Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1991, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1991, Qupperneq 2
18 FÖSTUDÁGUR 30. ÁGÚST 1991. VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI A. Hansen Vesturgötu 4, Hf., sími 651693. American Style Skipholti 70. sími 686838. Argentina Barónsstígur 11 a. sími 19555. Asia Laugavegi 10. slmi 626210 Askur Suöurlandsbraut 4. sími 38550 Suðurlandsbraut 1 4. sími 81 344. Árberg Ármúla 21. sími 686022. Borgarvirkið Þingholtsstræti 2-4, simi 13737 Bravó Nýbýlavegi 22. sími 46085. Café Amsterdam Hafnarstræti 5. sími 13800 Café Garður Garðatorgi. sími 657676 Café Jensen Þönglabakka 6. sími 78060. Café Mílanó Faxafeni 11. sími 678860. Duus hús v/Fischersund. sími 14446. Fimman Hafnarstræti 5. sími 11212. Fjörukráin Strandgötu 55. sími 651 21 3. Fjörðurinn Strandgötu 30. sími 50249. Fógetinn, Aðalstræti 10. sími 16323. Furstinn Skipholti 37. sími 39570. Gaukur á Stöng Tryggvagötu 22. sími 11 556. Gullni haninn Laugavegi 178. sími 679967. Hafmeyjan Laugavegi 34a, sími 1 3088. Hallargarðurinn, Húsi verslunarinnar. sími 678555. Hard Rock Café Kringlunni. sími 689888. Hjá Kim Ármúla 34. sími 31 381 . Hornið Hafnarstræti 1 5. sími 1 3340. Hólmi Hólmaseli 4. sími 670650. Hótel Borg Pósthússtræti 11. sími 11440. Hótel Holt Bergstaðastræti 37, sími 2570Ó. Hótel ísland v/Ármúla. sími 687111. Hótel Lind Rauðarárstíg 18. sími 623350. Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflugvelli, sími 22322. Hótei Óðinsvé v/Óðinstorg. sími 25224 Hótel Saga Grillið. sími 25033. Súlnasatur. sími 20221. Skrúöur. sími 29900. Ítalía Laugavegi 11. sími 24630. Jónatan Livingston mávur. Tryggvagötu 4—6. sími 15520 Kabarett, Matkrá Austurstræti 4, sími 10292. Kaffivagninn Grandagarði. sími 15932. Kínahofið Nýbýlavegi 20. sími 45022. Kína-Húsið Lækjargötu 8. sími 11014. Kringlukráin Kringlunni 4. sími 680878. L.A.—Café, Laugavegi 45. sími 6261 20. Lauga-ás, Suöurlandsbraut 2. sími 689509. Lækjarbrekka Bankastræti 2. sími 1 4430. Madonna Rauðarárstíg 27-29, sími 621988 Mamma Rósa Hamraborg 11. sími 42166 Mandaríninn Tryggvagötu 26. sími 23950. Marinós pizza Laugavegi 28. sími 625540. Njálsgötu 26. sími 22610. Mongolian Barbecue Grensásvegi 7. sími 688311 Naustið Vesturgötu 6-8. sími 17759. Ópera Lækjargötu 2. sími 29499. Perlan Öskjuhlíð. sími 620200. Pétursklaustur Laugavegi 73, sími 23433. Pisa Austurstræti 22. sími 1 2400. Pizza Hut Hótel Esju. sími 680809 Pizzahúsið Grensásvegi 10. sími 39933. Pizzaramí Hringbraut 119. sími 21066. Pizzusmiðjan Smiðjuvegi 14 D. sími 72177 Potturinn og pannan Brautarholti 22. sími 11690. Rauða Ijónið Eiðistorgi. sími 611414. Rauði sófinn Laugavegi 126. sími 1 6566. 612095 Setrið Sigtúni 38. sími 689000. Sex baujan Eiðistorgi. sími 611414. Siam Skólavörðustig 22. sími 28208. Singapore Teykjavíkurvegi 68. sími 54999. ájanghæ Laugavegi 28,.sími 16513. Svarta pannan Hafnarstræti 1 7, sími 1 6480. Taj Mahal, Tandori og Suhi bar. Hverfisgötu 56. sími 21 630 Torfan .Amtmannsstíg 1. sími 1 3303. Trúbadorinn, Laugavegi 73. sími 622631. Tveir vinir og annar í fríi. Laugavegi 45. sími 21255. Veitingahúsiö 22 Laugavegi 22. sími 13628. Við Tjörnina Templarasundi 3. sími 18666. Písa leynist í gömlu skúmaskoti í Austurstræti miili katfihusanna Hressó og Berlínar. Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús: Vínakur í skíðaskála Ég átti ekki von á góðum mat í þessu skúmaskoti og kom því aftur og aftur til að komast að málinu fullreyndu. Það var ekki fyrr en í síðasta skiptiö, að ég áttaði mig, þegar ég sá Skúla Hansen læðast inn í eldhúsið. Þar var fengin skýr- ingin á, hvers vegna þessi Ítalíu- staður hefur yfirleitt góðan mat á boðstólum. Þröngt mega sáttir sitja Písa leynist í gömlu skúmaskoti í Austurstræti milli kaffihúsanna Hressó og Berlínar. Það er í eins konar víngarðsstíl með pergólu- stælingu í innréttingu. Smíðajárns- grindur í rómönskum bogum og plast-vafningsplöntur mynda per- gólur, sem eiga að minna á ítalska eða öllu heldur portúgalska vín- akra, því að pergólur hafa að mestu lagzt niður á Ítalíu. Því miður er mjög þröngt um pergólurnar, svo að hinar ljúfu hugrenningar ná ekki fram aö ganga. Því valda sumpart hinar þungu furuinnréttingar, sem minna á skíðaskála. Þetta er eins og vínakur innan í skíðaskála. Þeg- ar vínakurinn slæst við skíðaskál- ann um yfirráð í stemmningu, kemur út skemmtileg della, kannski suðurtýrólsk. Básarnir eru ágætir fyrir tvo gesti við borð. Unnt er að troða í þá fjórum sáttfúsum. Gestir sitja á þægilega bólstruðum bekkjum við naglföst borð og virða fyrir sér of- hleðsluna í innréttingum.Til við- bótar við pergólur úr plasti og járni og skíðaskála úr timbri hefur út um allt verið hlaðið pottaplöntum og ýmsu skemmtilegu dóti, svo sem fuglabúri og smáútgáfum barnale- ikfanga og barnavagna. Hugulsamt nasl á borði Eins og víðar hér í bæ var þjón- usta mjög tvískipt i Pisa. Sumpart kunni hún til verka. Fleiri voru þó, sem ekki höfðu lært neitt í faginu, gleymdu pöntuðu ísvatni, gleymdu hnífapörum, fylgdust ekki með borðhaldi, tóku ekki eftir neinu, gleymdu þjónustu yfirleitt, jafnvel þótt lítið væri að gera. Muninn á skólaðri og óskólaðri þjónustu má stundum sjá af því, hvort unnt er að ná auga þjónsins, og hér er slíkt mjög erfitt. Það er líka erfitt aö standa upp og æpa, því að básamir eru svo þröngir. Sumt var gott um ytri umbúnað máltíðar í Písa. Tannstönglar voru á borðum. Meðan pantað var, gátu gestir smakkað á gulrótar- óg gúr- kulengjum með ferskri eggjadýfu af majones-ætt. Brauð var sæmi- legt og nóg af því. Smjör var ekki í álpappír í hádeginu, þótt slíkt virðist vera til siðs í mörgum veit- ingahúsum bæjarins. Hins vegar voru þá þurrkur úr pappír, en úr taui á kvöldin. Samt er verðlagið ekkert lægra í hádeginu. Eini munurinn er, að þá er miklu minna úrval rétta, senni- lega þeir réttir kvöldseðilsins, sem aðstoðarkokkurinn hefur lært af aðalkokkinum. Rísotturbetrien pösturogpizzur Pöstur, pizzur og rísottur hafa af eðlilegum ástæðum mesta fyrirferð á matseðlinum. Pizzutegundirnar eru tólf og kosta að meðaltali 925 krónur. Pizzurnar voru fremur góðar, en fást þó betri annars stað- ar í bænum. Þær voru þunnar og vel heitar, en nokkuð harðar í kant- inn. Þær voru matreiddar af