Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1991, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1991, Síða 6
Laugarásbíó: Eldhugar Það er barátta slökkviliðsmanna við rnikla eldsvoða sem er þema spennumyndarinnar Eldhugar (Backdraft) sem frumsýnd verður í Laugarásbíói í dag. Mynd þessi, sem hefur verið ein vinsælasta kvikmyndin í Bandaríkjunum að undanfómu, segir sögu tveggja bræðra. Þegar sá yngri var lítill drengur varð hann vitni að þvi þegar faðir hans fórst í eldsvoða. Tuttugu árum seinna er hann að sækja um starf í slökkviliði Chicago-borgar þar sem eldri bróð- ir hans er yfirmaður. Þótt sam- bandið sé frekar stirt á milli bræðr- anna tekur sá eldri þann kost að vemda litla bróður og kemur hon- um út úr slökkviliðinu. Snjall brennuvargur gengur laus og geng- ur myndin að nokkru leyti út á það að finna út hver það er. Það er mikið og frítt lið leikara í myndinni. Bræöurnir em leiknir af Kurt Russell og William Bald- win. Robert de Niro leikur rann- sóknarmann á vegum slökkviliðs- ins, Scott Glenn leikur reyndan brunavörð sem var vinur föður bræðraxma og Donald Sutherland leikur brennuvarg sem situr í fang- elsi en gæti vegna reynslu sinnar vitað hver hinn brennuvargurinn er. Helstu kvenhlutverkin em svo leikin af Jennifer Jason Leight og Rebeccu De Morney. Leikstjóri er Ron Howard, bamastjaman fyrr- verandi sem er að verða einhver besti og eftirsóttasti leikstjórinn í Hollywood. -HK FÖSTUDAGUR 16. 1991. Það hefur ekkert verið til sparað við að gera brunana í myndinni sem eðlilegasta. Bíóborgin: r Saklaust sumarfrí áþjóðvegum breytist í martröð fyrir lagastúd- entinn Chariie Farrow þegar hann er ákærður fyrir að hafa drepið son glæpakóngs. Honum tekst að sleppa en á hælum hans er ekki aðeins glæpaforinginn og hans lið heldur einnig spillt lög- reglan sem ólm vill hirða þau verðlaun sem glæpaforinginn hefur lofað hverjum þeim sem kann að handtaka hann. Fyrir Farrow er þetta leikur kattarins að músinni og er hann í hlutverki músarinnar. Eina manneskjan, sem kemur honum til hjálpar, er ung stúlka, Karen, sem starfar í spilavíti. Þetta-er í stuttu máli söguþráð- urirm í Á flótta sem er ný spennu- mynd sem tekin var til sýningar í Bíóborginni 1 gær. Aðalhlut- verkin leika Patrick Dempsey og Kelly Preston. Leikstjóri Á flótta er Geoff Burrowes sem kemur frá Ástral- lu og er þetta önnur kvikmyndin sem hann leikstýrir. Hann byrj- aði feril sinn sem framleiðandi I Ástrahu og framleiddi meöal annars The Man from the Snowy River 1982. Fimm árum síðar leikstýrði hann framhaldinu, Re- turn to the Snowy River - Part n. Áöur en hann sneri sér að kvikmyndum hafði hann fram- leitt nokkrar ástralskar sjón- varpsseríur. -HK Patrick Dempsey á flótta undan ósýniiegum óvini. Joe Mantegna og Mia Farrow í hlutverkum sínum í Alice. Háskólabíó: Alice Alice er tuttugasta kvikmyndin sem Woddy Allen bæði leikstýrir og skrifar handrit að. Er hér um að ræða gamanmynd um konu sem fær að reyna ýmislegt á viðkvæm- um tíma í lífi sínu. Um leið er myndin um ríkidæmi, sekt, fram- hjáhald og leitina að því sem virki- lega skiptir máh í lífinu. Eins og svo margar aðrar kvikmyndir efdr Woody Allen fylgir myndin konu í leit að sjálfri sér og blandar AUen saman gamni og alvöru af þeirri smekkvísi sem honum er lagið. Það er mikiU fjöldi þekktra leik- ara sem leika í AUce. Fyrst ber að telja Miu Farrow sem leikur titU- hlutverkið og er þetta í eUefta skipti sem hún leikur hjá eiginmanni sín- um. Blythe Danner er að leika í annað sinn fyrir AUen. Þeir leikar- ar sem þekktir eru og eru að leika í fyrsta skiptið í mynd eftir Woody AUen eru Álec Baidwin, Judy Da- vis, Judith Ivey, Joe Mategna, EUe McPherson, Bernadette Peters, CybiU Shepard og Gwen Verdon. Woody AUen er ekki mikið fyrir að breyta um tækniUð og eru alUr þeir sömu og unnið hafa með hon- um að undanfórnu að undanskUd- um kvikmyndatökumanninum Carlo di Palma. AUce hefur undan- tekningarlaust fengið mjög góðar viðtökur hjá gagnrýnendum og þykir í flokki betri mynda AUens. -HK Goddard Bolt (Mel Brooks) ræðir hér við útigangsfólk. Lesley Ann Warren er lengst til vinstri. Bíóhöllin: Iifið er óþverri Peningar eru kannski ekki aðal- atriðið í lífinu en án þeirra er lífið óþverri, segir Mel Brooks og vísar þar í nafnið á nýjustu kvikmynd sinni, Lífið er óþverri (Life Stinks), sem Bíóhöllin tók tíl sýningar í gær. Eins og oft áður leikur hann sjálfur aðalhlutverkið, mUljarða- mæringinn Goddard Bolt. Brooks segir um Bolt að hann sé maður sem á allt en langar samt í meira. Dag einn lætur Goddard plata sig í veðmál um að hann geti lifað án peninga í þrjátíu daga, veðmál sem hann hefði betur látið eiga sig. Bolt hefur aldrei lifað öðruvísi lífi en að geta veitt sér aUt. Hann fæddist með silfurskeið í munnin- um og hefur vanist því að hafa þjóna á hverju strái. Þegar hann er kominn á götuna, peningalaus og í fatalörfum, er hann aðeins einn af strætisrónunum og rekur sig ilU- lega á að það er auðveldara að lifa þegar maður á peninga. Aðrir leik- arar í myndinni eru Lesley Ann Warren, Howard Morris og Jeffrey Tambor. Lífiö er óþverri bætist í hóp margra ágætra gamanmynda sem Mel Brooks hefur leikstýrt, má þar nefna Blazing Saddles, Young Frankenstein, The SUent Movie, To Be or Not to Be og The Produc- ers. Mel Brooks er meðal þekktustu leikstjóra gamanmynda nú orðið. Hans fyrsta kvikmynd var The Producers. Þessi bráðsniðuga gam- anmynd sló í gegn aUs staðar en þó sérstaklega í Evrópu. Brooks fékk óskarsverðlaunin fyrir hand- ritið að The Producers sem fjaUar um mislukkaða leikhúsmenn sem setja á svið söngleik um Hitler. Mel Brooks sýndi fljótt að hann er ótrú- lega frjór og hugmyndaríkur. Hveijum öðrum hefði dottið í hug að gera gamanmynd um Franken- stein, lofthræðslu og veraldarsög- una, sem hann er að vísu aðeins búinn að gera fyrsta hlutann af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.