Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Síða 2
24 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991. BHar Reynsluakstur: Suzuki Vitara JLX, 5 hurða: Afar fátt hægt að finna að Suzuki Vitara JLX. Sá til hægri er óbreyttur, en hinn er upphækkaður um rúma þrjá þumlunga, á 30" dekkjum og krómfelgum. Við samanburð á löngum Vitara og stuttum, fimm hurða og þriggja hurða, þykir manni lyginni líkast að munurinn skuli ekki vera nema 41 sm á heildarlengd, þar af 28 milli hjóla, og þyngdarmunurinn rétt um 200 kíló. Fimm hurða bílhnn er svo miklu meiri bíll að það verður varla talað um langan Vitara og stuttan í sama orðinu. Menn voru sannarlega orðnir lang- eygðir eftir þessum bíl. Raunin mun sú að Bandaríkjamarkaður hefur gleypt alla þá Vitarabíla sem verk- smiðjurnar hafa getað framleitt og það er raunar ekki fyrr en kemur lengra fram á sem hægt verðuf að anna eftirspurninni hérlendis af ein- hverju lagi, formleg Evrópukynning á honum verður ekki fyrr en á bíla- sýningunni í Amsterdam í næsta mánuði. Aö vísu mun eitthvað hafa komið hingað til lands af stutta bíln- um nú eftir áramótin - og sýnishorn af langa bílnum sem DV Bílar hafa haft til meðferðar nú í nokkra daga. Orðinn rúmbetri Þessir bílar eru af JLX gerðinni, það er að segja þeirri vönduðustu og íburðarmestu. Hér er allt í rafmagni svo sem við á - samlæsingar, rúöur, útispeglar og þvíiíkt. Vélin er 1600 rúmsentímetra, 16 ventla, með fjöl- spíssa innsprautun eldsneytis og snertulausri kveikju, búin mengun- arvöm með hvarfa, gefur 95 ha/DIN. Fjöðrun er gormafjöðrun allt um kring. Að úthti þykir mér langur Vitara laglegur bíll en þaö er meira en sagt verður um htla bróður hans. Húnar eru samlitir bhnum og stuðar- ar að undanskhinni svartri snerti- brún. Snoturt. í fyrstu umfjöllun minni um Suzuki Vitara var ég óánægður með hvað mér þótti þrengja að ökumanni th hliðar; rúðusveifar eöa rofar fyrir rúður voru niður með kálfanum þar sem örðugt var að komast að og varla fært að horfa á það sem maður var að gera. Þetta er nú breytt og bætt. Búið er að færa rúðurofana upp á armhvhuna í hurðinni framanverðri I------------------------------1 Lmom. og hagræða fyrirkomulaginu þannig að maður er ekki sífeht að berja handleggnum út í hurð. Nú er alveg nóg olnbogarými við stýrið, meira að segja í þeim sjaldgæfu thvikum að ökiunaðurinn þurfi að vera með töluverðan handaslátt th að mæta óvæntum uppákomum. í raun er þessi bhl ekki innanþrengri en marg- ir fólksbílar sem enginn hefur kvart- að undan plássleysi í. Kominn með farang- ursrými í fjögurra hurða bíl er maður laus við það amstur og bjástur sem oft fylgir því að komast úr og í aftur- sæti á tveggja hurða bhum. í langa Vitara er ákaflega auðvelt að komast inn og út um aftari dyr, raunar mjög hentugt fyrir þá sem ef til vhl hafa skerta hreyfigetu, því þeir setjast beint inn og stíga beint út, þurfa ekki að setjast niður eða rísa upp og út með erfiðismunum. Þriggja manna bekkurinn aftur í hefur fremur harða setu og tvær stillingar á bak- halla. Sú brattari er fyrir minn smekk óþarflega upprétt, en tilfehið er að maður situr vel í honum og sér , vel út, bæði fram og til hliðanna. Góð hvíld er að geta hallað því meira í viðlögum en þá finnst mörgum þeir vera lagstir á bakið - þarna vantar í rauninni mhlistigið. Hvað setuna snertir er ekki gott að vera þriðji maður - miðjumaður - á lengri leið- um, en það á líka við í ýmsum öðrum bhum og það meira aö segja bílum sem þykjast vera meiri „limmar“. Aftursætisbakið er svo hægt að leggja fram aht eða 40/60, eða hvolfa upp aftursætinu í hehd og fá ágæt- lega víðáttumikið flutningsrými aft- ur í. Áður en sagt er skihð við aftursæt- ið er óhjákvæmhegt að harma það í leiðinni að Suzuki skuli ekki hafa reynt að halda sig við stólafyrir- komulag aftur í, eins og er í stutta Vitarabílnum. Að vísu er hann að- eins fjögurra manna, en afturstólana er hægt aö stilla fram og aftur og eins bakhalla, og þeir eru raunar ein- hver bestu aftursæti sem nú eru á boðstólum. Það eru dálítil vonbrigði að Suzuki skyldi ekki með einhveij- um hætti reyna að halda í þetta sér- kenni og þennan plús, þó fimm hurða og fimm manna Vitara sé kominn fram. Þar með er komið að því atriðinu sem skiptir ekki hvað minnstu máli: farangursrýminu sem verður fyrir aftan þetta aftursæti. Það er orðið alveg frambærilegt og gefur ekki eft- ir farangursrými í bílum almennt. Langur Vitara ætti að duga hvaða meðalfjölskyldu sem er fyrir öh venjuleg ferðalög án þess að þurfa að grípa th farangursgrindar uppi á toppi. Við stýri og framsæti fer orðið ágætlega um fólk, þrátt fyrir að gír- stokkurinn sé töluvert hár og fyrir- ferðarmikhl í miðjunni, og auðvelt að stiha sætin þannig að hverjum og einum henti. Þó þarf að hafa dálitla sinnu á því að hafa framstólana ekki of aftarlega þannig að þeir fari að valda aftursætisfarþegum óþægind- um. Prýðilega hljóð- láturbíll í þessum framstólum situr maður hátt og sér vel yfir. Stjómtækin eru öh við höndina. Þó eru rofar neðar- lega í mælaborði vinstra megin - aft- urrúðuhitari, þokuljós að aftan, þvottabúnaður á ökuljósum - sem sér iha á og maður verður dáhtið að þreifa eftir. Stýrishaha má breyta dálítið eftir smekk og verður það enn th að gera hveijum og einum auð- veldara aö koma sér fyrir við stýrið. Mælaborðið er greinilegt og auðlæsi- legt með öllum þeim mælum og við- !

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.