Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1991, Side 11
FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991.
Utlönd
Bush Bandarikjaforseti tók á móti Boris Jeltsín, forseta Rússlands, í Hvíta húsinu í Washington i gær. Símamynd Reuter
Bush og Jeltsín:
Styðja umbæt-
ur Gorbatsjovs
Boris Jeltsín, forseti Rússlands,
sem nú er í heimsókn í Bandaríkjun-
um, hitti í gær Bush Bandaríkjafor-
seta að máli. Um leið og Bush var
búinn að bjóða Jeltsín velkominn fór
hann fógrum orðum um Gorbatsjov
Sovétforseta og sagði að stefna hans
hefði gert kleift að binda enda á kalda
stríðið. Bæði Bush og Jeltsín hétu
því að styðja umbótaáætlanir Gorb-
atsjovs.
Sovétforsetinn lýsti í gær yfir ein-
dregnum stuðningi viö umbótasinna
í landinu. Tass-fréttastofan sovéska
sagði að Gorbatsjov hefði greint
Jacques Delors, forseta fram-
kvæmdastjómar Evrópubandalags-
ins, frá því að andstæðingar umbót-
anna, þar á meðal nokkrir þingmenn,
væru að fylkja liði nú þegar umbæt-
urnar væru að taka endanlegt form.
í fararbroddi væru nokkrir sem
gerðu sér ekki grein fyrir raunveru-
leikanum og héldu að markaðshag-
kerfi þýddi að Sovétmenn yrðu þræl-
ar kapítalismans.
Æðsta ráðið kemur saman til fund-
ar í dag og er gert ráð fyrir að rætt
verði um tillögu harðlínumanna um
að takmarka völd Gorbatsjovs og
auka völd Valentins Pavlov forsætis-
ráðherra.
Gorbatsjov fór þess á leit við þing-
menn fyrr í þessari viku að frestað
yrði atkvæðagreiðslu um tillöguna
þar til hann gæti verið viðstaddur.
Ekki var ljóst í gær hvort hann
myndi verða sjálfur viðstaddur eða
senda fulltrúa sinn.
Óánægja harðlínumanna beinist að
áætlun gerðri af sovéskum og banda-
rískum hagfræðingum í sameiningu
sem bjarga á efnahag Sovétríkjanna.
í henni er gert ráð fyrir skjótum
breytingum og mikilli aðstoð Vestur-
landa á næstu sjö árum. Pavlov tjáöi
þingmönnum í þessari viku að hon-
um litist ekki á áætlunina og hvatti
menn til að treysta á sjálfa sig í efna-
hagsumbótum.
Reuter
Togastá
Jórdanía:
um breskan f anga
Breski verkfræðingurinn Douglas Brand var leystur úr haldi i Bagdad á
þriðjudag og i gær bitust íraskir og breskir embættismenn um hann i
Amman, höfuðborg Jórdaniu. Símamynd Reuter
Nærri lá handalögmálum milh bre-
skra og íraskra stjómarerindreka í
Amman, höfuðborg Jórdaníu, í gær
vegna Douglas Brand, bresks verk-
fræðings sem írakar létu lausan úr
fangelsi í fyrradag. Brand hafði veriö
dæmdur til ævilangrar fangavistar
fyrir njósnir.
Stjómarerindrekarnir toguðust á
um Brand fyrir utan íraSka sendiráð-
ið í Amman eftir að íraskir embættis-
menn kröfðust þess að aka honum
alla leið til Amman en ekki aðeins
til jórdönsku landamæranna. Bret-
um tókst að ná Brand með því að aka
bíl fyrir dyr sendiráðsins til aö koma
í veg fyrir að menn Saddams gætu
farið með verkfræðinginn inn.
„Þetta er frjálst land,“ lýsti breskur
sendiráðsstarfs'maður yfir fyrir
framan sjónvarpsmyndavélarnar
sem tóku upp stimpingarnar. „Við
ætlum með Brand í sendiráðið okk-
ar.“
Vandræöin byrjuðu þegar Brand
steig út úr bíl írakanna fyrir utan
sendiráðið og gekk í átt að myndavél-
unum þar sem sendiráðsstarfsmað-
urinn fagnaði honum. írakar þrifu
þá í hann og reyndu að draga að
sendiráðinu. Bretar toguðu þá á móti
og tókst að lokum að koma mannin-
um inn í einn bíla sinna.
Brand, sem var handtekinn í sept-
ember þegar hann var að reyna að
flýja frá Bagdad, sagði fréttamönn-
um að sér liði mjög vel.
Fréttamenn, sem fylgdust með
ökuferð Brand yfir eyðimörkina til
Amman, sögðu að það hefði átt að
afhenda hann við landamærin eftir
átta klukkustunda akstur frá
Bagdad. Þeir sögðu aö jórdanskir
öryggisverðir hefðu dregið Bretann
í burtu og að írakar hefðu síöan neytt
hann til að fara aftur inn í bílinn og
aka með þeim til höfuðborgarinnar.
Breskir sendiráðsstarfsmenn veittu
þeim eftirfór í öðrum bíl.
