Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Side 2
LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991.
Bílar
Reynsluakstur: FiatFiormo
Iiðlegur bíll
enansi
spartanskur
23. mars síðastliðinn voru svokall-
aðir vaskbílar kynntir sérstaklega í
DV-bílum. Eins og þar kom fram eru
þeir ekki ýkja margir sem koma
þannig frá „náttúrunnar" hendi að
þeir uppfylli þau skilyrði sem hér-
lendis eru sett um það hvernig bílar
skuli búnir sem kaupendur geta
fengið endurgreiddan af virðisauka-
skattinn.
Einn þeirra sem það á þó óumdeil-
anlega við um er Fiat Fiorino.
Þennan bíl höfðu DV-bílar til skoð-
unar einmitt þá helgina í vetur sem
veðrið gekk af göflunum og trylltist.
Ekki fór þó Fiorino af hjólunum né
heldur varð hann fyrir neinu fjúk-
andi skakkafalli. Hins vegar hafa eig-
endur bílsins áreiðanlega tautað
margt meðan þeir þrifu hann eftir
þessa atlögu, svo forugur og leirugur
sem hann var.
Allþokkaleg vinnsla
Það verður því ekki annað sagt en
tækifæri hafi geflst til að prófa bílinn
í mótbyr og meðbyr, svo og hliðar-
vindi. Vissulega veit hann vel af and-
byr og þegar saman fara hálka og rok
á hlið er eins gott að fara varlega
með hann, tóman að minnsta kosti,
en lensið tekur hann að sama skapi
vel. Þá þarf varla að koma við bens-
íngjöfina!
Raunar þarf ekki að kvarta undan
máttleysi í þessum brasilíska smá-
flutningabíl. Hann er með 1297 cc vél
sem gefur 43/58 kW/hö og Nm upp á
96. Þetta dugar til að koma bílnum
vel áfram og halda sómasamlegum,
löglegum hámarkshraða við eðlileg-
ar aðstæður. Aftur á móti er óþægi-
legt, 'einkum framan af meðan maður
er að venjast því, hve bremsurnar á
honum er þungar. Að öllu saman-
lögðu þótti mér það versti ljóðurinn
á ráði þessa bíls. Ljós í tilverunni þó
að þær virðast ekki mjög viðkvæmar
fyrir bleytu þó ekið sé í pollum og
talsverðu sulli, eins og gerðist t.a.m.
með brasilíska 127-bílinn frá Fiat.
Greinilegur Fiat
Að ytra útliti er þetta augljós Fiat
- minnir einna helst á Fiat Duna sem
hefði verið söguð sundur í miöjunni
og settur á hana kassi í staðinn fyrir
afturpart. Eða Uno sem settur hefði
verið í stækkara og síðan sagaður
sundur í miðjunni til að fá kassa að
aftan. Þegar farið er að skoða gripinn
nánar kemur í ljós að hvorugt er alls
kostar rétt. Sennilega er hann þó nær
Dúnunni en Únónum, sem ekki er
nema von: Fiorino er framleiddur í
Brasilíu en Duna í Argentínu. Að
vélinni til er Fiorino þó alveg ein-
stakur; 1300 vél er að vísu fáanleg í
Dunu líka en með allt öðrum málum
og atorku; í ítölsku Fíötunum er eina
1300 bensínvélin turbovél í Uno,
sömuleiðis gjörólík Fiorinovélinni.
Allt sparað
Það sem vekur fyrst athygli þegar
sest er undir stýri í Fiat Fiorino er
hve hátt maður situr og í rauninni
vel. Næst rekur maður augun í hve
sparlega allt er úr garði gert; hér er
ekki verið með neitt óþarfa pjatt og
klæðningu. Mælaborðið er óskaplega
fátæklegt; það er ekki einu sinni hita-
Notaðir£jj|^|/^ bílar
Nissan Pulsar 1,5 GL '85, ek. aðeins 43.000, sem nýr. V. 340.000 stgr. Ford Mustang 79, ek. 140.000. V. 260.000.
ai
UAZ 452 '89, ek. 12.000. V. 660.000U' Toyota Cressida 2000 '82, ek. 156.000. V. 290.000.
!^§1
Lada Lux 1500 ’89, ek. 15.000. V. 370.000. Lada station 1500 ’88, ek. 23Í000. V. 320.000.
— I
Opið virka daga 9-18 og laugardaga 10-14
Hér sést vel fram um flutningshúsið. Milli þess og ekilshússins er öflug járngrind.
mælir í því, hvaö þá innsogsljós. -
Sennilega kviknar einhvers staðar
einhver tíra í mælaborðinu ef hitinn
fer fram úr öllu hófi en þá er það lík-
lega of seint. Þarna fmnst mér Brass-
arnir stíga einum of langt í sparsem-
inni. Þegar ekið er af stað kemur í
ljós að dynur er ansi mikill í blikk-
boddíinu, eins og sjálfsagt er von.
Um leið kemur það fram að bílnum
er einskis afls vant á lægri hraða-
sviðum og hann er ágætlega frískur.
Hann er ágætlega þýður eins og Fiat
er títt og það er ekki fyrr en hálka
og hvassviöri fara saman að ökumað-
urinn hefur nokkra tilfinningu fyrir
því að afturhluti bílsins vilji fara út
á hlið.
Gírskiptingin góð
Stýrishjólið er mjórra en yðar ein-
lægum þykir gott en skiptingin er
prýðileg. Útispeglar mættu að skað-
lausu vera stærri - það er að segja
sýna meira upp og niður. Bílar sem
eru eins lokaðir að aftan og þessi
ættu skilyrðislaust að vera búnir
speglum sem sýna ökumanninum
Til þess að taka ekki frá mikilvægt rúm annars staðar er varahjólinu komið fyrir frammi í vélarhúsi. Þar verkar
það líka að hluta til sem stuðpúði ef til áreksturs kemur. - Annars virðist ágætlega haganlega raðað ofan í þetta
vélarhús.