Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991. 35 jálfari íslands, sést hér með veiðihattinn^ ;ama happ þegar Ásgeir stjórnar íslenska umar meðan hatturinn hefur verið á höfði DV-mynd GVA Ifari íulag við stjóm KSÍ samkomulag og allt gert í góðu. Ég hef ekkert nema gott aö segja um dvöl mína á íslandi. Þetta hefur verið mjög ánægju- legur tími. Ég hef fengið mikla reynslu en fyrst og fremst hef ég kynnst góðu og elskulegu fólki. KSÍ var eins og ein stór fjölskylda ef svo má að orði kom- ast. En ég saknaði mikið fjölskyldu minnar í Svíþjóð og það er vissulega erfitt fyrir fjölskyldumann eins og mig að vera mjög lengi í burtu frá mínu fólki. Ég mun nú fara heim til Svíþjóðar en kem aftur í ágúst til að stjórna íslenska hðinu gegn Dönum og það mun verða minn síðasti leikur með liðið. Ég hef ekki ákveðið hvað ég mun gera á næst- unni en það kemur ýmislegt til greina," sagði Bo í samtali við DV í gærkvöldi. Aðspurður um hver væri minnisstæð- asti landsleikurinn sagði Bo það vera 5-1 sigurinn gegn Tyrkjum í síðustu viku. „Ég vil að lokum óska Ásgeiri velfarn- aðar í sínu nýja starfi en ég á eflaust eftir að koma oft til íslands hér eftir og horfa á knattspymu," sagði Bo að lok- um. -RR íþróttir Njarðvíkingar í Kaplakrikann - munu leika þar gegn júgóslavnesku meisturunum Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Njarðvíkingar hafa ákveðið að leika Evrópuleik sinn gegn júgó- slavnesku meisturunum Zibona Zagreb í íþróttahöllinni í Kapla- krika í haust. Leikurinn fer fram 3. október en viku síðar mætast liðin aftur á heimavelli Júgóslav- anna. Vegna ástandsins, sem nú er í Júgóslavíu, hefur komið til greina að leika seinni leikinn á Italíu eða á Spáni en það er þó ekki enn ljóst. Búumst við miklum áhorfendafjölda „Við ákváðum að leika í Kapla- krika vegna þess að okkar hús er allt of lítið fyrir svona leik. Við búumst viö miklum fjölda áhorf- enda á leikinn enda er hér um að ræða geysiöflugt lið. Júgóslav- ar eru bestir í körfubolta í Evrópu og þetta eru algerir snilhngar og því ólíklegt að fólk vilji missa af þessum viðburði," sagði Jón Ein- arsson, varaformaður körfu- knattleiksdeildar Njarðvíkur, í spjalli við DV í gær. Reynum að fá annan Kana lánaðan „Rodney Robinson kemur til landsins 17. ágúst og mun leika með okkur. Við höfum verið í sambandi viö umboðsmann í Þýskalandi um að fá annan Kana lánaðan þar sem leika má með tvo útlendinga í Evrópukeppni og ef það gengur ekki þá reynum við að fá einhvern útlending lán- aðan hér,“ sagði Jón ennfremur. Leikmannasamningar frágengnir Njarðvíkingar hafa gengið frá leikmannasamningum við alla sína menn og munu því ekki missa neina úr hópnum. Helgi Rafnsson mun að öllum líkindum leika aftur með Njarðvíkingum í vetur en hann hefur verið meidd- ur í baki. Þjálfari Njarðvíkur, Friðrik Rúnarsson, er nú staddur á virtu þjálfaranámskeiði í Eng- landi og dvelur þar nokkurn tíma. Auk þess hafa Njarðvíking- ar ráðið bandarískan þjálfara, Patrick McCall, til að