Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1991, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1991, Page 1
17 <1 Nýlistasafnið: Fyrsta einkasýn- ing írisar Elfu í kvöld klukkan 20.00 opnar íris Elfa Friðriksdóttir myndlistarmaður sýningu í Nýlistasafninu við Vatns- stíg. Þetta er fyrsta einkasýning írisar og á henni eru verk unnin í járn og polyester. Áður hefur íris tekið þátt í samsýningum heima og erlendis og átti hún verk á sýning- unni Seltjöm 1988 og á Listahátíö i Reykjavík. íris Elfa er fædd í Reykjavík árið 1960. Fyrir utan nám erlendis hefur hún flakkað víða en er búsett núna í Reykjavík og vinnur fyrir sér sem húsamálari. íris Elfa útskrifaðist úr textíldeild Myndlista- og handíða- skóla íslands ári 1984. Á árunum 1984 til 1986 stundaði hún nám við Jan Van Eyck akademíuna í Maastricht í Hollandi. Um það leyti fer hún að leita nýrra leiða óg efna til mynd- gerðar. Hún prófaði ýmislegt og á- kvað að sleppa öllum verkfærum, s.s. vefstól og tækjum til textílgerðar, og notar efnið nú millihðalaust. Hún hallast mikið að járni í dag, leitar uppi járnhluti sém eiga einhverja sögu að baki og hafa gegnt sínu hlut- verki. Við hlutina bætir hún sinni sögu og þetta tvennt gerir nýtt verk. Sýning írisar er opin daglega frá klukkan 14.00 til 18.00 og hún stendur til sunnudagsins 10. febrúar. íris Elfa Friðriksdóttir opnar sína fyrstu einkasýningu í Nýlistasafninu i kvöld. DV-mynd Hanna Myndhöggvarinn Niels Hafstein með syni sínum, Haraldi, i Nýlistasafninu. DV mynd Hanna Nýlistasafnið: Niðurstöður formrannsókna -Níels Hafstein sýnir í kvöld klukkan 20.00 opnar Níels Hafstein myndhöggvari sýningu í Nýhstasafninu við Vatnsstíg. Á sýningunni birtir Níels niður- stöður formrannsókna sinna, unn- ar í tré og málma. Þrátt fyrir ólika útfærslu einstakra verka, þar sem sérstök áhersla er lögð á íjölbreyti- leik, gefur sýningin ákveðna heild- armynd, enda er hún styrkt af stíl- ' bragði sem er líking við alþekkt mótíf, svo sem vélasagarblað, sker- stokk og hamar. Níels Hafstein er fæddur árið 1947 í Reykjavík. Hann nam við MHÍ árin 1969 til 1973 og er fyrsti nem- andinn sem útskrifast úr skúlptúr- deild skólans. Hann var í sex ár, með hléum þó, aöstoðarmaður Ragnars heitins Kjartanssonar myndhöggvara. Níels átti hug- myndina að stofnun Nýlistasafns- ins og vann að henni þar til Nýlista- safnið var opnað formlega árið 1978. Hann hefur lengst af verið á kafi í félagsmálum myndlistar- manna og var lengi formaður myndhöggvarafélagsins. Níels hefur haldið tíu einkasýn- ingar og tekið þátt í um fjörutíu samsýningum hér heima og erlend- is. Hann var t.d. fulltrúi Islands á 11 Binealle du Paris árið 1980. Árið 1987 sýndi hann í Graz í Austurríki en sú sýning var byggð upp á ís- lensku fjármerkjunum og rann- sóknum á þeim. Þá hafði Níels um skeiö grandskoðað fjármerkin með tilliti til formfræði, notkunar, stærðfræði, athafnar og tilfmninga skepnunnar. Sýning þessi var byggð upp af litskyggnum sem varpað var á 60 m2 vegg. Síðasta sýning Níelsar utanlands var í Berhn árið 1988 en hún var fólgin í texta sem lesinn var á símsvara og gátu sýningargestir hringt í númerið og var textinn lesinn af bandi. Níels hefur dregið úr sýningum erlendis og segist heldur vilja vera með htlar sýningar með skömmu milhbili. Fyrir rúmu hálfu ári hélt hann sýningu í Nýhstasafninu og var útgangspunktur hennar valdið í öhum myndum; fah, fallvaltleiki, framapot, ofbeldi og fortíðarógn. Sýningin, sem Níels opnar í kvöld, stendur til 10. febrúar og er Nýhstasafnið opið frá kl. 14.00 til 18.00 daglega. Norræna húsið: Færeyskur ævintýraleikur fyrirböm Á sunnudag mun færeyski leik- hópurinn Leikapettið sýna leikritið Kraddarin í Norræna húsinu. Að- eins er fyrirhuguð þessi eina sýn- ing og hefst hún klukkan 16.00. Aðgangur er ókeypis. Leikritið hefur að undanfomu verið sýnt í Færeyjum við fádæma aðsókn. Sýningamar urðu 51 og rúmlega 5000 börn sýninguna. Sýn- ingin kemur hingað að tilstuðlan Norðurlandahússins í Færeyjum. Leikritið ér samið af Súsönnu Tórgarð og Biritu Mohr. Söngtext- ar era eftir Axel Tórgarð og tónlist- in er eftir Hans Pauh Tórgarð og Egi Dam. Birita Mohr er leikstjóri og leikur hún jafnframt titilhlut- verkið, Kraddarin, en auk þess kemur hún fram í hlutverki hrafns. í hlutverki trúðsins er Katarina Nolsoe en hún og Birita hafa báðar lokið prófi frá Leikhstarskóla ís- lands. Súsanna Tórgarð leikur Gnisu og Hans Pauli Tórgarð leikur Gumpa en þau koma auk þess fram í fleiri hlutverkum. Hugmyndin að leikritinu er sótt í gamla færeyska sögn um sauða- manninn á Söndum en henni er ekki fylgt í smáatriðum. Kraddarin þýðir á íslensku nurlarinn og er þetta ævintýri um hann. Hann er bæði gírugur og þjófóttur. Hann stelur sérlegum stakk frá veður- guðunum Gnísu og Gumpu. Það er trúðurinn Fívil sem leiöir okkur inn í ævintýrið og hjálpar veður- guðunum að ná stakknum aftur af Kraddaranum. Þetta verður erfið þraut en hún vinnst að lokum. Birita Mohr leikur hrafninn og Katarina Nolsoe leikur trúðinn. Myndin er úr sýningu færeyska leikhópsins Leikapettið á Kraddarin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.