Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1991, Qupperneq 1
r
'3t
Sjónvarp á mánudögum:
Musteristréð
Á síöasta ári réðst breska sjón-
varpsstöðin BBC í gerð fjögurra þátta
syrpu byggða á metsölubók breska
rithöfundarins Oswalds Wynds, The
Ginger Tree. Handrit skrifaði Chri-
stopher Hampton, sá hinn sami og
hreppti óskarsverðlaunin fyrir
handrit sitt að stórmyndinni Dan-
gerous Liasions sem Glenn Close og
John Malkovich léku í. í þessari sjón-
vapssyrpu leika þau Samantha Bond
og Adrian Rawlins aðalhlutverkin en
þau eru kunnir sviðsleikarar í Bret-
landi. Auk þeirra skipa japönsku
leikararnir Fumi Dan og Daisuke
Ryu stór hlutverk.
The Ginger Tree segir sögu ungrar
og ákveðinnar stúlku í Skotlandi
aldamótanna, Maryar Mackenzie,
sem afræður að takast á hendur
langferð til Austurlanda íjær, þar
sem unnusti hennar, Richard Coll-
ingsworth, gegnir herþjónustu.
Hinn tilvonandi eiginmaður er lítt
hrifmn af uppátæki unnustu sinnar
en brúðkaupið er haldið. Strax verð-
ur Mary ljóst að eiginmaðurinn hef-
ur meiri áhuga á frama innan hers-
ins heldur en hjónabandinu. Richard
fer til að taka þátt í styrjöldinni milli
Rússa og Japana og skilur Mary eft-
ir. Hún verður einmana og yfirgefin
í ókunnu landi sem hún ekki skilur.
Hún þiggur teboð japansks hermála-
fulltrúa og hjá honum finnur hún
ástina. Þau taka upp leynilegt ástar-
samband sem á eftir að draga dilk á
eftir sér.
Þegar Richard kemur heim úr her-
þjónustunni kemst hann að því að
Mary á von á barni með elskhuga
sínum og hendir henni út af heimil-
inu. Mary á einskis annars úrkosti
en að leita til elskhugans sem er gift-
ur og fjögurra barna faðir. Hann út-
vegar henni húsnæði en tekur son
þeirra af henni og kemur honum í
fóstur.
Mary er ekki á því að gefast upp
og fara aftur til Skotlands. Með fá-
dæma dugnaði tekst henni að koma
á fót klæðaverksmiðju og gengur vel
í hönnun og sölu. En hana skortir
alltaf ást og umhyggju og veit að
hana fmnur hún aðeins hjá syninum
sem hún fær ekki að hitta.
Mary heillast af japanska liðsforingjanum og úr verður ástarsamband.
Rás 1 á summdag
-tveggja alda minning
Rás 1 mun minnast tveggja alda skólastarf og einkalíf. Meðal ann-
afmælis Sveinbjarnar Egilssonar ars verður lesið úr kvæðum hans,
með tveimur þáttum er Finnbogi skólasetningarræðu er hann flutti
Guðmundsson hefur tekið saman við setningu Reykjavíkurskóla árið
og Pétur Pétursson les með honum. 1846 og ennfremur úr bréfi er hann
Síðari þáttur er klukkan 13.00 á skrifaði konu sinni frá Kaup-
sunnudag og verður þá ijallað um mannahöfn þetta ár, 1846.
orðabókaverk hans, skáldskap,
Mary með soninn sinn litla.
Sjónvarp á sunnudag
Hljómgeislinn titrar
Allt frá árinu 1983 hefur hópur
tónlistarfólks og tónlistarunnenda
unnið ötullega að því að hrinda í
framkvæmd áratuga löngum
draumi um byggingu sérstaks húss
er hýst geti tónlistarflutning affjöl-
breyttasta tagi, veitt honum verð-
ugan ramma og hljómburð. Árið
1986 var efnt til samkeppni um
hönnun hússins meðal norænna
arkitekta og varð íslendingurinn
Guðmundur Jónsson hlutskarpast-
ur. Jafnframt hefur Reykjavíkur-
borg úthlutað lóð undir væntanlegt
hús í Laugardalnum og sýnt áform-
um þessum ýmsa aðra velvild.
Allt frá byrjun hefur undirbún-
ingshópurinn staðiö fyrir fjársöfn-
un af ýmsu tagi og frá því í haust
hefur verið hringt skipulega í
20.000 einstaklinga og þeim boðið
að gerast styrktaraðilar með árlegu
framlagi á greiðslukortum.
Til að fylgja eftir fjáröflun þessari
verður svo sýndur þáttur í Sjón-
varpinu á sunnudag þar sem ýmsir
kunnir listamenn af ólíkum toga
koma fram og túlka list sína, hinum
góða málstað til framdráttar. Ljóst
er að í hópi túlkenda verður
þrautæfður barnasextett, auk þess
sem söngarinn Egill Ólafsson og
gítarleikarinn Pétur Jónasson láta
í sér heyra. Einnig mun japanski
gítarsnillingurinn Kazuhito Yam-
ashita heiðra samkunduna með
nærveru sinni og væntanlega
nokkrir úr hópi sígildra iújóðfæra-
leikara hérlendra. Blúsmenn
Andreu koma fram og ekki má
gleyma Mezzoforte.
Gestgjafi verður tónlistarmaður-
inn Valgeir Guðjónsson og mun
hann taka á móti gestum sínum að
Kjarvalsstöðum.
Svona mun tónlistarhúsið líta út.