Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Blaðsíða 28
F R ÉTTAS KOTIÐ
Hiifir þú ábendingu eða vitneskju uni Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í sinia 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot. sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
i DV. greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjónr- Auylýsinyyi - Áskriír-'Ðröifing: Slntí '27022
Vatnstankur á steypubíl frá BM Vallá
sprakk með miklum látum i Austur-
bænum i gær. Biilinn var ekki á ferð
en hús hans skemmdist og rúður
brotnuðu. Ökumaðurinn stóð
álengdar þegar atburðurinn átti sér
stað og sakaði hann ekki. Talið var
að loki hefði staðið á sér og þvi
myndast mikill þrýstingur sem gerði
það að verkum að þykkt stálið i
vatnstankinum gaf sig með fyrr-
greindum afleiðingum. Á myndinni
skoðar steypubilstjórinn. Hjalti Þor-
geirsson. ummerkin eftir sprenging-
‘ 'Hna. DV-myndGVA
Herskipakomuraar:
Ingibjörg Sólrún
fær ekki listann
Ingibjörg Sólrún Gíslaóóttir al-
þingiskona fær ekki umbeöinn lista
frá utanrikisráðuneytinu um her-
skipakomur í islenskar hafnir. Ráöu-
nejtiö óskar eftir frekari rökstuön-
ingi fjTir beiðni þingkonunnar áöur
•' -’^en ráöist verði í gerð slíks hsta.
í svari utanríkisráöunettisins seg-
ir aö ástæöan fyrir því að heimsókn-
ir flota Atlantshafsbandalagsins
vanti á lista þann. sem Ingibjörg Sól-
rún fékk. sé aö gögn þar aö lútandi
hafi verið geymd undir öðrum
skjalalvkli en aðrar herskipakomur.
-JSS
Skrúfubilun
orsökin
..Ég verð nú að viðurkenna aö ég
er mjög reiður vegna þessa máls en
allt bendir til þess aö skrúfubilunin
hafi orðiö vegna lélegs viöhalds vél-
■ arinnar í Bandaríkjunum," sagöi
Claus Boffild en hann og kona hans
nauðlentu tveggja hreyfla vél á
Keflavikurflugvelli á mánudags-
kvöldið.
Litlu munaði að illa færi þvi vélin
haföi missti afl á báðum hreyflum
þegar 16 sjómílur voru ófarnar að
Keflavikurflugvelli. Hjónunum tókst
þó að lenda heilu og höldnu með að-
stoð góðra manna. -ingo
Uffe Ellemann
kemur í dag
Uffe Ellemann Jenssen, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, kemur til
landsins í dag. Að lokinni opinberri
heimsókn hingað verður hann hér á
landi í nokkra daga við laxveiðar.
-JGH
LOKI
Löggan virðist steini
lostin!
Sýslumaðurinn í Austur-Skaftafellssýslu í morgun:
Lögreglan „kíkti“ á
Austurríkismenn-
ina í gærkvöldi
- Náttúruverndarráö krefst aðgeröa og vill útiloka fararstjórann
..Ég sagði þeint að þeir yröu lík-
lega ekki ónáðaðir nteira á sirnú
ferð. Lögreglan sagðist ekki hafa
talið ástæðu til frekari aðgerða eft-
ir að hún hafði rætt við hópinn í
gærkvöldi." sagði Stefán Bene-
diktsson. þjóðgarðsvörður í Skafta-
felli, við DV í morgun vegna aust-
urriska ferðamannahópsins sem
vitni sáu höggva úr bergi með
meitlum og slaghömrum við Hall-
bjarnarstaðarkamb á Tjörnesi um
helgina.
Sýslumaðurinn í Austur-Skafta-
feilssýslu óskaði eftir aö vegalög-
reglan hefði tal af hópnum sem var
á ferð í umdæminu í gær og gisti í
Skaftafelli i nótt. Sýslumaður sagð-
ist í morgun ekki vita hvort vega-
lögreglan heföi leitað að verkfær-
um og steinum i bil Austurríkis-
mannanna í gær.
„Ég veit aö lögreglan kíkti á þá
en veit ekki hvort henni var sýndur
farangur. Lögreglumaður sagöi
mér í gærkvöldi að sér fyndist
meira gert úr þessu máli en hann
sæi ástæöu til. Þaö eru örugglega
margir útlendingar sem haga sér
verr og hafa ekki fengið fyrir þaö
áminningu," sagði sýslumaðurinn
í morgun.
Austurrikismennirnir eru vænt-
anlegir til Reykjavíkur í vikunni.
