Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1991, Qupperneq 3
FÖÖTUÍÍAOUR Í6/ÁÖÚST ifeí.'
Dans-
staðir
Ártún
Vagnhöfða 11, sími 685090
Hljómsveit Jóns Sigurössonar
ásamt Örnu Þorsteins leikur
fóstudagskvöld en Mattý Jó-
hanns syngur með á laugardags-
kvöld.
Berlín
Austurstræti 22
Kvennakvöld í kvöld, fostudaginn 16.
ágúst. Cosmo, Misty og Jens sýna
haustliti, undirfatnaö og skartgripi.
Snyrtivörur kynntar og síðast en
ekki síst er danssýning.
Blúsbarinn
Laugavegi 73
Lifandi tónlist öll kvöld.
Casablanca
Diskótek föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Dans-barinn
Grensásvegi 7, sími 688311
Dansleikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Danshúsið, Glæsibæ
Álfheimum, s. 686220-
Hljómsveitin Vanir menn leikur
á fóstudags- og laugardagskvöld.
Fjörðurinn
Strandgötu, Hafnarfirði
Lokað um helgina vegna breytinga.
Opnað aftur 30. ágúst.
Fógetinn
Djass - Skotinn Angus Rollo skemmt-
ir gestum með lifandi tónlist.
Furstinn
Skipholti 37, sími 39570
Lifandi tónlist föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Gaukur á Stöng
í kvöld og annað kvöld leikur ný
hljómsveit Hjartar Howser. Sunnu-
dag og mánudag leikur Sniglabandið
og Loðin rotta leikur þriðjudag og
miðvikudag.
Gikkurinn
Ármúla 7, sími 681661
Opið öll kvöld, draft happy hour
kl. 18-21 alla daga.
L.A. Café
Laugavegi 45, s. 626120
Diskótek föstudags- og laugar-
dagskvöld. Hátt aldurstakmark.
Sportklúbburinn
Borgartúni 32, s. 29670
Opið föstudags- og laugardags-
kvöld á Stönginni. Aðgangur
ókeypis.
Hótel ísland
Ármúla 9, sími 687111
í kvöld taka Icelandic Models á móti
gestum með fordrykk o.fl. og halda
tískusýningu. Fatatellan Mette Lars-
en sýnir. Kynnir Rósa Ingólfs. Opið
11-03.
Moulin Rouge
Diskótek á föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Naustkráin
Vesturgötu 6-8
Opið um helgina.
Nillabar
Strandgötu, Hafnarfirði
Blár búgi skemmta alla helgina.
Tveir vinir og annar í fríi
Laugavegi 45
í kvöld fóstudag leika Deep Jimi &
the Zep Creams. Sniglabandið leikur
á laugardagskvöld og Mikki refur á
sunnudagskvöld.
Vagninn, ísafirði
Trúbadorinn Guðmundur Rúnar
leikur íslenska og erlenda tónlist af
fmgrum fram.
Ölkjallarinn
Pósthússtræti 17
Hilmar Sverrir leikur fóstudags- og
laugardagskvöld og Ingvar trúbador
á sunnudag.
Ölver í Glæsibæ
Karaoke-K, opið öll kvöld og alla daga
í hádeginu.
19
Púlsinn:
Blús, blús, blús...
Blúsmenn Andreu eru meðal þeirra sem fram koma á Púlsinum um
helgina.
Blúsveislu Islands verður fram
haldið á Púisinum um helgina því
þá leika helstu blússpilarar lands-
ins. í kvöld, föstudag, leikur Trega-
sveitin og má búast við að þá kom-
ist færri að en vilja, alténd ef marka
má aðsókn á Púlsinum um síðustu
verslunarmannahelgi en þá lék
sveitin fyrir fullu húsi 3 kvöld í
röð. Að venju má búast við því að
góðir gestir troði upp með Trega-
sveitinni en hið óvænta er einmitt
aðalsmerki góðra blúskvölda þar
sem hið opna tónlistarform sem
blúsinn er, nýtist svo skemmtilega
í „spontant“-tjáningu. Tregasveit-
ina skipa nokkrir af helstu framl-
ínumönnum blússins hér á landi:
Pétur Tyrflngsson söngur og gítar,
Guðmundur Pétursson gítar, Sig-
urður Sigurðsson munnharpa og
söngur, Björn Þórarinsson bassi og
Guðni Flosason trommur. Það hef-
ur kvisast út að Tregasveitin sé um
þessar mundir að leggja síðustu
hönd á blúsplötu sem sé væntanleg
á markaðinn með haustinu og
eflaust verður eitthvað af því efni
flutt í kvöld.
