Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Qupperneq 24
44
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991.
Afmæli
Eiríkur Þorbjömsson
Eiríkur Þorbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
rafveitna, Dalseli 8, Reykjavík, er
fertugurídag.
Starfsferill
Eiríkur fæddist í Suöurkoti á
Vatnsleysuströnd og ólst upp í Vog-
um. Hann stundaði bóklegt nám viö
Iðnskólann í Hafnarfirði í rafvirkj-
un 1968-71 og verklegt nám hjá Jóni
Þorkelssyni í Vogum en sveinsprófi
í rafvirkjun lauk hann 1973. Þá
stundaði hann nám við Tækniskóla
íslands 1975-78 og stundaði tækni-
fræðinám við Odense Teknikum en
þaðan útskrifaðist hann 1980 sem
rafmagnstæknifræðingur á sterk-
straumssviði"með sérmenntun í
tölvustýringum í iðnaði og hjá orku-
veitum.
Eiríkur var rafvirki hjá Jóni Þor-
kelssyni og Þóri Lárussyni í Reykja-
vík á árunum 1973-77. Eftir tækni-
fræðinámið í Odense starfaði hann
sem kerfisfræðngur hjá Sören T.
Lyngsö A/S í Kaupmannahöfn
1980-82 og var síðan kerfisfræðing-
ur og söluráðgjafi hjá Kristjáni Ó.
Skagfjörð hf. 1982-83. Hann stund-
aði sjálfstæðan rekstur á árunum
1983-87 er hann rak m.a. Tölvuskól-
ann Framsýn, Tæknival hf. og
Danco hf. en frá 1987 hefur hann
verið framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra rafveitna.
Eiríkur var forstöðumaður félags-
heimilisins Glaðheima í Vogum
1971-73 og sat í stjóm ungmennafé-
lagsins á staðnum. Hann var for-
stöðumaður íþróttahúss ÍR við Tún-
götu í Reykjavík 1974-75, í stjórn
nemendaráðs við Tækniskóla ís-
lands og hafði m.a. forgöngu um
stofnun mötuneytis við skólann
1976-77, var stjórnarformaður ís-
lendingafélagsins í Odense 1979-80,
i stjórn foreldrafélagsins við dag-
heimilið í Stenrosen í Herlev í Dan-
mörku 1981-82, í foreldraráði Hlíð-
arskóla í Reykjavík 1983-85, hefur
verið félagi í félagasamtökunum
Round table frá 1983 og varalands-
forseti þeirra frá sl. vori og situr í
stjórn Tæknifræðingafélags íslands
frá 1984 og er formaður þess frá í
vor.
Fjölskylda
Fyrrv. eiginkona Eiríks er Erla
Guðjónsdóttir, f. 25.8.1953, húsmóð-
ir, en hún er dóttir Guðjóns Ermen-
rekssonar og Rakelar Magnúsdótt-
ur.
Börn Eiríks og Erlu era Þorbjöm
Anton, f. 7.9.1974; Rakel Ósk, f. 15.2.
1980; Brynja Dröfn, f. 25.11.1983.
Systkini Eiríks eru Hulda María,
f. 8.10.1955, húsmóðir í Njarðvík,
gift Bergþóri Sigfússyni, f. 9.8.1954,
sjómanni, og eiga þau þijú börn;
Kristbjöm Þór, f. 2.6.1957, trétæknir
á Egilsstöðum, kvæntur Guðríði
Vigfúsdóttur, f. 13.5.1951, ljósmóð-
ur, og eiga þau þrjú böm; Birna
Rut, f. 10.10.1962, húsmóðir í
Grindavík, gift Sverri Þorgeirssyni,
f. 10.9.1960, netagerðarmanni, og
eiga þau þrjú böm; Ágúst Þorbjöm,
f. 2.11.1965, nemi í Karlsruhe í
Þýskalandi, kvæntur D. Eydísi
Bjamadóttur, f. 28.8.1965, nema.
Foreldrar Eiríks era Þorbjörn K.
Eiríksson, f. 7.6.1932, trésmíða-
meistari í Kópavogi, og Hrefna St.
Kristjánsdóttir, f. 8.2.1934, húsmóð-
iríVogum.
Sambýhskona Þorbjörns er Val-
gerður Sigurðardóttir, f. 9.10.1931,
húsmóðir, en sambýlismaður
Hrefnu er Jón Trausti Jónsson, f.
24.3.1945, sjómaður.
Eiríkur Þorbjörnsson.
