Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1990. Stundum hafa Staksteinar Morg unblaösins sérkennilegan boöskap aö flytja. - Þannig komu mér þeir fyrir sjónir er ég gluggaði í þá 16. október síöastliöinn. Þar segir svo: „Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg efndu til fundar á laugardag þar sem rætt var um þróun mála innan Sovétríkjanna og stööu öryggismála í Evrópu með hliðsjón af þeim breytingum sem þar hafa verið aö gerast... Meöal ræðumanna á þessum fundi var Þóröur Ingvi Guðmunds- son, formaður Varöbergs, sem situr á vegum Framsóknarflokksins í stjórn félagsins. Hann taldi nauð- synlegt aö hergögn og birgðir Bandaríkjahers hér á landi yrðu auknar, að leggja ætti fullbúinn varaílugvöll á Norðurlandi og byggja ætti fullkomna flotahöfn á Reyðarfirði - mætti lít á hana sem ígildi álvers." Enn á kaldri braut Ekki fór það dult að Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg trúðu á ógnarjafnvægið i tíð kalda stríðsins - en að svona erfitt skuli vera að skilja við þá lífssýn er átak- anlegt - og ótrúlegt blygðunarleysi að slíkur áróður skuli rekinn þar nú á sama tíma og alls staðar er verið að draga úr vígbúnaði. - Var- I Ijósi sannleikans Kjallariim Aðalheiður Jónsdóttir verslunarmaður Eðlilegra væri aö Islendingar krefðust þess að herstöðvarnar hér yrðu lagðar niður en að biðja um meiri vígbúnað... En íslenskir hemámssinnar hafa löngum haft undarleg viðhorf og sýnilegt er að kaldastríðshugsjón býr enn í vit- undarlífi þessa framsóknarmanns þó að það sé hvergi orðið til nema í hugarheimi þeirra sem vilja græða á því, eins og vopnaframleiö- endur og íslenskir hernámssinn- ar... En þetta er víst dæmigerður framsóknarmaöur. Ítímans rás Við skulum hverfa yfir til ársins 1974, þá sat að völdum stjórn þriggja flokka. í málefnasamningi hennar var ákvæði þess efnis að herinn færi brott á kjörtímabilinu. „Eölilegra væri að Islendingar krefðust þess að herstöðvarnar hér yrðu lagðar niður en að biðja um meiri vígbún- að.. sjárbandalagiö nánast nafnið eitt og Bandaríkin að leggja niður her- stöðvar víðs vegar í heiminum. FIATALLIS- FIAT - HITACHI HAÞROAÐAR VINNUVÉLAR I J FV7TTTT I H.lhLASKAFLIIR Með: • fullkomnum aðbúnaði tækjastjóra • stórauknum afköstum. • einfaldara viðhaldi. Þrautreyndar vélar til allra verka. Fást í stærðum 7-35 tonn. M.a. Gerð FR10B FR130 FR158 FR20B Vélaafl 115 137 187 235 Þyngd 10,2 12,5 16,0 12,5 Skóflustærð 1,5-1,7 2,0-2,3 2,4-2,8 3,1-3,5 rwm i báiÁf \ Vélakaup hf. KársnesbrautlOO Kópavogi S(mi 641045 y En mörg ljón urðu þá á vegi ís- lenskra hagsmuna eins og bæði fyrr og síðar. Og oft hafa íslending- ar lagt stærstu steinana í eigin götu. - Undirskriftasöfnun fór fram um allt land til að mótmæla brott- för hersins, undir kjörorðinu Variö land. Einnig gekk hópur framsókn- armanna á fund Ólafs Jóhannes- sonar, þáverandi forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokks- ins, og afhenti honum ályktun um utanríkis- og varnarmál, undirrit- aða af 170 framsóknarmönnum víðs vegar af landinu. í þeim hópi voru margir, sem gegndu