Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1991, Side 43
LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1991.
51
LífsstOl
Er Sviss
besta skíða-
landið?
Nokkur vafi leikur á því hvaöa
þjóö hóf fyrst aö stunda skíða-
íþróttina en Svisslendingar hafa
gert tilkall til þess heiöurs. Hvað
sem því líður hafa Alpabúar um
aldir nýtt sér umhverfiö til þess aö
taka á móti ferðamönnum. Þeir
halda því fram að hvergi í heimin-
um sé betri aðstaöa til skíðaiðkana
pg hafa trúlega eitthvað til síns
máls.
Einn best þekkti skiðabær í Sviss
er trúlega Zermatt. Margir skíða-
menn hika ekki viö að nefna Zer-
matt sem eitt besta skíðasvæði í
heimi þó sjón sé sögu ríkari í þess-
um efnum sem öðrum. Zermatt
stendur viö rætur eins frægasta
fjalls í Ölpunum, Matterhoms. Þeir
sem ekki hafa séð það merka fjall
með eigin augum minnast trúlega
mynda utan á konfektkössum eða
á púsluspilum. í Zermatt er hefð-
bundinn og vanafastur bæjarbrag-
ur alls ráðandi og því hefur tekist
að varöveita þorpsandann þrátt
fyrir gífurlegan ferðamanna-
straum. íbúar í Zermatt eru 4.100
en raunverulegur fjöldi er margfalt
meiri því stöðugur og mikill
straumur ferðamanna liggur þang-
aö jafnt sumar sem vetur.
Skíðasvæði í nágrenni Zermatts
liggja í 1.620 metra til 3.820 metra
hæð yfir sjó og því stendur skíða-
vertiðin þar yfir frá nóvember til
apríl ár hvert og á sumrin er skíðað
á jökli. Þarna geta flestir fundið
svæði við sitt hæfi, allt frá aflíö-
andi brekkum sem henta bömum
og byrjendum upp í snarbrattar
skíðaslóðir í svimandi hæö sem
ekki er á færi annarra en þrau-
treyndra skíðakappa aö takast á
við.
Samkvæmislífið er ennfremur
íjörugt og fjölbreytt og hægt að
velja úr fjölda góðra veitingastaöa
sem bjóða bæði alþjóðlegan hefð-
bundinn mat og sérrétti af sviss-
neskum uppruna.
Fyrir þá sem ekki eru í skíðahug-
leiðingum eru langar göngubraut-
ir, skautasvell og sundlaugar. Auk
þess má benda á frægt minjasafn
sem leggur áherslu á menningu
Alpanna og kirkjugarð sem helgað-
ur er minningu þeirra sem farist
hafa í fjöllunum.
Hið fræga Matterhornfjall í Sviss.
Dag Tveterás.
Dag Tveterás:
Maður ársins í nor-
rænum ferðamálum
Dag Tveterás, framkvæmdastjóri
ferðaskrifstofunnar Fly-spesialisten
í Ósló, var einróma kjörinn maður
ársins í norrænum ferðamálum. Það
voru lesendur blaðsins Stand By,
sem er norrænt tímarit, sem fjallar
um ferðir og ferðalög, sérstaklega frá
viðskiptalegu sjónarmiði.
Helstu ástæður þess að Tveterás
þótti vel að nafnbótinni kominn,
voru skarpskyggni hans og ýmis
nýmæli sem hann hefur fitjað upp
á. Nægir að nefna prentara sem
tengdir eru um gervihnött og geta
sölumenn með aðstoð þeirra sent
útprentaða og tilbúna farmiða nán-
ast hvert á land sem er.
Ferðaskrifstofan Fly-spesialisten
starfar í náinni samvinnu viö norska
stórfyrirtækið Norsk Hydro og eru
þegar komin útibú á fimm stöðum í
Noregi. Stærsti sigur þeirra á árinu
var að ná samningum um sérstakan
afslátt á flugleiðum SAS innanlands
í Noregi. Afslátturinn gildir aðeins
fyrir þeirra viðskiptavini og er sá
fyrsti sem SAS gerir við fyrirtæki í
éinkageiranum. Meðal annars vegna
þessara samninga hefur Fly-spesia-
listen komið allra ferðaskrifstofan
best út úr verðsamanburði milli sam-
keppnisaðilaíNoregi. -Pá
Norðurlönd:
Dýrasti bjór í heiminum?.