stjórna þjálfun hjá yngri flokkum félags- ins þannig að það er mikil upp- sveifla um þessar mundir hjá Njarðvíkingum. Þróttur vann ÍKstórt Fjórir leikir voru háðir í 3. deildinni í gærkvöldi. Þróttur vann öruggan sigur á ÍK, 5-2, á Neskaupstað. Þráinn Haralds- son, Kristinn Guðmundsson, Ey- steinn Kristinsson, Sófus Hákon- arson og Kristján Svavarsson gerðu mörk heimamanna en Hallsteinn Traustason og Úlfar Óttarsson skoruðu fyrir ÍK. Völsungur og BÍ gerðu 1-1 jafn- tefli á Húsavík og gerði Hörður Benónýsson mark Völsunga en Pétur Jónsson skoraði fyrir BÍ. Dalvík vann 1-3 sigur á KS á útivelli. Ágúst Sigurðsson, Valdi- mar Pálsson og Árni Sveinsson skoruðu fyrir Dalvíkinga en Björn Sveinsson fyrir KS. Skallagrímur vann 3-0 sigur á Reynismönnum. Garðar Jóns- son, Bergþór Magnússon og Finn- ur Thorlacius gerðu mörk Borg- nesinga. Leik Magna og Leifturs var frestað. • Loks léku í 4. deild í gær- kvöldi Einherji og Sindri og unnu Vopnfirðingar, 2-1. Hallgrímur Guðmundsson gerði bæði mörk •þeirra en Elvar Grétarsson skor- aði fyrir Sindra. -RR/KH/MJ • GSÞJ-hlaupið verður haldið til heiðurs þessum köppum: (frá vinstri) Guðmundur Arason, Jóhann Jóhannesson, og Þorsteinn Einarsson. Jóhann verður 85 ára næsta miðvikudag og þá fer fram stórmót að Varmá honum til heiðurs, svokallað JJ-mót. Aldnar kempur heiðraðar Frjálsíþróttadeild Ármanns efnir til götuhlaups næsta þriðjudag. Um er að ræða GSÞJ-hlaupið og er til heiðurs Guðmundi Arasyni, forystumanni Ármanns til margra ára, Jóhanni Jóhannessyni* frjálsíþróttaleiðtoga, Þor- steini Einarssyni, fyrrverandi íþróttafulltrúa ríkisins, og til minningar um Jens Guðbjörnsson, fyrrverandi formann Ármanns, Jón Þorsteinsson, íþróttakennara, Gunnar Eggertsson, fyrrverandi formann Ármanns, og Stef- án Kristjánsson, fyrrverandi íþróttafulltrúa Reykjavíkur. Hlaupnir, skokk- aðir eða gengnir verða 10,4, eða 2 km. Lagt verður af stað frá Ármannsheim- ilinu við Sigtún kl. 20.30 stundvíslega (mæting 30 mín fyrir hlaup). Skrásetn- ing verður í Ármannsheimilinu frá 23.-30. júli í síma 38140. Hugsanlegir þátttakendur greiða 500 krónur og er hlaupið tilvalin æfing fyrir Reykjavík- urmaraþonið. • Miövikudaginn 31. júlí efnir fijálsíþróttadeild Ármanns til stórmóts að Varmá í Mosfellsbæ. Mótið er til heiðurs Jóhanni Jóhannessyni, forystumanni frjálsíþróttadeildar Ármanns í rúm 60 ár, en hann verður 85 ára sama dag. Á mótinu keppa allir okkar sterkustu frjálsíþróttamenn og konur og að auki hafa Ármenningar boðið fjórum erlendum gestum til mótsins. -SK Bogdan hætti við Pólski handknattleiks- þjálfaritm Bogdan Kowalczyk, af mörg- um talinn besti þjálfari sem starfað hefur hér á landi, er hættur við að þjálfa hð Lyon í Frakklandi á næsta keppnistíma- bili eins og hann hafði ákveðið. Ein af ástæðunum fyrir ákvörð- un Bogdans er að franska liðið stóð ekki við gefin loforð, meðal annars um aö kaupa tvo sterka leikmenn fynr næsta tímahil. Bogdan er íslendingum að góðu kunnur og gerði íslenska