Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Blaðsíða 2
18 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991. VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI A. Hansen Vesturgötu 4, Hf., sími 651 693. American Style Skipholti 70, sími 686838. Argentína Barónsstígur 11 a, sími 19555. Arnarhóll Hverfisgptu 8—10, sími 18833. Asía Laugavegi 10, sími 626210 Askur Suðurlandsbraut 4, sími 38550 Suðurlandsbraut 14. sími 81344. Árberg Ármúla 21. sími 686022. Bandidos Hverfisgötu 56, sími 21630 Borgarvirkið Þingholtsstræti 2-4, sími 13737 Café Garður Garðatorgi. sími 657676 Café Jensen Þönglabakka 6. sími 78060. Café Mílanó Faxafeni 11. sími 678860. Duus hús v/Fischersund, sími 14446. Fimman Hafnarstræti 5, sími 11212. Fjörukráin Strandgötu 55. sími 651213. Fjörðurinn Strandgötu 30. sími 50249. Fógetinn, Aöalstræti 10. sími 16323. Furstinn Skipholti 37. sími 33322. Gaukur á Stöng Tryggvagötu 22. sími 1 1 556. Gulini haninn Laugavegi 178. sími 34780. Hallargarðurinn, Húsi verslunarinnar. sími 678555. Hard Rock Café Kringlunni. sími 689888 Hjá Kim Ármúla 34. sími 31 381 Hornið Hafnarstræti 1 5. sími 1 3340. Hólmi Hólmaseli 4. sími 670650. Hótel Borg Pósthússtræti 11, sími 11440. Hótel Holt Bergstaðastræti 37, sími 25700. Hótel ísland v/Ármúla. sími 687111. Hótel Lind Rauðarárstíg 18. sími 623350. Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflugvelli. sími 22322. Hótel Óðinsvé v/óöinstorg, sími 25224. Hótel Saga Grillið. sími 25033. Súlnasalur. sími 20221 . Skrúður. sími 29900. Ítalía Laugavegi 11. sími 24630. Jónatan Livingston mávur. Tryggvagötu 4 6. sími 15520 Kabarett, Matkrá Austurstræti 4. sími 10292. Kaffivagninn Grandagaröi. sími 1 5932. Kínahofið Nýbýlavegi 20. sími 45022. Kina-Húsið Lækjargötu 8. sími 11014. Kringlukráin Kringlunni 4. sími 680878. L.A.-Café, Laugavegi 45. sími 6261 20. Lauga-ás, Suðurlandsbraut 2. sími 689509. Lækjarbrekka Bankastræti 2. sími 14430. Madonna Rauöarárstíg 27 29, sími 621988 Mamma Rósa Hamraborg 11. sími 42166 Mandaríninn Tryggvagötu 26. sími 23950 Marinós pizza Laugavegi 28, sími 625540. Njálsgötu 26. sími 22610. Mongolian Barbecue Grensásvegi 7, sími 688311 Naustiö Vesturgötu 6 8, sími 17759. Ópera Lækjargötu 2, sími 29499. Pétursklaustur Laugavegi 73, sími 23433. Pizza Hut Hótel Esju, sími 680809 Pizzahúsið Grensásvegi 10, sími 39933. Pizzaramí Hringbraut 119. sími 21066. Pizzusmiðjan Smiöjuvegi 14 D. sími 72177 Potturinn og pannan Brautarholti 22. sími 11 690. Rauða Ijóniö Eióistorgi, sími 611414. Rauði sófinn Laugavegi 126, sími 16566, 612095 Setriö Sigtúni 38. sími 689000. Siam Skólavörðustíg 22, sími 28208. Singapore Reykjavíkurvegi 68. sími 54999. Sjanghæ Laugavegi 28. sími 16513. Svarta pannan Hafnarstræti 1 7. sími 1 6480. Sælkerinn Austurstræti 22. sími 11633. Taj Mahal, Tandori og Sushi bar. Laugavegi 34a. sími 13088. Torfan Amtmannsstíg 1, sími 13303. Trúbadorinn, Laugavegi 73. sími 622631. Tveir vinir og annar í fríi. Laugavegi 45. sími 21 255. Veitingahúsið 22 Laugavegi 22. sími 1 3628. Við Tjörnina Templarasundi 3. sími 18666. Viva Strætó Lækjagötu 2. Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldursgötu 14, sími 23939. Ölkjallarinn Pósthússtræti 17. sími 13344. Ölver v/Álfheima, sími 686220. Fjörukráin er matkrá þar sem maturinn er í hásæti. DV-myndir Brynjar Gauti Veitingahús vikunnar: Fj örukr áin Matkráin Fjörukráin er til húsa í næstelsta húsi Hafnarf]aröar sem löngum var nefnt Gamla búðin. Húsið stendur nánast í ijöruborð- inu við Strandgötu 55. í Fjörukránni er leitast við að laða fram andrúmsloft sem minnir á nálægðina við sjóinn og mannlífið við höfnina. Þannig prýða veggina munir og myndir er tengjast út- gerðarsögu Hafnarfjarðar. Dökk- póleruð viðarinnrétting, dökk við- arborð og stólar og dökkir loftbitar setja svip sinn á staðinn þar sem yfirbragðið er frekar elegant, minnir á íinan veitingastað. Matkráarandrúmsloftið skín þó greinilega í gegn en Fjörukráin er nánast eina alvöru matkráin hér- lendis þar sem maturinn er númer eitt, tvö og þrjú. Uppi á lofti, undir súð, er annar minni veitingasalur og setustofa þar sem gestir geta látiö fara vel um sig fyrir og eftir matinn. Fjörukráin fagnaöi eins árs af- mæli um síðustu helgi. Fjörukráin leggur áherslu á einfalda en vand- aða matseðla, hvort sem um er að ræða matseðil hússins eða sérstaka matseðla fyrir hópa eða árstíða- bundnar uppákomur. Meðal slíkra uppákoma eru víkingaveislur. Þær verða haldnar í sérstökum skála í sumar, Fjörugarðinum, sem veit- ingamaðurinn, Jóhannes Viðar Bjarnason, hefur látið reisa við suðurenda Fjörukráarinnar. Fjörugarðurinn var vígður með pompi og prakt um síðustu helgi. Hann verður opinn frá fimmtudög- um til sunnudaga en víkingaveisl- urnar verða tvo dagana. í víkingaveislu eru fyrst bornir fram íslenskir síldarréttir og með þeim öl og snafs í sérunnum lambs- hornum. Aðalrétturinn er grillað lambakjöt, sérstaklega unnið, eða grillaður nýr fiskur. í eftirrétt fá gestir siðan ósvikið skyr sem borið er fram með ávöxtum. Kjötið og fiskurinn er grillaður að gestum ásjáandi en veitingarnar eru born- ar fram í sérhönnuðum keramik- ílátum, af þjónum í víkingabúning- um. Víkingamatseðill kostar 2.900 krónur en 2.200 krónur án drykkja. Þá daga sem víkingaveislur eru ekki í gangi verður boðið upp á ýmiss konar grillrétti á 1100-1300 krónur í hádeginu og 1700-2400 krónur á kvöldin. Á aðalmatseðli Fjörukráarinnar er ýmislegt gómsætt. Af sex aðal- réttum má nefna lambalundir með villisveppasósu á 1560 kr., nauta- hryggjarvöðva með sinnepsbættri kryddjurtasósu á 1880 kr. (dýrast- ur), léttsteiktan svartfugl með títu- berjasósu á 1270 kr. og humarfyllt- an lax með hvítvínssmjörsósu á 1060 kr. Þá er ótalið fiskúrval dags- ins á 1100 kr. Af sex forréttum nefnum við snigla með hvítlauk og sveppum á 820 kr„ rjómalagaða kóngasveppa- súpu á 820 kr„ fiskisúpu með fersku sjófangi og rjóma á 580 kr. og graf- lax með sinnepssósu á 620 kr. í eftirrétt má fá þrjá blandaða ísa með ferskum ávöxtum og rjóma á 540 kr. og djúpsteiktan camembert- ost með rifsberjahlaupi á 630 kr. Nýr matseðill er í smíðum en hann verður heldur léttari, í takt við árstíðina. Kaffidrykkir eru fimm og allar helstu koníakstegundir og líkjörar á boðstólum. Með mat býðst rautt og hvítt vín og rósavín. Trovador rósavín kostar 1810 kr„ Chateau neuf du pape rauövín 3450 kr. og Bernkasteler Schlotsberg hvítvín 1890 kr. Réttur helgarinnar: Gufusoðin smálúða með appelsínusósu Matreiðslumaður vikunnar er Ásbjöm Pálsson á Fjörukránni. Ásbjörn hefur starfaö á Fjöra- kránni í þrjá mánuði en áður var hann við störf og nám í Nimes í Suður-Frakklandi. Hann gefur hér uppskrift að fiskrétti fyrir fjóra sem ætti að vera einfaldur í mat- reiðslu. Það sem þarf er: 800 grömm smálúðuflök 4 dl ferskur appelsínusafi 1 dl mysa 'Á laukur 1 Vi tsk. fiskkraftur 250 gr. smjör Salt og pipar 2 appelsínur Skerið lúðuna í fjögur 200 gramma stykki. Saxið laukinn og látið krauma örlitla stund í klípu af Ásbjörn Pálsson mælir með gufu- soðnum smálúðuflökum með app- elsinusósu. smjörinu í potti eða pönnu með