Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Page 5
20
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991.
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991.
21
Messur
Árbæjarprestakall. Bamaguösþjónusta
kl. 11. Sr. Kristinn Ágúst Friöfinnsson.
Kirkjubíll fer um hverfið fjrir og eftir
guösþjónustuna, fer frá Ártúnsskóla kl.
10.40 og Selásskóla kl. 10.55. Guðsþjón-
usta kl. 14. Beðið fyrir friði við Persaflóa.
Vænst er þátttöku fermingarbarna og
foreldra þeirra í messunni. Fyrirbæna-
guðsþjónusta miðvikudag kl. 16.30.
Ásprestakall. Bamaguðsþjónusta ki. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kaffisala Safnaðar-
félags Ásprestakalls eftir messu. Munið
kirkjubílinn. Ámi Bergur Sigurbjöms-
son.
Breiðholtskirkj a. Barnaguðsþj ónusta
kl. 11. Messa kl. 14. Altarisganga. Organ-
isti Daníel Jónasson. Þriðjudagur. Bæna-
guðsþjónusta kl. 18.30. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja. Bamaguðsþjónusta kl.
11. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sr. Pálmi
Matthíasson. Guðsþjónusta kl. 14. Organ-
isti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi
Matthiasson.
Digranesprestakall. Barnasamkoma í
safnaðarheimilinu við Bjamhólastíg kl.
11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 14.
Vænst er þátttöku fermingarbarna og
foreldra þeirra. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
Dómkirkjan. Kl. 11. Messa. Prestur sr.
Þórir Stephensen. Barnastarf í safnaðar-
heimilinu á sama tíma. Kl. 17. Bænaguðs-
þjónusta. Beðið fyrir friði. Biskup ís-
lands, herra Ólafur Skúlason, tekur þátt
í guðsþjónustunni. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson. Organleikari við báöar
messumar er Kjartan Siguijónsson. Mið-
vikudagur. Hádegisbænir í kirkjunni kl.
12.15.
Elliheimilið Grund. Guðsþjónusta kl. 10.
Sr. Magnús Bjömsson.
Fella- og Hólakirkja. Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Umsjón Jóhanna Guðjóns-
dóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Organisti Guðný M.
Magnúsdóttir. Þriðjudagur. Fyrirbænir í
Fella- og Hólakirkju kl. 14. Miðvikudag-
ur. Guðsþjónusta kl. 20.30. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Sönghópurinn „Án
skilyrða" annast tónhst. Fimmtudagiux
Helgistund fyrir aldraða í Gerðubergi kl.
10 f.h. Sóknarprestar.
Fríkirkjan í Reykjavík. Guðsþjónusta
kl. 11.00. Athugið breyttan tíma. Sérstak-
lega verður beðið fyrir friði þegar tveir
dagar em eftir af lokafresti í Austurlönd-
um nær. Ræðumaður Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra. Mið-
vikudagur 16. jan. kl. 7.30. Morgunand-
akt. Orgelleikari Violeta Smid. Cecil Har-
aldsson.
Grafarvogssókn. Messuheimili Grafar-
vogssóknar, Félagsmiðstöðinni Fjörgyn.
Bamamessa kl. 11. Skólabíllinn fer frá
Húsahverfi kl. 10.30 í Foldir og síðan í
Hamrahverfi. Guðsþjónusta ki. 14. Org-
anisti Sigríður Jónsdóttir. Sóknarprest-
ur.
Grensáskirkja. Bamasamkoma kl. 11.
Eldri bömin uppi í kirkjunni, yngri böm-
in niðri. Messa kl. 14. Prestur sr. Halldór
S. Gröndal. Organisti Árni Arinbjamar-
son. Prestamir.
Hallgrímskirkja. Messa og barnasam-
koma kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lámsson.
Guðsþjónusta kl. 14. Kirkja heyrnar-
lausra. Sr. Myiako Þórðarson. Messa kl.
17. Altarisganga. Beðið fyrir friði. Sr.
Karl Sigurbjömsson. Þriðjudagur. Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Landspítalinn. Messa kl. 10. Sr. Karl Sig-
urbjömsson.
Háteigskirkja. Kl. 10. Morgunmessa. Sr.
Amgrímur Jónsson. Kl. 11. Barnaguðs-
þjónusta. Kirkjubíllinn fer um Suður-
hlíðar og Hlíðar fyrir og eftir guðsþjón-
ustuna. Kl. 14. Hámessa. Sr. Amgrímur
Jónsson. Kvöldbænir og fyrirbænir em
í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18.
