Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1991, Síða 7
FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 1991.
23
Mikið að gerast
um helgina
- heil umferð í 1. deild karla í handbolta og fímm leikir í úrvalsdeildinni í körfu
Sex liö beijast nú um fjögur sæti
í úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar
í körfuknattleik og má telja öruggt
að önnur lið komist ekki að. Hér
er um að ræða lið UMFN, ÍBK,
UMFG, Tindastóls, KR og Hauka.
Tvö þessara liða mætast inn-
byrðis um helgina en þá eru fimm
leikir á dagskrá úrvalsdeildar og
fara þeir aallir fram á sunnudag.
Stórleikur þessarar umferðar er
viðureign Njarðvíkinga og Grind-
víkinga og fer þessi „Suðumesja-
slagur" fram í Njarðvík klukkan
fjögur.
Á sama tíma leika Snæfell og ÍBK
í Stykkishólmi og má þar búast við
jöfnum leik enda hafa leikmenn
Snæfells verið að sækja í sig veðrið
að undanförnu.
Þrír leikir fara fram klukkan átta
á sunnudagskvöldið. ÍR leikur gegn
Tindastóli í Seljaskóla, Valur mæt-
ir Haukum í Valsheimilinu og loks
leika KR og Þór í Laugardalshöll-
inni. Staðan er nú þannig í úrvals-
deildinni fyrir leiki helgarinnar:
A-riðill:
Njarðvík.......17 13 4 1555-1271 26
KR.............17 10 7 1398-1343 20
Haukar.........17 9 8 1420-1423 18
Snæfell........17 4 13 1308-1526 8
ÍR.............17 2 15 1339-1600 4
B-riðill:
Keflavík.......17 13 4 1882-1524 26
Tindastóll.....16 12 4 1540-1452 24
Grindavík......16 11 5 1386-1314 22
Valur..........17 5 12 1417-1481 10
Þór............17 5 12 1584-1635 10
• Þórsaarar hafa í nógu að snú-
ast um þessa helgi því í kvöld,
fostudagskvöld, leika þeir í íþrótta-
höllinni á Akureyri gegn UÍÁ í bik-
arkeppninni. Leikurinn hefst
klukkan 20.30.
• Einn leikur fer fram í 1. deild
kvenna um helgina. ÍR og KR leika
í Seljaskóla klukkan 21.30 á sunnu-
dagskvöld.
Handknattleikur
Víkingar hafa verið ósigrandi í
1. deild karla í handknattleiknum
og um helgina geta Víkingar unnið
18. sigur sinn í röö í 1. deild en þá
taka þeir á móti KA frá Akureyri
í Laugardalshöllinni klukkan 16.30
á laugardaginn. Á sama tíma leika
einnig Stjaman og Valur í Garðabæ
og ÍR og FH í Seljaskóla.
• Á föstudagskvöldið leika KR
og Fram í Laugardalshölhnni og á
sama tíma leika ÍBV og Grótta.
Umferðinni lýkur síðan í íþrótta-
húsinu í Hafnarfirði klukkan 20.30
á sunnudagskvöldið er Haukar
leika gegn Selfossi.
Staðan er þessi fyrir leiki helg-
arinnar:
Víkingur....17 17 0 0 429-353 34
Valur.......17 13 1 3 418-374 27
Stjaman.....17 11 1 5 420-400 23
FH..........17 10 2 5 405-395 22
Haukar......17 10 0 7 403-406 20
KR..........17 6 6 5 395-388 18
ÍBV.........17 6 4 7 410-404 16
KA..........17 6 2 9 398-380 14
Selfoss.....17 3 3 11 343-391 9
Grótta......17 3 2 12 372-404 8
ÍR..........17 2 3 12 364-412 7
Fram........17 1 4 12 349-399 6
• Fimm leikir eru á dagskrá í 1.
deild kvenna um helgina. Á fóstu-
dagskvöld leika ÍBV og Grótta í
Eyjum klukkan 18.30, Stjarnan og
FH mætast í Garðabæ klukkan
15.00 á laugardag og á sama tíma
leika Víkingur og Selfoss í Laugar-
dalshöll. Loks leika ÍBV og Grótta
á ný í Eyjum á laugardag klukkan
13.30. Síðasti leikurinn er svo við-
ureign Vals og Fram í Valsheimil-
inu á sunnudag klukkan 14.00.
• í 2. deild kvenna leika Haukar
og ÍBK í Hafnarfirði klukkan 20.00
á fostudag og ÍR og KR á laugardag
í Seljaskóla klukkan 14.45.
• í 2. deild karla leika Þór og
Njarðvík á Akureyri klukkan 20.30
á föstudag, Völsungur og Njarðvík
á Húsavík á laugardag klukkan
.16.00, HK og Breiðablik í Digranesi
klukkan 20.00 á sunnudagskvöld -
og loks Afturelding og ÍS í Mosfells-
bæ klukkan 18.00 á sunnudag.
Frjálsar íþróttir
Þótt enn sé miður vetur verða
frjálsíþróttamenn á ferðinni um
helgina en þá fer fyrsta mót ársins
fram í Laugamesskóla. Um er að
ræða meistaramót íslands í at-
rennuláusum stökkum. Mótið hefst
klukkan 14.00 á laugardag og verð-
ur keppt í hástökki, langstökki og
þrístökki í karla- og kvennaflokk-
um.
