Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Blaðsíða 9
MiÐyiKip^Gy^.^tuööii ? -
DV
Útlönd
Vopnaöur Króati leitar skjóls undan árás Serba i miðbæ Vinkovci í gær.
Simamynd Reuter
Samskipti Bandaríkjanna og Kína:
Endurnýjun bestukjara-
samnings fyrirsjáanleg
Kínverskir ráöamenn fögnuöu í
dag niðurstöðu kosningar í öldunga-
deild bandaríska þingsins sem virð-
ist greiða götu endumýjunar viö-
skiptasamnings milli Bandaríkjanna
og Kína án nokkurra skilmála.
Atkvæði í öldungadeildinni fóm
þannig að 55 þingmenn gegn 44 vildu
að ákveðnir skilmálar fylgdu end-
urnýjun bestukjarasamnings land-
anna. Atkvæðamunurinn var ekki
nógu mikill til að koma í veg fyrir
að forsetinn geti beitt neitunarvaldi
sínu og komið samningnum í gegn.
Ye Rugen, talsmaður ráöuneytis
erlendra viðskipta 1 Kma, virtist
sannfærður um að Kína gæti reitt sig
á að forseti Bandaríkjanna, George
Bush, myndi styðja skilmálalausa
endurnýjun samningsins.
Bestukjarasamningurinn leiðir til
forréttinda Kína í viðskiptum við
Bandaríkin upp á milljarða dollara
árlega. Áður hafði fulltrúaþing
Bandaríkjanna samþykkt frumvarp
þess efnis að samningurinn yrði ekki
samþykktur nema með skilmálum
sem meðal annars fólu í sér að Kína
þyrfti að taka sig á í mannréttinda-
málum. Reuter
Einkaritarinn tekur
á sig sökina
Einkaritari zúlúleiðtogans Man-
gosuthu Muthelezi hefur tekið á sig
alla sökina fyrir leynigreiðslur
stjómar Suður-Afríku til Inkatha-
flokksins og sagt starfi sínu lausu.
Embættismenn Inkathaflokksins
tilkynntu í gær að þeir mundu end-
urgreiöa rúmar fimm milljónir
króna sem Pik Botha utanríkisráð-
herra hefui^ viðurkennt að hafa af-
hent þeim.
Ríkisstjómin hefur einnig viður-
kennt að hafa afhent verkalýðsfélagi
Inkatha rúmlega 30 milljónir króna.
Stjórn Suður-Afríku ræddi greiðsl-
umar í gær en de Klerk forseti varð-
ist allra frétta eftir fundinn. Mikill
þrýstingur er á stjórnvöld að ráð-
herrar verði látnir segja af sér vegna
málsins. Reuter
Fjöldamord
Vitni hafa nú sagt frá fjöldamorð-
um í norðurhluta Mósambíks þegar
uppreisnarmenn Renamo tóku
Nampulahéraö þann 29. júní síðast-
liðinn. Að sögn æddu uppreisnar-
menn í gegnum bæinn Lalaua í norð-
urhluta landsins og nálæg þorp og
drápu um þúsund manns.
„Búöarhillumar vom tæmdar og
afhöggnir hausar bæjarbúa settir þar
til sýnis í staðinn," var haft eftir vitni
í dagblaði í gær. Fólk, sem flúði
Lalaua til nálægs bæjar, Ribaue,
sagði frá þessum atburðum. Einn
sagði að nályktin í bænum heföi orð-
ið svo sterk að uppreisnarmennimir
sjálfir heföu yfirgefið miðbæinn og
komið sér upp búðum í úthverfi.
Uppreisnarmennirnir fóm um nálæg
í Mósambík
þorp og brenndu niður meira en tvö
þúsund heimili.
Embættismenn í hjálparstofnun
ríkisins segja að um fjögur þúsund
flóttamenn hafi komið til Ribaue um
síðustu helgi og þörfm væri mikil
fyrir mat, föt og lyf.
