Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1991, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1991, Blaðsíða 3
. íGSí iHOl .J-r flUOAOUTgö'? - FÖSTUOAGUR-14,- JUNL1991- - - Dans- staðir Ártún Vagnhöfða 11, sími 685090 Hljómsveit Jóns Sigurðssonar ásamt Hjördísi Geirsdóttur söng- konu leikur fóstudags- og laugar- dagskvöld. Blúsbarinn Laugavegi 73 Lifandi tónlist öll kvöld. Casablanca Diskótek föstudags- og laugar- dagskvöld. Dans-barinn Grensásvegi 7, sími 688311 Dansleikur á föstudags- og laug- ardagskvöld. Danshúsið Glæsibæ Álfheimum, s. 686220 Hljómsveitin Smellir ásamt Ragnari Bjarnasyni leikur á föstudagskvöld. Fjörðurinn Strandgötu, Hafnarfirði Gömlu brýnin skemmta fósudags- og laugardagskvöld. Á sunnudagskvöld leikur Loðin rotta fyrir dansi. Furstinn Skipholti 37, sími 39570 Lifandi tónlist föstudags- og laug- ardagskvöld. Gikkurinn Ármúla 7, sími 681661 Dansleikur föstudags- og laugar- dagskvöld. L.A. Café Laugavegi 45, s. 626120 Diskótek föstudags- og laugar- dagskvöld. Hátt aldurstakmark. Lídó Lækjargötu 2 Bubbi & Rúnar og félagar leika nýtt og eldra efni í bland í kvöld. Á laugar- dagskvöld leikur hljómsveitin Diddi fyrir dansi og verða Módelsamtökin með tískusýningu. Ball á sunnudags- kvöld. Sportklúbburinn Borgartúni 32, s. 29670 Opið föstudags- og laugardags- kvöld á Stönginni. Aðgangur ókeypis. Hótel ísland Ármúla 9, sími 687111 Ball fóstudags- og laugardagskvöld. Rokkpartí á sunnudagskvöld. Þre- menningarnir Jói, Arnór og Ingó sjá um Qörið. Heiðursgestir kvöldsins verða hljómsveitir sem koma af Kaplakrikavelli. Hótel Saga Geirmundur leikur fyrir dansi í Súlnasal á laugardagskvöld. Moulin Rouge Diskótek á föstudags- og laugar- dagskvöld. Naustkráin Vesturgötu 6-8 Opið um helgina. Nillabar Strandgötu, Hafnarfirði Klang og kompaný skemmta fóstu- dags-, laugardags- og sunnudags- kvöld. Tveir vinir og annar í fríi K.K. Band leikur fyrir dansi í kvöld. Á laugardagskvöld sér Loðin rotta um fjörið. Á sunnudagskvöld skemmtir Sniglabandið og sýnir nýtt myndband auk ýmissa uppákoma. Stórtónleikar með norsku hljóm- sveitinni Artch á mánudagskvöld. Púlsinn Blúsbrot leikur á Púlsinum í kvöld frá kl. 10.30 en á efnisskránni er úrval rokktónlistar sl. 20-30 ár. Glerbrot stígur á svið á eftir Blús- broti og leikur öðruvísi prógramm. Sveitirnar eru skipaðar sömum mönnum en þegar þeir kalla sig Glerbrot bætast tveir nýir meðlim- ir í hópinn. Á laugardag leikur rokksveit frá Suðurnesjum, Deep Jimi and the Zepp Creams. Eins og nafngiftin gefur til kynna leikur sveitin eink- um tónlist Deep Purple, Jimi Hendrix, Led Zeppelin og Cream. Suðurnesjamennirnir leika einnig á sunnudagskvöldið en á mánudag kemur fram Rokkhljómsveit ís- lands. Gestir sem mæta fyrir kl. 23 á fóstudag eða laugardag fá boð- smiða á kvöldið eftir. Poison er meðal fimm vinsælustu hljómleikasveita i heiminum í dag. listahátíð í Hafnarflrði: Guðmund- Rokktónleikar á Kaplakrikavelli - íslenskar og erlendar hljómsveitir Á sunnudag verða rokktónleikar á Kaplakrikavelh í Hafnarfirði sem standa í hálfan sólarhring. Svæðið verður opnað á hádegi en fyrsta hljómsveitin, sem ríður á vaðið, er Artch frá Noregi með Eirík Hauks- son innanborðs. Poison er síðasta sveitin á dagskránni en auk áður- taldra koma fram Quireboys, Slaughter, Thunder, GCD og Bullet Boys. Tónleikarnir eru einn af dag- skrárliðum Listahátíðar í Hafnar- firði. Poison er meðal fimm vinsælustu hljómleikasveita í heiminum í dag. Hún hefur selt 15-20 milljónir platna og komið 5 lögum á topp 10 í Bandaríkjunum. Quireboys léku hér í fyrra með Whitesnake og þeir eru nú á meðal vinsælustu hljóm- sveita í Bandaríkjunum. Slaughter hafa komið lagi á topp 15 í Banda- ríkjunum en þeir eru þekktir