Hjallaprestakall. Messusalur Hjalla-
sóknar, Digranesskóla. Bamamessur kl.
11. Húsið opnað kl. 10.30. Almenn guðs-
þjónusta kl. 14. Fermingarböm aðstoða.
Organisti Elías Daviðsson. Sr. Kristján
Einar Þorvarðarson.
Kársnesprestakall. Fjölskylduguðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 11. Skólakór
Kársness syngur ásamt kirkjukómum.
Léttir söngvar. Organisti Guðmundur
Gilsson. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Langholtskirkja. Kirkja Guðbrands
biskups. Óskastund bamanna, söngur,
sögur, leikir. Þór Hauksson og Jón Stef-
ánsson sjá um stundina. Guðsþjónusta
kl. 14. Prestur sr. Kristinn Ágúst Frið-
Mynd úr uppfærslu L.R á „Þrjár systur" eftir Tsjekhov leikárið 1956/57. Kristín Anna Þórarinsdóttir, Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Helga Valtýsdóttir í
hlutverkum sínum.
Kammermúsíkklúbburinn:
Þriðju tónleikar á sunnudaginn
Kammermúsíkklúbburinn heldur
sína þriðju tónleika á starfsárinu á
sunnudag kl. 20.30 í Bústaðakirkju. Á
efnisskrá tónleikanna verða verk eft-
ir Claude Debussy sem heitir Syrinx
(eða flauta skógarguðsins) og er sam-
ið fyrir einleiksflautu árið 1913. Eftir
Debussy veröur einnig flutt sónata
fyrir flautu, lágflðlu og hörpu frá
árinu 1915. Flutt verður Sónata IV í
einum þætti fyrir altflautu og hörpu
eftir Jónas Tómasson sem samið var
1972. Eftir hlé verður flutt Diverti-
mento fyrir fiðlu, lágfiðlu og knéfiðlu
í Es-dúr eftir Wolfgang Amadeus
Mozart.
Flytjendur á tónleikunum eru
Martial Nardeau á flautu, Elísabet
Waage á hörpu, Ingvar Jónasson á
lágfiðlu, Einar Sveinbjörnsson á
fiðlu og Bryndís Halla Gylfadóttir á
knéfiðlu.
Kristján Jón á Mokka
Kristján Jón Guðnason opnaði í
gær sýningu á myndskreytingum við
ljóð Gyrðis Elíassonar á Mokkakaffi
viö Skólavörðustíg. Fyrir utan
myndskreytingarnar eru til sýnis
nokkrar litkrítarmyndir frá Grikk-
landi.
Kristján er fæddur í Reykjavík 1943
og stundaði nám í Myndlista- og
handíðaskóla islands á árunum
1961-1964 og í Listiðnaðarskólanum
í Ósló 1965-1967.
Kristján hefur sýnt á haustsýning-
um FÍM nokkrum sinnum frá 1972.
Einnig hefur hann sýnt í anddyri
Norræna hússins og haldið nokkrar
einkasýningar á ýmsum stöðum í
Reykjavík.
Útivist í póstgöngu
Aðalraðganga Útivistar 1991, póst-
gangan, verður með breyttu sniði frá
fyrri raðgöngum og unnin í sam-
vinnu viö Póst og síma. Gengnar
veröa leiðir sem landpóstarnir fóru
seinni hluta síðustu aldar suður meö
sjó og síðan austur í sveitir og til
baka til Reykjavíkur. Póstur og sími
mun opna pósthús sem verða á leið
göngunnar og verða þar stimpluð
frímerkt göngukort sem þátttakend-
ur fá í hverri ferð. í hverjum áfanga,
en þeir verða farnir hálfsmánaðar-
lega, verða gefnir möguleikar á
lengri eða skemmri dagsferð.
Fyrsti áfangi póstgöngunnar verö-
ur genginn á sunnudag, 13. janúar,
og leggur gangan af stað frá skrif-
stofu Útivistar, Vesturgötu 4, kl.
10.30. Þaðan verður gengið niður í
miðbæ með vikomu á Pósthúsinu,
Fógetagarðinum og verður síðan
fylgt leiðinni suður að Skildinganesi.
Þaðan verður gengið í Austurvör.
Feriað verður yfir Skerjafiörð ef fólk
vill en annars er boðið í rútuferð að
Bessastaðanesi. Frá Bessastöðum
verður gengið að Görðum og þaðan
til -Hafnarfiarðar þar sem göngunni
lýkur.