Reuter
Eigum allar gerðir af rafstöðvum,
bensín- og dísilstöðvar. Viðgerðir og varahlutaþjónusta
P. Kárason, Faxafeni 10, s. 685755
Turtles og Simpson
- Háskólabolir kr. 1.090
-Jakkar kr. 1.186
-T-bolir kr. 586
Gallar í yfirstærðum
Opið virka daga 9-18. Lau. 10-16
Nauðungamppboð
Eftirtaldar eignir verða boðnar
upp á nauðungaruppboði sem
fram fer á skrifstofu embættisins,
Austurvegi 4, Hvolsvelli, þriðju-
daginn 25. júní 1991 kl. 14.00.
Hraunalda 3, Hellu, eigandi Linda
Ósk Vilhjálmsdóttir, að kröfu Ævars
Guðmundssonar hdl., Jóns Ingólfsson-
ar hdl., Þorstems Einarssonar hdl. og
Halldórs Þ. Birgissonar hdl.
Nestún 8a, Hellu, talin eign Hallfríðar
Ó. Óladóttur og Valdimars Trausta
Asgeirssonar, að kröfu Bjama Stef-
ánssonar hdl., Jóns Eiríkssonar hdl.,
Jóns Ingólfssonar hdl., Klemenzar
Eggertssonar hdl. og Magnúsar
Hauks Magnússonar hdl.
Reynifell, sumarbústaðalóðir Rangár-
vallahreppi, lóðir nr. 12 og 17, A-gata
nr. 2,-4,—6,—8,—10,—12. B-gata nr. 1-2
og 4-8. C-gata nr. 1-3, 6,-8,-10 og 12.
D-gata nr. 1. E-gata nr. 1-2. F-gata
nr. 1-6 og 8. G-gata nr. 1-2 og 4. H-
gata nr. 2.1-gata nr. 2 - eign þrotabús-
ins Smiðshúsa hf„ að kröfu skiptaráð-
anda í Reykjavík.
Brekkur II, Holtahreppi, talin eign
Júlíusar Brjánssonar, að kröfu Gjald-
heimtunnar í Reykjavík.
Þrúðvangur 24, Hellu, talin eign Þór-
halls Svavarssonar, að kröfu Baldurs
Guðlaugssonar hrl.
Króktún 4, Holsvelli, eig. Aðalsteinn
M. Aðalsteinsson, að kröfu Ingimund-
ar Einarssonar hdl.
Litlagerði 4a, Hvolsvelli, eign Agnes-
ar Guðbergsdóttur, að kröfu Eggerts
B. Ólaíssonar hdl.
Skipagerði 1, Vestur-Landeyjum, eign
Óskars Jónssonar, að kröfu Óskars
Magnússonar hdl.
Fossalda 6E, Hellu, eign Ingu B. Ól-
aisdóttur, að kröfu Skúla J. Pálma-
sonar hrl.
SÝSLUMAÐUR RANGÁEVALLASÝSLU
Nauðungaruppboð
annað og síðara
Eftirtaldar eignir verða boðnar
upp á nauðungaruppboði sem
fram fer á skrifstofu embættisins
Austurvegi 4, Hvolsvelli, þriðju-
daginn 25. júní 1991 kl. 14.00.
Lambalækur, Fljótshlíðarhreppi, eign
Garðars Halldórssönar, að kröfu Ólafs
Bjömssonar hdl. og V algarðs Sigurðs-
sonar hrl.
Geitasandur 8, Hellu, eign Jóhönnu
B. Wathne, að kröíu Jóns Ingólfssonar
hdL___________________________
Öldugerði 12, Hvolsvelli, talin eign
Guðfinns Guðmannssonar, að kröfu
Iðnlánasjóðs og Reynis Karlssonar
hdL_________________
Austurvegur 9, Hvolsvelli, eign Guð-
finns Guðmannssonar, _að kröfii
Bjama Stefánssonar hdl., Ólafs Axels-
sonar hrl., Ingimundar Einarssonar
hdl., Jóns Magnússonar hrl., Kristins
Hallgrímssonar hrl. og Trygginga-
stofiiunar ríkisins.
Ormsvellir 7, Hvolsvelli, eign Tré-
smiðju Guðfinns Guðmannssonar, að
kröíu Jóns Ingólfesonar hdl., Ingvars
Bjömssonar hdl., Hákonar H. Kris-
tjónssonar hdl. og Asbjöms Jónssonar
hdL__________________
Leikskálar 4 og 6, Hellu eign Sigurð-
ar Karlssonar, að kröfu Óskars Magn-
ússonar hdl. og Valgarðs Sigurðsson-
ar hrl.
Borgarsandur 4, Hellu, eign Sigurðar
Haraldssonar og Dýrfinnu Kristjáns-
dóttur, að kröfú Lífeyrissjóðs Rang-
æinga, Innheimtustofiiunar ríkisins,
Friðjóns Ö. Friðjónssonar hdl., Ás-
geirs Thoroddsen hrl., Þorsteins Ein-
arssonar hdl. og innheimtumanns rík-
issjóðs.
SÝSLUMAÐUR RANGÁRVALLASÝSLU