Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1991, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1991, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1991. 30 Garðar og gróður Rólur eru sívinsælar og mörgum finnst þær ómissandi á leikvöllum. En rólur má lika setja upp i heimagörðum. STEIN HELLUR 48x40 20x40 20x20 15x30 32x32 HAGSTÆÐ KJÖR - SENDUM HEIM Vinnuhælið Litla Hrauni Sölusími 98-31104 Grímsstaðir 50 ára AFMÆLISTILBOÐ er á eftirtöldum tegundum meðan byrgðir endast: Birkivistur í pokum kr. 190,- Gljámispill í pokum kr. 155,- Glávíðir í pokum kr. 90,- Garðyrkjustöðiií Grímsstaðir Heiðmörk 52 Hveragerði, sími 98-34230 Athugið, útsölustaðir: Hellisgerði, Hafnarfírði Drangavellir, Keflavík Það hefur færst í vöxt að margir íbúar taki sig saman og komi fyrir leiktækjum á sameiginlegum opnum svæðum. Nú er hægt að velja um margskonar tæki fyrir börn og gormadýrin sem hér sjást hafa notið mikilla vinsælda. Útileiktæki bama: Ekki bara sand- kassar og rólur vegasölt o.s.frv. Timbrið er fúavarið og lakkað og allir stórir fletir eru lakkaðir í hinum ýmsu litum. Smásmiðjan, sem einnig er til húsa í Kópavogi, framleiðir hin hefð- bundnu járnleiktæki fyrir börn. Leiktækin; rólur, vegasölt, renni- brautir og sandkassar, eru bæði keypt í heimagarða og á leikvelli. Smásmiðjan framleiðir yfirleitt eftir óskum kaupenda og skilar fram- leiðslunni ýmist fullmálaðri eða grunnaðri. Eining í Stykkishólmi er með tré- leiktæki, s.s. sandkassa, gormaleik- tæki, klifurgrindur, lestir, yfir- byggða sandkassa, sparkveggi, hús, garðborð, rólur, vegasölt o.s.frv. Tækin eru öll úr gagnvörðum viði og jám aðeins notað í samtengingar. Hægt er að fá hinar ýmsu stærðir, allt eftir þörfum hvers og eins. Hjá Sækó í Kópavogi eru bæði framleidd járn- og tréleiktæki. Járn- tækin eru meira tekin en viðurinn sækir á. Smíðað er eftir þörfum hvers og eins. Rólur, vegasölt, sand- kassar, gormatæki og rennibrautir eru það vinsælasta en ýmislegt fleira er hægt að útbúa, s.s. pínugolf. Framangreindir framleiðendur setja leiktækin upp fyrir kaupendur eða hafa til þess menn á sínum snær- um,sé þess óskað. -hmó Börnum fmnst alltaf gaman að leika sér úti og ekki er verra ef ein- hver tæki og tól eru til taks. Hérlendis eru nokkrir aðilar sem framleiða útileiktæki fyrir böm. Er þá bæði um að ræða tæki sem henta í heimagarða og stærri tæki fyrir opin svæði og leikvelli. Það hefur færst í vöxt að íbúasamtök og íbúar fjölbýlishúsa taki sig saman og fjár- festi í útileiktækjum á sameiginlega leikvelh. Tréeðajám? Barnasmiðjan í Kópavogi framleið- ir leiktæki fyrir börn, aðallega úr tré en oft styrkt með járni sem lítið sést. Hægt er að fá ýmis tæki, s.s. sand- kassa, kastala, klifurgrindur, rólur, „Hvað ætlar þú að fá?“ Mörgum börnum finnst búðarleikur skemmtilegur og þá er ekki verra að hafa svona fínt hús til taks. Ráðgjöf fyrir garðeigendur — upplýsingar alls staðar veittar endurgjaldslaust Oft em garðeigendur í stökustu vandræðum þegar þeir vita ekki hvemig best er að snúa sér í garð- ræktinni. Ýmsar spumingar koma upp sem vandi getur verið að fá svör við. Flestir þeir sem selja plöntur eru með sérfræðinga í sinni þjónustu sem veita viðskiptavinum nauð- synlegar upplýsingar. Einnig má nefna að garðyrkjumenn eru sér- fræðingar á þessu sviði og geta oft- ar en ekki svarað spumingum sem vakna. Nokkrir aðilar bjóða einnig sérstaklega upp á þá þjónustu að veita upplýsingar á sviði garðrækt- ar. Upplýsingamar eru aUs staðar veittar endurgjaldslaust. Skógræktarfélag Reykjavíkur er með sérfræðinga á sviði tijáræktar og almennrar garðræktar í sinni þjónustu. Þar er hægt að fá allar almennar upplýsingar um trjárækt og jafnvel um garðrækt almennt. Fagfólk hjálpar einnig til við val á trjám og mnnum. Hægt er að leita ráða hjá Skógræktarfélagi Reykja- víkur á opnunartíma sem era alhr virkir dagar kl. 8-19 og kl. 9-17 á laugardögum og sunnudögum. í Blómavali er blómalínan opin alla fimmtudaga frá kl. 17-21. Þar situr Hafsteinn Hafliðason fyrir svöram og svarar spumingum varðandi garðyrkju og blómarækt. Hægt er að hringja í Blómaval eða jafnvel koma á staðinn. Þar, sem og á flestum öörum sölustöðum plantna, eru sérfræðingar við á opnunartíma og veita ýmsar upp- lýsingar. Félagsmenn í Garðyrkjufélagi ís- lands geta leitað ráða hjá starfs- fólki félagsins. Garðyrkjufélagið er áhugamannafélag og veitir upplýs- ingar eftir bestu getu án þess að það séu alltaf sérfræðingar sem sitja fyrir svömm. Opiö er mánu- daga og fimmtudaga kl. 14-18 og á fimmtudagskvöldum kl. 20-22. Sem fyrr segir em þeir sem selja plöntur oftast fúsir að veita þær upplýsingar sem óskað er eftir varðandi plöntur og garðrækt og hafa oft sérfræðinga í sinni þjón- ustu sem geta gefið góð ráö. -hmó

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.