Hægt er aö fara styttri ferð einnig
og verður hún farin kl. 13.00 frá bens-
ínsölu BSÍ kl. 13.00. Ekkert þátttöku-
gjald er og feriuferðin og aksturinn
ókeypis. Fróðir menn verða með í för
og rifiuð verður upp saga og örnefni
á leiðinni á meðan notið er útivistar.
I upphafi var óskin er yfirskrift
sýningar sem opnuð verður í dag í
forsal Borgarleikhússins. Sýningin
er haldin á vegum Borgarskjalasafns
Reykjavíkur og Leikfélagsins.
Borgarskjalasafnið tekur við skjöl-
um og gögnum félaga, fyrirtækja og
einstaklinga í Reykjavík til varð-
veislu, auk skjala frá fyrirtækjum
og stofnunum borgarinnar. Safnið
varðvéitir skjöl og gögn Leikfélags
Reykjavíkur frá stofnun þess og þar
margt merkilegt að finna en Leik-
félagið er bráðum aldargamalt.
Á sýningunni verða tugir ljós-
mynda, aðallega úr innlendum og
erlendum verkum sem sýnd hafa
verið á hjá Leikfélaginu - allt frá
stofnun þar til nú. Að auki verða
sýnd gömul handrit, leikskrár og
ýmis forvitnileg skjöl. Væntanlega
munu margir sýningargesta þekkja
gamalkunnug andlit af sviðinu á
myndum og til að kanna hversu vel
menn muna eftir stjörnum fyrri ára
eða einstökum sýningum, geta menn
spreytt sig á léttri getraun og jafnvel
hreppt vinning.
í dag er afmælisdagur félagsins en
það var stofnað 11. janúar 1897. Af-
mælissýningin er opin almenningi
en að auki opin leikhúsgestum fyrir
sýningar. Aðgangur er ókeypis.
Pósturinn tilkynnir komu sína 1909.
finnsson. Organisti Jón Stefánsson. Kór
Langholtskirkju. Sóknamefndin.
Laugarneskirkja. Messa kl. 11. Prestur
sr. Bjami Karlsson. Bamastarf á sama
tíma. Heitt á könnunni eftir guðsþjón-
ustuna. Fimmtudagur. Kyrrðarstund í
hádeginu. Orgelleikur, fyrirbænir, altar-
isganga. Sóknarprestur.
Neskirkja. Bamasamkoma kl. 11 í um-
sjón Sigríðar Óladóttur. Sr. Frank M.
Halldórsson. Guðsþjónustá kl. 14. Orgel-
og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guð-
mundur Óskar Ölafsson. Miðvikudagur.
Bænamessa kl. 18.20. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson.
Seljakirkja. Bamaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Gyða Hallldórs-
dóttir. Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Bamastarf á sama tíma.
Umsjón hafa Kristin Þ. Tómasdóttir og
Eimý Ásgeirsdóttir.
Fríkirkjan Hafnarfirði. Bamasamkom-
an fellur niður og verður næst að viku
liðinni. Einar Eyjólfsson.
Grindavikurkirkja. Sunnudagaskóli kl.
11. Messa kl. 14. Sóknarprestur.
Keflavíkurkirkja. Helgistund í sjúkra-
húsinu kl. 10.30. Sunnudagaskóli kl. 11.
Munið skólabílinn. Messa (altarisganga)
kl. 14. Guðmundur Ólafsson syngur Frið-
arins Guð. Organisti Einar Om Einars-
son. Bifreið fer að íbúðum eldri borgara
við Suðurgötu kl. 13.30, þaðan að Hlé-
vangi við Faxabraut og sömu leið til baka
að lokiimi messu. Sóknarprestur.
Tónleikar
Tónleikar íslensku
hljómsveitarinnar
íslenska hljómsveitin heldur þriðju tón-
leika starfsársins í Langholtskirkju
sunnudaginn 13. janúar nk. kl. 17. Tón-
leikamir bera yfirskriftina „París - Vín
- París" en á efnisskránni em kammer-
hljómsveitarverk eftir frönsku tónskáld-
in Francis Poulenc og Darius Milhaud
en auk þess kammerverk eftir Anton
Webem og Alban Berg. Öll eiga verkin
það sameiginlegt að vera samin á fyrri
hluta þessarar aldar. Stjórnandi á tón-
leikunum er Guömundur Óli Gunnars-
son og einsöngvari barítónsöngvarinn
John Speight. Sigurður Flosason saxó-
fónleikari Ieikur einnig stórt hlutverk
þar sem saxófónninn er mjög áberandi í
nær öllum verkunum.
