Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1991, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1991, Síða 1
3f Nemendaleikhúsið: Dampskipið ísland á fjalimar Dampskipiö ísland er heiti á nýju leikriti eftir Kjartan Ragnarsson sem hann skrifaöi fyrir Nemendaleik- húsið. Frumsýning veröur í Borgar- leikhúsinu á sunnudagskvöld kl. 20.00. Þetta er síðasta verkefni Nem- endaleikhússins í ár því í lok maí munu nemendurnir, alls átta talsins, útskrifast sem fullgildir leikarar. Höfundur er jafnframt leikstjóri. Eins og nafn verksins gefur til kynna gerist verkiö um borö í skipi sem kom til landsins eftir fyrri heimsstyrjöldina. Um borð lendir ólíkt fólk óvænt í návígi og leyndar- mál brjótast á óþægilegan hátt upp á yfirborð'ð. Höfundur leikmyndar er Grétar Reynisson en hann hannar einnig búninga ásamt Stefaníu Adólfsdótt- in-. Tónlist er í höndum Egils Ólafs- sonar en hann leikur, syngur og dansar í sýningunni. Aðrir gestaleik- arar eru Anna S. Einarsdóttir og Guðný Helgadóttir. Hönnuður lýs- ingar er Lárus Björnsson en starfs- menn Leikfélags Reykjavíkur sjá um smíðavinnu. Sýning Nemendaleikhússins verð- ur á stóra sviði Borgarleikhússins. Sviðið verður nýtt á nýstárlegan hátt og verður því lokað frá hinum hefð- bundna áhorfendasal. Áhorfendur sitja því umhverfis sviðið á hliðar- og baksviði og gefst kostur á að sjá leikhúsið frá öðru sjónarhorni. Leikarar í Nemendaleikhúsinu í Dampskipinu íslandi. Stúdentaleik- húsið endurreist Stúdentaleikhúsið hefur tekið til starfa á ný eftir nokkurra ára hlé en endurreisnin er afrakstur nám- skeiös sem haldið var í haust. Verkefni Stúdentaleik- hússins í ár er þrír nýir, íslenskir einþáttungar. Höf- undar eru jafnmargir og eru það Melkorka Thekla Ól- afsdóttir, Sindri Freysson og Bergljót Arnalds. Öll hafa þau áður getið sér gott orð sem ljóðskáld en þetta er frumraun þeirra í leikhúsi. Um tónlist sér Eyþór Arn- alds, Jóhann Pálmason og Egill Öm Árnason sjá um lýsingu en leikstjóri er Asgeir Sigurvaldason. Fjöldi stúdenta tekur þátt í sýningunni sem leikarar og að- stoðarmenn. Sýningafjöldi er takmarkaður en leikritið verður flutt á sviði Tjamabæjar og er fmmsýning á laugardag kl. 20.00. Stúdentaleikhúsið er aftur komið á kreik í Tjarnarbæ. Niels-Henning Örsted Pedersen kroppar bassann i Háskólabiói á sunnudag. Niels-Henning til íslands með dönsku vori Niels-Henning Örsted Pedersen heldur tónleika ásamt tríói sínu í Háskólabíói á sunnudag. Það er Jazz- vakning sem stendur fyrir komu hans í tilefni af því að hann hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs í febrúar síðasthðnum, fyrstur djass- leikara. Þetta er áttunda heimsókn Niels- Hennings til íslands. Hann fagnar hverju tækifæri sem hann fær til að heimsækja okkur enda kynntist hann íslendingasögunum ungur og var fenginn til að leika íslenska þjóð- sönginn 12 ára gamall. Síðan hefur hann leikið og hljóðritað íslensk þjóðlög ásamt Ole Kock Hansen. Meðal verka á efnisskránni í Há- skólabíói verður verk eftir Gunnar Reyni Sveinsson, klassísk djasslög, dönsk þjóðlög og eigin verk, ný og gömul. Með honum leika Ulf Waken- ius, en hann er talinn einn fremsti djassgítarleikarinn af yngri kynslóð- inni, og bandaríski trommarinn Al- vin Queen en hann hefur leikið með mörgum snilhngnum í gegnum tíð- ina. Tónleikarnir eru í tengslum við danska vordaga sem haldnir verða hér dagana 6.-15. apríl. Á vordögum verður kvikmyndavika, myndhstar- sýningar, bóka- og skáldakynningar og fleiri tónleikar. | f Kammerhljómsveit Akureyrar minnist Mozarts Víða um heim er þess nú minnst að 200 ár eru hðin frá dauða Moz- arts. Af því tileffni heldur Kamm- erhljómsveit Akureyrar Mozart- tónleika i Akureyrarkirkju á sunnudag kl. 17.00. Þar mun Kammerhljómsveitin, skipuð 45 hljóðfæraleikurum, flytja forleikinn að óperunni Don Gio- vanni, valin einsöngsatriöi og dú- etta úr sömu óperu svo og Cosi Fan Tutte, Brúðkaupi Fígarós og Töfra- flautunni. Tónleikunum lýkur með flutningi á g-moll sinfóníunni nr. 40 sem er þekktasta og vinsælasta sinfónía Mozarts. Hljómsveitar- stjóri verður Örn Óskarsson en hann tók viö stjórn Kammerhljóm- sveitarinnar fyrst í desember síð- astliðnum. Einsöngvarar verða þau Berþór Pálsson barítón og Elín Ósk Óskarsdóttir sópran. Bergþór hef- ur nú um jiriggja ára skeið starfað við óperuna í Kaiserslautern í Þýskalandi en hann lærði söng við Indiana-háskólann í Bandaríkjun- um. Ehn Ósk stundaöi söngnám í Söngskólanum og framhaldsnám í Mílanó. Bæði hafa þau sungið Don Giovanm á sviði, Bergþór í Kaisers- lautern en Elín við Islensku óper- una

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.