Meiri blús verður svo á morgun,
laugardagskvöld, á Púlsinum. Þá
ætla Blúsmenn Andreu að leika.
Eins og nafnið gefur til kynna þá
skipar sjálf drottning blústónlistar-
innar á íslandi öndvegi í sveitinni,
nefnilega Andrea Gylfadóttir, sem
að margra áliti er blússöngkona á
heimsmælikvarða. Hún nýtur sín
að sjálfsögðu best í eigin sveit með
blúsforingjann sjálfan, Halldór
Bragason, sér að baki vopnaðan
gítar og blúsrödd, gítarhetjuna
Guðmund Pétursson, Jóhann Hjör-
leifsson á trommur og Richard
Corn á bassa.
„Happy hour“ verður að vanda á
milli klukkan 22.30 og 23.30.
Það verður svo rokksveitin Þjófar
sem leikur á Púlsinum á sunnu-
dagskvöld. Rokksveitin Þjófar leik-
ur allar tegundir rokktónlistar og
má fínna lög á efnisskránni með
AC/DC, Led Zeppelin, Jimmy
Hendrix, Thin Lizzy, Georgia Sata-
lite, Querboys, Aerosmith, Cult og
fleiri og fleiri. Hljómsveitina skipa:
Magnús Axel Hannesson gítar,
Þórður Jónsson trommur, Sigurjón
Skæringsson (Nonni) söngur,
Bergur Hallgrímsson bassi og nýj-
asti meðlimur sveitarinnar, hinn
landskunni gítarleikari Tryggvi
Hubner.
Sálin á Patreks- og ísafirði
Blautir dropar
í Búðardal
Hljómsveitin Blautir dropar
halda innreið sína í Búðardal, nán-
ar tiltekið í Dalabúð, á morgun,
laugardaginn 17. ágúst. Hljómsveit-
in mun leika þar fyrir dansi langt
fram á nótt. Blauta dropa skipa
Jóhann Þór Kærnested söngur,
Gunnar Þór Eggertsson gítar, Stef-
án H. Henrýsson hljómborð, Brynj-
ar Reynisson bassi og Haraldur O.
Leonhardsson trommur. Aðgangs-
eyrir er 1.700 krónur og ballið hefst
um klukkan 23.30.
Hótel ísland:
Tískusýning
og nektar-
dansmær
Hótel ísland býður gestum sínum
upp á tískusýningu í kvöld, föstu-
dag, þegar Icelandic Models kynna
nýjustu herralínuna frá Herrafata-
verslun Birgis auk þess sem módel-
in munu kynna úr og skart frá
Leonard, Christian Dior, Hermés,
Ebel og Heuer. Hin landsþekkta
dansandi fjölskylda mun skemmta
með samkvæmisdansi. Síðast en
ekki síst ber að nefna nektardans-
meyna Mette Larsen frá Danmörku
en hún er vel þekkt um alla Skand-
inavíu fyrir djarfa sýningu.
Sniglabandið
á Tveimur
vinum
Sniglabandið skemmtir gestum á
Tveimur vinum og öðrum í fríi á
morgun, laugardagskvöldið 17. ág-
úst. Sniglabandið gaf nýverið út
hljómplötu með „live“ upptökum
og þeir ætla að leika lög af þessari
skífu.