Námskeið
Námskeiö um reglulegt
mataræði
Ásgeir Hannes Eiríksson alþingismaður
mun í kvöld, fóstudag, kl. 21-23.30 og á
morgun, laugardag, kl. 10-18 halda nám-
skeið um reglulegt mataræði. Námskeið-
ið verður í fundarsal ÍSÍ í Laugardal.
Ásgeir byggir námskeiðið á bók sinni um
reglulegt mataræði sem kom út fyrir jól-
in 1988. Mottó námskeiðisins er: Öðlist
rétta líkamsþyng og haldið henni ævi-
langt. Skráning er í síma 91-74811.
Tilkyimingar
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt verður
af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10. Hefjið
nýja árið með þátttöku í laugardags-
göngunni. Markmið göngunnar er: sam-
vera, súrefni og hreyfing. Hafið hentugan
fatnað við rúmstokkinn. Nýlagað mola-
kaffi.
Krárstemning í
Hólminum
Helgi Sigutjónsson skemmtir um helgina
í Hólminum, Hólmaseli.
Skákskólinn eykur
starfsemina
Nú um helgina hefst síðari starfsönn
Skákskólans á þessum vetri. Verður hún
með svipuðu sniði og í haust þannig að
kennt verður bæði í Reykjavík, í húsi
Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162 og
úti um land. Kennslan byrjar í Grundar-
firði í dag og á öðrum stöðum á Snæfells-
nesi næstu daga. Kennarar verða Torfi
Ásgeirsson og Lárus Jóhannesson en
kennsla í Reykjavík hefst þriðjudaginn
15. janúar en innritun verður 12. og 13.
janúar kl. 14-18 báða dagana. Kennarar
í ReyKjavík verða Sturla Pétursson og
Óli Valdimarsson. Ekki hefur verið
ákveðið um tilhögun á vorönn en gert er
ráð fyrir að hún hefjist í byrjun apríl eða
um sumarmál. Sími Skákskólans er
25550.
Fimirfætur
Dansæfing verður í Templarahöllinni viö
Eiríksgötu sunnudaginn 13. janúarkl. 21.
Upplýsingar í síma 54366.
Aldrei aftur í megrun
Mánudagskvöldið 14. janúar kl. 20.30
verður Mannræktin meö kynningu á
Gronn-vörum og Gronn-námskeiðum í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi,
Breiðholti. Þama verður fjallað um mat-
arfikn og áhrifaleiðir til bata. Aðgangur
að fyrirlestrinum er ókeypis og öllum
opinn sem vilja kynna sér nýjar og árang-
ursríkar hugmyndir um heilbrigt matar-
æði. Gronn-námskeið verður haldið
kvöldin 16., 17. og 18. janúar kl. 20-23
ásamt laugardeginum 19. janúar kl. 9-17.
Skráning á námskeiðið fer fram að fyrir-
lestrinum loknum og mikilvægt er að
væntanlegir þátttakendur mæti þar.
Leiðbeinandi á námskeiðunum er Áxel
Guðmundsson. Hann hefur sjálfur átt við
matarfíkn að stríða og hefur náð góðum
árangri með þessu kerfi. Á öllum Gronn-
námskeiðunum er þagnarskylda sem
þýðir að þátttakendur segja ekki óvið-
komandi frá því hverjir aðrir eru á nám-
skeiðinu eða hvað þeir segja og gera.
Mynd eftir Rjazanov
í MÍR
Fyrsta kvikmyndasýning MÍR i bíósaln-
um á Vatnsstíg 10 verður nk. sunnudag,
13. janúar, kl. 16. Þá verður sýnd ein af
myndum Eldars Rjazanovs, hins kunna
sovéska kvikmyndagerðarmanns,
„Grimmileg ástarsaga" (Shestokíj ró-
mans). Kvikmyndin er byggð á leikritinu
Stúlka án heimanmundar eftir Alexand-
er Ostrovskí, lúð fræga rússneska leik-
skáld frá síðustu öld. í leikritinu og
myndinni segir frá raunalegtun forlögum
Larisu Ogúdalovu, dóttur eignalauss að-
alsmanns. Meðal leikenda eru Larisa
Gúseva, Alísa Freindlikh og Nikita Mik-
halov. Aðgangur að kvikmyndasýning-
unni er ókeypis og öllum heimill.
