Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Blaðsíða 22
WMÍktjDÁétiR' 24! jÖLÍ(ͧ91. Myndgátan dv Strútslaug-Brytalækir. Gist í húsi. Geng- Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtalinni eign fer fram í skrifstofu embættisins á neðangreindum tíma: Grenigrund 16, þingl. eig. Ragnar Valgeirsson, föstudaginn 26. júlí 1991 kl. 10.45. Uppboðsbeiðendur eru Lög- mannsstofan Kirkjubraut 11, Lands- banki íslands, Ásgeir Thotpddsen hrl. og Veðdeild Landsbanka íslands. _______BÆJARFÓGETINN Á AKRANESI Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum eignum: Bárugata 15, Hótel Akranes, þingl. eig. Skagaveitingar hf., fer fram á eigninni sjállri föstudaginn 26. júlí 1991 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru innheimtumaður ríkissjóðs, Lands- banki íslands, Ólafur Axelsson hrl. og Hróbjartur Jónatansson hrl. Bárugata 16, þingl. eig. Erlendur Sig- urðsson, fer fram á eigninni sjálfii föstudaginn 26. júlí 1991 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Kristinn Hall- grímsson hdl., Ásgeir Þór Ámason hdl. og Lögmannsstofan, Kirkjubraut 11. Höfðabraut 14,02.02., þingl. eig. Krist- inn Bjamason & Erla Haraldsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 26. júlí 1991 kl. 11.45. Uppboðsbeiðend- ur em Hróbjartur Jónatansson hrl. og Ólafur Thoroddsen hdl. Höfðabraut 6, neðsta hæð, þingl. eig. Sigurjón Guðmundsson, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 26. júlí 1991 kl. 13.15. Uppboðsbeiðendur em Ásgeir Thoroddsen hrl., Lögmanns- stofan, Kirkjubraut 11, og Veðdeild Landsbanka Islands. Sandabraut 13, efri hæð, þingl. eig. Svanborg Eyþórsdóttir, fer fram á eigninni sjálfii föstudaginn 26. júlí 1991 kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur em Veðdeild Landsbanka íslands, Hró- bjartur Jónatansson hrl., Gjaldskil sf., Tryggingastofnun ríkisins og Hall- dór Þ. Birgisson hdl. Sóleyjargata 12, n.h., þingl. eig. Ingi- mundur Ingimundarson, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 26. júlí 1991 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur em Skúli Bjamason hdl., Lögmannsstof- an, Kirkjubraut 11, Landsbanki Is- lands, Veðdeild Landsbanka Islands og Ásgeir Thoroddsen hrl. Vesturgata 71b, þingl. eig. Gunnhildur Halldórsdóttir, tal. eig. Tómas Rúnar Andrésson, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 26. júlí 1991 kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur em Lögmanns- stofan, Kirkjubraut 11, Fjárheimtan hf. og Landsbanki íslands. Andlát Þórður Kristjánsson kennari, Sporðagrunni 5, lést 14. júlí sl. Þórð- ur fæddist 12. nóvember árið 1915 á Suðureyri við Súgandafjörð. Hann tók kennarapróf 1946 og kenndi upp frá því nema þegar hann fór í fram- haldsnám í eitt ár til Kaupmanna- hafnar og lagði aðaláherslu á kristin- fræði og bamasálfræði. Einnig fór hann til Bretlands 1960-1961 til að bæta við menntun sína. Þórður starf- aði frá árinu 1957 á Fræðsluskrif- stofu Reykjavíkur, í fyrstu jafnhliða kennslunni. Hann var í stjóm Stétt- arfélags barnakennara í Reykjavík, stjóm Sambands