Foreldrar Þorbjörns: Eiríkur
Kristjánsson, vélstjóri, lengst af í
Vogum og í Hafnarfirði, en hann er
látinn, og Hulda Þorbjörnsdóttir
húsmóðir sem nú dvelur á Hrafnistu
í Hafnarfirði.
Foreldrar Hrefnu: Kristján Hann-
esson, b. í Suðurkoti á Vatnsleysu-
strönd, ogÞórdís Símonardóttir
húsfreyja en þau eru bæði látin.
Eiríkur tekur á móti gestum í fé-
lagsheimili Starfsmannafélags Raf-
magnsveitu Reykjavíkur við Raf-
stöðvarveg mihi klukkan 18.00 og
21.00 á afmælisdaginn.
Kristinn Jón Friðþjófsson
Kristinn Jón Friðþjófsson, skip-
stjóri og útgerðarmaður, Háarifi 5,
Rifi, Neshreppi utan Ennis, er fimm-
tugurídag.
Starfsferill
Kristinn Jón fæddist á Rifl og ólst
þar upp. Hann hóf ungur sjó-
mennsku og stundaði sjómennsku
frá Rifi á unglingsárunum.
Jón Kristinn stundaði nám við
Stýrimannaskólann í Reykjavík
1962-64 en eftir að hann lauk skip-
stjómarprófum tók hann snemma
við skipstjóm. Hann hefur frá 1974
gert út eigið skip frá Rifí, Hamar SH
224, sem er 235 lesta fiskiskip en
Kristinn Jón hefur lengst af verið
skipstjóriþess.
Kristinn Jón hefur verið í sveitar-
stjórn Neshrepps utan Ennis frá
1978, auk þess sem hann hefur sinnt
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sam-
tök útvegsmanna.
Fjölskylda
Kristinn Jón kvæntist 6.6.1964
Þorbjörgu Alexandersdóttur, f.
13.12.1941, húsmóður og útgerðar-
manni, en hún er dóttir Alexanders
Guðbjartssonar, b. og kennara að
Stakkhamri í Miklaholtshreppi, og
Kristjönu Bjamadóttur húsfreyju.
Börn Kristins Jóns og Þorbjargar:
Bergþór Kristinsson, f. 28.3.1964, d.
4.7.1971; Erla Kristinsdóttir, f. 5.7.
1965, viðskiptafræðinemi, sem rek-
ur Gistihúsið Gimh; Kristjana Krist-
insdóttir, f. 21.6.1969, stúdentfrá
MA; Bergþóra Kristinsdóttir, f. 3.10.
1972, nemi við MS; Hahdór Kristins-
son, f. 15.4.1975; Alexander Friðþjóf-
ur Kristinsson, f. 2.4.1976.
Systkini Kristins Jóns: Ester Úr-
anía Friðþjófsdóttir, f. 11.10.1933,
starfsmaður Pósts og síma á Rifl,
ekkja eftir Kristin Haraldsson, f.
15.3.1925, d. 15.1.1987, ogeruböm
þeirra níu; Sævar Friðþjófsson, f.
30.10.1936, útgerðarmaður að Rifl,
kvæntur Helgu Hermannsdóttur, f.
16.3.1937, og eiga þau þijú böm;
Svanheiður Ólöf Friðjónsdóttir, f.
8.9.1939, starfsmaður dvalcæheimil-
isins Höfða á Akranesi, búsett á
Akranesi, ekkja eftir Jóhann Láras-
son, f. 26.6.1937, d. 8.3.1991, en þau
eignuðust fjögur börn.
Fósturbræður Kristins Jóns em
Sæmundur Kristjánsson, f. 24.8.
1943, verkstjóri, búsettur á Rifi,
kvæntur Auði Grímsdóttur, f. 12.11.
1943, og eiga þau þrjú böm; Haf-
steinn Bjömsson, f. 19.5.1949, vél-
stjóri, búsettur á Rifl, kvæntur
Steinunni Júhusdóttur, f. 16.9.1949,
og eiga þau fjögur börn.
Foreldrar Kristins Jóns: Friðþjóf-
ur Baldur Guðmundsson, f. 27.10.
1904, d. 3.9.1987, útvegsb. á Rifi, og
Hahdóra Guðríður Kristleifsdóttir,
f. 27.11.1912, húsmóðir.
Ætt
Friðþjófur var sonur Guðmundar
Guðmundssonar og Jófríðar Jóns-
Kristinn Jón Friðþjófsson.
dóttur.
