Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Blaðsíða 2
18 FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991. VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI A. Hansen Vesturgötu 4. Hf., sími 651 693. American Style Skipholti 70. sími 686838. Argentína Barónsstígur 11 a. sími 19555. Laugavegi 10. sími 626210 Askur Suöurlandsbraut 4. sími 38550 Suöurlandsbraut 14. sími 81344. Árberg Ármúla 21, sími 686022. Borgarvirkið Þingholtsstræti 2-4. sími 13737 Bravó Nýbylavegi 22. sími 46085 Café Amsterdam Hafnarstræti 5. sími 13800. Café Garður Garöatorgi. sími^657676 Café Jensen Þönglabakka 6. sími 78060 Café Milanó Faxafeni 11. sími 678860. Duus hús v/Fischersund. sími 14446. Fimman Hafnarstræti 5. sími 11212. Fjörukráin Strandgötu 55. sími 651213. Fjörðurinn Strandgötu 30. sími 50249. Fógetinn, Aðalstræti 10, sími 16323. Furstinn Skipholti 37. sími 39570. Gaukur á Stöng Tryggvagötu 22. sími 11556. Gullni haninn Laugavegi 178. sími 679967 Hafmeyjan Laugavegi 34a, sími 1 3088. Hallargarðurinn, Húsi verslunarinnar, sími 678555. Hard Rock Café Kringlunni. sími 689888. Hjá Kim Ármúla 34. sími 31381. Hornið Hafnarstræti 1 5. sími 1 3340. Hólmi Hólmaseli 4. sími 670650. Hótel Borg Pósthússtræti 11, sími 1 1 440. Hótel Holt Bergstaðastræti 37. sími 25700. Hótel island v/Ármúla. sími 6871 1 1 . Hótel Lind Rauðarárstíg 18. sími 623350. Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflugvelli. sími 22322. Hótel Óðinsvé v/Óöinstorg. simi 25224 Hótel Saga Grillið. sími 25033. Súlnasalur. simi 20221 Skrúöur. sími 29900 Ítalía Laugavegi 1 1. sími 24630. Jónatan Livingston mávur. Tryggvagötu 4 6. sími 1 5520 Kabarett, Matkrá Austurstræti 4, slmi 10292. Kaffivagninn Grandagarði, sími 1 5932. Kínahofið Nýbýlavegi 20. sími 45022. Kina-Húsið Lækjargötu 8, sími 11014. Kringlukráin Kringlunni 4. sími 680878. L.A.-Café, Laugavegi 45. sími 626120. Lauga-ás, Suöurlandsbraut 2. sími 689509. Lækjarbrekka Bankastræti 2. sími 14430. Madonna Rauöarárstíg 27 29. sími 621988 Mamma Rósa Hamraborg 11. sími 42166 Mandaríninn Tryggvagötu 26. simi 23950. Marinós pizza Laugavegi 28. sími 625540. Njálsgötu 26. simi 22610. Mongolian Barbecue Grensásvegi 7. sími 688311 Naustið Vesturgötu 6-8, sími 17759. Ópera Lækjargötu 2. slmi 29499. Perlan Oskjuhlíð. simi 620200. Pétursklaustur Laugavegi 73. sími 23433. Pisa Austurstræti 22. slmi 12400. Pizza Hut Hótel Esju. sími 680809 Pizzahúsið Grensásvegi 10. sími 39933. Pizzarami Hringbraut 119. sími 21066. Pizzusmiðjan Smiðjuvegi 1 4 D. sími 72177 Potturinn og pannan , Brautarholti 22. slmi 1 1 690. Rauða Ijónið Eiöistorgi. slmi 611414. Rauði sófinn Laugavegi 1 26. sími 1 6566, 61 2095 Setrið Sigtúni 38. slmi 689000 Sex baujan Eiöistorgi, sími 611414 Siam Skólavörðustig 22. sími 28208. Singapore Reykjavíkurvegi 68. slmi 54999. Sjanghæ Laugavegi 28. slmi 1 651 3. Svarta pannan Hafnarstræti 17. simi 16480. Taj Mahal, Tandori og Suhi bar. Hverfisgötu 56. slmi 21630 Torfan Amtmannsstlg 1. slmi 13303. Trúbadorinn, Laugavegi 73. sfmi 622631. Tveir vinir og annar í fríi. Laugavegi 45. sími 21255 Veitingahúsiö 22 Laugavegi 22. sími 13628. Viö Tjörnina Templarasundi 3. sími 18666. Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús: Menn verða ekki fyrir vonbrigöum í Óðinsvéum. DV-mynd Hanna Mest tilþrif í aukaréttum Óðinsvé hafa jafnan verið nokk- uð gott veitingahús, nokkurn veg- inn jafnt frá ári til árs, með höfuð- áherzlu á matreiðsluna, svo sem vera ber. Þótt staðir eins og Óð- insvé séu sjaldan á hátindi matar- gerðarlistar, skiptir ekki minna máli, að gæðin eru jöfn og traust. Menn verða ekki fyrir vonbrigðum á þessum fagmennskulega stað. Þetta er fremur dýrt veitingahús samkvæmt reiknikerfi mínu. Miða ég þá við matseðil dagsins, en ekki fastaseðiiinn, sem er dýrari. Á matseðli dagsins er töluvert úrvai, svo að ekki er nauðsynlegt að taka fastaseðilinn með í reikninginn, enda er honum ekki haldið að fólki. Matseðill dagsins er á eftirlíkingu af málaratrönum, sem bornar eru að borði gesta, þegar þeir þurfa að ákveða sig. Réttirnir eru skráðir á litaða miða, sem eiga að líkja eftir litaklessum á málaraspjaldi. Þetta hefur lengi tíðkazt í Óðinsvéum. Miðjuverö þriggja rétta máltíðar með kaífi er 2.120 krónur í hádegi og 2.940 krónur aö kvöldi. Verð for- rétta og eftirrétta er eins að kvöldi og í hádegi, en verð aðalrétta er breytilegt eftir þessum matmáls- tímum. Frá heimilismat yfir í nýfranskt Á matseðli dagsins hef ég séð valinkunna heimilisrétti á borð við soðna hvítkálsböggla, fiskibollur að hætti ömmu og bixímat, innan um nýfranskari rétti á borð viö gufusoðin skötubörð, hrátt hangi- kjöt og kampavínssoðnar rauð- spretturúllur. Þetta er ágætis fjöl- breytni, sem hefur eitthvað fyrir flestan smekk. Ég prófaði skartlega uppsetta villigæsakæfu með hvannarblöð- um, frábæran rétt, hæfilega milt kryddaðan, svo að gæsabragðið naut sín vel. Hrátt hangikjöt með piparrótarrjóma, melónu og rist- uðu brauði var líka góöur og fallega fram borinn réttur. Appelsínuleginn silungur var íln- lega leginn, borinn fram á salati, sem var blandað appelsínubarkar- bitum. Enn einn forrétturinn, sem ég prófaði, voru blandaðir sjávar- réttir, sem reyndust aðallega vera hörpufiskur og rækja, borið fram í smjördeigsbollum og með flnlegri skeljasósu, ágætis réttur. Það er einkenni margra góðra veitingastaða hér á landi, að þeir ná sér bezt á strik í forréttum. Einkum á þetta viö um þá staði, sem hafa aö einhverju leyti tileink- að sér nýfranska matargerðarlist. Það lánast betur og fyrr í forréttum og eftirréttum en í aðalréttum. Óðinsvé eru engin undantekning að þessu leyti. Gellur og tindabikkja Pönnusteiktar gellur í gras- laukssósu, bornar fram með hvít- lauksbrauði og legnu rauðkáli, voru nokkuð góðar, en að mínum smekk fullslepjulegar í saman- burði við gellur, sem sumir veit- ingastaðir bjóða vel legnar. Skötubörð, sem oft nefnast tinda- bikkja, voru gufusoöin, borin fram með hvítvínssósu, vínbeijum, hvít- lauksbrauði og skelfiski, fremur ljúf á bragðið, en með dálítiö yfir- gnæfandi vínberjabragði. Meðlæti var lítið. Léttsoðin ýsa var