Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1991, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1991, Qupperneq 1
Norræna húsið: Umhverfis- kvi kmynd ah átí ð í Norræna húsinu stendur yflr umhverfis-kvikmyndahátíð og lýkur henni á sunnudagskvöld. Sýndar eru umhverfis-kvikmyndir og kennslu- myndbönd frá Norðurlöndunum og Eistlandi. Frekari uppl. veitir Norræna húsið en rétt er að vekja athygli á sýningu á glænýrri mynd eftir einn af bestu kvikmyndagerðarmönnum Svía, Stefans Jarls. Myndin heitir Járna- renskötare ár 2000 og lýsir lífi þeirra sem lifa af hreindýrum í skugga Tj ernoby 1-kj arnorkuslyssins. Myndin er 35 mín. og hefur aðeins verið sýnd á kvikmyndahátíð í Berl- ín. Fyrsta sýning hennar á Norður- löndum er í Háskólabíói, sal 4, á morgun kl. 17 og 18. Jóhann sýnir verk unnin með afritunartækni. Gallerí 11: „Mismunur leystur í sundur" Á morgun kl. 15 opnar Jóhann Eyfells sýningu í Gallerí 11 að Skóla- vörðustíg 4a. Yfirskrift sýningarinn- ar er „Mismunur leystur í sundur“ (Difference Unravelled) og er uppi- staða hennar það sem listamaðurinn kallar tausamfellur (Cloth Collapsi- ons), en það eru verk unnin með af- ritunartækni í samspil jarðar, efnis og aðdráttarafls. Þessi verk eru at- laga við eðli „framhliðar/afturhlið- ar“, „upp/niður“ og „ýtingar/togun- ar“. Jóhann Eyfells hefur undanfarin 30 ár unnið markvisst að undirstöðu- rannsóknum í myndlist. Niðurstöður hans varða einkum samvirkni efnis- kenndar, sýnileika og tíma. Sýningu Jóhanns lýkur 27. júní. Iistahátíð í Hafnarfirði Á morgun kl. 14 verður setningar- athöfn Listahátíðar í Hafnarfirði í menningarmiðstöðinni Hafnarborg. Heiðursgestur er frú Vigdís Finn- bogadóttir, forseti íslands. Ávörp flytja Ólafur G. Einarsson mennta- málaráðherra, Jóna Ósk Guðjóns- dóttir, forseti bæjarstjómar Hafnar- fjarðar og fulltrúi hstahátíðamefnd- ar. Kammersveit leikur og kór Öldu- túnsskóla syngur. Opnuð verður málverkasýning í Hafnarborg og skúlptúrsýning á svæöinu umhverfis Hafnarborg í miðbæ Hafnarfjarðar. Á sunnudag veröa tónleikar í Hafnarborg kl. 20.30 þar sem fram koma Ármann Helga- son, Guðrún Guðmundsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Martin Frewer og David Knowles. Dagskráin verður með hefð- bundnu sniði og ættu tónleikarnir í Lækjargötu að gleðja unglingana. Ávarp fjallkonunnar verður á sínum stað. 17. júní í Reykjavík: Hefðbundin dagskrá Á þjóðhátiðardaginn verða skrúðgöngur frá Hlemmi og Hagatorgi. Dagskráin á þjóðhátíðardaginn verður með hefðbundnum hætti. Forseti borgarstjórnar, Magnús L. Sveinsson, leggur blómsveig frá Reykvíkingum að leiði Jóns Sig- urðssonar í Kirkjugarðinum við Suðurgötu og hefst athöfnin kl. 10.00. Siðan hefst hátíðardagskrá við Austurvöll kl. 10.40. -- Júlíus Hafstein borgarfulltrúi setur hátiðina. Forseti íslands, Vig- dís Finnbogadóttir, leggur blóm- sveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og forsætisráðherra, Davíð Oddsson, flytur ávarp. Þá verður ávarp fjall- konunnar. Karlakór Reykjavikur syngur og Lúðrasveit verkalýðsins leikur. Klukkan 11.15 verður guðs- þjónusta í Dómkirkjunni, sr. Jón Dalbú. Hróbjartsson prófastur prédikar og Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðriks- sonar. Einsöngvari er Signý Sæ- mundsdóttir. Skrúðganga leggur af stað frá Hlemmi kl. 13.40 og önnur frá Hagatorgi kl. 13.45. Lúðrasveitir og skátar fara fyrir göngunum. Skemmtidagskrá hefst á 4 leiksvið- um í miðbænum kl. 14.00, á Lækj- artorgi, í Lækjargötu, í Hallargarði og í Hljómskálagarði. Fram koma ýmsir skemmtikraftar og lista- menn. Einnig gefst almenningi kostur á að taka þátt í og fylgjast með fjölmörgu sem boðið er upp á á hátíðarsvæðinu. Tveir íþróttaviðburðir tengjast hátíöarhöldunum. Kl. 13.50 lýkur friðarhlaupinu frá Þingvöllum í Hljómskálagarði og kl. 13.55 hefst Landshlaup FRÍ frá sama stað. Skemmtikraftar munu heimsækja barnadeildir Landspítala og Landakotsspítala. Sýning á göml- um bílum verður á Laugavegi og á Bakkastæði. Félagsstarf aldraöa gengst fyrir skemmtun fyrir ellilífeyrisþega á Hótel íslandi kl. 14-18. í Árbæjar- safni verða kynnt vinnubrögð fyrri tíma og verður sérstök hátíðardag- skrá frá kl. 10-18. Við Grófar- bryggju í Reykjavíkurhöfn verður tekið á móti víkingaskipi sem kem- ur hér til hafnar á leið sinni frá Noregi til Vesturheims til að minn- ast landafunda Leifs heppna. For- seti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, mun gefa skipinu nafn. Norskir og íslenskir skemmtikraftar koma fram. Um kvöldið verður skemmtun og tónleikar á tveimur sviöum í Mið- bænum. í Lækjargötu verða tón- leikar og skemmtun og á Þórsham- arsplani verða gömlu dansarnir við harmóníkuspil. Frekari uppl. um dagskrána veitir íþrótta- og tóm- stundaráð Reykjavíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.