Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Blaðsíða 10
Útlönd Seðlabankastjóri Englands: BCCI var glæpafyrirtæki Robin U'igh-PoinlH'Tton. seðlalianka- st.iori Knszlands. stistði 1 g;vr að Al- þ.iixMoiti lana- og viðskiptabankinn tBCCll v;vri svo d.iupt sokkinn i tjár- tnalasvindl að ohupsandi v;vri að b.iarpa starfsemi hans. að minnsta kosti ekki a Ihvtlandi. Seðlabankast.iórinn. sem hefur s;vtt ámtvli fyrir að loka bankanum é. júh. sagði að BCCI væri gkvpafyr- irt;vki og hefði verið þekktur fyrir tengsl sin við skæruliða frá Mið- Austurlöndum. Hann sapði seðla- liankann hafa vitað það frá árinu 1988. Mt'ðal skivruliða, sem áttu rt'ikning í bankanum. var Abu Nid- al. leiðtogt byltingarráðs Fatah. Bltið og sjónvarp á Bretlandi hafa t'innig haldið þvi fram að leyniþjón- ustur Bretlands og Bandaríkjanna hatl átt viðskipti við bankann. Leigh-Pemberton sagði að sjeikinn Robin Leigh-Pemberton, seðlabankastjóri Englands, kemur til þinghússins i gær til aö skýra trá málefnum BCCI bankans. Símamynd Reuter af Abu Dhabi. sem ætti 77.4 prósent eignarhlut í bankanum. liefði lofað fullri samvinnu við rannsókn á mál- efnum hans. Hann sagði að niður- stöður rannsóknar. sem seðlabank- inn heföi fengið í júní. sýndu fram á utnfangsmikið svindl sem næði mörg ár aftur i tímann og í væru flæktir bæði fyrrverandi og miverandi stjórnendur BCCI. Stjórnarmenn væru einnig flæktir i svindlið, svo og fulltrúar hluthafa. Það var þá sem seölabanki Eng- lands komst að þeirri niðurstöðu að BCCI væri búinn að vera. Seðlabankastjóri lægði aðeins öld- urnar i kringum John Major forsæt- isráðherra vegna lokunar bankans. Leigh-Pemberton sagði að hann hefði sagt Major. sem þá var fjármálaráð- herra, i grófum dráttum frá vanda- málum í BCCI í fyrra en hefði ekki sagt honum frá víðtæku svindli. Major hafði fyrr um dagitin sætt harðri gagnrýni af hálfu Neils Kinnocks. formanns Verkamanna- ílokksins, í þingsölum. Kinnock sagöi að Major hlyti að hafa vitað um alvarlegt misferli innan bankans þegar hann var fjármálaráðherra en hefði ekki aðhafst neitt. Hann sakaði Major um vanrækslu. Major, sem var svo reiöur að hann mátti ekki mæla um stund, sakaði Kinnock um að bera út róg um sig. Hann sagði sig og aðra ráðherra reiðubúna til að bera vitni fyrir sjálf- stæðri rannsóknarnefnd um málefni bankans. Reuter MII)VIKÍJI)A(IUrW. JÚlJ 1991. Neyöarástand á Madagascar Forseti Madagascar, Didier Ratsir- aka, lýsti í gær yfir neyðarástandi í ríki sínu. Hann lét brynvarða bíla keyra um miðborgina og fyrirskipaði útgöngubann yfir nóttina í höfuð- borginni Antananarivo og úthverf- um hennar. Mikill þrýstingur er á Ratsiraka að segja af sér eftir 16 ára stjórnarsetu en friðsamleg mótmæli hafa nú stað- iö í landinu í meira en sex vikur. Stjórnarandstæðingar krefjast nýrr- ar ósósíalískrar stjórnarskrár fyrir landið. Þeir hafa sett saman nýja stjórn og útnefnt nýjan forseta, Ra- kotoharison. Á mánudag og í gær fóru stórir hópar mótmælenda með hina nýju ráðherra inn í nokkur ráðuneyti til að koma þeim í emb- ætti. Átök brutust út á milli stjórnar- andstæðinga og hermanna í gær þeg- ar forsetinn, Ratsiraka, fyrirskipaði öryggissveitum sínum að ráðast til atlögu við mótmælendur. Um 11 milljónir manna búa á Ma- dagaskar sem er eyja á Indlandshafi rétt undan austurströnd Afríku. For- seti landsins, Ratsiraka, komst til valda með hervaldi árið 1975. Hann hefur smátt og smátt breytt stefnu sinni frá sósíalisma til markaðskerf- is. Gagnrýnendur vilja þó frekari breytingar og saka hann um að hafa svindlað í kosningum landsins áriö 1989. Frá því í júní hafa hundruö þúsunda sameinaðra andstæðinga stjórnarinnar mótmælt í miðborg höfuðborgar landsins nánast á degi hverjum. Reuter HUN ER KOMIN the silence of the lamhs hefur verið metsölubók Æ austan hafs og vestan síðan hún kom fyrst út árið W 1988. Samnefnd kvikmynd hefur ekki fengið síðri móttökur f og fyrstu dagana sem hún var sýnd í Háskólabíói sló hún öll aðsóknarmet. Lömbin þagna er nú komin út í islenskri útgáfu Úrvalsbóka. Geðveikur morðingi gengur laus. Annar er í haldi, Lecter geðlæknir, dæmdur til lífstíðardvalar á geðveikrahæli. Hann býr yfir vitneskju sem getur orðið til að binda endi á atferli hins. En það er ekki fyrir hvern sem er að ná sambandi við Lecter. Clarice Starling, nemi í lögregluskóla FBI, ung og óhörðnuð, verður til þess að brjóta ísinn. Samskiptin milli Clarice Starling og Hannibals Lecters og sagan sem þau leiða okkur inn í eru magnþrungin átök milli góðs og iils » Bókin lömbiri þagna færir okkur ennþá æsilegri og sögulegri K veröld en kvikmyndin getur nokkurn tima gert. Lömbin þagna er, eins og allar Úrvalsbækur, bók handa ^Kþeim sem hafa yndi af vel skrifuðum, listrænum og spennandi spennubókum. METSÖLUBOKIN FRÆGA sem þau L Bókin ^ Lör ^þei Aðeins kr. 790,- URVALSBÆKUR Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA í ÁSKRIFT í SÍMA 62 60 10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.