Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1991, Page 2
2
MÁNUDAGUR 13. MAÍ 1991.
Fréttir
DV
Jarðskjálftahrina skók Hveragerði í gær og olli skelfingu:
Munir féllu úr hillum og
gler sprakk í myndum
Mikil jarðskjálftahrina reið yfir
Hveragerði síðdegis í gær. Tveir
snörpustu skjálftarnir mældust 2,7
og 3,4 á Richterkvarða en hinir mun
minna. Fyrri snarpi skjálftinn reið
yfir um eittleytið og var hann 2,7 á
Richter. Nokkrir vægari skjálftar
ekki ástæða til að hafa áhyggjur, segir Ragnar Stefánsson
fylgdu í kjölfariö og síðan kom einn
snarpur um hálfíjögurleytið og
mældist hann 3,4 á Richter.
Að sögn Ragnars Stefánssonar
jarðskjálftafræðings áttu skjálftarnir
upptök sín í Selfjalli sunnanverðu
sem er um 3 km fyrir utan kaupstað-
inn. Á skjálftamælum Veöurstofunn-
ar komu fram fleiri skjálftar en þeir
mældust allir vægari.
„Það er engin ástæða til að hafa
áhyggjur af þessum skjálftum en
skjálftavirkni er alltaf öðru hvoru á
þessum slóðum," sagði Ragnar í sam-
tali við DV í gær. „Enginn skjálft-
anna telst mjög sterkur en fólk fann
mikið fyrir þeim vegna þess hve upp-
tökin eru nálægt bænum."
íbúar í Hveragerði fundu allhastar-
lega fyrir báðum skjálftunum en
samkvæmt upplýsingum DV virðist
sem þessir tveir hafi haft mismun-
andi áhrif. Sumir sem fundu fyrir
seinni skjálftanum vissu vart af þeim
fyrri og svo öfugt. í báöum skjálftun-
um féllu munir úr hillum, myndir
skekktust og hús nötruðu.
JJ
Fjórir viðskiptavinir i Eden tylla sér niður til að ná áttum eftir að skjálftinn hafði gengið yfir. Þeir voru að versla
þegar allt byrjaði að skjálfa og fyrstu viðbrögðin voru að henda öllu frá sér og þjóta út úr húsinu. Á myndinni
eru hjónin Ásgrimur Jónsson og Ásta Jónsdóttir og hjónin Þórunn Sigurjónsdóttir og Benedikt Ólafsson.
DV-mynd Sigrún
Fólkið virtist rólegt
- sagöi Freyja Kjartansdóttir, afgreiðslustúlka í Eden
„Það hrundi hér úr hillum og gler
í mynd við útidyrnar sprakk í mola
þegar seinni skjálftinn gekk hér
yfir,“ sagði Freyja Kjartansdóttir,
afgreiðslustúlka í Eden í Hveragerði.
Seinni skjálftinn gekk yfir um hálf-
fjögurleytið og var húsið fullt af gest-
um í kaffi og innkaupum.
„Ég gat ekki séð að fólk yrði eitt-
hvaö hrætt hér inni en ég sjálf varð
dauðhrædd. Maður á alltaf yfir höfði
sér þennan Suðurlandsskjálfta og
býst við hinu versta. Viðskiptavinir
okkar koma aöallega úr Reykjavík
og hafa líklega ekki hugmynd um
þennan möguleika. Að vísu erum við
ekki óvön skjálftum hér en þegar
þeir verða svona snarpir hræðist
maður þann stóra,“ sagði Freyja
Kjartansdóttir í Eden.
JJ
Borð og stólar lyftust
eins og í öldugangi
- sagði Sigríður Sigurðardóttir, íbúi í Hveragerði
„Við sátum við eldhúsborðið þegar
fyrri skjálftinn reið yfir og tilfinning-
in var ótrúleg," sagði Sigríður Sig-
urðardóttir, íbúi í Hverágerði, í sam-
tali við DV í gær.
„Ég fann eins og þyt bak viö mig í
fyrstu og síðan eins og hæga öldu-
hreyfingu ganga undir stólinn og
borðið. Snögglega kom eitt þungt
högg og allt lauslegt á borðinu hrist-
ist. Þótt við séum nokkuð vön skjálft-
um hér fannst mér þessi hreyfing
öðruvísi og óþægilegri því að það var
líkt og húsið gengi í bylgjum og það
skrölti í öllu. Eg varð ekkert óttasleg-
in enda hafði ég ekki tíma til þess
því að þetta gerðist allt svo snöggt."