Foreldrar Halldóru voru Kristleif-
ur Jónatansson og Soffia Árnadótt-
ir.
Kristinn Jón tekur á móti gestum
á heimili sínu laugardaginn 27.7.
eftirklukkan 20.00.
Unnur Guðjónsdóttir
Unnur Guðjónsdóttir húsmóðir,
Sæviðarsundi 27, Reykjavík, er sjö-
tugídag.
Starfsferill
Unnur fæddist að Tóarseli í
Breiðdal og ólst þar upp. Hún var
tvo vetur í Gagnfræðaskóla Reykja-
víkur og stundaði síðan nám við
Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1942.
Eftir að Unnur gifti sig bjuggu þau
hjónin fyrstu hjúskaparárin á
Djúpavogi eða frá 1941^14. Þau
fluttu síðan að Hvammi í Dalasýslu
þar sem hún var húsfreyja 1944-57
en þá flutti hún til Reykjavíkur þar
sem hún hefur búið síðan.
Fjölskylda
Unnur giftist 9.9.1941 Pétri Tyrf-
ingi Jóni Oddssyni, f. 6.9.1912, d.
4.11.1956, prófasti að Hvammi í Döl-
um, en hann fórst í bílslysi í Mela-
sveitinni. Foreldrar hans voru Odd-
ur Guðmundsson, verslunarmaður
í Bolunganhk, og Jósefina Bjarna-
dóttirfráÁrmúla.
Systkini Péturs: Ragnheiður, f.
14.11.1909, nú látin, hjúkrunarkona,
og Guðmundur Helgi, f. 31.7.1911,
skipstjóri.
Böm Unnar og Péturs em Auður
Pétursdóttir, f. 16.7.1943, kennari í
Reykjavík; Sturla Pétursson, f. 18.9.
1945, d. 7.4.1990, starfsmaður hjá
Húsasmiðjunni, en sambýhskona
hans var Birgit Schov; Ragnhildur
Pétursdóttir, f. 25.6.1947, húsmóðir,
Seltjamamesi, gift Þorvaldi Jóns-
Unnur Guðjónsdóttir.
syni; Oddur G. Pétursson, f. 7.4.1956,
kaupmaður í Reykjavík, kvæntur
Ástu ólafsdóttur.
Systkini Unnar: Eiríkur Karl, f.
30.7.1903, d. 7.11.1972, b. að Skarði
í Breiðdal; Guðrún Rannveig, f. 17.4.
1905, nú látin, húsmóðir í Vest-
mannaeyjum; Borghhdur, f. 6.6.
1907, d. 12.7.1990, húsfreyja að Tó-
arseli; HansínaFriðrikka, f. 10.5.
1909, húsmóðir í Reykjavík; Guð-
mundur, f. 4.1.1911, hárskeri í
Reykjavík; Katrín Margrét, f. 10.8.
1912, húsmóðir í Reykjavík; Sigur-
björg, f. 17.4.1914, húsmóðir á
ísafirði; Ásgerður, f. 26.11.1915, hús-
móðir á Egjlsstöðum; Hahdór Osk-
ar, f. 19.4.1918, dó í bernsku. Uppeld-
isbróðir Unnar er Óskar Jónsson,
húsasmiður á Seltjamamesi.
Foreldrar Unnar vora Guðjón
Jónsson, f. 23.8.1874, d. 18.4.1966, b.
í Tóarseli í Breiðdal, og Jónína Sig-
urbjörgEiríksdóttir, f. 16.3.1879, d.
16.9.1944, húsmóðir og saumakona.
I
Sigurður Sigurðsson.
Sigurður
Sigurðsson
Sigurður Sigurðsson, Kleppsvegi
20, Reykjavík, verður sjötíu og fimm
áraámorgun, 25.7.
Sigurður hefur starfað hjá
Rammagerðinni sl. tuttugu og tvö
ár.
Kona hans er Margrét Eggerts-
dóttir en þau hjónin taka á móti
gestum í sal Tannlæknafélags ís-
lands, Síðumúla 35, á afmæhsdag-
inn milh klukkan 16.00 og 19.00.
Hrólfur Ásmundsson
Hrólfur Ásmundsson, fyrrv. vega-
verkstjóri, Blönduhhð 12, Reykja-
vík, er áttræður í dag.
Starfsferill
Hrólfur fæddist að Víðivöhum í
Hróbergshreppi í Strandasýslu en
ólst upp í Stórahlíð í Víðidal í Vest-
ur-Húnavatnssýslu.
