Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1991, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1991, Síða 8
24 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1991. Sláttutraktorar, 1, raforl, kantklippur, hekkklippur o.fl. Einungis viðurkennd hágæðamerki, s.s. Murray, Echo og AL-KO. i varahluta og viðhaldsþjónusta. um allt land. Ótrúlega lágt verð. Opið frá kl. 10 -4 á laugardögum. Sláttuvéla- & Hjólamarkaður Hvellur SmiSjuvegi 30, Kópavogi Sími 689 699 og 688 658 ... LÚXUS NUDDPOTTAR ÚR ACRÝL MARGIR LITIR - 4 GERÐIR Acrýl er háglansandi plastefni sem auðvelt er að þrífa. Þolir vel íslenska hitaveituvatnið og sólarljósið án þess að upplitast. Margra ára reynsla á arcýl-pottum sannar yfirburði þess efnis. TREFJAR HF. Stapahrauni 7 - Hafnarfirði - Símar 652027 & 51027 GRÓÐRARSTÖÐIN SKULD LYNGHVAMMI 4, HAFNARFIRÐI, SÍMI 651242. HEIMASÍMAR GUNNAR HILMARSSON 53602 OG GUÐRÚN Þ. JÓNSDÓTTIR 53235. VIÐ HÖFUM SÉRHÆFT OKKUR I RÆKTUN Á ISLENSKA BIRKINU EIGUM EINNIG TIL ÚRVAL ANNARRA RUNNA SUMARBLÓMA OG SKÓGARPLANTNA. OPIÐ TIL 21.00 ALLA DAGA NEMA SUNNUDAGA TIL KL. 18.00. Garðar og gróður Fyrr á árum hélt Dahlíuklúbburinn sýningar og hafði til þess aðstöðu í Laugardal. Margir komu og skoðuðu þessi undurfögru blóm. DV-myndir Áslaug Pétursdóttir Dahlíur: Fallegustu blómin - segir Áslaug Pétursdóttir Ýmsir klúbbar og félög á ýmsum sviðum eru starfandi hérlendis. Dahlíuklúbburinn er einn þeirra. Þaö er klúbbur áhugafólks um rækt- un og garðrækt, meö sérstaka áherslu á dahlíur. Undurfögurblóm Glitfifill er hiö íslenska nafn yfir dahlíur. í Skrúögaröabókinni er þeim lýst meö þessum orðum: „Glit- fíflar eru fjölærar jurtir frá Mexíkó, en þar vaxa þeir hátt til fjalla, sumar tegundir allt upp aö 2600 m hæð yfir sjávarmáli. Frumbyggjar í Mexíkó, aztekarnir, munu fyrstir manna hafa lagt stund á glitfíflarækt. Til Evrópu bárust þeir síðari hluta 18. aldar. Glitfíflar hafa undurfógur blóm, fjöl- breytileg að stærö, gerö og lögun, og spenna litir þeirra yfir mestallt lit- rófiö.“ Svo mörg voru þau orö. Formaður Dahlíuklúbbsins er Ás- laug Pétursdóttir. „Dahlíur eru skemmtilegar við aö eiga ef vel tekst til. Aö mínu mati eru þær meira spennandi en rósir. Dahlíur geta orð- ið einstaklega fallegar ef maður fær góðan einstakling. Þær eru viljugar ef þær koma til og vaxa mjög hratt,“ segir Áslaug. „Ég er með um 30 í ræktun núna en þaö er ekki mikiö. Oft hef ég verið með meira. Ég veit þó ekki hvort ég set þær allar út.“ Breyttstarfseíni Dahlíuklúbburinn var stofnaður árið 1967 og verður því 25 ára á næsta ári. Stofnandi var Kristinn Helgason, mikiil dahlíuræktandi, og voru fé- lagsmenn 15. Nú eru um 50 manns í klúbbnum. Fólk í klúbbnum ræktar allt mögu- legt en félagiö var upphaflega stofnaö Dahlíur eru mjög'litskrúðugar. Þessi heitir Lavender Perfection. í kringum dahlíur. Starfsemin á því sviði hefur nokkuð dregist saman hin síðari ár. Er það einkum vegna þess að sú gróðrastöð í Hollandi sem félagið var í