fyrir sviðsframkomu sínu. Thunder hef- ur átt 2 lög á topp 20 í Bandaríkjun- um og þeir félagar eru af mörgum kallaðir efnilegustu ungliðarnir í rokkinu í dag. Bullet Boys voru uppgötvaðir af Ted Templeman, hinum sama og uppgötvaði Van Halen, en hann er jafnframt leið- togi og verndari þeirra. Artch skartar Eiríki Haukssyni en önnur breiðskífa sveitarinnar er nýkomin út í Bandaríkjunum og hafa viðtök- ur verið góðar. GCD hefur verið kölluð ferskasta sveitin í íslensku rokki en hana skipa Rúnar Júlíus- son, Gunnlaugur Briem, Bubbi og Bergþór Morthens. Rokk-partí verður haldið á Hótel íslandi á sunnudaginn. Það eru fyrrum skemmtanastjórar i Bro- adway (Jói, Arnór og Ingó) sem ætla að sjá um fjörið. Meðal skemmtiatriða verða sýningar af öllu tagi, bæði á sviðinu og úti í sal. Heiðursgestir verða hljóm- sveitir sem fram koma á Kapla- krikavelli fyrr um daginn. Rokk- partíið byrjar kl. 22. Hljómsveitin Galíleó skemmtir Vestfirðingum í Sjallanum á ísafirði í kvöld og annað kvöld. Á sunnudag mun sveitin leika á Súgandafirði á hinum árlega 16. júní dansleik en einnig verður boðið upp á dansleik fyrir unglingana þar sama dag kl. 18. Galíleó leikur jafnframt væntan- lega á ísafirði á 17. júni. nr Rúnar í Sjallanum Guðmundur Rúnar trúbador skemmtir í kjallara Sjallans á Ak- ureyri um þessar mundir. Um helg- ina mun trúbadorinn spila frá kl. 23.00. Þess má geta aö frá Guðmundi Rúnari er komin út kassetta og væntanlegur er geisladiskur. Hann er þó ekki einn á ferð því með hon- um leikur hljómsveitin Óli blaða- sali. Á kassettunni og disknum eru 13 frumsamin lög og textar. Tveir textar eru eftir Akureyringinn og skáldið Birgi Marinósson. Afmælishá- tíð Amon Ra Á laugardag eftir viku verður haldin afmæhshátíð stórhljöm- sveitarinnár Amon Ra. Sveitin var stofnuð á Neskaupstað 1971 og starfaöi á Austfjörðum allt til árs- ins 1981 en síðasta árið var aö mestu gert út frá Reykjavík. Hátt í þrjátíu manns hafa komið við sögu hjá Amon Ra á þessu tímabili og munu þeir flestir koma saman af þessu tilefni og endurvekja stemn- ingu 8. áratugarins á dansleik í Egilsbúð. Sólin fyrir norðan? Hljómsveitin Síöan skein sól verður á faraldsfæti um helgina og mun halda gunnfána íslenskrar tónlistar hátt á lofti sem endranær. Nú fer að líöa að útkomu plötu þeirra Sólardrengja. Er útgáfutími áætlaður mánaðamótin júní/júlí. Hjómsveitin mun kynna efni nýju plötunnar sem og leika eldri smelli til gamans og gleði fyrir dansgesti: í Ýdölum, S-Þingeyjarsýslu, í kvöld, á Hótel Borg á sunnudags- kvöldið og 17. júní fyrir gesti á göt- um miðbæjar Reykjavíkur á sjálfan þj óðhátíðardaginn. Rúnar Þór á Rauða ljóninu Rúnar Þór og hljómsveit spila í Rauða Ijóninu á Eiðistorgi um helgina. Rúnar Þór og hljómsveit skemmta gestum Rauða ljónsins á Eiðistorgi um helgina. Þeir félagar verða þar í kvöld, föstudaginn 14. júní, laugardagskvöldið 15. júni og sunnudagskvöldið 16. júni. Sem fyrr spila þeir lög ajf plötum Rúnars Þórs, auk þess áð spila óskalög. Tónlist Rúnars Þórs spannar nær allan tónhstarstig- ann, allt frá ljúfum ballöðum upp í rokk. Margir þekkja píanólagið 1.12. 87 og fleiri ballöður Rúnars Þórs. Með Rúnari spila Jón Ólafs- son á bassa og Jónas Bjömsson á trommur Lídó: Bubbi og Rúnar Bubbi Morthens, Rúnar Júlíus- son og félagar troða upp í Lídó í Lækjargötu í kvöld. Þeir félagar leika nýtt og eldra efni í bland. Á laugardag verða Módelsamtökin með tískusýningu og hljómsveitin Diddi sér um Ufandi tónlistarflutn- ing. Á sunnudag verður opið en dagskráin liggur ekki fyrir. Samstarfsmenn Karls J. Sig- hvatssonar heitins hafa uppi áform um að halda minningartónleika um hann og er ráðgert að þeir verði í Lídó 4. júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.