Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1991, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991.
Lífestm
PAPRIKA
-1%
I
3
OQ
I
555 313
SVEPPIR
-4%
.c
Ijo !o
I
560 398
Ekki hafa orðið teljandi verðbreytingar á grænmeti frá því í síðustu viku. Urval er fjölbreytt og flestar tegundir góðar.
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Meðalverð flestra
tegunda svipað
Neytendasíða DV fór að venju til
að kanna verð á grænmeti. Meðal-
verð hafði ekki breyst að ráði frá því
í síðustu viku. Farið var í eftirfar-
andi verslanir: Fjarðarkaup í Hafn-
arfirði, Hagkaup í Skeifunni, Bónus
í Skútuvogi, Kjötstöðina í Glæsibæ
og Miklagarð viö Sund.
í öllum verslunum er varan seld
eftir vigt en Bónus selur flestar
grænmetistegundir í stykkjatali.
Samanburður fæst með því að um-
reikna meðalþyngd yfir í kílóverð.
Meðalverð á tómötum var nú 257
krónur en var 329 krónur í vikunni
á undan. Munar um 10%. Á hæsta
og lægsta verði munar miklu, eða
um 90%. Bónus seldi tómatana á 156
krónur kílóið og var það jafnframt
lægsta verðið. Hæsta verð var að
finna hjá Fjarðarkaupi og kostaði
kílóið 297 krónur. Mikbgarður seldi
kilóið á 289 krónur, Kjötstöðin á 249
krónur og Hagkaup á 295 krónur.
Reikna má með að kílóverð geti verið
ögn hærra eða lægra hjá verslunum
Bónuss eftir því hversu stórt hvert
stykki er sem lagt er til grundvallar
útreikningum.
Verðmunur á gúrkum var um 20%
frá því í vikunni á undan og hafði
lækkað nokkuð. Bónus var með
lægsta kílóverðið, 101 krónu. Hæst
var það hjá Fiarðarkaupi og kostaði
þar 247 krónur. Munur á hæsta og
lægsta verði var því allnokkurt. Hag-
kaup seldi kílóið af gúrkum á 195
krónur, Kjötstöðin á 398 krónur og
Mikligarður á 198 krónur.
Sveppaverð var lægst í Kjötstöð-
inni, 398 krónur. 560 krónur kostuðu
þeir í Fjarðarkaupi og reyndist það
einnig hæsta verð. Munur á hæsta
og lægsta verði var um 40% en mun-
ur á meðalverði milli vikna var mjög
lítill. Bónus seldi sína sveppi á 480
krónur, Mikligarður á 545 krónur og
Hagkaup á 544 krónur.
Bláu vínberin voru á nokkru lægra
verði en þau grænu. Meðalverð milli
vikna hafði hækkað um tæp 30%.
Munur á hæsta og lægsta verði var
rúm 40%. Reyndist lægsta verð að í
verslun Hagkaups og kostaði kílóið
349 krónur. Hæsta verð var hjá Kjöt-
stöðinni, eða 496 krónur. Fjarðar-
kaup seldi vínber sín á 354 krónur
kílóið og Mikligarður á 389 krónur.
Engin blá vínber fengust í Bónusi.
Græn, steinlaus vínber fengust víða
og smökkuðust þau prýðilega.
Græn paprika er mikið notuð í
matargerð og nánast ómissandi í
sumarsalatið. Meðalverö hennar
hafði nánast staðið í stað milli vikna.
Bónus var með lægsta kílóverð á
paprikum, eða 313 krónur. Hæsta
verð var að þessu sinni hjá Fjaröar-
kaupi og reyndist 555 krónur. Mikli-
garöur seldi paprikukílóið á 413
krónur, Kjötstöðin á 448 krónur og
Hagkaup á 545 krónur.
Meðalverð kartaflna hafði ekki
breyst svo nokkru næmi. Lægsta
verð var að finna í Bónusi og kostaði
kílóið þar 58 krónur. Hæsta verð var
89 krónur hjá Kjötstöðinni. Mikli-
garður seldi kílóið á 82,50, Fjarðar-
kaup á 75,50 og Hagkaup á 75 krónur.