íslenskra bama- kennara og Ríkisútgáfu námsbóka. Þórður starfaði lengi viö Áskirkju og var meðhjálpari þar í mörg ár. Hann kvæntist Ásdísi Vilhelmsdótt- ur árið 1963 og eignuðust þau eina dóttur, Valgeröi. Sigríður Steinunn Jónsdóttir, Skúla- götu 78, Reykjavík, lést 23. júlí. Jarðarfarir Siguijón Jónsson, Smjördölum, Sandvíkurhreppi, verður jarðsung- inn frá Selfosskirkju laugardaginn 27. júlí kl 13.30, jarðsett verður í Laugardælum. Hilmar Guðbjörnsson, Arnarhrauni 17, Hafnarfirði, sem lést fimmtudag- inn 18. júii, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, föstu- daginn 26. júlí kl. 13.30 ÚtförÞorsteins Jónssonar á Úlfsstöð- um verður gerð frá Reykholtskirkju föstudaginn 26. júlí kl. 14.00. Barði Páll Óskarsson, sem lést 13. júlí sl., verður jarðsunginn frá Eyr- arbakkakirkju laugardaginn 27. júlí kl. 14.00. Regína Magnúsdóttir frá Kirkjubóli, Laugarnesvegi 36, Reykjavík, sem lést 22. júlí, verður jarðsungin frá Fíladelfíukirkjunni, Hátúni 2, Reykjavík, miðvikudaginn 31. júlí kl. 13.30. Helgi M.S. Bergmann, Grundarstíg 21, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kapellu fimmtudaginn 25. júlí kl. 13.30 Tilkynimigar RKÍ námskeið í skyndihjálp Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands gengst fyrir námskeiði í skyndihjálp fyrir almenning sem hefst miövikudaginn 24. júli kl. 20.00 og stendur yfir 4 kvöld. Kennsludagar verða 24., 29., 31. júlí og 1. ágúst að Fákafeni 11,2. hæð. ÖÚum 15 ára og eldri er heimil þátttaka. Skráning fer fram í síma 688188. Meðal þess sem kennt verður á námskeiðinu er blásturs- aðferðin, hjartahnoð, hjálp við bruna, blæðingum , beinbrotum og mörgu öðru. Einnig hvernig má fyrirbyggja slys. Sýnd verða myndbönd um helstu slys. Gott er að kunna skyndihjálp þegar farið er í ferðalög þvi margt getur borið við. Talið er æskilegt að fara í námskeið á tveggja ára fresti til að halda þekkingunni við. nemendur fá skírteini að loknu nám- skeiði sem eru tekin til greina í ýmsum framhaldsskólum og metin. Reykjavíkur- • deild RKÍ útvegar leiðbeinendur fyrir fyrirtæki og aðra sem þess óska. Myndlistarsýning á Stokkseyri Laugardaginn 20. júlí var opnuð samsýn- ing fimm myndlistarmanna í félagsheim- ilinu Gimli, Stokkseyri. Á sýningunni eru olíumálverk, vatnslitamyndir og teikn- ingar. Listamennimir eru: Kristrún Kal- mannsdóttir, Hörður Antonsson, Gunn- hildur Magnúsdóttir, Hörður Sigurðsson og Linda Hafsteinsdóttir. Sýningin er lið- ur í M-hátíð á Suðurlandi og verður hún opin virka daga frá kl. 17-22 og um helg- ar frá kl. 14-22. Sýningunni lýkur sunnu- daginn 28. júlí. Ferðalög Ferðafélag íslands Miövikudagur 24. júli kl. 20, skógarstíg- ar í Heiðmörk. Létt og skemmtileg ganga í Vífilsstaðahlíð. Trjásýnireiturinn skoð- aður. Afsláttarverð, kr. 500, frítt fyrir börn með fullorðnum. Brottför frá BSÍ, austanmegin. Fjölbreyttar helgarferðir 26.-28. júli. 1. Miðsumarferð i Þórsmörk. Góð gistiaðstaða í Skagfjörðsskála, Langadal. Gönguferðir. 2. Landmanna- laugar-Eldgjá. Gist í sæluhúsinu í Laug- um. Ekið í Eldgjá. Gönguferðir. 