hvað mestu sambandi við, lognaðist út af. Ekki hefur enn tekist að finna annan ræktanda í hennar stað. Áslaug segir að það vilji brenna viö að dahlíuhnýði sem seld eru hérlend- is séu ekki rétt merkt. Þó á pokanum standi ákveðnar upplýsingar þá eru þær ekki alltaf réttar. Þessi rugling- ur komi frá mörkuðm erlendis en ekki frá kaupmönnum hér. „Dahlíur eru stór flokkur blóma og spanna breitt svið. Til eru yfir 40.000 dahlíunöfn og eru þær í ýms- um stærðum og gerðum. Blómin eru allt frá litlum kúlum sem eru 2,5 cm í þvermál upp í það aö vera um 26 cm.“ Áhugi á garðrækt skilyrði „Yfir veturinn eru haldnir fjórir fundir, oftast með fræðsluerindi. Að vorinu eyðum við svo einum degi í skógrækt því klúbbmeðlimir hafa áhuga á mörgu fleiru en dahlíum. í raun getur hver sem hefur áhuga á garðrækt gengið í félagið. Skilyrðin hafa eitthvað mildast en í upphafi var áhugi á dahlíum skilyrði. Að sumrinu fórum við oftast einn dag í skoðunarferð, oft til nágrannasveit- arfélaganna og skoðum garða. Tví- vegis hefur klúbburinn farið til út- landa á dahlíusýningar og ennfrem- ur hefur hann haldið sýningar í Laugardal a.m.k. átta sinnum, síðast árið 1982. Þær vöktu mikla athygli," segir Áslaug. Frá 1974 hefur Dahlíu- klúbburinn svo flutt inn runna. Af- mælisverkefni verður að taka þenn- Áslaug Pétursdóttir, formaður Dah! ■ íukiúbbsins, hefur ræktað margar dahlíur í gegnum árin. Nú er hún með um 30 i ræktun en hún kveðst oft hafa verið með fleiri. an innflutning saman og skoða hvað hentar hér á landi. Ræktun hérlendis Dahlíur er auðvelt að rækta hér- lendis. Best er að hafa gróðurhús til að koma þeim til en stofugluggar hafa líka reynst ágætlega. Við báðum Áslaugu að gefa okkur grunnleið- beiningar um ræktun. í byrjun apríl þarf að setja hnýði niður. Hnýði er forðarót þar sem næringarforði plöntunnar er geymd- ur. Dahlíuhnýöi er hægt að kaupa í flestum gróðrastöðvum. Það er sett niður í pott og vökvað vel. Gott er að fylgjast vel með og ekki vökva að ráði fyrr en komið er líf. Aldrei má hnýðið þó skrælna. Upp úr moldinni geta komiö fleiri en einn stilkur. Það fer svo eftir stærð blómsins hvort þeir eru alhr látnir vaxa áfram eða einhver þeirra er klipptur af. í byrjun júní má setja dahlíurnar út í garð. Þeim þarf að velja skjólsæl- an staö og hugsa vel um þær. ís- lenskt sumar geta þær vel þolaö ef ekki næðir mikið en frost þola þær alls ekki. Best er að binda dahlíur upp til stuðnings. Þessar jurtir þurfa töluverða vökvun og góðan áburð. Dahlíur geta blómstrað fram að frosti. Þær má veria fyrir lítilsháttar næturfrosti ef von er á því, t.d. með þvi að vefja dagblöðum um þær. Hnýðin er hægt að stinga upp að hausti og geyma til næsta vors. Þá er blómið skorið ofan af. Geymslan hefur reynst vandasöm og hver og einn þarf að þreifa sig áfram í þeim efnum. Hnýðin geymast misvel, þurfa kulda en þó ekki frost og mega ekki þorna um of. Að vori eru þau svosettafturniður. -hmó

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.