Veggtennis
Hi-Tec skvassmótið fer fram í
Veggsport næstu fjórar helgar.
Mótið hefst á laugardag klukkan
11.30 og verður þá keppt í opnum
c-flokki.
Bandarikjamaðurinn Franc Booker i liði IR hefur verið mikið í sviðsljósinu frá því hann kom til liðsins. Hann
skoraði 54 stig í sinum fyrsta leik gegn UMFN, 55 stig í þeim næsta gegn KR, 60 stig gegn Snæfelli og 40 stig
gegn Haukum á dögunum en þá sigraði ÍR. Hann hefur því skorað 209 stig í síðustu fjórum leikjum ÍR-inga
eða tæp 53 stig að meðaltali í leik. Hvað skorar hann gegn Tindastóli á sunnudag? DV-mynd GS
*
♦
Sýningar
J. Hinriksson
Maritime Museum
Súðarvogi 4
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er
opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku-
daga, fmuntudaga, fóstudaga og laugar-
daga.
Listasafn Einars Jónssonar
er lokað 1 janúar. Höggmyndagarðurinn
er opinn daglega kl. 11-16.
Katel
Laugavegi 20b
(Klapparstigsmegin) .
Til sölu eru verk eftir innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, grafík og leir-
munir.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Þar standa yfir tvær sýningar. í vestur-
sal og vesturforsal er Hallgrímur Helga-
son með sýningu á málverkum. í austur-
sal er Amgunnur Ýr með sýningu á
málverkum og skúlptúr. Síðasta sýning-
arhelgi. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega
kl. 11-18 og er veitingabúðin opin á sama
tíma.
Listasafn Háskóla
íslands í Odda
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Oþið er daglega
kl. 14-18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Um þessar mundir stendur yfir sýning á
verkum í eigu safnsins. í sölum 1, 2 og 4
eru sýnd verk eftir íslenska listamenn
og í sal 3 eru sýnd grafíkverk. Listasafn-
ið er opið alla daga nema mánudaga kl.
12-18 og er aðgangur ókeypis. Veitinga-
stofa safnsins er opin á sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
í Listasafni Sigurjóns í Laugamesi er nú
til sýnis úrval af andlitsmyndum Sigur-
jóns frá tímabilinu 1927-1980. Safnið er
opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
og þriðjudaga kl. 20-22. Kaflistofa safns-
ins er opin á sama tíma.
Mokkakaffi
Skólavörðustig
Kristján Jón Guðnason sýnir mynd-
skreytingar við ljóð Gyrðis Eliassonar og
nokkrar litkrítarmyndir frá Grikklandi.
Norræna húsið
v/Hringbraut
í anddyri Norræna hússins stendur yfir
sýning sem íjallar um frönsku bylting-
una og 200 ára afmæli hennar. Sýningin
nefnist: Franska byltingin í myndum og
er byggð upp á teikningum eför franska
listamanninn Jean-Louis Prieurs af at-
burðum byltmgarinnar árin 1789-1792.
Sýningin er opin daglega til 10. febrúar.
í sýningarsölum í kjallara hússins stend-
ur yfir finnska arkitektasýningin FRÁ
FINNUM og stendur hún tÚ 2. febrúar.
Nýhöfn
Hafnarstræti 9
Lísbet Sveinsdóttir sýnir málverk í Lista-
salnum Nýhöfn. Á sýningunni gefúr að
líta málverk sem listakonan málaði á sl.
tveimur árum í Portúgal. Sýningin, sem
er sölusýning, er opin virka daga kl. 10-18
og um helgar kl. 14-18. Lokað á mánudög-
um. Sýningunni lýkur 6. febrúar.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði, sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
Álfabakka 14
Þar stendur yfir sýning á verkum Daða
Guðbjömssonar. Listamaðurinn sýnir 16
myndir, þar af 10 olíumálverk sem flest
em máluð á sl. tveimur árum. Daði hefur
haldið fjölda einkasýninga innanlands og
erlendis. Auk þess hefur hann tekið þátt
í samsýningum víða um lönd og hér á
landi. Sýningin verður opin til22. febrúar
á afgreiðslutíma útibúsins, kl. 9.15-16, frá
mánudegi til fóstudags. Sýningin er sölu-
sýning.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu
Þar em til sýnis og sölu postulinslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á ♦
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
kl. 11-16.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, sími 24162
Opið sunnudaga kl. 14-16.
Myndlistarsýning í
menntamálaráðuneytinu
Nýlega var opnuð myndiistarsýning í
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu
4. Þar sýna þijár myndlistarkonur verk
sín sem flest em unnin á síðasta ári.
Berglind Sigurðardóttir sýnir 26 olíumál-
verk og pastelmyndir, Hrafnhildur Sig-
urðardóttir og Ingiríður Óðinsdóttir sýna
10 textilverk hvor. Sýningin verður opin
alla virka daga kl. 917 fram til 23. febrú-
ar.
Slunkaríki
ísafirði
Haraldur Ingi sýnir vatnslitamyndir og c
grafik í Slunkariki. Myndimar em mál-
aðar á seinni hluta árs 1989 og 1990.