Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1990.
21
DV
Byrjaði að
mála á ní-
ræðisaldri
- Agúst Sæmundsson sýnir vatnslitamyndir
„Maður lítur ekki á sig sem neinn
myndlistarmann, að minnsta kosti
ekki ennþá,“ sagði Ágúst Sæmunds-
son, en hann opnaði málverkasýn-
ingu í anddyri Félags- og þjónustu-
miðstöðvar aldraðra í Bólstaðarhlíð
um daginn. Sýningin er haldin í tii-
efni þriggja ára afmæhs þjónustu-
miðstöðvarinar.
Það sem gerir þessa sýningu sér-
staka er að myndlistarmaðurinn er
82ja ára og byrjaði ekki að mála fyrr
en hann var orðinn áttræður. „Þetta
byrjaði með því að ég tók þátt í nám-
skeiði hér innanhúss hjá Sveinbirni
Þór Einarssyni myndlistarmanni. Ég
hef bara ekki getað hætt síðan,“ sagði
Ágúst.
Myndirnar á sýningunni eru
vatnshtamyndir og allar til sölu.
Ágúst selur hverja mynd á 6 þúsund
krónur sem ekki þykir hátt verð fyr-
ir málverk. „Ég vhdi ekki hafa verð-
ið hærra. Mig langaði til að geta gef-
ið fólki kost á að eignast ódýra mynd
ef það kærir sig um,“ sagði Ágúst.
Ágúst lærði á sínum tíma raf-
magnsfræði úti í Noregi og hann tal-
ar enn ágæta norsku. „Ég á ennþá
norska vinkonu úr bekknum mínum
en strákarnir eru víst flestir dauðir.
Þær lifa lengur, konumar."
Ágúst vann hjá Pósti og síma í
fimmtán ár en starfaði síðan sjálf-
stætt, stofnaði m.a. fyrirtækið Síldar-
réttir, sem enn er starfrækt. „Ég
lagði mitt af mörkum við að koma
íslendingum upp á að éta síld,“ sagði
Ágúst Sæmundsson myndhstarmað-
ur.
Sýningin í Bólstaðarhlíð 43 er opin
almenningi frá kl. 2-4 virka daga og
stendur til mánaðamóta.
H. Guð.
Ágúst Sæmundsson við nokkur af verkum sínum. DV-mynd Torill
Skákmót Kiwanismanna var fjölmennt og hart barist i öllum flokkum.
Akureyri:
122 krakkar á skák-
móti Kiwanismanna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Skákmót sem Kiwanisklúbburinn
Kaldbakur á Akureyri hélt fyrir
grunnskólanemendur er að öllum
líkindum fjölmennasta skákmót sem
þar hefur farið fram.
Alls mættu 122 keppendur til leiks
og kepptu í 9 flokkum. Sigurvegar-
amir gengu út með verðlaunapen-
inga um hálsinn og allir þátttakend-
ur fengu viðurkenningarskjal fyrir
þátttökuna.
Sigurvegarar í einstökum flokkum
urðu Helgi Jónsson, Sverrir A. Arn-
arson, Börkur Heiðar Sigurðsson,
Björn Finnbogason, Hafþór Einars-
son, Einar Jón Gunnarsson, Magnús
Dagur Ásbjörnsson, Þórleifur Karls-
son og Þorbjörg Þórsdóttir.
„Lengi býr að fyrstu gerð,“ segir Valgeir Guðbjartsson í Keilufélagi Reykja-
víkur. Sonur hans er aðeins 6 vikna gamall en til þess að guttinn fái nú
örugglega „rétt“ uppeldi lét Valgeir bora billjardkúlu á sama hátt og keiluk-
úlu handa syni sínum. Myndin var tekin á Reykjavíkurmótinu í keilu, sem
haldið var á dögunum. Sveinninn ungi unir vær í fangi föður síns, með
kúluna í fanginu. Sumir tala um öfgar í íþróttum, þetta flokkast ekkert und-
ir þess háttar, er það nokkuð ... ? H. Guð. DV-mynd Sveinn
Uppboðið á dánarbúi Gretu Garbo:
Fólk hrein-
lega um-
tumaðist
Sannkallað Garbo-æði greip um sig
þegar munir goðsagnarinnar voru
seldir á uppboði hjá Sotheby’s í síð-
ustu viku. Um þúsund manns voru
viðstödd uppboðið og svo grimmur
var atgangurinn að uppboðshaldar-
inn átti fullt í fangi með að hafa
stjórn á æstum skrílnum.