Uppreisnarhreyfing Renamo hefur
barist síðan 1975 fyrir því aö steypa
ríkisstjóminni af stóli. Hreyfmgin
hefur þráfaldlega verið ásökuð um
fjöldamorð og hefur hrottaskap
hennar verið líkt við Rauðu khmer-
ana í Kambódíu. Friðarviðræður við
ríkisstjómina byrjuðu fyrir um ári
og síðan þá hefur litlum sögum farið
af ofbeldi hreyfingarinnar fyrr en
núna.
Slóvenskt dagblað í morgun:
Herinn stjórnar
atburðarásinni
- ástandið í Júgóslavíu versnar enn
Nýir bardagar milli Serba og Kró-
ata og háværar deilur meðal leiðtoga
Júgóslavíu um misheppnaðar friðar-
umleitanir þeirra hafa magnað
kreppuna í landinu enn frekar.
Tveir króatískir lögregluþjónar til
viðbótar voru drepnir og fjöldi
manns særöist í sex klukkustunda
löngum bardögum við serbneska
skæmliða í gær, nærri Palace í aust-
urhluta Króatíu, að sögn sambands-
hersins. Fimm króatískir lögreglu-
þjónar særðust í öðrum bardögum.
Alls hafa nú 36 manns að minnsta
kosti látiö lífið í bardögum milli
Serba og Króata síðan á föstudag.
Leiðtogar júgóslavnesku lýðveld-
anna sex og ríkisstjórnin reyndu að
komast aö friöarsamkomulagi í borg-
inni Ohrid á mánudagskvöld en til-
raunir þeirra fóru út um þúfur.
„Fundurinn í Ohrid staðfesti valda-
leysi stjómmálaleiðtoga lýðveldanna
í suðurhluta landsins á sama tíma
og æðsta yfirstjórn hersins fer ekkert
í launkofa með að hún stjómar at-
burðarásinni," sagöi slóvenska dag-
blaðið Vecer í morgun.
Óeirðir brutust út í Júgóslavíu eftir
aö Slóvenía og Króatía lýstu yfir
sjálfstæði sínu 25. júní. Serbneski
minnihlutahópurinn í Króatíu, sem
í eru 600 þúsund manns, er andvígur
sjálfstæðisviðleitninni.
Síðustu friðarumleitanirnar sigldu
í strand þegar Franjo Tudjman, for-
seti Króatíu, sagði að sérhvert sam-
komulag yröi að fela í sér heim-
kvaðningu sambandshersins í Króat-
íu í búðir sínar. Hernum er ætlað að
halda friðinn á átakas'væðum í lýð-
veldinu.
Leiðtogar Serbíu sökuöu Króata
um að koma í veg fyrir frið. Forseti
Júgóslavíu, Stipe Mesic, sem er Kró-
ati, svaraði með því að saka Serbíu
um að ætla að imilima þá hluta Kró-
atíu þar sem Serbar búa og njóta við
það fulltingis hersins sem er að
mestu stjórnað af Serbum.
Mesic sagðist ætla að kalla saman
fund í forsætisráðinu í dag eða á
morgun.
„Það er eins og þeir hafi aldrei
ætlað sér að ná samkomulagi. Serbía
ásakar Króatíu og Króatía kennir
Serbíu um á meðan landið er að
hrynja í kringum þá,“ sagði stjórnar-
erindreki.
Vestrænir stjórnarerindrekar
segja að herinn hafi tekist á hendur
lykilhlutverk í kreppunni og sé mest
áberandi í margklofnu forsætisráð-
inu sem samkvæmt stjórnarskrá
landsins fari með æðstu stjórn hans.
„Herinn bíður enn átekta. Hann er
þegar í Króatíu og ég efast um að
hann hafi spilað út síðasta trompinu
sínu,“ sagði einn stjórnarerindreki.
Reuter
ÚTSALAN
UriTlCrF
■■■J ■ kjr
Á
MORGUN
REYKJAVÍKURVEGI 62, HAFNARFIRÐI,
SÍMI 651680
Reuter