Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1991, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1991
21
Garðar og gróður
Hæðamismunur i garöinum er mikill, 5 m eru frá lægsta punkti í þann hæsta. Nýlega hafa þau Þorvaldur og
Hulda lokið við að gróðursetja blómstrandi runna innan við limgerðið á milli lóöanna. Þau hjónin hafa að öllu
leyti byggt garðinn upp sjálf. DV-mynd BG
anna. Fyrstu plönturnar fóru svo í
garðinn árið eftir en þær misstu þau
eiginlega allar. Það var því eiginlega
ekki fyrr en ’83-’84 að plöntur fóru
að koma í garðinn.
Merkilegur matjurta-
garður
Segja má að garðurinn sé á tveimur
eða jafnvel þremur pöllum. Mat-
jurtagarðurinn fær mikið pláss en
hann hefur vakið mikla athygli. „Við
byrjuðum á því að setja niður kart-
öflur hér og þar í garðinum til að
bijóta jarðveginn niður. Þegar garð-
urinn var teiknaöur var strax gert
ráð fyrir matjurtagarðinum," segir
Þorvaldur. í dag er svona stór mat-
jurtagarður sjaldséður í görðum. Þar
rækta þau Hulda og Þorvaldur m.a.
kartöflur og ýmis konar grænmeti. í
kringum garðinn hefur Þorvaldur
komið fyrir gömlu uppsláttartimbri,
eins konar stigum, sem gerir aðkom-
una mun hreinlegri og þægilegri.
Til hliðar við matjurtagarðinn er
svo safnhaugur. Hann er þrískiptur,
eitt hólf fyrir hvert ár. Allur úrgang-
ur úr garðinum, fyrir utan gras, fer
í hauginn. Grasið fyllir hauginn
fljótt, svo því er komiö fyrir annars
staðar. „Við notum alla moldina sem
við fáum og meira til. Það þarf alltaf
að vera að bæta við því jarðvegurinn
sígur og svo fýkur eitthvað af hon-
um,“ segir Þorvaldur. Moldina gróf-
sigta þau áður en hún fer í garðinn
og það sem ekki vill í gegnum sigtið
fer aftur í hauginn.
í garðinum er lítil tjörn og gos-
brunnur sem Þorvaldur útbjó sjálf-
ur. Hann gerði litla laut og lét tvö-
falt byggingarplast þar ofan í. Ofan
á það kemur svo möl. Hann segist
ekki viss um að plastið þoli mikinn
átroðning og nú sé komið á markaö-
inn gúmmíefni sem henti líklega bet-
ur.
Um 600 manns að
skoða garðinn á ein-
um degi
„Ég hef meiri áhuga á blómarækt
og við höfum mest veriö með blóm
og svo tré. Nú erum við hins vegar
nýbúin að gróðursetja blómstrandi
runna innan við hekkið." í garðinum
er ekki mikið um stór tré. „Við erum
með gott útsýni og höfum ekki viljað
eyðileggja það,“ segir Hulda. Niður
við götu hafa þau hins vegar gróður-
sett mikið af trjám sem m.a. er ætlaö
að hljóðeinangra vegna umferðar-
innar. Vegna hæðamismunarins
koma þau tré seint til með að skyggja
á garðinn.
Fyrir þremur árum voru þau
Hulda og Þorvaldur beðin um að
sýna garð sinn í árlegri garðaskoöun
hjá Garðyrkjufélagi íslands. Þau
brugðust vel við þeirri beiðni og á
einum degi komu nálægt 600 manns
og skoöuðu. „Veöríö var alveg yndis-
legt, sól og hlýtt. Þaö sem mesta at-
hygli vakti var matjurtagarðurinn
og safnhaugurinn eins og nú er kom-
inn í annan hvern garð,“ segir Hulda.
Þau hjónin hafa verið félagar í
Garðyrkjufélaginu frá því garðrækt-
aráhugi þeirra kviknaði. Alltaf fara
þau í garðaskoðun og þar segjast þau
oft fá sniðugar hugmyndir sem hægt
er aö breyta og betrumbæta.
Útiveran heillandi
„Það skemmtilegasta við garðrækt
frnnst mér útiveran og að sjá árangur
erfiðisins. Ég hefði aldrei trúað því
að ég ætti eftir að fá þennan áhuga
fyrir garðrækt en þetta kviknaði allt
saman þegar viö byrjuðum að vinna
garðinn. Núna finnst mér þetta ofsa-
lega spennandi," segir Hulda.
„Við eyðum miklum tíma í garðin-
um, flestar frístundir fara í garðinn
að sumrinu. Það er heilmikið verk
að halda við stórum garði. Flest
kvöld á sumrin, þegar gott er veður,
erum við úti við. Maður ætlar sér
stundum að sitja kyrr í sólinni en
áður en maður veit af er maður far-
inn að bogra og beygja sig niður í
garðinum.
Við höfum gert allt sjálf í garðin-
um. í vor kom í fyrsta sinn fagmaður
inn í garðinn og klippti fyrir okkur
trén,“ segir Þorvaldur.
Mikill hitamismunur
„Það munar 2-3 vikum á því hvað
gróðurinn hérna er seinni til heldur
en niðri í bæ enda erum viö í um 80
m yfir sjávarmáli. Við græðum hins
vegar mikið á því að norðanáttin nær
sér aldrei almennilega upp hér í
Breiðholti og þá verður hlýrra hér.
Þannig getur verið hlýrra hér í sól
heldur en niðri í bæ, en aftur kaldara
ef kalt er,“ segir Þorvaldur
Við tefjum þau hjón ekki lengur frá
því að fara út í garðinn á fögru vor-
kvöldi því eins og þau segja þá má
alltaf finna eitthvað að gera i garðin-
um. -hmó
GARÐEIGENDUR
ATHUGIÐ!
Garður er húsprýði, en verður
hann það án blóma ?
höfum langa reynslu í ræktun
blóma og úrvalið af sumar-
blómum, fjölærum blómum,
rósum, kálplöntum, trjám og
runnum hefur aldrei verið
meira. Komið, skoðið eða
hringið, það borgar sig.
GARDYRKJUSTOÐ
Ingibjargar Sigmundsdóttur,
Heiðmörk 38, Hveragerði.
Sími 98-34800, hs. 98-34259.
Sláttuvélaviðgerðir
Viðgerðarþjónusta á slattuvélum
vélorfum og öllum smærri vélum.
Varahlutaþjónusta í STIGA, YARD-MAN og MAJOR sláttuvélar
og ASPERA mótora. Sérhæfð viðgerðarþjónusta á öllum gerðum mótora.
P. Kárason, Faxafeni 10, s. 685755
Gróðurhús fyrir íslenska veðráttu.
Gróðurhús sem þolir óveður og storma.
Formfagurt - sterkbyggt - dönsk hönnun.
Heildverslun. Smiðshús-E. Sigurjónsdóttir
225 Bessastaðahreppur - sími 650800
Classica