Útboðið mun ná til vélbúnaðar, hugbúnaðar, upp-
setningar, viðhalds og þjálfunar starfsfólks vegna
fyrsta áfanga afgreiðslukerfisins.
Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu VKS, Bílds-
höfða 14, næstu daga milli kl. 9.30 og 16.30.
Skilafrestur upplýsinga vegna forvalsins er til kl.
14.00 þann 17. desember nk. \ / VERK-OGKERFISFRÆÐISTOFAN HF V 1 nil l)SI lOIDA 14. 1 l_’ RIVMAVIK. MMI <.H7".UU
Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Njarðargata 31, hluti, þingl. eig. Jó- hanna Ingvarsdóttir, fer fram á eign- inni sjálfri fimmtud. 22. nóvember ’90 kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík og Kristján Ólafsson hdl.
Einarsnes 4042, 1. hæð, þingl. eig. Bergþóra Gísladóttir, fer fram á eign- inni sjálfri fimmtud. 22. nóvember ’90 kl. 17.00. Uppboðsbeiðendur eru Tryggingastoíhun ríkisins, Gjald- heimtan í Reykjavík, Tollstjórinn í Reykjavík, Guðjón Ármann Jónsson hdl., Ásgeir Thoroddsen hrl. og Atli Gíslason hrl.
Skúlagata 42, þingl. eig. Dögun lif., byggingafél., fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 22. nóvember ’90 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Ásgeir Thoroddsen hrl., Landsbanki Islands, Steingrímur Þor- móðsson hdl., Þórólfur Kr. Beck hrl., Klemens Eggertsson hdl., Fjárheimt- an hf., Tollstjórinn í Reykjavík, Helgi Rúnar Magnússon hdl. og Jón Magn- ússon hdl.
Hólmsgata 2, þingl. eig. G. Jakob Sig- urðsson, fer fram á eigninni sjálfii fimmtud. 22. nóvember ’90 kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru Byggðastofn- un, Fjárheimtan hf. og Gjaldheimtan í Reykjavík.
BORGARFÓGETAEMBÆTTE) í REYKJAVÍK
Laugavegur 45A, 03-01, þingl. eig. Steypuverksmiðjan Ós hf., fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 22. nóvember ’90 kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru Fjárheimtan hf. og Gjaldheimtan í Reykjavík.
Góðútfarar-
þjónusta
B.B. hringdi.
Oftast er skrifað í blöðin ef fyrir-
tæki veita lélega þjónustu en því
miður er mjög sjaldan skrifað um
hitt ef þjónusta er góð. Það vill svo
til að við búum í lýðfijálsu landi þar
sem við eigum að geta valiö og hafn-
að þeirri þjónustu sem við viljum
ekki kaupa eða þeirri sem við viljum
kaupa.
Þannig var að fyrir u.þ.b. mánuði
varð systir mín fyrir þeirri miklu
sorg að missa eiginmann sinn
skyndilega. Það kom í minn hlut að
aðstoða hana við að fara í gegnum
kerfið varðandi útfór og jarðsetningu
eiginmanns hennar. Systir mín vildi
að Útfararþjónustan hf. á Grensás-
vegi sæi um útfórina.
Þetta fyrirtæki er mjög ungt og þar
er rekin mjög góð þjónusta er varðar
hina látnu. - Allt stóð eins og stafur
á bók við að útvega það sem til þurfti.
Útfararþjónustan sá hka um að vera
tilbúin með krossinn á leiðið, merkt-
an hinum látna. Þessari þjónustu
stýrir ungur og geðþekkur maður,
Rúnar Geirmundsson.
Mér skilst að prestar almennt séu
ekkert of hrifnir af þeirri þjónustu
og benda fólki yfirleitt á þjónustu
Kirkjugarða Reykjavíkur. Þess
vegna finnst mér að fólk eigi að fá
að vita um þessa útfararþjónustu og
ég hvet fólk til að kynna sér hana
um leið og aðra þá sem bjóða sams
konar þjónustu.
Hringið í síma
27022
milli kl. 13 og 15,
eða skrifið.
5
Bókahandbók
12. desember nk. kemur út Bókahandbók DV
með upplýsingum um þær bækur sem gefnar eru út
fyrir jólin ’90.
Auglýsingar í Bókahandbók DV þurfa að berast
í síðasta lagi 6. desember nk.
Þeir auglýsendur, sem hug hafa á að auglýsa
í Bókahandbók DV, vinsamlegast hafí samband við
auglýsingadeild DV, Þverholti 11, eða í síma
27022 milli kl. 9 og 17 virka daga, sem fyrst.
ATHUGIÐ!
I Bókahandbókinni verða birtar allar tilkynningar
um nýútkomnar bækur ásamt mynd af bókarkápu.
Birting þessi er bókaútgefendum að kostnaðarlausu.
Æskilegt er að þeir sem enn hafa ekki sent
á ritstjórn nýútkomna bók og tilkynningu geri það
fyrir 6. desember svo tryggt sé að tilkynningin birtist
Verð bókarinnar þarf að fylgja með.
Umsjónarmaður efnis Bókahandbókarinnar er
Hilmar Karlsson blaðamaður.