Hann stundaði nám við Héraðs-
skólann að Reykjum í Hrútafirði
1933-35 og var í kvöldskóla í Garði
í Guhbringusýslu 1936-37, auk þess
sem hann sótti verkstjóranámskeið
1945.
Hrólfur vann við vegagerð frá
1927, þá búsettur að Efra-Núpi í
Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu
en var vegaverkstjóri hjá Vegagerð
ríkisins á árunum 1940-86. Hann
hefur verið búsettur í Reykjavík frá
1953.
Fjölskylda
Hrólfur kvæntist 2.8.1953 Trygg-
vínu Steinsdóttur, f. 7.4.1922, póstaf-
greiðslukonu, en hún er dóttir
Steins Leós Sveinssonar, b. og
hreppstjóra að Hrauni í Skefils-
staðahreppi í Skagafirði, og Guðríð-
ar Sigriðar Kristmundsdóttur hús-
freyju.
Böm Hrólfs og Tryggvínu era Ás-
mundur, f. 23.9.1954, stýrimaður í
Reykjavík; Kristrún, f. 7.12.1958,
matvælafræðingur í Reykjavík, gift
Oddi Bjama Thorarensen og eiga
þau eina dóttur, Hhdi Sif; Gestur,
f. 22.11.1962, háskólanemi í Dan-
Hrólfur Ásmundsson.
mörku.
Hrólfur átti sex systkini og era nú
tvö þeirra á lífi. Systkini hans:
Ólína, f. 15.6.1909, dó í bamæsku;
Sesselja, f. 22.10.1912, húsmóðir í
Reykjavík, gift Val Sólundarsyni,
smið og eiga þau þrjú börn; Magn-
ús, f. 27.8.1914, d. 1966, úrsmíða-
meistari í Reykjavík, var kvæntur
Ingibjörgu Sigurðardóttur og eign-
uðust þau fjögur börn; Sigríður, f.
11.7.1916, d. 1989, saumakona í
Reykjavík, og eignaðist hún eitt
bam; Grettir, f. 21.4.1919, sjómaður
í Reykjavik; Svanlaug, f. 15.7.1920,
d. 1978, húsmóðirí Reykjavík, gift
Ragnari Ármann endurskoðanda og
eru dætur þeirra fjórar.
Foreldrar Hrólfs voru Ásmundur
Kristinn Magnússon, f. 10.2.1887,
d. 6.10.1960, b. að Stóru-Hlíð í Vest-
ur-Húnavatnssýslu, og Jósefína
Guðrún Sveinsdóttir, f. 10.1.1888,
d. 25.12.1921, húsfreyja.
Hrólfur verður að heiman á af-
mælisdaginn.
90 ára
Jóhann Bjömsson,
Kvisthaga 19, Reykjavik.
80 ára
Sigriður Tómasdóttir,
Lyngási la, Hqltahreppi.
Til hamiiigju með afmælió 24. júlí
Jngunn Guðrún Guimarsdóttir,
Eyxarvegi 3, Fiateyri.
Jóhannes Kr Árnason,
. Bfstahjalla 25, Kópavogi,
— Helga Þ. Bachmann,
Suðurgötu 31, Reykjavík.
Friðbert Valdimnrsson,
~ Hamragerði 22, Akureyri
Edda Jngólfsdóttir,
Mávahlíö 45, Reykjavík.
Anna Margrét Albertsdóttir,
Fellsmúla 18, Reykjavik.
Gunnlaug Gunnlaugsdóttir,
Yrsufelli 9, Reykjavík.
Vifberg Jóhannesson,
Heiðarhrauni 6, Grindavík.
Sigurður Jóhannsson,
Þórsgötu 12, Reykjavík.
60 3 jT3 50 91*3 Lilja Björk Sigurðardóttir,
...................-.................................................... Hamragarði 10, Keflavík.
Guðmundur Hannes Sigurjónsstm, Erlendur F. Magnússson, yalgerður Sveinsdóttir,
Miðtúni 11, Seyðisfirðí. Hveramörk 4, Hveragerði. Áshamri 42, Vestmannaeyjum.
Höskuldur Sæmundsson,
Blesugróf 26, Reykjavík.
Bogi G.K. Haildórsson,
Óðinsgötu 18a, Reykjavík.
Sveinn Gíslason,
Heiöarbraut 8, Blönduósi.
Ljósbrá Guðmundsdóttir,
Miötúni 8, Seyðisflröi.
Gautur Hansen,
Skipholti 5, Ólafsvík.
Jónína Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Eskiholti 23, Garðabæ,