Því er haldið fram í norrænum
blöðum að hvergi í heiminum sé dýr-
ari bjór en á Norðurlöndum og eru
Noregur og Svíþjóð einkum nefnd í
því sambandi. I Svíþjóð kostar einn
bjór 550 íslenskar krónur og þar í
landi spyrja menn sig hvort hægt sé
að ætlast til að ferðamenn sæki
landiö heim þegar slík verölagning
ríki.
í Noregi var nýlega leyfð hækkun
á bjór og kostar léttöl tæpar 90 krón-
ur íslenskar út úr búð eftir hækkun-
ina en sterkur bjór 140 krónur. í
Politiken er fullyrt að þetta sé dýr-
Ferðir
asti bjór í heimi. í þessu sambandi
er ekkert minnst á verölagningu á
íslandi en í fljótu bragði virðast ís-
lendingar eiga nokkurt tilkall til
heimsmeistaratitils í þessum efnum.
Verðlag á bjór út úr búð virðist vera
jafnhátt eða hærra hér á landi en í
Noregi. Hvað varðar veröið á sænska
bjómum, eða 550 krónur fyrir kollu
á veitingastað, þá finnst íslenskum
það eflaust ekki svo hátt að orð sé á
gerandi.
„Þetta er stórt skref aftur á bak,“
er haft eftir Bengt Salberg, sænskum
sérfræðingi um ferðamál í Politiken
Bjor er sagður dyrastur i heiminum á Norðurlöndum.
nýlega. „Það sem gerist er að Svíþjóð
verður land sem fólki finnst ekki
borga sig að heimsækja.“
Það sem veldur hækkuninni er sér-
stakur skattur sem lagður er á ferða-
menn. Á undanförnum árum hefur
erlendum ferðamönnum, sem koma
til Svíþjóðar, fjölgað um allt að 20% -
árlega en að sögn Salbergs hefur sá
vöxtur nú verið kæfður. Hann lýsir
áhyggjum sínum af áhrifum þessa á
aíkomu fólks í afskekktum norðlæg-
um byggðum í Svíþjóð þar sem þjón-
usta við ferðamenn á leið til fjalla
hefur verið stór þáttur i tekjum íbú-
anna. Hann telur að merki þess séu
þegar farin aö sjást og hækkun á bjór
hafi aðeins verið dropinn sem fyllti
mælinn.
-Pá
90 ára
Guðjón Þórarinsson,
Mávahlíð 31, Reykjavík.
85 ára
Ingvar Ágústsson,
Ásum, Svínavatnshreppi.
Þorbjörg Ólafsdóttir,
Sjúkra-ogdvalarheimilinu, Sauð-
árkróki.
Ingibjörg Ögmundsdóttir,
Asparfelli 2, Reykjavík.
80 ára
Jón Sigurvin Þorleifsson,
Grandavegi 47, Reykjavík.
75 ára
Guðlaug Jóhanna Júlíusdóttir,
Mávahlið 7, Reykjavik.
70 ára
Anna Jónsdóttir,
12. janúar
Borgarhrauni 6, Hveragerði. --------------i----------------- SigurðurSveinnSnorrason,
SigmarÓlafsson, CQ Aen Bollagötu3,Reykjavík.
Brandsstöðum II. Bólstaðarhliðar- Tryggvi Geir Haraidsson,
hreppi: HaukurÓskarsson, Heiðarlundi2K, Akureyri.
Háaleitistbraut 47, Reykjavík. Svava Kristbjörg Guðmundsdótt-
Sigurlaug J. Kristjánsdóttir, ir,
Arnarhrauni 4, Hafnarfirði. Silfurbraut 10, Höfn í Hornafirði.
Öm Albert Þórarinsson,
———----------------------------- Ökrum.Fljótahreppi.
QQ ó rg 40 aT&l GuðbjörgHákonardóttir,
............................... ..............*----------------- Einigrund 16, Akranesi.
Stefanía Jónsdóttir, Reynir Theodórsson, Steinunn Hrólfsdóttir,
Melagötu3, Neskaupstað. Leirubakka6,Reykjavík. Fáskrúðarbakka, Miklaholts- -
Hreiðar Sigurjónsson, Unnur Björg Árnadóttir, hreppi.
Strandgötu34,Neskaupstað. Arvöllum 5, Isafiröi. SigrúnPétursdóttir,
Guðbjörg Eiríksdóttir, AnnaMargrétHaildórsdóttir,' Hjallagötu 11, Sandgerði.
Breiövangi 16, Hafitarfiröi. Mímisvegi 3, Dalvik.
X