Barðstrendingafélagið
í Reykjavík
heldur nýársgleði í Hreyfilshúsinu laug-
ardaginn 12. janúar. Húsið opnað kl. 21.
Mætum í furðufótum, grímubúningi eða
í jólafótum - sem flestir í grímubúningi.
Húnvetningafélagið í
Reykjavík
Félagsvist nk. laugardag kl. 14 í Húna-
búö, Skeifunni 17. Þriggja daga keppni
ap hefjast. Allir velkomnir.
Skákþing Reykjavíkur
Skákþing Reykjavíkur 1991 hefst nk.
sunnudag 13. janúar og verður teflt í fé-
lagsheimili Taflfélags Reykjavíkur aö
Faxafeni 12. í aðalkeppninni, sem hefst á
sunnudaginn kl. 14, munu keppendur
tefla saman í einum flokki ellefu um-
ferðir eftir Monrad-kerfi. Umferðir verða
að jafnaði þrisvar í viku, yfirleitt á
sunnudögum kl. 14 og á miðvikudögum
og fostudögum kl. 19.30. Biðskákdagar
verða inn á milh. Aðalkeppninni lýkur
væntanlega 7. febrúar. Keppni i flokki 14
ára og yngri á Skákþingi Reykjavíkur
hefst laugardag 26. janúar kl. 14. í þeim
flokki verða tefldar níu umferðir eftir
Monrad-kerfi, umhugsunartími 40 mín-
útur fyrir hvem keppenda. Keppnin tek-
ur þrjá laugardaga, þrjár umferðir í senn.
Bókaverðlaun verða fyrir a.m.k. fimm
efstu sæti. Lokaskráning verður á laug-
ardag, 12. janúar, kl. 14-18 og er öllum
heimil þátttaka.
Gamlirog nýir
samkvæmisdansar
í dag, 11. janúar, hefst síðvetrarstarf SGT
(Skemmtinefndar góðtemplara). Það
hefst með félagsvist og dansleik við und-
irleik lifandi hljómsveitar í Templara-
höllinni, Eiríksgötu. Félagsvistm hefst
kl. 21. Þar verða veitt vegleg kvöldverö-
laun. Dansinn hefst kl. 22.30. Hljómsveit-
in Tíglarnir sér um fiörið. Skemmtunin
er opin öllum sem vilja skemmta sér án
áfengis. Vakin skal athygU á því að þarna
gefst gott tækifæri fyrir nemendur dans-
skóla til að æfa sig í gömlu og nýju sam-
kvæmisdönsunum á raunverulegum
dansleik við lifandi hljómsveitarundir-
leik á einu besta dansgólfi borgarinnar.
dv Menning
Isabel Allende.
Ástin er ekki
það versta
Isabel Allende heillaði okkur upp úr skónum með Húsi andanna,
sinni fyrstu og bestu bók sem kom út á spænsku fyrir rúmum átta árum og
sló rækilega í gegn. Allende hélt athygli lesenda með næsta verki, Ást
og skuggum, en ég er fráleitt sá eini sem varð fyrir vonbrigðum með
þriðju skáldsögu hennar sem kom út á íslensku fyrir jólin í fyrra: Eva
Luna er ekki illa skrifuð bók en hún er sundurlaus og endaslepp án þess
að þeir eiginleikar gagnist henni aö neinu leyti sem kostir. Eitt af því sem
stóð skáldsögunni fyrir þrifum var að helsta sérkenni aðalpersónunnar,
sagnagáfan, fékk ekki útrás í textanum: við vitum að Eva Luna segir
sögur en fáum mest lítið af þeim að heyra. Hér er bætt úr því. Það er
freistandi að ímynda sér að upphaflega hafi verið til drög eða hugmynd
að skáldsögu með útúrdúrum og innskotssögum, nútíma Þúsund og ein
nótt, sem í framkvæmd hafi klofnað í tvær bækur, skáldsögu og smásagna-
safn. Hvort sem eitthvað er hæft i þeirri tilgátu eða ekki er „Eva Luna
segir frá“ ljúf lesning og vel heppnuð bók.