mjög góð, borin fram með örfínt hituðu grænmeti, nánast ósoðnu að nýfrönskum hætti, rækjum og hlutlausri rjóma- sósu. Þetta var bezti aðalrétturinn, þótt auðvitað verði líka að líta á tilbreytnina, sem felst í gellum og tindabikkju. Pjparsteik var meyr og góð, borin fram með óhóflega bragöþungri koniakssósu. Svartfuglsbringur með títuberj- um, brúnuðum kartöflum og epla- salati voru gegnsteiktar, en eigi að síður fremur góðar og ekki mjög seigar. Þetta var ekki öll bringan, heldur þunna stykkið innst við bringubeinið. Það er mjög gott hrá- efni, en þolir litla sem enga eldun. Skrautlegir blómadiskar Eftirréttir Óöinsvéa voru fagur- lega færðir upp á skrautlega og víð- áttumikla blómadiska. Spilað var meö liti, svo sem grænt kiwi, rauð jarðarber, gulan ananas, blá bláber og svo framvegis. Meðal slíkra rétta var góð djöflaterta með ís og ijóma. Einnig súkkulaðihúðuð terta, sem kallast „eftirlæti píanó- leikarans", af því aö hún er eins og píanó í laginu, borin fram með skrautlegum ávöxtum. Bezti eftirrétturinn var ostakaka með rifsberjahlaupi, þeyttum ijóma og áðumefndum ávöxtum skrautlegum. Hún var hin fínleg- asta og léttasta, sem ég hef fengið hér í veitingahúsi, með mildu sítr- ónubragði. Einnig er boðiö upp á þriggja eða fimm rétta sælkeraseðil, sem fer eftir aðstæðum hverju sinni í eld- húsi. Ég fékk afar góða hörpufisk- súpu karríkryddaða, borna fram með hrísgijónum. Síðan tvenns konar lundir, svína- og lambalund- ir, fremur hversdagslegar, einkum svínalundirnar, með hlutlausri sósu óg osthúðuðum kartöflum. Síðast komu flottar smákökur og ferskur ananas í súkkulaðiturni með ís og súkkulaðisósu til hliðar. í heild haföi þessi seðill ekkert umfram gæði annarrar matreiðslu staðarins. Kaffi er gott og þar á ofan er kom- in espresso-kaffivél á staðinn. Stundum er konfekt með kaffinu og oftast síöan sætindi við útidyr. Vínlistinn er ekki sérlega merki- legur, en nothæfur. Þar eru hvít- vínin Riesling Hugel, Gewurztram- iner og Chateau de Cléray og rauð- vínin Hardy Coliection, Riserva Ducale, Barolo og Chateau Barthez de Luze. Þægilegur matstaður Þjónusta og umhyggja er nokkuð góð, með undantekningum þó. Smjör kemur í sérstökum skálum og vatn er borið fóiki eftir þörfum. Þurrkur eru úr taui í hádegi sem að kvöldi. Helzt má kvarta yfir, að í tvö skipti af fjórum kom fyrir, að starfsfólk væri svo upptekið hvað af öðru, eldhúsinu og fólki með erindisrekstur þar, að illkleift reyndist að ná auga þess. í önnur skipti var allt í faglegu og full- komnu lagi. Óðinsvé eru lítill salur með stærri garðstofu, langri og mjórri, sem snýr aö Þórsgötu. Gestir sitja í óvenju þægilegum armstólum við vönduð tréborð. Innréttingar eru fremur notalegar í innri sal og fremur kuldalegar í garðstofunni. Mikill fjöldi pottablóma bætir þar úr skák. Þetta er þægilegur staöur, sem ég get alltaf hugsað mér að heim- sækja og verið viss um, að engum verður borinn matur, sem ekki er sómasamlegur. Og bezt er að halla sér sem mest að forréttum og eftir- réttum i Óðinsvéum, því að þeir virðast jafnan vera nálægt topp- formi. J.Kr. Viðeyjarstofa Viðey, sími 681045. Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldursgötu 14, sími 23939. Ölkjallarinn Pósthússtræti 17, sími 13344. ölver v/Álfheima, sími 686220 AKUREYRI: Bautinn Hafnarstræti 92. sími 21818. Fiðlarinn Skipagötu 14. sími 27100. Greifinn Glerárgötu 20, sími 26690. Hótel KEA Hafnarstræti 87 89. sími 22200. Hótel Stefanía. Hafnarstræti 83-85. sími 26366 Landið - vertshús Geíslagötu 7. sími 11617 Sjaliinn Gcislagötu 14. sími 22970. Smiðjan Kaupvangsstræti 3. sími 21818. Uppinn Ráöhústorgi 9. sími 24199 VESTMANNAEYJAR: Bjössabar Bárustíg 11. slmi 12950. Hallarlundur Vestmannabraut 21. sími 12960. Muninn Vestmannabraut 28. sími 11422 Höfðinn/Við félagarnir Hoiöarvegi 1. sími 1 2577. Skútinn Kirkjuvegi 21. sími 11420. KEFLAVÍK: Edenborg Hafnargötu 30. sími 1 2000 K-17 Vesturbraut 17. sími 14999 Glóðin Hafnargötu 62. sími 1 1 777 Flughótelið Hafnargötu 57. sími I 5222 Ráin Hafnargata 19, sími 14601. Veitingahúsið við Bláa Lónið Svartsengi. sími 68283. SANDGERÐI: Veitingahúsið Vitinn, Hafnargötu 4. sími 37755 SUÐURLAND: Gjáin Austurvegi 2. Selfossi. sími 22555. Hótel Selfoss Eyravegi 2. Selfossi. sími 22500 Hótel Örk, Nóagrill Breiöumörk 1. Hverag.. s. 34700. Kam-Bar, Breiöamörk 2c, Hverag . s. 34988. Veitingahúsið við Brúarsporðinn Eyrarvegi 1 . Self.. sími 22899. VEITINGAHÚS - ÁN VÍNS Arnargrill Arnarbakka 2. simi 77540. Á næstu grösum Laugavegí 26. sími 28410. Bigga-bar - pizza Tryggvagötu 18. sími 28060. Blásteinn Hraunbæ 102. sími 673311 Bleiki pardusinn Hjallahrauni 13. simi 652525. Brauðstofan Gleymmérei Nóatúni 17. sími 15355. Chick King Suöurveri. Stigahlíö 45 47. s. 38890 Eikagrill Langholtsvegi 89. 39290. Eldsmiðjan Bragagötu 38 A. sími 14248 Fiskur og franskar Austurstræti 6, sími 626977. Gafl-inn Dalshrauni 1 3. sími 54424 Höfðakaffi Vagnhöfða 11. sími 686075. Ingólfsbrunnur Aöalstræti 9. sími 1 3620 Jón bakan Nýbýlavegi 14. sími 46614 Kentucky Fried Chicken Hjallahrauni 1 5. sími 50828. Lauga-ás Laugarásvegi 1. sími 31620. Lúxus kaffi Skipholtí 50b. sími 83410. Mokka-Expresso-Kaffi Skólavöröustíg 3a. sími 21174 Múlakaffi v/Hallarmúla. sími 37737. Nespizza, Austurströnd 8, Austurströnd 8. sími 61 2030. Norræna húsið Hringbraut. sími 21522. Næturgrillið heimscndingarþj . sími 77444. Óli prik Hamraborg 14. simi 40344. Pizzahúsið Öldugötu 29. sími 623833. Pizza snögg-sneið Skólavörðustíg 2. sími 1 3320 Pitan Skipholti 50 C. slmi 6881 50. Smáréttir Lækjargötu 2. sími 1 3480 Smiðjukaffi Smiöjuvegi 1 4d. sími 72177. Sprengisandur Bústaðavegi 1 53. sími 33679. Sundakaffi Sundahöfn. sími 36320. Tíu dropar Laugavegi 27. sími 1 9380. Toppurinn Bildshöfða 12. sími 672025. Vogakaffi Smiöjuvegi 50. sími 38533. Veitinga- og vöruhús Nings Suöurlandsbraut 6. sími 679899. Western Fried, Mosfellssveit v/Vesturlandsveg. sími 667373. Winny’s Laugavegi 116. sími 25171 AKUREYRI: Crown Chicken Skipagötu 12, sími 21464. Keflavík: Langbest, pizzustaður Hafnargötu 62, sími 14777

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.