Eftir að hafa tekið það frekar
rólega undanfarnar vikur heldur
Sálin hans Jóns míns þessa helgina
áfram för sinni um landið. Að
þessu sinni gera þeir strandhögg á
Vestfjarðakjálkanum og er það
jafnframt í fyrsta og eina skipti á
þessu sumri sem þangað verður
haldið. í kvöld, föstudagskvöldið
16. ágúst, mun sveitin leika í Fé-
lagsheimili Patreksfjaröar og á
morgun, laugardag, í Sjallanum á
ísafirði.
Um helgina halda Sálar-menn
áfram að reyna nýjungar frá fjöl-
þjóðafyrirtækinu GONG. Saxófón-
leikarisveitarinnar, Jens Hansson,
kom nú í vikunni nýsigldur frá
Niðurlöndum, nánar tiltekið Amst-
erdam, þar sem hann hitti nokkra
Hinn myndarlegi saxófónleikari
Sálarinnar ætla að gera tilraunir
með nýjan saxófón sem var smið-
aður og settur saman af simpöns-
um í Austurriki.
forráðamenn GONG á mikilli upp-
finningaráðstefnu sem þar var
haldin um síðustu helgi. Afrakstur
þessa fundar er sá að nú um helg-
ina mun Jens gera tilraunir með
nýja tegund saxófóns sem einkum
er sérstakur vegna þess að hann
er smíðaður og settur saman af
simpönsum í dýragarðinum í Inns-
bruck í Austurríki. Undanfarin átj-
án ár hefur verið unnið að því
markvisst í Innsbruck að virkja
simpansana og þjálfa upp ákjósan-
legan vinnuhóp meðal þeirra. Nú
nýlega leit svo fyrsti saxófónninn
dagsins ljós, en það mun ekki reyna
á hann fyrir alvöru fyrr en nú um
helgina en þá mun Jens blása til
leiks í þennan einstaka saxófón.
Rokkbandið leikur í Breiðdalsvík og Höfn um helg-
ina.
Rokkbandið á
Austurlandi
Hljómsveitin Rokkbandið leikur á Hótel Bláfelli í
Breiðdalsvík í kvöld, föstudagskvöldið 16. ágúst og
síðan í Lindarbæ á Höfn í Hornafirði á morgun, laug-
ardagskvöldið 17. ágúst. Rokkbandið skipa þeir Ingvi
R. Ingvason trommur, Níels Ragnarsson hljómborð,
Albert Ragnarsson gítar og söngur, Kristján Jónsson
bassi og Pétur Hallgrímsson gítar og söngur.
Vanir menn í
Glæsibæ
Hljómsveitin Vanir menn skemmtir gestum í
Glæsibæ um helgina, bæði föstudags- og laugardags-
kvöld. Vanir menn eru þekktir fyrir að spila frísk-
lega og alhliða danstónlist fyrir aUa aldurshópa.
Hljómsveitina skipa þeir Eyþór Stefánsson á gítar,
Hallvarður Óskarsson á trommur og Leó Ólason á
hljómborð.
Galíleó í
Sjallanum
Það verður hljómsveitin Galíleó sem spilar í Sjal-
lanum á Akureyri um helgina, föstudags- og laugar-
dagskvöld. Þeir félagar leika innlend og erlend lög
auk þess að leika eigið efni. Galíleó skipa þeir Bald-
vin Sigurðsson á bassa, Rafn Jónsson á trommur,
Sævar Sverrisson syngur, Jósep Sigurðsson á hljóm-
borð og Örn Hjálmarsson á gítar.
íslandsvinir ætla að skemmta í Klifinu í Ólafsvík á laugardagskvöld.
íslandsvinir
í Ólafsvík
Hljómsveitin íslandsvinir
skemmtir í Klifinu í Ólafsvík á
morgun, laugardagskvöldið 17. ág-
úst. Það er nokkuð víst að það verð-
ur engin jaröarfararstemning í Ól-
afsvfk því íslandsvinir eru þekktir
fyrir flest annað en doða á böllum.
Það verður rokk og sveifla í Klifinu
á laugardaginn. íslandsvini skipa
þeir Björn Vilhjálmsson, Jón B.
Loftsson, Pálmi J. Sigurhjartarson,
Kári Waage, Sigurður Jónsson og
Eðvarð Lárusson.