Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1990.
23
i>v Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
Ath. Magnús Helgason, ökukennsla,
bifhjólapróf, kenni á Mercedes Benz,
R-4411. Ökuskóli og öll prófgögn ef
óskað er. S. 687666, bílas. 985-20006.
Gylfi Guöjónsson ökukennari kennir á
Nissan Sunny ’90. Ökuskóli, bækur
og prófgögn, tímar eftir samkomulagi.
Vinnus. 985-20042 og hs. 666442.
Sverrir Björnsson. Kenni á Galant 2000
GLSi ’90 hlaðbak, hjálpa til við end-
urnýjunarpróf, útvega öll prófgögn.
Engin bið. Sími 91-72940 og 985-24449.
■ Irmrömmun
Rammaborg, innrömmun, Bæjarhrauni
2, Hafnarfirði. Er með álramma og
tréramma, sýrufrítt karton. Opið frá
kl. 13-18 virka daga. Sími 652892.
Rammar, Suðurlandsbraut 12. Alhliða
innrömmun. Ál- og trérammar, plaköt.
Hagstætt verð. Næg bílastæði. Sími
■ Hjólbarðar
4 stk. 13" vetrardekk á Daihatsu
Charade til sölu. Uppl. í síma 91-71593.
■ Húsaviðgerðir
Leigjum út allar teg. áhalda, palla og
stiga til viðhalds og viðgerðar. Tökum
einnig að okkur viðhald og viðgerðir
á fasteignum. Opið alla daga frá kl.
8-18. laugard. frá kl. 10-16. Véla- og
pallaleigan, Hyrjarhöða 7, s. 687160.
■ Velar - verkfæri
Rafstöö til sölu. Elba-Ström, árg. ’83,
23,2 KW, 29 KWA, 3 cyl. Dodge vél,
Stanford rafall á hjólastelli, í góðu
lagi. Upplýsingar í síma 91-671195.
■ Parket
Til sölu parket, lökk og lím. Viðhalds-
vinna og lagnir. Slípun og lökkun,
gerum föst tilboð. Sími 43231.
■ Pyrir skrifstofuria
Tollskýrslur o.fl. Tökum að okkur gerð
tollskýrslna, erlendar bréfaskriftir,
faxsendingar, vélritun skjala, ritgerða
o.Q. Uppl. í s. 91-621669 kl. 10-17 dagl.
■ Verslun
Arfax 1000 hágæðamyndsenditæki,
fax/ljósritunarvél/sími. Allt í sama
tækinu, 10 síðna sjálfvirk sending,
sjálfvirkt endurval, skammval, með
100 númera minni, villu- og bilana-
greining, ljósritun með minnkun og
stækkun o.m.fl. Telefaxbúðin,
Hambraborg 1, Kóp., símar 91-642485,
91-642375 og fax 642375, einnig á
kvöldin í síma 91-642218.
INIiista®
TELEFAX
ÁRMÚLA 8 - SÍMI 67 90 00
Verð frá 68.500 kr. með vsk., fullkomin
tæki. Hafðu samband eða líttu inn.
Optima, Ármúla 8.
■ Varáhlutir
■L YIS
DEMPARAR
r
I
MAZDA
TOYOTA
NISSAN
DAIHATSU
HONDA
Ásamt úrvali i aðrar gerðir. Gæði og
verð í sérflokki. Sendum í póstkröfu.
• Almenna varahlutasalan hf., Faxa-
feni 10, 108 Rvík (húsi Framtíðar),
símar 83240 og 83241.
■ BQar tíl sölu
Til sölu Nissan Patrol, árg. '85, kælibill
með 10 rúmmetra kassa og aldrifi.
Góður bíll. Uppl. í síma 91-675200 og
985-24597.
Til sölu M. Benz 4x4, árg. 1984, sæti
fyrir 14 fullorðna + 3 barnasæti. Bíll
í toppstandi, verð 2,8 milljónir. Uppl.
í síma 98-64442 eftir kl. 20.
Subaru station 4x4 ’87 til sölu, góður
bíll, ath. skipti á ódýrari. Uppl. í síma
91-667146 eftir kl. 18.
■ Líkamsrækt
Fótbolti, körfubolti, blak, skallatennis,
badminton o.fl. Eigum nokkra tíma
lausa í íþróttasalina um helgar og fyr-
ir kl. 17 virka daga. Tilvalið fyrir
vaktavinnu- og skólafólk. Ath. mán-
aðarkort í tækjasal á aðeins 1900 kr.
Góður leiðbeinandi. Námskeið í leik-
fimi byrjar 1. nóvember og 1. desemb-
er, verð 3500 kr. Góður kennari.
Gullsport, Stórhöfða 15, s. 672270.
Frá menntamálaráðuneytinu
Auglýsing um styrkveitingu
til námsefnisgerðar á
framhaldsskólastigi
Ráðuneytið auglýsir hér með eftir umsóknum um
styrk til námsefnisgerðar á framhaldsskólastigi. Til-
gangurinn með styrkveitingunni er að stuðla að auk-
inni námsefnisgerð á framhaldsskólastigi og draga
þannig úr þeim skorti sem er á kennsluefni í hinum
ýmsu námsgreinum, bæði bóklegum og verklegum.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu,
framhaldsskóladeild, fyrir 1 5. desember nk. á þar til
gerðum eyðublöðum sem hægt er að fá í ráðuneyt-
inú.
Allar gerðir af
stimplum
tyrir
hendi
Félagsprentsmiðjan, stimplagerð,
Spítalastíg 10, sími 91-11640,
myndsendir: 29520.
