Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1991, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ1991.
31
Garðar og gróður
Vegghleðslur:
Frostfrítt efni undir
vegginn er nauðsynlegt
- annars fer veggurinn á hreyfingu í fyrsta frosti
í görðum þar sem hæðamismunur
er mikill getur verið nauðsynlegt að
hlaða vegg til að taka af mesta hall-
ann. Með því fæst töluvert svæði með
mun minni halla og auðveldara verð-
ur við garðrækt að eiga. Vegghleðsl-
ur geta hka verið til annars en að
taka af hæðamismun.
Gijóthleöslur sem þessar eru
nokkuð vandasamar. Handlagnir
ættu þó að geta hlaðið vegginn sjálfir
ef undirlagið er rétt og ef rétt hand-
brögð eru viðhöfð frá upphafi. Aðal-
atriðið er að frostfrítt efni undir
hleðslunni sé nægilega mikið.
Frostfríttefni
undirvegginn
Jarðvegsskipti undir veggnum eru
nauðsynleg ef veggurinn á að standa
af sér frost. Byijað er á því að grafa
skurð þar sem veggurinn á að vera.
Skurðurinn skal vera nokkuð lengri
en veggurinn þannig að kantarnir
verði stöðugir og fari ekki alhr á
hreyfingu í frosti. Sem dæmi má taka
að ef veggurinn er 10 m langur þá
þarf skurðurinn að vera um 11 m.
Dýpt skurðsins þarf að vera um 70
cm því frostfrítt efni (grús) þarf að
vera 60-80 cm undir hleðslunni. Gott
er að setja jarðvegsdúk (drendúk)
ofan í skurðinn undir grúsina. Það
heldur undirlaginu stöðugra og kem-
ur í veg fyrir missig. Auk þess heldur
dúkurinn jarðvegi aðskildum og
mold hlandast ekki við grúsina.
Á bak við vegginn þarf grúsarlagið
að vera 40-50 cm svo moldin nái ekki
að sprengja hann frá. Mjög mikil-
vægt er að frostfrítt efni sé bæði
undir og á bak við vegginn.
Hugsanlegt er að ræsa þurfi fram
bak við vegginn ef jarðvegur er mjög
blautur. Þegar grúsin er sett ofan í
skurðinn er mikilvægt að valta yfir
eða þétta á annan hátt eftir hvert
malarlag sem sett er í skurðinn. Ekki
er nægilegt að valta yfir þegar öll
grúsin er komið ofan í skurðinn.
Þetta er gert til að koma í veg fyrir
missig og veggurinn verður stöðugri
fyrir vikið.
Aldrei má mold koma alveg upp
við hleðsluna bak við vegginn. Ef svo
er springur veggurinn í frosti og get-
ur hrunið aö lokum því mold þenst
mikið út í frosti.
Stærsta grjótið neðst
Nokkuð misjafnt er hversu mikill
halh er á vegghleðslum. Æskilegur
Þegar hlaðið er með náttúrugrjóti er byrjað á stærsta grjótinu neðst og
endað á því minnsta.
halh er tahnn 25-30 gráður þó mögu-
legt sé aö hafa hann meiri. Þaö fer
svo eftir þeim hæðamismun sem
veggurinn á að taka af, hversu hár
veggurinn verður.
Ymsar steintegundir má nota í
vegghleðslur. Bæði er hægt að nota
náttúrugijót, s.s. holtagrjót eða
hraunsteina, og steypta steina frá
hehusteypum. Einnig hefur það
færst í vöxt að hlaða tréhleðslur. Þá
eru notaðir þrýstifúavamir bitar
sem ekki eiga að fúna. Allt er þetta
smekksatriði. Erfiðara er að hlaöa
með náttúrugijóti heldur en tilbún-
um steinum en handlagnir menn og
margir aðrir geta gert flest það sem
þeir vilja.
Og þá er komið að hleðslunni
sjálfri. Þegar grúsin hefur verið jöfn-
uð vel út og þjöppuð er hafist handa.
Þegar hlaðið er með náttúrugrjóti er
byrjað á stærsta gijótinu neðst og svo
minnkar það eftir því sem ofar dreg-
ur. Stundum getur þurft að brjóta
úr gijótinu með sérstökum hamri
eða sleggju.
Við hleðslur úr náttúrugijóti eru
oft búin til eins konar skapalón eða
vinklar svo auðveldara sé að halda
réttum haha á veggnum, bæði í
brekkunni og frá vinstri th hægri.
Tveir vinklar eru lagðir hvor á móti
öðrum ofan á skurðinn. þannig að
þeir móti öh íjögur horn ferhym-
ings. Snúrur em svo strengdar þar á
mhli. Þetta er gert th aö réttur halli
fáist og veggurinn verði beinn.
Thbúinn steinn er ekki eins erfiður
í hleðslu. Þá er einnig byrjaö að hlaða
neðst en þar sem allir steinar era
jafn stórir er auðveldara að halda
réttum halla og fá beinan vegg.
-hmó
M\ SKÓGRÆKTARFÉLAG
££& REYKJA VlKUR
FOSSVOGSBLETT11-108 REYKJA VÍK
- SÍMI 641770
í trjáræktarstöð okkar í Fossvogi fást að jafnaði allar harð-
gerðar trjá- og runnategundir.
Sérstök áhersla er lögð á ódýrar og hentugar skógarplöntur
í sumarbústaðalönd. Einnig margt fleira sem kemur ræktend-
um vel, svo sem trjástoðir, áburður, verkfæri og hin vinsæla
moldarblanda okkar, kraftmold.
Veitum ráðgjöf og upplýsingar um ræktun og notkun trjáa
og runna.
ATH. Sama verð og ífyrra. Verið velkomin.
Túnþökur
• Hreinræktaður túnvingull.
• Keyrðar á staðinn.
• Túnþökurnar hafa verið valdar á
fótboltavelli og skrúðgarða.
• Hífum allt inn í garða.
Gerið verð- og gæðasamanburð.
„Grasavinafélagið, þar sem gæðin
standast fyllstu kröfur.64
Símar 985-35135 og 98-75932.
NUDÐPOTTAR
ÍSLENSKIR OG AMERÍSKIR
í miklu úrvoli - Verð fró kr. 75.000,-
Allur búnaður fyrir vatns og loftnudd, auk annara fylgihluta:
* Hreinsitæki og hringrúsardælur
* Liós og dælurofar
* Ytirbreiðslur
* Vatns og loftnudd
* Allur fittings og tengihlutar
Við bjóðum einungis AKRYL nuddpotta því AKRYL stenst
íslenska veðróttu og vatn.
10 óro þekking - sala - og þjónusta. Leitið tilboða!
Sýning á nuddpottum
laugardag og sunnudag
frá 13.00-17.00
Gerið gæða og verðsamanburð
Opið laugardaga
K.AUÐUNSSON HF.
Sérverslun meó hreinlætistæki
Grensásvegi 8 - Sími: 686088
>c/