Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1991, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1991, Síða 3
FOÖT&DAGUR 25. 'JÁNÖA'li'1991. Dans- staðir Bjórhöllin Gerðubergi 1, sími 74420 Lifandi tónlist öll kvöld vik- unnar. Blúsbarinn Laugavegi 73 Lifandi tónlist öll kvöld. Breiðvangur í Mjódd, sími 77500 Hljómsveitin Atlantis leikur -- fyrir dansi á laugardagíkvöld. Danshöllin Fjölbreytt skemmtun með fyrirtaksskemmtikröftum fostudags- og laugardags- kvöld. Casablanca Diskótek föstudags- og laug- ardagskvöld. Dans-barinn Grensásvegi 7, sími 688311 Hljómsveitin Mannakorn ásamt Ellen Kristjánsdóttur leika föstudags- og laugar- dagskvöld. Danshúsið Glæsibæ Álfheimum, s. 686220 Hljómsveit Finns Eydal ásamt Helenu Eyjólfsdóttur skemmtir fostudags- og laug- ardagskvöld. Gikkurinn Ármúla 7, sími 681661 Lifandi tónlist um helgar. Lídó Lækjargötu 2 í kvöld skemmtir Rikshaw og Loðin rotta. Diskótek á laug- ardagskvöld. Púlsinn Vitastíg í kvöld leikur KK-Band ásamt Derrick Big Walker.’Sérstak- ur gestur kvöldsins verður Ellen Kristjánsdóttir og kem- ur hún fram kl. 24. Á laugar- dagskvöld leikur KK-Band enn og aftur ásamt Derrick Big Walker. Á sunnudags- kvöld standa Blúsmenn Andreu fyrir blúskvöldi og koma þrír erlendir gestir fram með hljómsveitinni. Sportklúbburinn Borgartúni 32, s. 29670 Opið föstudags- og laugar- . dagskvöld á Stönginni. Að- gangur ókeypis. Hótel ísland Ármúla 9, sími 687111 Rokkað á himnum, glettin saga um sálina hans Jóns og Gullna liðið á föstudags- og laugardagskvöld. Anna og flækingarnir í Ásbyrgi, Blús- menn Andreu í Café ísland og diskótek í Norðursal. Hótel Saga Hljómsveitin Einsdæmi leik- ur fyrir dansi á laugardags- kvöld. Keisarinn Laugavegi 116 Diskótek fostudags- og laug- ardagskvöld. Tveir vinir og annar í fríi Á föstudagskvöld skemmtir Stjómin og á laugardagskvöld íslandsvinir. Ölver Álfheimum 74, s. 686220 Karaoke-nýjungar í tórdistar- flutningi. Opið um helgina. Veitingahúsið Ártún Vagnhöfða 11, s. 685090 Nýju og gömlu dansarnir föstudags- og laugardags- kvöld. Hljómsveit Jóns Sig- urðssonar leikur fyrir dansi ásamt söngkonunni Hjördísi Geirsdóttur. fðr Andrea Gylfadóttir verður með Blúsmönnum sínum á Púlsinum á sunnudag. Púlsinn: Blúsmenn Andreu ásamt gestum að utan Á sunnudag standa Blúsmenn Andreu fyrir blúsveislu á Púlsin- um. Það kvöld koma þrír erlendir gestir fram með hljómsveitinni; tékkneski boogie-woogie píanistinn Max Mensik og slagverksleikarinn Arlex en hann er af indíáættum og fæddur í Bandaríkjunum. Hann leikur á „Talking drums“ trommu- seið að fornum sið indíána. Þriðji Stjómin r a Tveimur vinum í kvöld, fostudag, skemmtir hljómsveitin Stjórnin á Tveimur vinum. Þetta er í fyrsta sinn sem Stjómin skemmtir á einum af smærri skemmtistöðum borgar- innar en hún hefur verið húshljóm- sveit á Hótel íslandi um langt skeið. Stjórnin hefur verið við plötuupp- tökur þessa daga og er platan vænt- anleg með vorinu. Þrátt fyrir vel- gengni í söngvakeppninni í fyrra tekur hún ekki þátt í keppninni í ár. Á laugardag taka vinirnir tveir á móti hljómsveitinni íslandsvinum en