Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1991, Blaðsíða 3
FÖSTLjÐAGUE 12. ttÚLÍ '1991.'
Dans-
staðir
Ártún
Vagnhöfða 11, sími 685090
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar
ásamt Hjördísi Geirsdóttur söng-
konu leikur fóstudags- og laugar-
dagskvöld.
Blúsbarinn
Laugavegi 73
Lifandi tónlist öll kvöld.
Casablanca
Diskótek fóstudags- og laugar-
dagskvöld.
Dans-barinn
Grensásvegi 7, sími 688311
Dansleikur fóstudags- og laugar-
dagskvöld.'
Danshúsið Glæsibæ
Álfheimum, s. 686220
Hljómsveitin Smellir ásamt
Ragnari Bjarnasyni leikur á
föstudagskvöld.
Fjörðurinn
Strandgötu, Hafnarfirði
Loðin rotta leikur fyrir dansi í kvöld.
Á laugardagskvöld spila Flækingam-
ir og Anna Vilhjálms fyrir dansi.
Furstinn
Skipholti 37, sími 39570
Lifandi tónlist föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Gikkurinn
Ármúla 7, sími 681661
Dansleikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
L.A. Café
Laugavegi 45, s. 626120
Diskótek fóstudags- og laugar-
dagskvöld. Hátt aldurstakmark.
Sportklúbburinn
Borgartúni 32, s. 29670
Opið fóstudags- og laugardags-
kvöld á Stönginni. Aðgangur
ókeypis.
Hótel ísland
Ármúla 9, sími 687111
Sýning á skemmtidagskránni í
hjartastað - Love Me Tender í kvöld.
Ball laugardagskvöld.
Hótel Saga
Ellý Vilhjálms, Ragnar Bjarnason og
hljómsveitin Smellir leika í Súlnasal
á laugardagskvöld.
Moulin Rouge
Diskótek á fóstudags- og laugar-
dagskvöld.
Naustkráin
Vesturgötu 6-8
Opið um helgina.
Nillabar
Strandgötu, Hafnarfirði
Jón forseti og félagar halda uppi stuði
fóstudags- og laugardagskvöld.
Tveir vinir og annar í fríi
Keflvíska hippasveitin Deep Jimi &
The Zep Creams skemmtir á föstu-
dags- og laugardagskvöld. Á sunnu-
dagskvöld verða tónleikar með Ellen
& Flokki mannsins hennar. Á mánu-
dags- og þriðjudagskvöld em tónleik-
ar með hfjómsveitinni Reykjavíkur-
kvintett.
Ölkjallarinn
Pósthússtræti 17
Guðmundur Haukur leikur föstu-
dags- og laugardagskvöld. Trúbador-
inn Ingvar sér um stuðið á sunnu-
dagskvöld og á mánudagskvöld verð-
ur það Einar Jónsson með Ann
Andreasen í fararbroddi.
19,
Vinir Dóra
á Púlsinum
Stórblúshljómsveitin Vinir Dóra
verður á Púlsinum í kvöld, fóstu-
dag og á morgun laugardag. Tilefn-
ið er útgáfa geisladisksins Blue Ice
sem er gefmn út af Platonic records
en diskurinn inniheldur 10 gæðab-
lúsa sem hljóðritaðir voru á Púlsin-
um 18., 19. og 20. apríl á hijómleik-
um Chicago Beau, Jimmy Dawkins
og Vina Dóra.
Tónleikagestum verður boðið að
eignast diskinn á sérstöku tón-
leikaverði sem er 1500 krónur og
verður diskurinn til sölu við inn-
ganginn bæði kvöldin. Hljómsveit-
ina skipa Andrea Gylfadóttir söng-
ur, Halidór Bragason gítar og söng-
ur, Guðmundur Pétursson gítar,
Haraldur Þorsteinsson bassi og
Ásgeir Óskarsson trommur.
Andrea, Dóri og Guðmundur eru
nýkomin úr velheppnaðri ferð til
Chicagoborgar þar sem þau komu
fram á árlegu blúsfestivali með
Beau og Dawkins til kynningar á
Ice Blue en diskurinn er þegar
kominn út í Bandaríkjunum við
góðar undirtektir. Þetta eru fyrstu
tónleikar Vina Dóra eftir heim-
komuna og búast má við góðri
stemningu á Púlsinum því Vinir
Dóra eru margir og tryggir.
Á sunnudaginn spilar hljóm-
sveitin GCD á Púlsinum með tvo
þekktustu rokkara landsins innan-
borðs, þá Bubba Morthens og Rún-
ar Júlíusson en auk þeirra skipa
hljómsveitina þeir Bergþór Morth-
ens og Gunnlaugur Briem. Hljóm-
sveitin flytur efni af nýútkominni
plötu.
Síðan skein sól spilar á Hlöðum á Hvalfjarðarströnd um helgina.
Síðan skein sól á Hlöð-
um Hvalfjarðarströnd
Hið íslenska tónlistarsumar
heldur áfram í glaðasólskini og
yndislegu veðri og lætur hljóm-
sveitin Síðan skein sól sitt ekki eft-
ir liggja í þeim dansi.
Á næstunni er væntanleg ný
hljómplata með hljómsveitinni sem
ber heitir Klikkað. Sveitin mun
leika lög af plötunni í kvöld og ann-
að kvöld þegar hún spilar á Hlöðum
á Hvalfjarðarströnd. Síðan skein
sól heldur auðvitað uppi söng, gleði
og skemmtilegheitum langt fram á
nótt.