<£iQa
LAUGAVEGI 19 o 17480
Við rýmum, við breytum. Allt á að selj-
ast á algjöru tombóluverði, buxur,
skyrtur, peysur, úlpur, bolir, blússur,
pils, buxnapils og kjólar. Allt að 70%
afsláttur. Allt nýjar vörur.
Lilja, Laugavegi 19, sími 91-17480.
Auglýsing
Endurskoðun á Aðalskipulagi
Reykjavíkur 1984-2004
Lýst eftir ábendingum og tillögum
Á Borgarskipulagi Reykjavíkur er hafin endurskoðun
á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1984-2004 sem sam-
þykkt var af borgarstjórn 21. janúar 1 988 og stað-
fest af félagsmálaráðherra 27. júlí 1988. Aðalskipulag
erstefnumörkun borgarstjórnar varðandi landnotkun,
umferðarkerfi og þróun byggðar næstu tvo áratugina
1990-2010. Þessi endurskoðun er í samræmi við
þá stefnumörkun aðalskipulagsins frá 1988 að Aðal-
skipulag Reykjavíkur verði tekið til endurskoðunar í
upphafi hvers kjörtírhabils, þ.e. á 4 ára fresti. Skipu-
lagsnefnd Reykjavíkur stefnir að því að Ijúka endur-
skoðun aðalskipulagsins um mitt næsta ár.
Borgarbúum er í fyrsta skipti gefinn kostur á að koma
á framfæri skriflegum ábendingum varðandi endur-
skoðun aðalskipulagsins. Þeir sem áhuga hafa á að
kynna sér þessa vinnu geta fengið afhent gögn um
þróun Reykjavíkur á Borgarskipulagi Reykjavíkur,
Borgartúni 3, 3. hæð. Ábendingarnar skulu berast
Borgarskipulagi fyrir 15. desember 1990.
Nýja áhaldahúsið á Selfossi.
DV-mynd Kristján
Selfoss:
Nýtt áhaldahús
veitnanna
Kristján Einarsson, DV, Selfossi:
Vígsluathöfn vegna formlegrar
opnunar á nýju áhaldahúsi fyrir raf-
veitu og hitaveitu Selfoss fór fram
fyrir skömmu. Fjölmenni var við
opnunina á þessu glæsilega límtrés-
húsi. Það er rúmlega 600 m- að ílatar-
máli og var reist á skömmum tíma.
Jón Arni Vignisson byggingameist-
ari og hans menn sáu um uppbygg-
inguna og hefur þeim tekist vel til.
Teiknistofan Hönn á Selfossi hann-
aði húsið sem stendur austan við
Mjólkurbú Flóamanna.
Fram að þessu hafa áhaldahús
hitaveitunnar og rafmagnsveitunnar
verið í sitt hvoru húsinu í sitt hvor-
um enda bæjarins. í nýja húsinu
verður auðveldara aö samnýta tæki
og áhöld og því væntanlega hægt að
lækka kostnað vegna tvöfalds tækja-
búnaður áður.
Meiming
Trúður rænir banka
Bíóhöllin - Snögg skipti ★★
Frekar ófyndið grín
Vonsvikinn starfsmaður borgarskipulags New York borgar ákveður að
ná sér niðri á borginni sem hann hatar. Með aðstoð bróður síns og unn-
ustu skipuleggur hann afar hugvitssamlegt bankarán og kemst undan
með slétta milljón dollara. Eini vandinn sem þá er eftir er að komast
burt úr þessari andstyggilegu borg en það reynist talsvert erfiðara. Á
hælum skúrkanna er gamall lögregluforingi sem er staðráðinn í að hafa
hendur í hári þeirra.
Bill Murray leikur höfuðpaurinn í þessari mynd og er ennfremur leik-
stjóri ásamt Howard Franklin. Murray þessi hefur sýnt sig í að vera góð-
ur gamanleikari og víst er frammistaða hans ágæt. Hið sama má segja
um Geenu Davis sem leikur unnustu hans og Randy Quaid er flnn sem
dálítið heimskur og seinheppinn bróðir og aðstoðarmaður. Jason gamli
Kvikmyndir
Páll Ásgeirsson
Robards leikur lögregluforingjann og gerir það bráðvel eins og hans er
von og vísa eftir tæp 40 ár í faginu.
Gallinn er sá að myndin missir fljótlega flugið. Hún fær fljúgandi start
f bráðskemmtilegu upphafsatriði og senúrnar úr bankanum eru þræl-
fyndnar. Eftir að skötuhjúin eru sloppin þaðan og áhorfandinn þarf að
fylgjast með basli þeirra við að komast út á flugvöll áður en hinn langi
armur laganna nær til þeirra fer honum fljótlega að leiðast. Samt er reynt
að gæða söguþráðinn lffi með farsakenndum uppákomum og skrautlegum
aukapersónum sem sumar er ágætar.
Þreytublærinn ágerist eftir því sem líður á myndina og jafnvel óvæntur
endir megnar ekki að vekja frásögnina af meðvitundarleysi meðalmenns-
kunnar á ný. Grínið verður fljótlega ófyndið og slappt. Áliorfendur geispa
og langar heim að horfa á sjónvarpið.
Quick Change - amerísk.
Leikstjórn: Bill Murray og Howard Franklin eftir handriti þess siðarnefnda byggðu
á skáldsögu Jay Cronley.
Aðalhlutverk: Bill Murray, Geena Davis, Randy Quaid og Jason Robards.