trúnað- arstörfum fyrir Framsóknarflokk- inn og að sjálfsögðu kom Samband- ið inn í dæmið - enda á kafi í her- manginu þá eins og jafnan síðan. - Þessir menn lýstu sig allir andvíga brottför hersins. Vildu ekki missa spón úr aski sínum fremur en for- maður Varðbergs. íslenskir hernámssinnar fögn- uðu mjög hruni kommúnismans í Austur-Evrópu en sætta sig engan veginn við að grýla þeirra sé dauð og friður skollinn á. Og helst skilst mér að þeir hafi aldrei verið undar- legri en síðan. „Hamagangurá Hóli“ Þegar Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, kom hingað í boði Þjóðleikhússins urðu viðbrögð ýmissa hernámssinna eða harðlínu hægrimanna með ólíkindum á ýmsan hátt, rétt eins og þeir hefðu allt á hornum sér og flest yrði þeim til armæðu. - En kannski er hægt að skilja þetta.kommúnistar" - sem þeir töldu að alls ekki ættu að sýna sig utan dyra meðan forset- inn væri gestur hér, spígsporuðu um allt, meira að segja í Þjóðleik- húsinu, tóku í hönd forsetans og töluðu við hann eins og þegar mað- ur talar við mann. - En út yfir allt tók þó að Havel forseti, er þeir litu á sem sinn mann og pólitískan samherja, skyldi þurfa að gera sér að góðu að sitja til borðs með „kommúnistum" - en þeir sjálfir að standa utan dyra og aðeins finna reykinn af réttunum. - Æ! Æ!... Nammi! Namm! Þá bættu nú ekki herstöðvaand- stæðingar úr skák sem þurftu að koma því upp að ekki væru allir íslendingar hernámssinnar. Ætla mætti að íslenskum hernámssinnum hefðu illa líkað þau ummæli Havel forseta að ekki væri lengur þörf fyrir bandarískar herstöðvar í Evrópu og hernaðar- bandalög hefðu ekki lengur nein- um tilgangi að þjóna. Ný Evrópa mundi ekki þurfa verði eða vernd- ara. Undirhervæng Líklegt má telja aö okkar fram- sýnu fóðurlandsvinir hafi sýnt for- setanum inn í herleiðingu hugar- farsins. Gert honum skiljanlegt að þeir gætu með engu móti hugsað sér að missa „verndarana". Þó er aldrei að vita nema þeir hafi verið svo gagnteknir af gremju út í hegð- un „kommanna" að þeir hafi öld- ungis gleymt að geta þess að þeir ættu sér „verndara" sem hefðu verndað þá fyrir ímynduöum óvini og mundi vernda þá áfram. Banda- ríski herinn skildi -. allar þarfir þeirra. Og sjálfstæði þjóðar sinnar hefðu þeir séð best borgið undir hans verndarvæng. Svo að þeir þyrftu ekki að hugsa um það fram- ar. - En hvað sem þeir hafa sagt eða ekki sagt þá er aldrei að vita nema Havel forseti hafi skynjað hina íslensku reisn og verndaða sjálfstæöi í ljósi sannleikans. Aðalheiður Jónsdóttir Merming Leiðsögn um veröld íslenskrar Ijóðagerðar Námsgagnastofnun hefur nýlega gefiö út þriðju og síðustu bókina í ljóðaútgáfu stofnunarinnar. Bókin heitir Ljóðsprotar en áður hafa komið út bækurnar Ljóðspor árið 1988 og Ljóðspeglar haustið 1989. Ljóð- sprotar eru einkum miðaðir viö börn í fyrstu bekkjum grunnskóla. Kolbrún Sigurðardóttir, Sverrir Guðjóns- son og Þórdís Mósesdóttir önnuðust útgáfu Ljóösprota. Þessum þremur bókum er væntanlega ætlað að koma í staö Skólaljóða sem Kristján J. Gunnarsson, fyrrver- andi fræðslustjóri, tók saman og komu fyrst út fyrir