Aö sögn framkvæmdastjóra Nátt-
úruvemdarráðs veröur farið fram
á þaö við viðeigandi aðila að fár-
angur Austurríkismannanna verði
skoðaöur áöur en hópurinn heldur
úr landi. Eínnig verður farið fram
á að austurrískur fararstjóri hóps-
ins, sem er á undanþágu, fái ekki
leyfi til slíks aftur. Hann hefur áður
fariö með hópa um landið og átti
að fara með annan til í sumar, Að
sögn talsmanns BSÍ í gær hefur
fararstjórinn ekki farið að tilmæl-
um ábyrgra aðila i ferðaþjón-
ustunni varðandi umgengni um
landið. Umhverfisráðherra sagði í
gær að hann sæi ástæðu til breyt-
inga í náttúruverndarraálum.
Hann bíður nú. tillagna frá Nátt-
úruverndarráði.
-ÓTT
- Sjá nánar bls. 4
Talsverðan reyk lagði frá einbýlishúsi við Bröndukvísl á ellefta timanum i gærkvöldi og var miklu slökkviliði stefnt
á staðinn. Þegar komið var á vettvang urðu reykkafarar að fara inn um glugga. Húsið var mannlaust. íbúar höfðu
gleymt að slökkva á hellu undir potti sem stóð á eldavél. Mikill reykur hafði borist um húsið og urðu skemmdir af
þeim völdum. Slökkviliðið reykhreinsaði húsið. Engar skemmdir urðu af völdum elds. -ÓTT/DV mynd S
Veðrið á morgun:
Áfram frem-
urhlýtt
Á morgun verður austlæg átt,
hæg fram eftir degi en síðan held-
ur vaxandi. Þokuloft verður á
Ströndum en annars nokkuð
bjart veður víðast á Norður- og
Vesturlandi. Skýjað verður sunn-
anlands og austan og fer líklega
að rigna við suðurströndina þeg-
ar líður á daginn. Fremur hlýtt
verður áfram, hlýjast á Suðvest-
ur- og Vesturlandi.
EFTA-EB:
íslendingar
áhorfendur
Sæ.nska fróttastolan TT sagði frá
|)ví í gærkvöldi að íslendingar væru
að verða áhorfendur í viðræðum
EFTA og Evrópubandalagsins um
cvrópskt efnahagssvæði. Efnahags-
bandalagið gerði ekki lengur kröfur
um veiðiheimildir við ísland en hóldi
fast við kröfuna um að fá aö veiða
við Noreg. Því séu meginviðræðurn-
ar í málinu við Norðmenn.
Fram kemur í skeytinu að mjög sé
deilt um árangur ráðherrafundarins
í Lúxemborg í júní. Norðmenn haldi
fast við aö það hafi náöst samkomu-
lag. Á hinn bóginn haldi Evrópu-
bandalagið hinu gagnstæða fram, aö
ekkert samkomulag liggi fyrir.
-JGH
Síldarverksmiöjumar:
Tilsjónarmenn
skipaðir
Sjávarútvegsráðuneytið og fjár-
málaráðuneytið hafa skipað Agnar
Kofoed-Hansen rekstrarráögjafa til-
sjónarmann með rekstri Síldarverk-
smiðja ríkisins og af hálfu Lands-
bankans hefur Haraldur Valsteins-
son verið skipaður tilsjónarmaður.
Skipan tveggja tilsjónarmanna var
eitt af skilyrðum þess að ríkisstjórn-
in gætl heimild til að verksmiöjurnar
fengju að taka 300 milljón króna lán
með ríkisábyrgð til bjargar rekstri
verksmiðjanna. Þeir tveir, ásamt
Þorsteini Gíslasyni, formanni stjórn-
ar SR, munu á næstu dögum hefja
viöræður viö Landsbankann um
skuldbreytingar á lánum upp á tæp-
an hálfan milljarð króna. En sjávar-
, útvegsráðherra hafði einnig sett það
sem skilyrði að bankinn skuldbreytti
lánum verksmiðjanna til að 300 millj-
óna króna lánið fengist.
Sjávarútvegsráðherra hefur og
skipað þriggja manna nefnd til að
vinna að undirbúningi að frumvarpi
um sölu á Síldarverksmiðjunum sem
verður lagt fram á Alþingi í haust. í
nefndinni sitja Eggert Hauksson, for-
stjóri Plastprents, sem er formaður
nefndarinnar, Óttar Yngvason
hæstaréttarlögmaður og Valbjörn
Steingrímsson rekstrarfræðingur.
-J.Mar
Yfirverkfræð-
ingur segir upp
Árni Gunnarsson hefur sagt upp
starfi yfirverkfræöings Hitaveitu
Reykjavíkur. Sem kunnugt er var
honum sagt upp fyrirvaralaust 15.
júlí en sú uppsögn var síðan dregin
til baka. Ástæðan er samstarfsörðug-
leikarviðhitaveitustjóra. -pj
Laugardaga 10-17
Sunnudaga 14-17
TM-HUSGÖGN
SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822