Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1991, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1991, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 5. APRlL 1991. 23 Fjölbreytt íþrótta- helgi framundan Helgin, sem nú gengur í garö, er viðburðarík á sviði íþrótta og eiga íþróttaáhugamenn örugglega auð- velt með að finna eitthvað við sitt hæfi. Landsmótiö á skiðum verður á ísafirði, handknattleiksmenn taka upp þráðinn að nýju að af- loknu páskafríi, úrslit kynnu að ráðast hverjir verða íslandsmeist- arar í körfuknattleik og ljóst verð- ur hvaða lið hreppir bikarmeist- aratitilinn í handknattleik kvenna. Og svona mætti halda áfram en við skulum líta nánar á það hvað verð- ur á boðstólum um helgina. Skíðamót íslands á ísafirði Skíðamót íslands, það 52. í röð- inni, var sett á ísafirði sl. miðviku- dag og síðan þá hefur keppnin stað- ið yfir af fullum krafti. Áætlað er aö mótinu Ijúki síðdegis á sunnu- dag og þá fer fnm verðlaunaaf- hending með pompi og pragt. Eins og gefur að skiija verða saman- komnir á þessu móti allir bestu skíðamenn landsins, aðstæður kváðu vera með allra besta móti enda nægur snjór á Seljalandsdal. Keppendur verða 73, frá Ólafs- firði, Ákureyri, ísafirði, Reykjavík og Dalvík. Siglfirðingar verða ekki með að þessu sinni og er það í fyrsta skipti sem Siglfirðingar verða ekki meðal þátttakenda á Skíðamóti íslands. LJrslitakeppnin í handknattleik Síðari umferð í úrslitakeppni um íslandsmeistaratitilinn í hand- knattleik hefst í kvöld með tveimur leikjum. Stórleikur umferðarinnar er án efa leikur Eyjamanna og Valsmanna í Vestmannaeyjum í kvöld en í fljóti bragði virðast Eyja- menn þeir einu sem geta stöðvað sigurgöngu Vals enda heimavöllur 52. skíðalandsmótið verður haldið á Isafirði en mótið byrjaði á fimmtudaginn var. Um helgina verður mikið um að vera á mótinu en þvi lýkur siðdegis á sunnudag. Keppendur á mótinu verða 73, frá Ólafsfirði, Akur- eyri, ísafirði, Reykjavik og Dalvík. Siglfirðingar verða ekki með að þessu sinni. þeirra firnasterkur. Valsmenn tróna á toppi úrslitakeppninnar eftir að hafa leikið mjög vel í fyrri umferðinni. Víkingur, sem er í öðru sæti, mætir Haukum í Laug- ardalshöllinni og verða Víkingar að knýja fram sigur til að veita Valsmönnum einhverja keppni áfram. Báðir leikir kvöldsins hefi- ast klukkan 20. Á morgun, laugardag, verður þriðji leikurinn í efri hluta deildar- innar og leika þá Stjarnan og FH í Garðabæ klukkan 16.30. Gengi þessara liða í úrslitakeppninni hef- ur verið upp og ofan en þó sýnu verra hjá FH-ingum, sem valdið hafa stuðningsmönnum sínum vonbrigðum í úrslitakeppninni. Viðureignir þessara nágranna hafa ávallt verið jafnar og verður líklega ekki breyting á því að þessu sinni. Bikarúrslit í handbolta kvenna Úrslitaleikurinn í bikarkeppni kvenna verður í Laugardalshöll- inni á sunnudag og eigast þar við tvö af sterkustu kvennaliðum landsins, Fram og Stjarnan. Þessi félög berjast einnig um íslands- meistaratitilinn en þau hafa háð einvígi í allan vetur og hafa stungiö önnur hð deildarinnar af. Fram og Stjarnan hafa í vetur nokkrum sinnum mæst og hafa úrslit ekki ráðist fyrr en á lokamínútunni. Tveir leikir verða í neöri hluta úrslitakeppninnar um helgina. Grótta og IR leika á Seltjarnarnesi á laugardag klukkan 16.30 og á sunnudagskvöldið leika Fram og KA í Laugardalshölinni klukkan 20. íslandsmeistarar í körfu krýndir í morgun? Njarðvíkingar og Keflvíkingar leika sinn þriðja leik í Njarðvík á ánorgun klukkan 16 en sá leikur . gætið skorið úr um hvert íslands- meistaratitillinn fer í ár. Njarðvík vann fyrsta leik liðanna en þegar þessi orð eru skrifuð hefur annar leikurinn ekki