sér- stökum pizzumanni. Pösturnar voru heldur betri. Þær eru ellefu taisins, tagliatelle, cann- eloni, tortellini, spaghetti, farfalle og svo framvegis, á meðalverðinu 940 krónur. Osthúðað lasagne með kjötsósu var fremur gott, en ostur- inn var yfirgnæfandi í máltíðinni. Af ítölsku sérréttunum reyndust rísotturnar þrjár beztar, að meðal- tali á 890 krónur. Djöfla-risotto var frísklegt og fjölbreytilegt, með grænmeti og pepperoni. Rísottur eru einkennisréttur Norður-Ítalíu á sama hátt og pösturnar eru ein- kennisréttur Suður-Ítalíu. Matreiðslan í Pisa kemst þó fyrst í gang, þegar sleppir þessum hefð- bundnu réttum, enda verða réttirn- ir þá mun dýrari. Þriggja rétta máltíð með góðu, ítölsku kaffi, nemur í verði að meðaltali 2.645 krónum með ítölskum aðalrétti, en annars 3.125 krónum. Flestir láta sér nægja pizzuna eina. Súpumar voru beztar Mér er minnisstætt mjög gott carpaccio, en það er hrár nauta- vöðvi með olífum og mikilli olífuol- íu, sem réðu bragði, og dálitlu af parmiggiano-osti, sem varð að víkja í bragði. Góð var einnig meyr kjúklingalifur í of sterkri vínsósu, kenndri við marsala, þótt ég efist um, að nokkurt marsala hafi verið í henni. Sniglaragú var mjög gott og bragðmikið, borið fram með mildri grænmetissósu. Bezt forréttanna var svo Cesar-salat með hamarbit- um, eggjum, parmiggiano-osti og miklu af fersku grænmeti. Súpurnar voru mjög góðar. Tóm- atsúpa var afar þykk og góð. Tóm- atarnir voru ekki alveg sundurkr- amdir. Súpan var brauðblönduð og borin fram með þeyttum rjóma. Þetta var eftirminnileg súpa í brauðsúpustíl. Aðeins lakari, en eigi að síður góð, var þykk og matarmikil fiski- súpa, heil máltíð út af fyrir sig á 590 krónur. Hún hafði ekki að geyma neinn hefðbundinn fisk, heldur góðar og meyrar rækjur og sveppi, nokkuð seigan smokkfisk, sæmilegan hörpufisk og margvís- legt grænmeti. Lundabringur frá Skúla Djúpsteikur smokkfiskur var ekki sérlega góður. Steikarhjúpur- inn var mikill og fiskurinn ekki meyr. En undir honum var mjög góð tómata-rísotta meö frísklegum lauk. Smálúða var fin og bragð- mild, borin fram á pastaræmum. Svartfuglsbringur matseðilsins reyndust vera lundabringur, fjórar bringur, hæfilega lftið steiktar og mjög góðar, greinilega komnar frá Skúla Hansen, bornar fram með gráðostasósu og eplasalati. Nauta- piparsteik í koníaksrjóma var mjög meyr og góð, en borin fram minna hrásteikt en beðið hafði verið um. Með báðum þessum aðalréttum var osthúðað kartöflusalat. Pasta hefði verið betur við hæfi í stað, sem heitir Písa, því að ég efast um, að ítalir séu mikið fyrir kartöflur. í þessu kemur fram annar tví- skinnungur á borð við vínakur í skíðaskála. Hann felst í að pizzu- og pöstustað er komið fyrir í hefð- bundnu veitingahúsi og útkoman kölluö ítalskt veitingahús. Ostakaka með Amaretto-líkjör, þeyttum rjóma og ávöxtum var sæmileg, en jafnaðist ekki á við slíkar kökur í búð, ekki frekar en aðrar slíkar í veitingahúsum lands- ins. Skemmtileg tilbreytni var í eplapizzu með kanil, þeyttum rjóma og vanilluís. Sérkennilegt er á Pisa, að pizzur, sem velt er yfir miðju til innbökun- ar og líta út eins og hálfmánar, eru kallaðar fullt tungl á matseðlinum. Það er sennilega í stíl við delluna íinnréttingunni. J.Kr. Viðeyjarstofa Viðey, sími 681045. Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldursgötu 14. sími 23939. Ölkjallarinn Pósthússtræti 17. sími 13344. Ölver v/Álfheima, sími 686220. AKUREYRI: Bautinn Hafnarstræti 92, sími 21818. Fiðlarinn Skipagötu 14. sími 27100. Greifinn Glerárgötu 20. sími 26690. Hótel KEA Hafnarstræti 87-89. sími 22200. Hótel Stefanía. Hafnarstræti 83-85. sími 26366 Landið - vertshús Geislagötu 7. sími 11617 Sjallinn Geislagötu 14. sími 22970. Smiðjan Kaupvangsstræti 3. sími 21818. Uppinn Ráöhústorgi 9, sími 241 99 VESTMANNAEYJAR: Bjössabar Bárustíg 11. sími 12950. Hallarlundur Vestmannabraut 21. sími 12960. Muninn Vestmannabraut 28. slmi 11422 Höfðinn/Við félagarnir Heiöarvegi 1. sími 1 2577. Skútinn Kirkjuvegi 21. sími 11420. KEFLAVÍK: Edenborg Hafnargötu 30. sími 1 2000. K-17 Vesturbraut 17. sími 14999. Glóðin Hafnargötu 62. simi 11777. Flughótelið Hafnargötu 57, simi 15222. Ráin Hafnargata 19. simi 14601. Veitingahúsið við Bláa Lónið Svartsengi. sími 68283. SANDGERÐI: Veitingahúsið Vitinn, Hafnargötu 4, sími 37755. SUÐURLAND: Gjáin ^.usturvegi 2. Selfossi. sími 22555. Hótel Selfoss Eyravegi 2. Selfossi. sími 22500 Hótel Örk, Nóagrill Breiöumörk 1. Hverag., s. 34700. Kam-Bar, Breiðamörk 2c. Hverag.. s. 34988. Veitingahúsið við Brúarsporðinn Eyrarvegi 1. Self.. simi 22899. VEITINGAHÚS - ÁN VÍNS Arnargrili Arnarbakka'2. sími 77540. Á næstu grösum Laugavegi 26. stmi 28410. Bigga-bar - pizza Tryggvagötu 18. simi 28060. Blásteinn Hraunbæ 102. sími 673311. Bleiki pardusinn Hjallahrauni 1 3. sími 652525 Brauðstofan Gieymmérei Nóatúni 17. sími 15355. Chick King Suöurveri. Stigahlíö 45 47. s. 38890. Eikagrill Langholtsvegi 89. 39290. Eldsmiðjan Bragagötu 38 A. simi 1 4248. Fiskur og franskar Austurstræti 6. sími 626977. Gafl-inn Dalshrauni 13. sími 54424. Höfðakaffi Vagnhöföa 11. sími 686075. Ingólfsbrunnur Aöalstræti 9. sími 1 3620. Jón bakan Nýbýlavegi 14. sími 46614 Kentucky Fried Chicken Hjallahrauni 1 5. sími 50828. Lauga-ás Laugarásvegi 1. simi 31 620. Lúxus kaffi Skipholti 50b. sími 83410. Mokka-Expresso-Kaffi Skólavöröustíg 3a. sími 21174 Mútakaffi v/Hallarmúla. sími 37737 Nespizza, Austurströnd 8, Austurströnd 8, sími 61 2030. Norræna húsið Hringbraut. sími 21 522. Næturgrillið heimsendingarþj.. sími 77444. Óli prik Hamraborg 14. sími 40344. Pizzahúsið Öldugötu 29. sími 623833. Pizza snögg-sneið Skólavöröustíg 2. simi 1 3320 Pitan Skipholti 50 C. sími 6881 50. Smáréttir Lækjargötu 2. sími 1 3480. Smiðjukaffi Smiðjuvegi 14d. sími 72177. Sprengisandur Bústaöavegi 1 53, sími 33679. Sundakaffi Sundahöfn, sími 36320. Tíu dropar Laugavegi 27. slmi 19380. Toppurinn Bíldshöföa 12. sími 672025. Vogakaffi Smiöjuvegi 50. sími 38533. Veitinga- og vöruhús Nings Suöurlandsbraut 6. sími 679899. Western Fried, Mosfellssveit v/Vesturlandsveg. sími 667373. Winny's Laugavegi 116. sími 25171. AKUREYRI: Crown Chicken Skipagötu 12. sími 21464. Keflavík: Langbest, pizzustaður Hafnargötu 62. sími 14777

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.