Frænka Gretu Garbo, sem er erf-
ingi að auðnum, lét bjóða upp 192
muni úr búslóð leikkonunnar. Fyrir
það fékk hún 2,5 milljón dali en fyrr
í vikunni hafði hún selt aðra list-
muni úr búinu fyrir 18,2 milljón dali.
Ef við yfirfærum summuna á ís-
lenskan gjaldmiðil er eftirtekja
frænkunnar einn milljarður, eitt
hundrað og sautján milljónir og átta
hundruð þúsund. Þá á hún eftir að
greiða uppboðshöldurunum rúmlega
11 milljónir.
Gírugur mannijöldinn fylgdist með
er hlutir úr dánarbúinu seldust, í
sumum tilvikum fyrir margfalt
hærra verð en bjartsýnustu menn
höfðu þorað að gera sér væntingar
um. Hámarkinu var náð er málverk
eftir Albert Andre var slegið fyrir
187.000 dali, eða rúmlega 10 milljónir
króna. Það var fimm sinnum hærra
verð en gert var ráð fyrir að fengist
fyrir verkið.
„Verðið hér er hreint brjálæði,
þetta er hlægilegt!" sagði sögupróf-
essor sem fylgdist með uppboðinu.
„Allir ala með sér drauma um að
vera einhver annar, eiga meiri pen-
inga, meiri frægð, meiri fegurð,
meira allt. Þetta fólk á uppboðinu er
að reyna að nálgast þennan draum,“
sagði Barbara B. McLean, sem verið
Greta Garbo, ein af drottningum
svart-hvitu myndanna. Hætt er viö
að hún sneri sér við í gröfinni ef hún
vissi af látunum í kringum jarð-
neskar eigur hennar nú.
hafði vinkona Garbo síðastliðin 57
ár. Hún bauð ekki í neitt en ofbauð
fjárhæðirnar sem boðiö var fyrir
munina.
Talað var um að þetta væri von-
andi lokaatlagan sem gerð væri að
friðhelgi Gretu Garbo, sem bað þess
eins að fá að vera í friði síðustu ára-
tugina sem hún lifði.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Sylvester Stallone
Bandaríski leikarinn Sylvester
Stallone hefur viðurkennt að
hjónaskilnaðir hans hafi kostað
hann tæplega 1,4 milljarða ís-
lenskra króna. Stallone hefur
kvænst tvisvar og skiliö jafnoft.
Ekki hafa þessi útgjöld þó nein
úrslitaáhrif á tjárhag leikarans.
Síðasta mynd sem hann lék í,
Rocky 5, gaf honum á annan
milljarö króna í aðra hönd. Þá eru
ótaldar allar hinar Rocky-mynd-
irnar ásamt öðrum myndum sem
hann hefur leikið í og slegið hafa
í gegn.
Seinni konu sinni, fyrirsætunni
og leikkonunni Birgitte Nielsen,
greiddi hann 320 milljónir við
skilnaðinn og aðrar 160 milljónir
fyrir að lofa að tala hvorki né
skrifa um hjónaband þeirra.
Fyrri konu sinni, Sasha, greiddi
hann rúmlega 900 milljónir. Þau
skildu eftir að Stallone var nýorð-
inn stjarna en Sasha var sögð
hafa átt stóran þátt í þeirri vel-
gengni hans.
Whitney Houston
segist vera ástfangin af leikaran-
um og grínistanum Eddie Murp-
hy. „Við höfum verið að kynnast
betur og betur síðasta hálfa ann-
að árið. Ég elska Eddie og ég veit
að Eddie elskar mig. Við erum
bæði mjög rómantísk," segir
Whitney.
Ástæðuna fyrir því að hún ákvað
að gera uppskátt um samband
hennar og Eddie segir hún vera
þá að undanfarið hafi hún ítrekað
verið bendluð ranglega við að-
stoðarmann sinn, Robyn Craw-
ford.
Eddie Murphy hefur verið iðinn
við kolann í kvennamálum. Ár
er síðán hann sleit trúlofun sinni
og söngkonunnar Lorraine Pear-
son úr hljómsveitinni Five Star.
John Lennon
Lokkur úr hári Johns Lennon
verður meðal þess sem boðið
verður upp hjá uppboðsfyrirtæk-
inu ChristiesÞ í London þann 20.
desember nk.
Lokkurinn er „aðeins" metinn á
55 þúsund krónur en hætt er við
að einhver sé tilbúinn að greiða
hærra verð fyrir lagðinn.
Auk þess verður boðin upp silki-
skyrta sem Rudolph Valentino
átti eitt sinn, seðlaveski James
Dean og svipa sem Harrison Ford
notaði í myndinni um Indiana
Jones. Svipan er metin á 550 þús-
und krónur.