Sálin í 1929 og Ydölum
Eftir aö hafa gert víðreist um
sýslur Vestur- og Suðurlands und-
anfarnar vikur er komið að því að
Sálin hans Jóns míns heldur á
nyrðri mið. Um helgina skjóta þeir
Sálar-menn upp kollinum á Norð-
urlandi eystra í fyrsta sinn á þessu
sumri. í kvöld, föstudag, heyja þeir
frumraun sína á sviði skemmti-
hússins 1929 sem er á Akureyri. Á
morgun, laugardag, liggur leiðin
aðeins austar, eða að Ýdölum í
Aðaldal.
Eins og greint hefur verið frá þá
notaðist gítarleikarinn Guðmund-
ur Jónsson við nýja tegund af gítar-
nögl um síðustu helgi. Nöglin
reyndist afburðavel, svo vel að
framleiðendur hennar hafa farið
þess á leit við bassaleikara sveitar-
innar, Friðrik Sturluson, að hann
þolreyni um þessa helgi glænýja
tegund bassastrengja sem þeir hafa
þróað undanfarin misseri. Strengir
þessir eru lítt frábrugðnir hefð-
bundnum strengjum í útliti en
hljóma engu að síður gerólíkt þeim
hefðbundnu. Munurinn liggur í því
að þeir eru holir að innan og inni
í hverjum þeirra eru þrír örsmáir
flberhólkar sem renna frítt eftir
strengnum endilöngum. Fyrir vik-
ið hefur bassaleikarinn möguleika
Friðrik Sturluson, bassaleikari
Sálarinnar, verður með tilrauna-
starfsemi í bassastrengjum um
helgina.
á því að hafa hljóminn breytilegan
með því einu að halla bassanum
mismikið upp eða niður. Ef bassan-
um er síðan haldið í láréttri stell-
ingu verður hljómurinn eðlilegur
en þó hefur því verið fleygt að sjald-
an hafi heyrst eins tær og þéttur
F-hljómur úr nokkurri tegund
bassastrengja.
Gestir í 1929 og Ýdölum geta þó
dæmt um það sjálfir hvernig þeim
líkar hljómurinn frá Friðriki, en
tónleikarnir hefjast á báðum stöð-
um skömmu fyrir miðnætti.
Peter Qerling á
Okkur félögunum
Danska blúshljómsveitin Peter
Qerling Blues Connection heldur
tónleika á skemmitstaðnum Okkur
félögunum í Vestmannaeyjum á
laugardagskvöld. Peter Qerling er
þekkt fyrir stórgóðan blús þannig
að Eyjamönnum er fengur í að fá
sveitina til tónleikahalds.
Vinir Dóra verða með tónleika á Pulsinum um helgina eftir velheppnaða
tónleikaför til Chicago.
Tveir vinir og annar í fríi:
Deep Jimi og Ellen
Það verður mikið um að vera á
Tveimur vinum og öðrum í fríi um
helgina. í kvöld, fóstudagskvöld,
skemmtir keflvíska hippasveitin
Deep Jimi & the Zep Creams. Þessi
áhugaverða sveit hefur getið sér
gott orð fyrir vandaðan flutning
rokktónlistar frá því í kringum
1970.
Á sunnudagskvöldið eru tónleik-
ar með Ellen Kristjánsdóttur og
Flokki mannsins hennar. Þau eru
á fórum til Pori í Finnlandi þar sem
sveitin tekur þátt í jasshátíð með
nýtt prógramm sem þau spila á
Tveimur vinum. í Flokknum eru
auk Ellenar Sigurður Flosason,
Eyþór Gunnarsson, Matthías
Ellen Kristjánsdóttir og Flokkur
mannsins hennar verða með tón-
leika á Tveimur vinum á sunnu-
dagskvöld.
Hemstock, Friðrik Karlsson og Jó-
hann Ásmundsson. Tónleikarnir
hefjast klukkan 22.
Suöureyri við Súgandafjörð:
Græni bíllinn hans Garðars
Á morgun, laugardaginn 13. júlí
heldur hljómsveitin Græni bíllinn
hans Garðars stórdansleik í félags-
heimilinu á Suðureyri við Súg-
andafjörð.
í Græna bílnum hans Garðars
eru fimm ungir og hressir piltar frá
Bíldudal sem starfað hafa saman
undanfarin 3 ár og leikið vítt og
breitt um Vestfirði. Hljómsveitina
skipa Þórarinn Hannesson söngv-
ari, Viðar Ástvaldsson hljómborðs-
leikari, Matthías Ágústsson bassa-
leikari, Hjalti Jónsson trymbill og
Græni bíllinn hans Garðars heldur
dansleik á Suðureyri við Súganda-
fjörð á morgun, laugardag.
Bjarni Þór Sigurðsson gítarleikari.
Dansleikurinn hefst klukkan 23 og
stendur til 3.
Rúnar Þór á
Rauða ljóninu
Rúnar Þór spilar ásamt hljóm-
sveit á Rauða ljóninu á Eiðistorgi
í kvöld, föstudag, og annað kvöld.
Þeir sem þekkja til tónlistar Rún-
ars Þórs þurfa ekki frekari kynn-
ingu en hinum til upplýsingar má
geta þess að Rúnar Þór kemur inn
á flest svið tónlistar auk þess sem
hann spilar sína eigin. Hún er
mörgum ballöðuunnendum kunn
og margir þekkja Brotnar myndir
og píanólagið 1.12.87.
Með Rúnari Þór spila Jón Ólafsson
á bassa og Jónas Björnsson á
trommur.
Stjórnin verður í K-17 i Keflavík og Lýsuhóli á Snæfellsnesi.
Stjómin í K-17 og Lýsuhóli
Stjórnin heldur áfram för sinni laugardag, heldur sveitin á Snæ-
um landiö og leikur í kvöld, fóstu- fellsnesið og leikur á Lýsuhóli.
dag, í K-17 í Keflavík og á morgun,