-JJ
Akvörðun um nýjan
borqarstjóra á miðvikudag
Davíð Oddsson, forsætisráðherra
og borgarstjóri, segir að væntanlega
verði skýrt frá því á fimmtudaginn
hver verði næsti borgarstjóri í
Reykjavik. Á miövikudag verður
reglulegur fundur borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins þar sem málið
verður rætt endanlega.
„Ég hef verið að tala við borgarfull-
trúa í dag og held því áfram,“ sagði
Davíð við DV í gær.
- Hvað ert þú búinn að ræða við
marga borgarfulltrúa um þetta mál?
„Ég er svona hálfnaður að ræða
við hópinn.“
- Ertu ófáanlegur til að segja hver
sé núna líklegastur að fá stööuna?
„Það er ekkert sem ég get sagt fyrr
en ég er búinn að ræða við alla.“
Davíð segir ennfremur að hann
muni halda áfram að ræða við sitt
fólk og síðan fari hann endanlega
yfir málið á reglubundnum fundi
borgarstjórnarflokksins á miðviku-
daginn."
- Verður þá skýrt frá því á fimmtu-
dag hver fær embættið?
„Þá verður væntanlega gengið frá
málinu."
-JGH
Kaup Reykjavíkur á Blikastöðum:
Viðræður við
Mosfellsbæ
- meðal annars um breytt lögsagnarmörk
Viðræður eru hafnar milli Reykja-
víkurborgar og Mosfellsbæjar um til-
boð borgarinnar í jörðina Blikastaði
í Mosfellsbæ. Borgin bauð tæpar 245
milljónir í jörðina en Mosfellsbær
hefur forkaupsrétt til 29. maí næst-
komandi. Það er hins vegar óljóst
hvort hægt verður að nýta forkaups-
réttinn vegna þess hversu hátt tilboð
borgarinnar er.
Páll Guðjónsson, bæjarstjóri í Mos-
fellsbæ, segir að samningar sem
þessir verði ekki hristir fram úr er-
minni.
„Við eigum í viðræðum við Reykja-
víkurborg en það hefur ekkert nýtt
komið fram. Það er verið að vinna
að þessu máli í bæjarstjóm og menn
eru að mynda sér skoðun. Við þurf-
um hins vegar að svara forkaupsrétt-
artilboðinu fyrir 29. maí,“ segir Páll.
Meirihluti bæjarstjórnarinnar hef-
ur ekki myndað sér endanlega skoð-
un á samningnum en að sögn Páls
er verið að skoða alla íleti málsins.
Þá liggur formleg afstaða minnihluta
bæjarstjórnar ekki fyrir en þó hefur
stjórn Framsóknarfélags Kjósar-
sýslu sent frá sér ályktun þar sem
breytingu á lögsagnarmörkunum er
mótmælt.
Jón G. Tómasson borgarritari segir
að í kaupsamningi borgarinnar sé
fyrirvari um að samkomulag náist
milli Mosfellsbæjar og borgarinnar
um ýmis málefni sem tengjast samn-
ingnum. Þar á meðal er sú breyting
á lögsagnarmörkum sem til kæmi ef
borgin kaupir jörðina.
„Eg vil ekki segja neitt um hvað í
því felst. Við ætlum að ræða við
Mosfellsbæinga um þaö,“ segir Jón
G. Tómasson.
-ns
Mikil vörusýning þrjátíu fyrirtækja í Kópavogi, Kóp ’91, var haldin um helg-
ina. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, heimsótti sýninguna á laugar-
dag og var myndin tekin við það tækifæri. Markmiðið með sýningunni var
að vekja athygli fólks á að Kópavogur væri ekki svefnbær heldur lifandi
bær með blómlegt atvinnulíf. DV-mynd Hanna
Ekiö á hest:
Knapinn slasaðist alvariega
Ekiö var á hest á Krossanes- sem meiðslin reyndust alvarleg.
braut, rétt sunnan við Krossanes á Hesturinn virðist hafa lent fram-
Akureyrl, síðdegis á laugardag. an á bílnum og prjónað upp vélar-
Hesturínn slasaðist ekki að ráði en hlífina. Við þetta kastaöist knapinn
knapinn féll af baki og var fluttur af baki og féll í götuna. Framrúðan
á slysadeild. Síðar um kvöldið var brotnaði og bílhnn er mikið
hann fluttur til Reykjavikur þar skemmdur. _jj