Örlagasögur
Sameiginlegt stef í þeim 23 sögum sem Isabel Allende lætur Evu segja
okkur er ástin í víðustu merkingu orðsins, ástin sem lífskraftur. Þetta
Bókmenntir
Jón Hallur Stefánsson
eru fjölbreytilegar sögur og ekki allar jafnsterkar. Sumar eru varla ann-
að en mannlýsingar, æviferill í stórum dráttum, og gætu vel staðið sem
kafli um aukapersónu í skáldsögu; aðrar eru hnitmiðaðri kringum eitt
atvik eða röð atvika. Sögurnar fjalla allar um miklar tilfmningar, svæsna
atburði og afgerandi örlög. Flestar eru þær skrifaðar í fjörlegum ýkjustíl
af óhaminni frásagnargleði: höfundur nýtur þess augljóslega að skrifa
og bruðlar með persónur og tíðindi eins og flugelda á gamlárskvöldi.
Þessi gnótt getur að öllum líkindum ofmettað alvarlega þenkjandi lesend-
ur og sennilega er vissara að lesa ekki of margar sögur í einu.
Afdrif fólks eru alltaf aðalatriðið í þessum sögum og er þar ekkert sem
skyggir á: jafn stíllinn er án upphlaupa eða óvæntra tilþrifa, almennar
lýsingar á bakgrunni eða tíðaranda eru naumt skammtaðar og lítið um
bollaleggingar. Persónur Isabel Allende eru engar hálfkveðnar vísur, við
fáum um þær tæmandi upplýsingar sem atburðirnir staðfesta afdráttar-
laust. Söguhetjur hennar eru aldrei „hvorki-né“ heldur alltaf „annað-
hvort-eða“, nema hvað stundum eru þær „bæði-og“ því Allende á þaö
sammerkt með höfundum einsog Jóni Trausta að illvirkjar hennar bæta
stundum ráð sitt fyrir tilverknað þess góða sem í þeim býr: ástin breytir
þeim til batnaðar. Höfundur er meistari í hinni afræktu hst tvívíðrar
persónusköpunar sem flnnst varla orðið nema í reyfurum og barnabók-
um: okkur veitist sú sjaldgæfa ánægja að flnnast við þekkja sögupersón-
urnar til fuhnustu og ástæðan er einföld: þær hafa bara eina hliö.
Þessi lýsing á þó ekki við um allar sögurnar í bókinni, nokkrar þeirra
skera sig úr bæði í stíl og persónusköpun. Við vitum til að mynda ekkert
um elskendurna í sögunni „Það sem gleymdast var“ annað en að þeir
hafa verið pyntaðir í Chile Pinochets og að það tengir þá saman eftir að
hafa skilið þá að; og í lokasögunni „Af jörðu ertu kominn“ fáum viö
áhrifamikla viðbót við persónu Rolfs Carlé (elskhuga Evu sem við kynnt-
umst í skáldsögunni) gegnum upphfun sem tekin er því nær beint úr sjón-
varpsfréttum frá haustinu 1985.
Ástin sigrar
Bækur vilja láta lesa sig á sínum eigin forsendum sem lesandinn verð-
ur að gangast undir meðan á lestri stendur, annars hefur hann ekkert
upp úr krafsinu. Isabel Allende grundvallar sögur sínar á þeirri bjart-
sýnu forsendu að heimurinn sé skiljanlegur og að hún skilji hann meira
að segja sjálf. í númtímanum staðsetur þetta hana nálægt skemmtisögum
en á hinn bóginn er furðustutt í heimsmynd félagslegs raunsæis þótt
aðferðirnar séu aðrar. Því heimur Isabel Allende er ekki heimur afþrey-
ingarbókmennta, fyrirframgefinn, óbreytanlegur og ógagnrýndur heldur
tekur hún sem höfundur að sér að afhjúpa tannhjólin í gangverki suður-
amerískrar tilveru, sýna ofbeldið, óréttlætið, kúgunina og karlveldið í
ljósi þess lífskrafts sem er hin lifandi andstæða alls þessa. Ástin sigrar í
sögum Evu en hún sigrar ekki í óvæntum og giftusamlegum endalokum
heldur með því að smjúga aUs staðar, með því að vera.
Það er góður hljómur í þýðingu Tómasar R. Einarssonar. Á stöku staö
hefur hann tilhneigingu til að splæsa fullglæsilegum lausnum á textann,
líkt og þýðandinn sé hljóðfæraleikari sem stenst ekki mátið að taka
óvænta roku þegar andinn kemur yfir hann. Ég ætti eiginlega ekki að
kvarta yfir þessu. Kápan er falleg en svo rekur maður augun í að tréð
með páfagauknum vex út um munninn á Evu. Líkist þessi bók nokkuö
tré? Eða hver er þá páfagaukurinn?
Isabel Allende:
Eva Luna
Útgefandi: Mál og menning.