farið fram. Njarövík vann fyrsta leikinn með ótrúlegum yfirburðum og því er á brattann aö sækja fyrir Keflvíkinga. íslandsmótið í karate á Hlíðarenda íslandsmótið í karate verður í Valsheimilinu að Hlíðarenda á laugardag og hefst klukkan 19.15 um kvöldið. Um klukkan 20 er ráð- gert að úrslitakeppninni hefiist. -JKS Sýningar * Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74 í safni Ásgríms Jónssonar eru nú sýnd 26 verk. Mörg verkanna, sem bæöi eru unnin í olíu og með vamslitum, eru frá árunum 1905-1930 og eru þau einkum frá Suðurlandi. Ásmundarsalur v/Freyjugötu Anna Þóra Karlsdóttir opnar sýningu á verkum sinum á morgun kl. 15. Á sýning- unni eru myndverk úr ull, gerð með þæfmgu og vaxi (batik). Þetta er önnur einkasýning Önnu Þóru, en hún hefur tekið þátt í mörgum samsýningum heima og annars staðar á Norðurlöndunum. Sýningin verður opin daglega kl. 15-18 og lýkur henni 14. apríl. Galleri List Skipholti í Gallerí List er komið nýtt, skemmtilegt og nýstárlegt úrval af listaverkum: hand- unnið keramik, rakúkeramik, postulín og gler í glugga, skartgripir, graiik, ein- þrykk og vatnslitamyndir eftir íslenska listamenn. Opið kl. 10.30-18. Gallerí8 Austurstræti 8 Þar stendur yfir sýning á miklu úrvali listaverka eftir um 60 listamenn: Mynd- list, leirlist, gler, graflk, skartgripir og íleira. Ný listaverk í hverri viku. Einnig verk eldri málara. Opið frá kl. 10-18 alla daga nema mánudaga kl. 14-18. Gallefrí Sævars Karls Bankastræti 9 Þórunn S. Þorgrímsdóttir sýnir málverk. Þórunn hefur haldið einkasýningar og tekiö þátt í samsýningum síðan 1979 og starfað við leikmyndateiknun hjá Þjóö- leikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og viö kvikmyndir. Verkin á sýningunni eru unnin 1988-91, tempera- og olíulitir á lér- eft. Sýningin stendur til 12. apríl og er opin á verslunartíma frá kl. 9-18 og 10-1? á laugardögum. Hafnarborg Strandgötu 34 Björgvin Sigurgeir Haraldsson sýnir málverk. Sýningin stendur til 14. april og er opin alla daga nema fóstudaginn langa kl. 14-19. í Sverrissal stendur yfir sýning á verkum í eigu safnsins. Sýning- arsalimir eru opnir kl. 14-19 daglega. Lokaö þriðjudaga. Kaffistofan er opin kl. 11-19 virka daga og kl. 14-19 um helgar. En þar eru til sýnis verk eftir tólf hafn- firska listamenn. J. Hinriksson Maritime Museum Súðarvogi 4 - Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku- daga, funmtudaga, föstudaga og laugar- daga. Keramikhúsið, gallerí v/Faxafen Sýning á leikaramyndum eftir Halldór Pétursson. Opið alla daga kl. 13-18, nema laugardaga kl. 13-17. Listasafn Einars Jónssonar Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-17. List inn, Gallerí - innrömmun, Síðumúla 32 Uppsetningar eftir þekkta íslenska mál- ara. Olía, vatnslitir, pastel og grafik. Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 14-18. Katel Laugavegi 20b (Klapparstígsmegin) Til sölu eru verk eftir innlenda d?er- lenda Ustamenn, málverk, grafík og leir- munir. Kjarvalsstaðir v/Miklatún Á morgun opnar Listmálarafélagið sýn- ingu í vestursal Kjarvalsstaða. I vestur- og austurforsal veröur opnuö sýning á vattstungnum bandarískum teppum, „Contemporary Quilts". Sýningin er á vegum Menningarstofnunar Bandarikj- anna og Menningarmálanefndar Reykja- vikur. I austursal stendur yfir sýningin „Kjarval og náttúran" sýning á verkum eftir J.S. Kjarval úr eigu Reykjavíkur- borgar. Sýningamar standa til 21. apríl. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl. 11-18 og er veitingabúðin opin á sama tíma. Listasafn ASÍ Grensásvegi 16a Kristin Jónsdóttir frá Munkaþverá sýnir verk sin í Listasafni ASÍ. Á sýningunni eru myndverk úr ull, gerð með þæfingu og blandaðri tækni. Þetta er fimmta einkasýning Kristínar, en hún hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum samsýn- ingum heima og erlendis. Sýningin er opin daglega kl. 14-19. Henni lýkur simnudaginn 14. apríl. Listasafn Háskóla íslands í Odda Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14-18. Aðgangur að safninu er ókeypis. Listasafn íslands Fríkirkjuvegi 7 Um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum í eigu safnsins. í sölum 1, 2 og 4 em sýnd verk eftir íslenska listamenn og í sal 3 em sýnd grafíkverk. Listasafn- ið er opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18 og er aðgangur ókeypis. Veitinga- stofa safnsins er opin á sama tíma. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70 í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi er nú til sýnis úrval af andlitsmyndum Sigur- jóns frá tímabilinu 1927-1980. Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 og þriðjudaga kl. 20-22. Kaffistofá safns- ins er opin á sama tima. . Listhús Yesturgötu 17 Á morgun opnar Elías B. Halldórsson sýningu á ohumálverkum og tréristum. Sýningin verður opin alla daga kl. 14-18. Mokkakaffi Skólavörðustíg Tryggvi Árnason sýnir 22 vatnslitamynd- ir. Sýningin ber yfirskriftina „Vestfirðir í vatnslitum" og stendur hún til 24. apríl. Norræna húsið, v/Hringbraut Þar stendur yfir myndhstarsýning Erlu Þórarinsdóttur. Á sýningunni eru til sýn- is málverk, unnin á síðasta ári og því sem liðið er af þessu. Erla kallar þessa sýn- ingu Viðmiðun. Sýningin er opin daglega kl. 14-18. Henni lýkur sunnudaginn 7. apríl. Nýlistasafnið, Yatnsstíg 3b, Á morgun kl. 15 opnar Eggert Pétursson sýningu í öllum sölum safnsins. Á sýn- ingunni verða málverk og fiósmyndir auk verks á gólfi í stærsta salnum. Sýn- ingin er opin kl. 14-18 alla daga og stend- ur til sunnudagsins 21. apríl. Sjóminjasafn íslands Vesturgötu 8 Hafnarfirði, sími 52502 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. Vinnustofa Ríkeyjar Hverfisgötu Þar eru til sýnis og sölu postulinsíág- iíjjíiiiuiiiíu iuíííi myndir, málverk og ýmsir htlir hlutir. Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið- vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á laugardögum kl. 10-16. Þjóðminjasafnið Safnið er opið allá daga nema mánudaga kl. 11-16. Minjasafnið á Akureyri Aðalstræti 58, sími 24162 Opið sunnudaga kl. 14-16. Myndlistarsýning í menntamálaráðuneytinu í menntamálaráöuneytinu sýna Krist- bergur Pétursson, Magnús S. Guðmunds- son og Tryggvi Þórhahsson ohumálverk, grafíkmyndir og teikningar. Sýningin er opin alla virka daga kl. 9-17. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis Álfabakka 14 í Sparisjóði ReyKjavíkur og nágrennis stendur yfir myndlistarsýning á verkum eftir Þórð Hah. Sýnir hann 14 verk sem urrnin eru með blýanti og þurrkrít á pappír. Þau eru unnin á árunum 1989- 1991. Sýning Þórðar stendur yfir til 19. aprU og er opin frá mánudegi tU fóstu- dags kl. 9.15-16, þ.e. á afgreiöslutíma úti- búsins. Öll verk Þórðar á sýningunni eru tíl sölu. Sýning á Hótel Lind Hótel Lind tók fyrir nokkru upp þá ný- breytni að sýna verk ungra myndhstar- manna í veitingasal hótelsins, Lindinni. Nú hefur verið sett upp sýning á mynd- verkum Sjafnar Eggertsdóttur sem mun standa fram fil mánaðamóta mars-apríl. Daglegur sýningartími er meðan veit- ingasalur Undarinnar er opinn, frá kl. 7.30-22. Sýning á Laugavegi 3, Kristján Fr. Guðmundsson sýnir olíu- málverk, vatnshtamyndir og neon pastel- myndir að Laugavegi 3,4. hæð. Sýningin er opin kl. 13-18 út mánuðinn. '. . . i . . . : j i llíiilii í í L i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.