um það bil aldarfjórðungi. Sú bók var meðal vönd- uðustu skólabóka sem út komu á þeim árum og eru glæsilegar myndskreytingar Halldórs Péturssonar listmálara glögglega til vitnis um það. í markmiðum útgáfunnar voru eftirtalin atriði lögð til grundvallar: • Ljóðin væru frá ýmsum tímum og hlutur nútíma- Ijóða ekki minni en eldri ljóöa. • Efni ljóðanna skyldi vera fjölbreytt og höfða til sem flestra nemenda. / • Margs konar ljóðform átti að kynna í safninu. • Við val á ljóðum skyldi hugað að söng. • Ljóöin skyldu vera gefm út í hæfilegum einingum sem hentuðu öllum stigum grunnskólans. • Hlutur kvenna væri eðlilegur í ljóðasafninu. Bókinni er skipt niður í kafla með talsvert nýstárleg- um hætti. Fyrst má nefna aö lög, sem auðvelt er að syngja, eru höfö í sérkafla en aðrir kaflar hafa hlotið heitin: Árið um kring, Dýr og menn, í furðuveröld, Hugleiöingar og heilræði, Ég og við, Jól og Komdu nú að kveðast á. Fyrsti kaflinn þykir mér nýstárlegur og líklegur til að vekja áhuga barna á ljóðum. Ljóð, sem þau þekkja lag við og hafa heyrt það sungiö, er líklegt til að vekja áhuga þeirra á kveðskap. Þess vegna er sú hugmynd að gefa út snældu með söng barnakórs á lögunum í fyrsta kaflanum líkleg til að skila betri ár- angri og meiri áhuga meðal barnanna. Þegar maður sest niður og hugar aö vali ljóöa í svona bók vakna hinar og þessar spurningar. Hvernig stend- ur til dæmis á því að kveðskapur af trúarlegum toga Bókmenntir Sigurður Helgason á alls ekki aðgang að bók af þessu tagi? Læra börn ekki almennt ýmis trúarvers snemma á ævinni? Heföi ég talið það kost við bók af þessu tagi að hafa meira af trúarlegum kveðskap, enda var hann gífurlega rík- ur þáttur í íslenskum skáldskap um margra alda skeið. Þá virðist mér óþarflega mikið vera af svokölluðum nútímakveðskap í bókinni en það er væntanlega í sam- ræmi við markmið þeirra er bókina tóku saman og er gott eitt um það að segja. En því má ekki gleyma að auðveldara er að læra heföbundin ljóð en órímaðan kveðskap, án þess að nokkur dómur sé lagður á gæöi, enda er slíkt smekksatriði. Þaö er greinilegt að forráðamenn Námsgagnastofn- unar hafa lagt metnað sinn í að gera þessa bók vel úr garöi. Myndskreytingar Önnu Cynthiu Leplar eru mjög fallegar og setja skemmtilegan svip á bókina. Þá er umbrot hennar og allur frágangur mjög smekkleg- ur. Stundum heyrast raddir þess efnis að óþarfi sé að láta börn læra ljóð eins og páfagauka. Þau skilji ekki helminginn af þeim og því sé til einskis af stað farið. En eins og í gömlu Skólaljóðunum er lögð áhersla á orðskýringar í bókarlok. Þar er og skrá yfir höfunda og ljóð þeirra og síðast en ekki síst skrá yfir heiti og upphöf ljóða, ásamt skrá yfir höfunda efnis þar sem getið er um úr hvaöa ritum ljóðin eru tekin. Ég held það væri bara dálítið gaman að vera í grunn- skóla og fá Ljóðsprota sem leiðsögn á reikulum fyrstu sporum um veröld íslenskrar ljóðagerðar. Kolbrún Slgurðardóttlr, Sverrir Guðjónsson og Þórdis Móses- dóttir: Ljóösprotar. Reykjavik, Námsgagnastofnun, 1990.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.