loki. Setjið smálúðuna ofan í auk 1 dl af appelsínusafa og mysunnar. Stráið salti og pipar yfir fiskinn. Látið suðuna koma upp, takið þá af plötunni og látið standa í 5 mín- útur. Þá er röðin komin að sósunni. Takið fiskinn upp úr. Bætiö afgang- inum af appelsínusafanum út í og sjóðið niöur um helming. Þá er smjöri og fiskkrafti bætt út í. Börkurinn er skorinn af appels- ínunum og laufin skorin úr. Lúðu- stykkin eru sett á disk, þá sósan og síðan er skreytt með appelsínu- laufunum. Gufusoðin lúða meö appelsínu- sósu er borin fram með kartöflum og grænmeti. Ef drekka á vín með mælir Ásbjörn með milliþurru hvítvíni. AKUREYRI: Bautinn Hafnarstræti 92, sími 21818. Fiðlarinn Skipagötu 14. sími 27100. Greifinn Glerárgötu 20. sími 26690. Hlóðir Geislagötu 7, sími 22504 og 22600 Hótel KEA Hafnarstræti 87- 89. sími 22200. Hótel Stefanía. Hafnarstræti 83-85, sími 26366 Sjallinn Geislagötu 1 4. sími 22970. Smiðjan Kaupvangsstræti 3. sími 21818. Uppinn Ráðhústorgi 9. sími 241 99 VESTMANNAEYJAR: Bjössabar Bárustíg 11. sími 12950. Hallarlundur Vestmannabraut 21. sími 1 2960. Muninn Vestmannabraut 28. sími 11422 Höfðinn/Við félagarnir Heiðarvegi 1. simi 12577. Skútinn Kirkjuvegi 21. sími 11420. KEFLAVÍK: Edenborg Hafnargötu 30. sími 1 2000. Glaumberg/Sjávargull Vesturbraut 1 7, sími 1 4040. Glóðin Hafnargötu 62, sími 11777. Flughótelið Hafnargötu 57. sími 1 5222. Ráin Hafnargata 19. sími 14601. Veitingahúsið við Bláa Lónið Svartsengi. sími 68283. SANDGERÐI: Veitingahúsið Vitinn, Hafnargötu 4. sími 37755. SUÐURLAND: Gjáin Austurvegi 2. Selfossi. sími 22555. Hótel Selfoss Eyravegi 2. Selfossi. sími 22500 Hótel Örk, Nóagrill Breiöumörk 1, Hverag.. s. 34700. Kam-Bar, Breiðamörk 2c. Hverag., s. 34988. Veitingahúsið við Brúarsporðinn Eyrarvegi 1. Self., sími 22899. VEITINGAHÚS - ÁN VÍNS Arnargrill Arnarbakka 2, sími 77540. Á næstu grösum Laugavegi 26. sími 28410. Bigga-bar - pizza Tryggvagötu 18, sími 28060. Blásteinn Hraunbæ 102, sími 673311. Bleiki pardusinn Hjallahrauni 1 3. sími 652525 Brauðstofan Gleymmérei Nóatúni 17. sími 15355. Bravó Nýbýlavegi 22. sími 46085. Chick King Suðurveri. Stigahlíð 45 47. s. 38890. Eikagrill Langholtsvegi 89. 39290. Eldsmiðjan Bragagötu 38 A. sími 1 4248. Fiskur og franskar Austurstræti 6. sími 626977. Gafl-inn Dalshrauni 1 3, sími 54424. Höfðakaffi Vagnhöfða 11. sími 686075. Ingólfsbrunnur Aöalstræti 9, sími 1 3620 Jón bakan Nýbýlavegi 14. sími 46614 Kentucky Fried Chicken Hjallahrauni 15. sími 50828. Lauga-ás Laugarásvegi 1. sími 31620. Lúxus kaffi Skipholti 50b. sími 83410. Mokka-Expresso-Kaffi Skólavöröustíg 3a. sími 21174 Múlakaffi v/Hallarmúla. sími 37737. Nespizza, Austurströnd 8, Austurströnd 8. sími 61 2030. Norræna húsið Hringbraut. sími 21522. Næturgrillið heimsendingarþj.. sími 77444. Óii prik Hamraborg 14. sími 40344 Pizzahúsið Öldugötu 29. sími 623833. Pizza snögg-sneið Skólavörðustíg 2. sími 1 3320 Pítan Skipholtí 50 C. sími 683150. Selbitinn Eiðistorgi 13 15. sími 611070. Smáréttir Lækjargötu 2. sími 1 3480. Smiðjukaffi Smiöjuvegi 1 4d. sími 72177. Sprengisandur Bústaðavegi 1 53. sími 33679. Sundakaffi Sundahöfn. sími 36320. Tíu dropar Laugavegi 27. sími 1 9380. Toppurinn Bíldshöföa 12. sími 672025. Uxinn Álfhcimum 74. sími 685660. Vogakaffi Smiöjuvcgi 50. sími 38533. Western Fried, Mosfelissveit v/Vosturlandsvcg, sími 667373. Winny’s Lauyavogi 116. sími 25171. AKUREYRI: Crown Chicken Skipagcjtu 12. sími 21464. Keflavík: Langbest, pizzustaður Hafnargötu 62. sími 14/77

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.