hún hefur áður veriö á þessum stað. gesturinn er bandaríski blúsmunn- hörpuleikarinn Derrick Big Wal- ker og er þetta í síðasta sinn sem hann kemur fram hér á landi því hann er á förum til síns heima. Fyrir utan Andreu Gylfadóttur eru Blúsmennirnir Halldór Braga- son, gítar og söngur, Jóhann Hjör- leifsson á trommur, Richard Kom á bassa og Guðmundur Pétursson á gítar. I kvöld og annað kvöld verður KK-band í blús á Púlsinum. Það eru þeir Þorleifur Guðjónsson og Kristján Kristjánsson en í kvöld verður systir Kristjáns, Ellen, sér- legur gestur ásamt Derrick Walker sem einnig kemur fram á laugar- dag. Stjórnin mætir hjá Tveimum vinum i kvöld. Atlantis i Breið- vangi Hljómsveitin Atlantis, sem spilað hefur á hinum ýmsu veitingastöð- um að undanförnu við góðan orðst- ír, skemmtir gestum Breiðvangs á laugardagskvöld. Hljómsveitina skipa nokkrir þekktir kappar úr bransanum, svo sem Karl Órvars- son söngvari, bróðir hans Atli, sem leikur á hljómborðið, gítarleikar- inn Þorvaldur B. Þorvaldsson úr Todmobile og bassaleikarinn Frið- rik Sturluson sem kemur úr Sál- inni hans Jóns mín. Húsið verður opnað klukkan 22.00. Aldurstak- mark er 20 ár og er snyrtilegs klæðnaðar krafist. Villibráð Fjölnis í kvöld Hið árlega herrakvöld Lions- klúbbsins Fjölnis, svokallað vili- bráðarkvöld, verður haldið í kvöld á Hótel Sögu. Aðalræðumaður kvöldsins verður Davíð Oddsson borgarstjóri en veislustjóri verður Ingi R. Helgason, stjórnarformaður Vátryggingafélags íslands. Lith Li- onskórinn, kór klúbbfélaga í Lions- klúbbi Grundarfjarðar, kemur í heimsókn og mun væntanlega fara á kostum. Hráefni til matargeröarinnar er allt úr villtri náttúru: hreindýr, rjúpur, endur, gæsir, lundi, svart- fugl og fýll, svo eitthvað sé nefnt. Herrakvöld þessi eru öðrum þræði fjáröflunarkvöld og rennur ágóði til líknarmála. í kvöld verður listaverkauppboð og verða verk ýmissa þekktra listamanna á boð- stólum, t.d. Baltasars, Bjarna Jóns- sonar, Eiríks Smith, Hrings Jó- hannessonar, Jóhannesar Jóhann- essonar, Péturs Friðriks, Ragnars Páls, Tolla og fleiri. Miða selja Otto, s. 18080, Ólafur s. 627222, og Steinþór, s. 22600. Selfoss: íslenskur aðall í Gjánni Nýstofnuð hljómsveit, sem kall- ast íslenskur aðall, skemmtir í fyrsta sinn í Gjánni á Selfossi í kvöld og annað kvöld. Meðlimir hljómsveitarinnar koma héðan og þaðan úr bransanum en þeir eru: Magnús Stefánsson, trommur, Jó- hannes Eiðsson, söngvari, Sigur- geir Sigmundsson, gítar, Bergur Heiðar Birgisson, bassi, og Þórir Úlfarsson á hljómborð. Þó hljómsveitin sé nýstofnuð hafa meðlimir hennar afrekað að taka upp efni sem jafnvel síðar kemur á plötu. Tónlist þeirra er meira fyrir fólk í yngri kantinum eða upp að þrítugu. Hólmi: Halli Reynis skemmtir Trúbadorinn Haraldur Reynis- son, Halli Reynis, ætlar að skemmt gestum Hólma í Hólmaseh í kvöld, annað kvöld og á sunnudagskvöld. Haraldur er með öh helstu lögin, bæði gömul og ný, og fær fólk með í söng. Hann hefur skemmt víða hér í borginni og eins úti á landi. Haraldur Reynisson trúbador verður i Hólma um helgina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.