3. Hvitár- nes-Kerhngarfjöll-Hveravellir. Ekið og gengiö. Gist í skálum FÍ 4. Þverbrekkna- múli-HrútafeU. Gengið í skálann í Þver- brekknamúla og gist þar. Dagsganga á Hrútfell (1410 m.y.s.) Helgarferð 27.-28. júlí: Emstrur-Þórsmörk. Gengiö af Emstrum í Þórsmörk á laugardeginum (6 klst. ganga). Gist í Þórsmörk. Munið ferðir um verslunarmannahelgina: 1. Landmannalaugar-Eldgjá. 2. Dalir- Breiöaijarðareyjar-Dagverðames. 3. Lakagígar (Eldborgarraðir)-Blágil-Leið- ólfsfell. 4. Höfðabrekkufjöll (sannkallaö Þórsmerkurlandslag). 5. Nýidalur-Von- arskarð-Laugafell. 6. Þórsmörk. Miðar óskast sóttir fyrir þriðjudag í Þórsmerk- urferðina. Útivist Miðvikudaginn 24. júlí, Bláfjallaleiðin, létt kvöldganga. Skoðaður hluti hinnar skemmtilegu Bláfjallaleiðar. Gengið verður frá Rauðuhnjúkum um Sandfell og útsýnis notið af Selfjalli. Göngunni lýkur í Lækjarbotnum. Brottfór frá BSÍ að vestan kl. 20.00, komið við hjá Árbæj- arsafni. Um næstu helgi Hólmsárlón- íð af Mælifellssandi um Hólmsárbotna í Strútslaug. Þaðan austur með Hólmsárl- óni í Rauðabotn sem er hluti af Eldgjá. Komið við í Eldgjá og Landmannalaugum á heimleið. Fararstjóri Anna Soffía Osk- arsdóttir. Básar á Goðalandi. Tilvalinn staður til að slaka á eftir annir vikunn- ar. Farastjóri Sigurður Einarsson. Fimm- vörðuháls, Básar. Tapað fundið Páfagaukur tapaðist Páfagaukur tapaðist í fyrrakvöld frá Holtsgötu 34, gulur, örlitið grænt á bringu og miUi vængja og fóta. Vinsam- lega látið vita í síma 11236 eftir kl. 17. Vandað gullúr fannst Vandað gullúr fannst á bílastæði Heilsuhæhs NLFÍ í Hveragerði fyrir u.þ.b. 10 dögum. Þetta er karlmannsguh- úr. Upplýsingar í síma á hjúkrunarvakt heiisuhælisins. Göngu* garpurinn heitir Gestur í myndatexta á baksíðu DV síðastl- iðinn fimmtudag, þar sem greint var frá göngugörpum frá Útivist, var birt rangt nafn á einum félaganna. Þar var maður ranglega nefndur Sigvaldi Sæmundsson. Maðurinn heitir Gest- ur Hallgrímsson. Viðeigandi aðilar eru beðnir velvirðingar. -ÍS Leiörétting: Hrútafell varð Hlöðufell í myndatexta í blaðinu á mánudag, þar sem sagt var frá hjólreiöaferð yfir Kjöl, var íjallið Hrútafell nefnt Hlöðufell. í greininni sjálfri er Hrúta- felhð nefnt sínu rétta nafni. Hlöðu- fell er til en bara á allt öðrum stað en á Kib. Beðist er velvirðingar á mistökum þessum sem greinarhöf- undur ber enga ábyrgð á. BÆJARFÓGETINN Á AKRANESI ERVÍÐAUPPSELD á útsölustöðum Kaupmenn og innkaupastjórar! Ennþá erhægt að fá bókina á afgreiðslu ísíma 62-60-10 BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR Borgartún 3-105 Reykjavik - Simi 26102 - Myndsendir 623219 Kynning á tillögu að Aðalskipulagi Reykjavíkur 1990-2010. Þriðjudaginn 30. júlí kl. 16.30 kynna starfsmenn Borgarskipulags og Borgarverkfræðings tillögu að nýju aðalskipulagi fyrir Reykjavík. Kynningin ferfram á Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3 á 4. hæð. Sýning á skipulagstillögunni er á sama stað og stend- urtil 31. júlí nk. Fresturtil athugasemda ertil 8. ágúst. Borgarskipulag Reykjavíkur -JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.