Meðalverð á blómkáli var svipað
mflli vikna og reyndist nú 194 krón-
ur. Lægsta verð var að finna í versl-
un Kjötstöðvarinnar og kostaði kíló-
iö 186 krónur. Hæsta verð reyndist
vera 198 krónur hjá Miklagarði og
Fjarðarkaupi. Hagkaup seldi kílóið á
195 krónur en Bónus var ekki með
blómkál á boðstólum.
Hvítkál var að finna í öllum versl-
ununum og var meðalverð að þessu
sinni 170 krónur. LítUleg hækkun
háfði orðiö á meðalverði frá því í vik-
unni á undan. Bónus var með lægsta
verðið og kostaði hvítkálið þar 122
krónur kílóið. Hæsta verð var 252
krónur hjá Kjötstöðinni. Seldist kíló-
ið á 125 krónur hjá Fjarðarkaupi, á
178 krónur í Miklagarði og 175 krón-
ur hjá Hagkaupi.
Töluverður verðmunur var milli
hæsta og lægsta verðs á gulrótum.
Kostuðu þær 111 krónur í Fjarðar-
kaupi sem var jafnframt það lægsta.
245 krónur kostaði kílóið hjá Kjöt-
stöðinni og var það einnig hæsta
verð. Meðalverð var svipað miUi
vikna. Kílóið var á 122 krónur hjá
Bónusi, 194 krónur í Miklagarði og
159 krónur í Hagkaupum.
-tlt
Sértilboð og afsláttur:
Kennir ýmissa grasa
Allar afsláttarvörur hjá Fíarðar-
kaupi er að finna á tilboðstorginu.
Að þessu sinni var þar meðal annars
að finna 250 g osta-torteUini frá Bar-
Ula á 152 krónur. Einnig var þar
spaghetti frá sama fyrirtæki á 46
krónur og FusUli pastaskrúfur á 63
krónur. ítalskt krydd frá McGormick
var á 95 krónur. Fyrir grillveisluna
var hægt að fá 3 kg af kolum á 288
krónur. 1 lítri af dönskum kveikilegi
var á 98 krónur.
Hjá Kjötstöðinni fengust lamba-
grillsneiðar á 695 krónur kUóið og 5
kfió af kolum á 387 krónur. í dag,
föstudag, mun verslunin efna til úti-
Mikið er grillað þessa dagana í blíðviðrinu og því ekki úr vegi að reyna
að gera góð kaup í því sambandi.
grUlveislu fyrir gesti og gangandi.
Verða SS-pylsur af því tilefni á til-
boðsverði. Umhverfisvænar Gite
hreinlætisvörur voru á 20% afslætti
hjá versluninni og má í því sambandi
nefna handsápu, uppþvottaefni,
handsápu, þvotta- og mýkingarefni.
MikUgarður býður viðskiptavinum
sínum 24" fjallahjól til kaups. Er
verðið á þeim 11.990 krónur. BMX
barnareiðhjól fást einnig og kosta
þau 8.900 krónur. Matar- og kaffistell
fyrir 8 fæst á 3.995 krónur.
Hjá verslunum Hagkaups má finna
Coke og Diet Coke á tilboðsverði.
Kostar hálfur Utri 59 krónur stykkið
ef keypt eru 18 stykki í einu. Einnig
er kipputUboð á 2 lítra kókflöskum.
Er verðið 995 krónur. Fyrsta send-
ingin af kiwiávöxtum hefur borist í
verslanir Hagkaups frá Nýja-Sjá-
landi. Er kílóverð þeirra 199 krónur.
í Bónusverslununum er ýmis mat-
vara á tilboðsverði að vanda. Að auki
var hægt að fá þar sokka á 82 krónur
parið. Pólóboli var hægt að fá á 899
krónur stykkið. 4,5 kíló af Royal Oak
kolum fengust og kostuöu þau 280
krónur.
-tlt
Paprika
Verð í krónum
455
Nóv. Des. Jan. Feb. Mars Apríl Maf Júní
Tómatar
Verð í krónum
m
Nóv. Des. Jan. Feb. Mars Aprfl Maf Júnf
Vínber
4°<>t Verð í krónum
397
r
Nóv. Des. Jan. Feb. Mars Aprfl Maí Júnf