landsl- iðið að stórveldi, náði einstökum árangri með landshðið og lið Vík- ings. Bogdan þjálfaði hér á landi í rúman áratug og hefur ekki úti- lokað að hann komi aftur til ís- lands að þjálfa. Eftir að hlutimir fóru að taka óvænta stefnu í Frakklandi hafði austurríska félagið Insbruck samband við Bogdan fyrir milli- göngu Guðjóns Guömundssonar sem er vinur og félagi Bogdans. Þar gengu hlutimir hratt fyrir sig og Bogdaan hefur skrifaö undir samning við- félagið. Insbruck hafhaði í fyrra í 8. sæti 1. deildar og stefna forráðamenn hösins á aukna velgengni næsta vetur. Með Bogdan í broddi fylkingar ætti það markmiö aö nást Bogdan hefur undanfarið ver- ið í sumarfríi á Ítalíu en kemur til starfa hjá Insbruck eftir viku. Það réö miklu um ákvörðun Bogdans að b-heimsmeistara- keppnin í handknattleik fer sem kunnugt er fram í Austurríki á næsta ári og starfandi þar getur hann fylgst betur með keppninni en eha. Þar getur Bogdan meöal annars fylgst með gengi íslenska landshðsins undir stjóm Þor- bergs Aðalsteinssonar og Einars Þorvarðarsonar. Þá em mun meiri peningar í boði í hand- knattleiknum í Austurríki en í Frakklandi. -SK Sport- stúfar • Opna Kays mótiö i golfi var haldið hjá golfklúbbnum Keili um síðustu helgi. Leik- ið var í karla- og kvennaflokki með og án forgjafar. Veður var frábært og völlurinn á Hvaleyr- inni, þar sem landsmótið í sumar verður haldið að hluta, var í mjög góðu ásigkomulagi. 137 þátttak- endur tóku þátt i mótinu og urðu úrsht sem hér segir: Ásgeir Guð- bjartsson, GK, sigraði í karla- flokki án forgjafar á 71 höggi. Björn Knútsson, GK, varð annar á 72 höggum og Hörður Arnar- son, GK, varð þriðji á 72 höggum. Með forgjöf sigraði Jakob H. Böð- varsson, GK, á 62 höggum nettó. í kvennaflokki án forgjafar sigr- aði Ragnhildur Sigurðardóttir, GR, á 73 höggum og með forgjöf sigraði Inga Magnúsdóttir, GK, á 65 höggum nettó. Vervoortfarinn frá Bordeaux Belgíski landshösmaðurinn Patrick Vervoort var um helgina seldur frá 2. deildar hði Bordeaux til ítalska félagsins Ascoli. Vervo- ort sagðist himinlifandi með að sleppa frá franska liðinu þar sem það væri ekki mikið spennandi að leika í 2. deildinni þar, Arnór Guðjohnsen er sem kunnugt er hjá Bordeaux en hðið vann fyrsta leik deildarkeppninnar um síö- ustu helgi. Valur vann í 4. Valsstúlkumar urðu Islands- meistarar i 4. flokki kvenna en úrslitin fóru fram á Valsvellinum um sl. helgi. Mynd af meistaralið- inu og umsögn um mótið verður því miður að bíða betri tíma. 3. flokkur karla - A-riðill: Valur-Stjarnan.............2-0 Með þessum sigri komust Vals- strákarnir í 4. sætið í riðlinum og eru komnir með 10 stig. Þeir eru því með í baráttunni um úr- slitasæti sem er mjög hörð og tví- sýn í þessum riðli. Bikarkeppni 2. flokks, undanúr- slit: Fram-Þór, A................3-1 Framarar komnir i úrshtin og mæta annaöhvort ÍA eða ÍBV í úrshtum. -Hson MJ^ A I R JUSTD0IT. REYKJAVÍKUR MARAÞON 25 DAGAR TIL STEFNU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.